Vísir - 24.10.1973, Síða 2
2
Vísir. Miövikudagur 24. október 1973.
visnism:
Teljiö þér, aö séö sé fyrir endann
á landhelgisdeilunni?
Svavar Gestsson, benzinaf-
grciöslumaður: — Ég hef frekar
litiö fylgzt með þessum málum,
en mér sýnist samt, að talsvert sé
enn eftir i land i deilunni. Þessir
samningar eru að visu bráða-
birgðasamningar, en ég held, að
þeir leiði i átt til lausnar.
Snorri Arnfinnsson, nemandi: —
Já, ég held, að þessi samnings-
drög leiði til lausnar. Það hlýtur
auðvitaö einhvern timann að ger-
ast, að endi verður bundinn á
deiluna. Mér finnst sem Is-
lendingar fari frekar hagstætt út
úr þessum samningum.
Guöriöur Agústsdóttir, nemandi:
— Já, mér virðist það eftir þess-
um samningsdrögum forsætis-
ráðherra að dæma. Þó finnst mér
tslendingar ekki fara nógu hag-
stætt út úr samningunum, eins og
þeir liggja fyrir.
ólafur Þór ólafsson, flutningabil-
stjóri: — Ég er hræddur um, að
eitthvað meira eigi eftir að ganga
á i þessari deilu. tslendingar
verða að fara betur út úr þessu,
og i raun og veru er algjör friðun
það eina, sem kemur til greina,
hún er svo nauðsynleg. Það er nú
ekki gott að segja, hvort Alþingi
samþykkir þessa samninga.
*
I
I
I
Guöbrandur Steinþórsson, verk-
fræöingur: — Ég get hreint ekk-
ert sagt, hvort séð sé fyrir endann
á deilunni. En mér finnst ekki
ástæöa til að vera ánægður með
þessi samningsdrög. Ég býst þó
frekar viö, að þau fari i gegnum
Alþingi.
Kristmundur Jakobsson, loft-
skeytamaður: — Já, ég tel miklar
likur til þess. Ég býst við, að
samningsdrögin verði samþykkt.
Eftir þvi sem útvegsmenn hafa
lýst yfir, þá virðast þessir samn-
ingar vera okkur betri kostur en
aö þetta strið haldi áfram.
— sex ungir
menn og Gunnar
Hannesson setja
upp Ijósmynda-
sýningu á
Kjarvalsstöðum
f nóvember
Nota baðkeríð til að skola
„Þetta eru mest allt sömu
aöilarnir og stóðu fyrir ljós-
myndasýningunni Ljós '71. Við
erum búnir að taka geysilegan
fjölda af myndum siðan og viljum
gjarnan leyfa fleirum aö njóta
þeirra”.
Þetta voru orð Pjeturs Þ.
Maack, sem ásamt fimm öðrum
ungum mönnum ætla að halda
ljósmyndasýningu i Kjarvals-
Hjetur Maack og Karl Jeppesen aö lfma upp eina af þeim 130 myndum,
sem piltarnir vcrða með á sýningunni. Karl er nýr maöur I félags-
skapnum, kom inn i stað ólafs Hákonarssonar. Ef myndirnar á sýning-
unni eru eins góöar og þessi, sem þeir eru aö lima upp, þá er góös að
vænta.
stöðum frá og með 1. nóvember.
,,Það verða eitthvað i kringum
130 svarthvitar myndir, sem við
félagarnir sýnum þarna. En svo
er Gunnar Hannesson ljósmynd-
ari einnig með sýningu um leið á
litskuggamyndum. Hann ætlar að
sýna i minni salnum á Kjarvals-
stöðum 400 litskuggamyndir i
fimm sýningarvélum. Og það er
öruggt, að marga fýsir að sjá
þessar stórkostlegu myndir hans
Gunnars”, sagði Pjetur ennfrem-
ur.
Visismenn heimsóttu þá félaga,
er þeir voru að stækka myndir um
helgina. Þeir hafa lagt heila ibúð
á Hverfisgötu 44 undir þetta starf
sitt.
„Gunnar Hannesson á reyndar
þessa ibúð. Hann hefur verið okk-
ur geysilega vinsamlegur og hef-
ur ódrepandi áhuga á þvi, sem við
erum aðgera, þótt það sé reyndar
i svarthvitu. En við vorum komn-
ir i mikla hönk með að stækka
þessar myndir. Við ætluðum að
hafa góðan fyrirvara á og pöntuð-
um sérstaklega stóran ljós-
myndapappir hjá fyrirtæki einu
hér i bæ. Þetta gerðum við fyrir
tæpu ári siðan. Við vorum aftur á
móti sviknir um þennan pappir,
svo við þurftum að leita annað.
Þá var bara svo liðið á timann, að
við höfum undanfarið lagt nótt við
dag við að stækka myndir Ibúðin
kemur sér þvi sérstaklega vel
undir þetta sull”, sagði Pjetur.
Og starfsemin þarna uppi á lofti
á Hverfisgötunni er ekkert smá i
sniðum. Stofan er lögð undir tvo
stækkara, sem standa uppi á pöll-
um smiðuðum úr mótatimbri.
Slikt er nauðsynlegt til að fá
myndirnar nógu stórar. Eldhúsið
er notað til að framkalla
myndirnar. Baðkarið gegnir svo
þvi hlutverki að skola þær.
Stærstu myndirnar eru um metri
á hvorn veg. Myndirnar eru úr
öllum áttum, allt frá einu litlu
blómi upp i klettagljúfur i Fær-
eyjum.
„Svo er nú stærsti draumurinn
aö fara með þessa sýningu til út-
Kjartan Kjartansson og Gunnar
Guðmundsson kófsvcittir við að
stækka myndir. Geysimikla ná-
kvæmni þarf viö þessa stækkun,
og ekkert má út af bregða. Þá er
nefnilega ljósmyndapappír fyrir
þúsund krónur fyrir bi.
Ljósmyndir: Bragi
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Kemur engum málið við?
J.S. skrifar:
„Það er hryllilegt til þess að
vita, að ekki skuli vera hér á
landi neitt eftirlit með þvi,
hvaða leikföng og leiktæki eru
seld i verzlunum. Dæmið um
barnið, sem missti framan af
fingri, er átakanlegt dæmi um
þetta sleifarlag. Og i framhaldi
af frétt Visis á laugardag segir i
FINT FRAMTAK
LÖGREGLUNNAR
Gúndi skrifar:
„Ég er virkilega ánægður
með það framtak, sem lögregl-
an i Reykjavik hefur sýnt til að
koma i veg fyrir hjólaslys.
Það er staðreynd, að þegar
skyggja tekur, þá verður sifellt
erfiðara fyrir bilstjóra að
greina vegfarendur út um bil-
rúðurnar. En þeir vegfarendur,
sem ferðast einna mest um
göturnar, eru einmitt hjól-
reiðarmenn. Til að tryggja
öryggi þeirra er það bráðnauð-
synlegt, að þeir séu með ljós á
hjólum sinum, eigi þeir ekki að
verða drepnir i umferðinni.
Þessi rassia, sem Reykja-
vikurlögreglan er að gera á ljós-
lausum hjólum, er til mikillar
fyrirmyndar og sýnir, að það er
ekki eingöngu hugsað um að
elta drukkna bilstjóra eða sekta
menn fyrir umferðarlagabrot.
Slysafyrirbyggjandi aðgerðir
sem þessar mættu gjarnan vera
hjá fleirum en hjólreiðarmönn-
um. Hvernig er það með alla
gangandi vegfarendurna, sem
enn ganga um dökkklæddir, án
allra endurskinsmerja.
Það fólk leggur sig i stórhættu
með þvi aö álpast út á um-
feröargötur. Bilstjóri, sem situr
inni i bil, kannski i rigningu og
með billjós annarra bila á móti,
getur ekki alltaf komið auga á
slika vegfarendur. Þvi segir ég:
Upp með endurskinsmerkin og
meiri áróður fyrir þeim. Er það
annars satt, að ennþá séu
endurskinsmerki seld?
Og hvað með aðra staði, eins
og Kópavog, Hafnarfjörð og
Akureyri, þar sem er mikil um-
ferð. Má búast við svipuðu
framtaki frá þeim til að forðast
slysin?”
Vfsi á mánudag, að ekki hafi
göngugrind þessi verið tekin úr
hillum búðarinnar, sem þær
seldi.
Mér finnst, enda þótt öryggis-
eftirlit rikisins' hafi ekki með
slik mál að gera, að lögreglu-
rannsókn ætti að fara fram. Eða
gerði lögreglan nokkrar ráð-
stafanir? Það er varla hægt að
una þvi, að svona nokkuð geti
gerzt átölulaust.
En varðandi leikföngin má
geta þess, að oft hafa komið i
umferð leikföng, sem hafa verið
stórhættuleg.
Alls konar byssur og tól, sem
reynzt hafa skaðleg, jafnvel
sprengiefni og táragas hefur
verið selt undir borðum, skilst
manni.
Auðvitað hefur göngugrindin
af þessari gerð verið flutt inn i
góðri trú, en mér finnst, að
verzlunin ætti þegar að hætta
sölu á þeim og reyna að afla sér
annarra og hættuminni. Og
verzlunareigandanum ber vita-
skuld að taka af skarið, úr þvi
enginn opinber aðili telur sér
málið skylt”.
Ólafur: „Já, ég vil
samþykkja þessar
tillðgur"
Morgunblaðið 20. okt. 73
Það þjóðarhneisa algjör er
og allan svertir stjórnarhaginn,
að ólafur er sjálfum sér
sammála eins og fyrri daginn.
Ben. Ax.
aananoil
Blaðað í
fjárlögum:
F"rumvarp til fjárlaga 1974 er
hin merkasta lesning. Þar kcm-
ur fram, hvað áætlað er til hinna
geysimörgu liða I rlkis-
rekstrinum. En það eru ekki
bara stóru tölurnar, heildarút-
gjöld og heildartekjur, sem eru
athyglisverðar.
Fjárveitinganefndin vegur og
metur hvað hver á aö fá. Siðan á
auðvitaö eftir að ræða það á
Alþingi, og eflaust verða þær
margar breytingarnar, sem þar
verða.
Viö tókum úr nokkra liði fjár-
lagafrum varpsins og segjum
frá, hvað áæltað sé að veita
miklu fé til ýmissa mála og
stofnana. Sumar þessara talna
er varla búizt við, að breytist
nokkuöi meðförum þingsins. En
aðrar breytast, og það eru þær
tölur, sem styrinn stendur um á
þingi næstu vikur.
Þjóðkirkjan kostar
okkur 143 milljónir
nœsta ór
Það er ekki annað hægt að
segja, en við tslendingar gerurn
vel við kirkjuna, þ.e.a.s. þjóö-
kirkjuna.
143 milljónum er áæltaö að
verja til hennar af skattafé næsta
árs. Er það i fullu samræmi við
það, sem verið hefur undanfarin
ár. Langstærsti útgjaldaliðurinn
eru auðvitað laun presta og
prófasta og annarra starfsmanna
kirkjunnar. Samtals fá þeirtæpar
hundrað milljónir i sinn hlut.
Afgangurinn fer svo til hinna
ýmsu útgjaldaliöa, svo sem til
viðhalds á kirkjum, bygginga á
prestsetrum (10 milljónir), til
æskulýðsstarfs, sumarbúða
o.s.frv. Yfirstjórn kirkjunnar
kostar svo 4,8 milljónir.
Prestar virðast ekki hyggja á
miklar' eða langar utanfarir
næsta sumar á vegum embætt-
anna, þvi til utanferða er aðeins
gert ráð fyrir 44 þúsund krónum.
— ÓH.