Vísir


Vísir - 24.10.1973, Qupperneq 2

Vísir - 24.10.1973, Qupperneq 2
2 Vísir. Miövikudagur 24. október 1973. visnism: Teljiö þér, aö séö sé fyrir endann á landhelgisdeilunni? Svavar Gestsson, benzinaf- grciöslumaður: — Ég hef frekar litiö fylgzt með þessum málum, en mér sýnist samt, að talsvert sé enn eftir i land i deilunni. Þessir samningar eru að visu bráða- birgðasamningar, en ég held, að þeir leiði i átt til lausnar. Snorri Arnfinnsson, nemandi: — Já, ég held, að þessi samnings- drög leiði til lausnar. Það hlýtur auðvitaö einhvern timann að ger- ast, að endi verður bundinn á deiluna. Mér finnst sem Is- lendingar fari frekar hagstætt út úr þessum samningum. Guöriöur Agústsdóttir, nemandi: — Já, mér virðist það eftir þess- um samningsdrögum forsætis- ráðherra að dæma. Þó finnst mér tslendingar ekki fara nógu hag- stætt út úr samningunum, eins og þeir liggja fyrir. ólafur Þór ólafsson, flutningabil- stjóri: — Ég er hræddur um, að eitthvað meira eigi eftir að ganga á i þessari deilu. tslendingar verða að fara betur út úr þessu, og i raun og veru er algjör friðun það eina, sem kemur til greina, hún er svo nauðsynleg. Það er nú ekki gott að segja, hvort Alþingi samþykkir þessa samninga. * I I I Guöbrandur Steinþórsson, verk- fræöingur: — Ég get hreint ekk- ert sagt, hvort séð sé fyrir endann á deilunni. En mér finnst ekki ástæöa til að vera ánægður með þessi samningsdrög. Ég býst þó frekar viö, að þau fari i gegnum Alþingi. Kristmundur Jakobsson, loft- skeytamaður: — Já, ég tel miklar likur til þess. Ég býst við, að samningsdrögin verði samþykkt. Eftir þvi sem útvegsmenn hafa lýst yfir, þá virðast þessir samn- ingar vera okkur betri kostur en aö þetta strið haldi áfram. — sex ungir menn og Gunnar Hannesson setja upp Ijósmynda- sýningu á Kjarvalsstöðum f nóvember Nota baðkeríð til að skola „Þetta eru mest allt sömu aöilarnir og stóðu fyrir ljós- myndasýningunni Ljós '71. Við erum búnir að taka geysilegan fjölda af myndum siðan og viljum gjarnan leyfa fleirum aö njóta þeirra”. Þetta voru orð Pjeturs Þ. Maack, sem ásamt fimm öðrum ungum mönnum ætla að halda ljósmyndasýningu i Kjarvals- Hjetur Maack og Karl Jeppesen aö lfma upp eina af þeim 130 myndum, sem piltarnir vcrða með á sýningunni. Karl er nýr maöur I félags- skapnum, kom inn i stað ólafs Hákonarssonar. Ef myndirnar á sýning- unni eru eins góöar og þessi, sem þeir eru aö lima upp, þá er góös að vænta. stöðum frá og með 1. nóvember. ,,Það verða eitthvað i kringum 130 svarthvitar myndir, sem við félagarnir sýnum þarna. En svo er Gunnar Hannesson ljósmynd- ari einnig með sýningu um leið á litskuggamyndum. Hann ætlar að sýna i minni salnum á Kjarvals- stöðum 400 litskuggamyndir i fimm sýningarvélum. Og það er öruggt, að marga fýsir að sjá þessar stórkostlegu myndir hans Gunnars”, sagði Pjetur ennfrem- ur. Visismenn heimsóttu þá félaga, er þeir voru að stækka myndir um helgina. Þeir hafa lagt heila ibúð á Hverfisgötu 44 undir þetta starf sitt. „Gunnar Hannesson á reyndar þessa ibúð. Hann hefur verið okk- ur geysilega vinsamlegur og hef- ur ódrepandi áhuga á þvi, sem við erum aðgera, þótt það sé reyndar i svarthvitu. En við vorum komn- ir i mikla hönk með að stækka þessar myndir. Við ætluðum að hafa góðan fyrirvara á og pöntuð- um sérstaklega stóran ljós- myndapappir hjá fyrirtæki einu hér i bæ. Þetta gerðum við fyrir tæpu ári siðan. Við vorum aftur á móti sviknir um þennan pappir, svo við þurftum að leita annað. Þá var bara svo liðið á timann, að við höfum undanfarið lagt nótt við dag við að stækka myndir Ibúðin kemur sér þvi sérstaklega vel undir þetta sull”, sagði Pjetur. Og starfsemin þarna uppi á lofti á Hverfisgötunni er ekkert smá i sniðum. Stofan er lögð undir tvo stækkara, sem standa uppi á pöll- um smiðuðum úr mótatimbri. Slikt er nauðsynlegt til að fá myndirnar nógu stórar. Eldhúsið er notað til að framkalla myndirnar. Baðkarið gegnir svo þvi hlutverki að skola þær. Stærstu myndirnar eru um metri á hvorn veg. Myndirnar eru úr öllum áttum, allt frá einu litlu blómi upp i klettagljúfur i Fær- eyjum. „Svo er nú stærsti draumurinn aö fara með þessa sýningu til út- Kjartan Kjartansson og Gunnar Guðmundsson kófsvcittir við að stækka myndir. Geysimikla ná- kvæmni þarf viö þessa stækkun, og ekkert má út af bregða. Þá er nefnilega ljósmyndapappír fyrir þúsund krónur fyrir bi. Ljósmyndir: Bragi LESENDUR HAFA ORÐIÐ Kemur engum málið við? J.S. skrifar: „Það er hryllilegt til þess að vita, að ekki skuli vera hér á landi neitt eftirlit með þvi, hvaða leikföng og leiktæki eru seld i verzlunum. Dæmið um barnið, sem missti framan af fingri, er átakanlegt dæmi um þetta sleifarlag. Og i framhaldi af frétt Visis á laugardag segir i FINT FRAMTAK LÖGREGLUNNAR Gúndi skrifar: „Ég er virkilega ánægður með það framtak, sem lögregl- an i Reykjavik hefur sýnt til að koma i veg fyrir hjólaslys. Það er staðreynd, að þegar skyggja tekur, þá verður sifellt erfiðara fyrir bilstjóra að greina vegfarendur út um bil- rúðurnar. En þeir vegfarendur, sem ferðast einna mest um göturnar, eru einmitt hjól- reiðarmenn. Til að tryggja öryggi þeirra er það bráðnauð- synlegt, að þeir séu með ljós á hjólum sinum, eigi þeir ekki að verða drepnir i umferðinni. Þessi rassia, sem Reykja- vikurlögreglan er að gera á ljós- lausum hjólum, er til mikillar fyrirmyndar og sýnir, að það er ekki eingöngu hugsað um að elta drukkna bilstjóra eða sekta menn fyrir umferðarlagabrot. Slysafyrirbyggjandi aðgerðir sem þessar mættu gjarnan vera hjá fleirum en hjólreiðarmönn- um. Hvernig er það með alla gangandi vegfarendurna, sem enn ganga um dökkklæddir, án allra endurskinsmerja. Það fólk leggur sig i stórhættu með þvi aö álpast út á um- feröargötur. Bilstjóri, sem situr inni i bil, kannski i rigningu og með billjós annarra bila á móti, getur ekki alltaf komið auga á slika vegfarendur. Þvi segir ég: Upp með endurskinsmerkin og meiri áróður fyrir þeim. Er það annars satt, að ennþá séu endurskinsmerki seld? Og hvað með aðra staði, eins og Kópavog, Hafnarfjörð og Akureyri, þar sem er mikil um- ferð. Má búast við svipuðu framtaki frá þeim til að forðast slysin?” Vfsi á mánudag, að ekki hafi göngugrind þessi verið tekin úr hillum búðarinnar, sem þær seldi. Mér finnst, enda þótt öryggis- eftirlit rikisins' hafi ekki með slik mál að gera, að lögreglu- rannsókn ætti að fara fram. Eða gerði lögreglan nokkrar ráð- stafanir? Það er varla hægt að una þvi, að svona nokkuð geti gerzt átölulaust. En varðandi leikföngin má geta þess, að oft hafa komið i umferð leikföng, sem hafa verið stórhættuleg. Alls konar byssur og tól, sem reynzt hafa skaðleg, jafnvel sprengiefni og táragas hefur verið selt undir borðum, skilst manni. Auðvitað hefur göngugrindin af þessari gerð verið flutt inn i góðri trú, en mér finnst, að verzlunin ætti þegar að hætta sölu á þeim og reyna að afla sér annarra og hættuminni. Og verzlunareigandanum ber vita- skuld að taka af skarið, úr þvi enginn opinber aðili telur sér málið skylt”. Ólafur: „Já, ég vil samþykkja þessar tillðgur" Morgunblaðið 20. okt. 73 Það þjóðarhneisa algjör er og allan svertir stjórnarhaginn, að ólafur er sjálfum sér sammála eins og fyrri daginn. Ben. Ax. aananoil Blaðað í fjárlögum: F"rumvarp til fjárlaga 1974 er hin merkasta lesning. Þar kcm- ur fram, hvað áætlað er til hinna geysimörgu liða I rlkis- rekstrinum. En það eru ekki bara stóru tölurnar, heildarút- gjöld og heildartekjur, sem eru athyglisverðar. Fjárveitinganefndin vegur og metur hvað hver á aö fá. Siðan á auðvitaö eftir að ræða það á Alþingi, og eflaust verða þær margar breytingarnar, sem þar verða. Viö tókum úr nokkra liði fjár- lagafrum varpsins og segjum frá, hvað áæltað sé að veita miklu fé til ýmissa mála og stofnana. Sumar þessara talna er varla búizt við, að breytist nokkuöi meðförum þingsins. En aðrar breytast, og það eru þær tölur, sem styrinn stendur um á þingi næstu vikur. Þjóðkirkjan kostar okkur 143 milljónir nœsta ór Það er ekki annað hægt að segja, en við tslendingar gerurn vel við kirkjuna, þ.e.a.s. þjóö- kirkjuna. 143 milljónum er áæltaö að verja til hennar af skattafé næsta árs. Er það i fullu samræmi við það, sem verið hefur undanfarin ár. Langstærsti útgjaldaliðurinn eru auðvitað laun presta og prófasta og annarra starfsmanna kirkjunnar. Samtals fá þeirtæpar hundrað milljónir i sinn hlut. Afgangurinn fer svo til hinna ýmsu útgjaldaliöa, svo sem til viðhalds á kirkjum, bygginga á prestsetrum (10 milljónir), til æskulýðsstarfs, sumarbúða o.s.frv. Yfirstjórn kirkjunnar kostar svo 4,8 milljónir. Prestar virðast ekki hyggja á miklar' eða langar utanfarir næsta sumar á vegum embætt- anna, þvi til utanferða er aðeins gert ráð fyrir 44 þúsund krónum. — ÓH.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.