Vísir - 24.10.1973, Page 5
Visir. Miövikudagur 24. október 1973.
5
AP/INITB ÚTLÖNDB MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNP Umsjón Guðmundur Pétursson
Nýtt vopnahlé í morgun
Nýtt vopnahlé tók
gildi i striði Araba og
ísraela i morgun kl. 5.
Yfirmaður ísraelshers
gaf herliðinu á bökkum
Súezskurðar fyrirmæli i
nótt um að hætta allri
skothrið.
Moslie Dayan,
varnannálaráðherra
ísraels, hitti kl. 5 i
m o r g u n y f i r m a n n
friðargæzlusveita Sam-
einuðu þjóðanna, Ensio
Siilasvuo, til þess að
ráðgast um staðsetningu
friðargæzlumanna með-
fram allri viglinunni.
I gær höfðu S.þ. kallað alla
friðargæzlumenn þar eystra til
starfa aftur á svæðinu, en þeir
höfðu verið kallaðir brott um leið
og ófriðurinn brauzt út fyrir 18
dögum. Að þessu sinni hefur
sprottið upp sú hugmynd, að setja
friðargæzluna niður mitt á milli
hinan striðandi aðila á viglinunni.
Það var Dayan, sem lagði til,
að vopnin yrðu látin þagna kl. 5.
Fulltrúi S.þ. skýrði honum frá þvi
kl. 3.45 i morgun, að honum hefði
borizt jákvætt svar frá Egyptum
við tillögu hans.
Sýrlandsstjórn samþykkti i gær
áskorun öryggisráðsins um
vopnahlé, og á fundi öryggis-
ráðinu i gær las Kurt Waldheim
upp simskeyti frá henni, þar sem
ísraelskur hermaöur notaö tækifæriö, meöan hlé verður á bardögum, til þess aö skrifa kort heiin. Skrif-
boröið er feröaútvarpstæki, sem hann hefur skreytt meö oröinu „peacc”, enska yfir „friöur”.
þetta var tilkynnt. Sýrland skilur
þó vopnahlésskilmálana á þann
veg, að israelskt herlið verði
alveg á brott af öllum land-
svæðum, sem hernúmin voru i
júni 1967 og siðan.
Irak sem sent hefur fleiri þús-
undir hermanna til Sýrlands i
ófriðnum, lýst þvi yfir, að það
telji sig ekki bundið af vopna-
hléinu. Hið sama hafa skæru-
liðasatök Palestinuaraba gert.
Jórdaia samþykkli vopnahléð
fyrir sitt leyti.
HRAPAÐI I SJOINN
EN FARÞEGARNIR
SYNTU ÞÁ í LAND
Brazilísk farþegaflugvél
meö 65 manns innanborös
hrapaöi í flóa nærri Sykur-
topp ekki langt frá Santos
Dumont flugvellinum. En
flestir farþeganna
björguöu sérá sundi í land.
Fimm létu lifið, og tveggja
farþega sakna.
Þessi tveggja túrbinuhreyfla
vél var á leið til Belo Horizonte,
en hafði sig ekki almennilega á
loft, þegar hún var komin flug-
brautina á enda.
Margir þeirra, sem komust i
land af eigin rammleik, löbbuðu
sig bara burtu, og voru yfirvöld
þvi i stökustu erfiðleikum með að
átta sig á þvi, hvort einhverra
farþega væri saknað.
Það var lán i óláninu, að l'lug-
vélin kom niöur á grunnu vatni
(aðeins nokkrar húslengdir frá
einu aðalhverfi Rio de Janeiro).
Nemendur i skóla flotans þutu til
hjálpar, og nær allir, sem þarna
voru nærstaddir, ösluðu út i fló-
ann til þess aö styðja fólk i land.
Siðan komu hraðbátar og árabát-
ar til aðstoðar. Tveir farþeganna,
Japani og Braziliumaöur,
drukknuðu, þegar þeim hug-
kvæmdist ekki að hafa með sér
sessurnar úr sætum sinum i flug-
vélinni, en þær flutu vel.
Tróði ekki að hann
fengi Nóbelslaunin
„Aldrei hélt ég það mögulegt,”
hrópaði prófessor Ernst Otto
Fischer, þegar hann heyröi i gær,
aö honum yröu úthlutað nóbels-
verölaununum i efnafræöi.
Þessi feitlagni, velgreiddi 54
ára gamli visindamaöur segist
alla tið hafa unnið aö grundvallar
rannsóknum, en aldrei á vegum
iðnaöarins.
„Annars er ég ihaldssamur og
þrjózkur. Enda þurfa visindin
fastan grundvöll,” sagði Fischer,
þegar blaðamenn hópuðust um
hann á skrifstofu hans i Tæknihá-
skólanum i Munchen. Hann hafði
fengið viðvörun frá Sviþjóð fyrr i
gær. en lagði engan trúnað á, að
hann mundi fá nóbelsverðlaunin.
Ekki kvaðst hann finna stóran
mun á sér eftir heiðurinn. — „Þið
trúið þvi liklega tæpast. en starf
mitt er mér skemmtun,” sagði
hann og kvaðst hann mest þakk-
látur þvi að hafa alltaf getað
starfað við háskóla.
Nóvelsverðlaunin i efnafræði
munu hins vegar skiptast milli
þriggja manna, eftir þvi sem
kunngert var i gær.
Þeir eru þrir: Japaninn Leo
Esaki. Bandarikjamaðurinn Ivar
Giaver og Bretinn Brian Joseph-
sen.
hyorogen ctooo
COMA
*.-■-NUCLtUS
TAIL
NYJA HALASTJARNAN
Kohoutek er hún kölluft, þessi halastjarna, sem stundum er líka
nefnd ,,aldarinnar”. Með hverjum deginum, sem liöur, veröur hún
skýrari og stærri i stjörnusjónaukum manna og er nú komin meö
töluveröan hala, sem þó er eins og gruggugur. Nafn sitt dregur hún
af Japananum, sem fyrstur kom auga á hana. Skýrast á hún aö sjást
um jólin.
Börðust af heift í nótt
Israelsmenn segjast hafa náð Súez-bœ og umkringt einn armegypzkahersins
Skömmu áöur en hið nýja
vopnahlé gekk i gildi í
morgun, var þvi lýst yfir i
Tel Aviv i nótt, aö ísraelskt
herliö heföi náö til bæjarins
Suez og umkringt þriöja
egypzka hersins
arm
Harðir bardagar höfðu geisað á
Sinai-vígstöðvunum í alla nótt, og
höfðu Egyptar haldið uppi stór-
skotahrið á stöðvar lsraels-
manna. — Samtimis hafði floti
tsraelsmanna gert árás á sýr-
lenzka bæinn Banias og sprengdi
þar upp oliu- og eldsneytisbirgðir.
Einnig voru israelskar sveitir
sagðar komnar að hafnarbænum
Adabiya sunnan við Súez. Höfðu
þær náð á sitt vald vegunum, sem
liggja til Kairó og Súez.
Kissinger
œtlar samt
að þiggja
sín Nóbels-
verðlaun
llenry Kissinger utanrikisráð-
lierra hefur ekki snúi/.t hugur uni
Iriöarverölaun Nóbels. Ilann ætl-
ar eftir sem áöur aö l'ara, þegar
stundin rennur upp. (il Osló aö
þiggja verölaunin, sagöi tals-
niaöur utanrikisráöuneytisins i
gær.
Þá hafði frétzt að mótherji
Kissingers úr Vietnam-samn-
ingaviðræðunum, Le Duc Tho,
hefði senl lörmanni Nóbelsnefnd-
arinnar bréf um, að hann mundi
ekki laka við sinum helmingi
verðlaunanna.
1 bréfinu mun Tho hal'a sagt, að
hann gæti ekki þegið friðarverð-
launin, meöan ekki væri enn kom-
inn á friöur i Vietnam, „vegna
endurtekinna vopnahlésbrota
Bandrikjanna og stjórnar S-Viet-
nams", eins og hann orðaði það.
Nixon
í sjón-
varpi
Itichard Nixon Itandarikjafor-
seti inun aö likindum l'lytja i
kviild ra’öu i útvarpi og sjónvarpi
til þess aö gera grein I vrir afstööu
siimi i uiáliuu uni segulspólurnar
og til þess aö endurheimta eitt-
livaö af sinu l'yrra trausti.
Að margra áliti ákvað hann að
láta Sirica dómara hal'a segul-
spólurnar með hljóðritunum af
samlölum hans við undirmenn
sina um Watergatemálið, vegna
þess að hann óttaðist, að þingið
mundi að öðrum kosti búa mál
sókn á hendur honum. Skoð-
anakönnun leiddi i Ijós, að 75%
bandarisku þjóðarinnar virtist
hala glalaö trausti sinu á honum.
Tyrkir
brœða
saman
stjórn
Itikisstjórn Naini Talus, for-
sætisráöherra i Tyrklandi, sagöi
af sér i gær, cftir aö niöurstööur
þingkosninganna (14. okt.) lágu
fyrir.
Fahri Koruturk mun að öllum
likindum taka við forystu hins
lýðræðislega alþýðuflokks,
Bulent Ecevit, við myndun nýrr-
ar ríkisstjórnar. Flokkur hans
vann 185 þingsæti af 450. Eeevit
verður að leita samstarfs við aðra
um myndun stjórnar, þar sem
flokkurinn hefur ekki einn nægi-
legan meirihluta.
Hinn ihaldssami Réttarflokkur
lýsti þvi yl'ir i gær, að hann mundi
ekki gefa kost á sér til stjórnar-
samstarfs. Hægri sinnaði þjóðar-
flokkurinn, sem hefur 48 þing-
menn, hefur látið á sér skilja, að
hann muni gefa kost á samstarfi i
annaðhvort hægri sinnaðri rikis-
stjórn eða með Ecevit-flokknum