Vísir - 27.10.1973, Síða 4

Vísir - 27.10.1973, Síða 4
4 Vísir. Laugardagur 27. október 1973 Auglýsing um umferð í Hafnahreppi í Gullbringusýslu Hér meö er ákveðið, að frá og með 1. nóv. 1973 nýtur um- ferö um Hafnaveg að nýju forgangsréttar fyrir umferð um Stapafellsveg, þar sem vegir þessir skerast i Hafna- hreppi. Meö auglýsingu þessari eru úr gildi felld ákvæði auglýs- ingar um umferð i Hafnahreppi frá 8. júni, 1972. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli. Sýslumaðurinn 1 Gullbringu- og Kjósarsýslu 17. okt. 1973. Einar Ingimundarson. Piltar — Stúlkur Vantar duglega aðstoðarmanneskju hálfan daginn eftir hádegi á skóladag- heimili i Heiðargerði. Ágætt fyrir skóla- fólk. Nánari uppl. i simum 33805 og 72984. Rösk stúlka óskast við afgreiðslu annað hvert kvöld frá kl. 6-12.30. Uppl. á staðnum, Laugavegi 86, milli kl. 4 og 6. Sendill óskast 2 klst. á dag, eftir hádegi. Ekki yngri en 14 ára. Upplýsingar á skrifstofunni. Raunvisindastofnun Háskólans, Dunhaga 3. Nauðungaruppboð sem auglýst var f 14., 16. og 17. tbl. Lögbirtingablaös 1973 á hluta IGarðsenda 9, þingl. eign Snjáfriðar M. Arnadóttur fer fram eftir kröfu Kjartans R. ólafssonar hrl. o. fl. á eigninni sjálfri, miðvikudag 31. október 1973 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var f 35., 38. og 41. tölublaöi Lögbirtinga- blaðsins 1973 á eigninni Hraunkambi 5, Hafnarfirði, neðri hæð, talin eign Ilafsteins Guömundssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu Hafnarfjarðarbæjar, Iðnaðarbanka Is- lands h/f og Ara tsberg hdl, á eigninni sjálfri þriðju- daginn 30. október 1973 kl. 4.15 e.h. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var f 75., 77. og 78. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1972 á eigninni Faxatúni 25, Garðahreppi, þing- lesin eign Magnúsar Jónssonar, fer fram eftir kröfu Veð- deildar Landsbanka tslands, Barða Friörikssonar hrl., sveitarsjóös Garöahrepps, Einars Viðar hrl. og Sveins H. Valdimarssonar hrl.,á eigninni sjálfri miövikudaginn 31. október 1973 kl. 1.45 e.h. Syslumaöurinn I Gullbringu- og Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var f 47., 49. og 51. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1972 á eigninni Markarflöt 47, Garðahreppi, þing- lesin eign Helga Þ. Jónssonar, fer fram eftir kröfu sveitarsjóðs Garðahrepps, Jóns Arasonar hdl. og Iðnaðarbanka tslands h /f á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 31. október 1973 kl. 2.30 e.h. Sýslumaðurinn i Gullbringu- og Kjósarsýslu. Hlustað á „leikrit" Ragnheiðar: Er fölsun hugsanleg? Brynjólfur Sveinsson Skál- holtsbiskup, Ragnheiður dóttir hans, Daði Halldórsson prestur, Valgerður veizlukerling, madd- ama Helga Magnúsdóttir i Bræðratungu, skólameistarinn i Skálholti og margar fleiri löngu liðnar persónur — þetta er hlut- verkaskráin i þvi langa miðils- tali.sem blaðamaður Vísis fékk nasaþef af á heimili Stefáns Eirikssonar á Akureyri á fimmtudaginn var. Það er vist frægt orðið, að Guðrún Sigurðardóttir, miðill á Akureyri, hefur bunað upp úr sér miklu leikriti á segulbönd, og samanstendur allt það efni af samtölum og viðburðum, sem eiga að hafa átt sér stað i Skálholti i tið Ragnheiðar, Brynjólfs og Daða. Upp úr segulbandstalinu hef- ur nú verið skrifuð bók i tveimur bindum, og kemur það fyrra út i næstu viku. Stefán Eiriksson, kaupmaður nyrðra, skrifaði bókina, og hann leyfði undirrit- uðum að hlusta á stöku kafla, valda af handahófi af nokkrum hinna mörgu segulbandsspóla. Engar spurningar — ekkert má birta af böndunum Stefán tók það strax fram, að hann vildi ekki, að stafkrókur yrði hafður eftir dána fólkinu, sem af spólunum talaði. Hann neitaði lika að svara frekari spurningum varðandi vinnu- brögð eða efni bókar sinnar. Reyndar hefur Stefán þegar svarað ýmsu þvi, sem Visir hef- ur spurt hann um, en hann seg- ist vera hvekktur orðinn á blaðaskrifunum og vill nú ekk- ert segja — ekkert opinberlega, og ætlar að biða útkomu bókar- innar. ,,En”, segir Stefán, ,,þá er mönnum frjálst að spyrja á grundvelli þess, sem þeir hafa lesið i bókinni. Af lesmáli henn- ar hljóta menn að draga ýmsar ályktanir, fá skoðanir og spurningar vakna”. Undirrituðum blaðamanni er það ekki launung, að hann er vantrúaður á, að dánir tali gegnum lifandi manneskju, sem hefur „andlega hæfileika”, eins og það er orðað. Og satt að segja fer þvi fjarri, að sannfæring sé nú til staðar, þótt „leikritið” á segulböndun- um sé langt, nákvæmt, eflaust sögulega rétt með allt farið og flutningur miðilsins sérkenni- legur. Það er ekki rétt, að miðillinn tali með röddum þeirra, sem koma „gegnum” hana. Miðill- inn breytir raddhljómi sinum Stefán Eiríksson. eftir þvi hver talar. Brynj- ölfur biskup er t.d. mjög ábúðarmikill. Hann hvessir mjög röddina (miðillinn), þegar hann talar við heimilisfólk sitt i Skálholti, er einna likastur ólafi Jóhannessyni i útvarpi. Rómur Ragnheiðar er hins vegar blið- ur, hár, mjór og geðþekkur, og orðavalið einkar vandað og sett- legt. Valgerður veizlukerling er mæðuleg mjög, samt sem áður uppfull af dramatik, furðu höföingjadjörf, þegar hún ræðir viö biskupinn, (skammar hann raunar og átelur fyrir fram- komu i garð dóttur hans, Ragn- heiðar, og henni var á einum stað, sem blaðamaðurinn fékk aö hlýða á hana, tiðrætt um elli sina og lasleika, minnti soldið á Grasa-Guddu). Nákvæmni — lang- dregni Eins og fram hefur komið, þá samanstendur tal miðilsins af mörgum senum, atburðir eru tengdir saman með rödd sögu- mannsins. Þegar miðillinn túlk- ar sögumanninn, skólameistar- ann i Skálholti, talar hún blátt áfram og með óbreyttri rödd sinni. Rétt eins og framhalds- leikrit i hljóðvarpi. Þessi samantengdu atriði eru fjölmörg og viðburðir næsta litl- ir, hins vegar eru dagsetningar, veðurfar, og jafnvel húsaskip- an, vandlega tiunduð — og hlýt- ur sá þáttur upptökunnar að gleðja sagnfræðinga. Er fölsun möguleg? Er hugsanlegt, að miðillinn buni öllum þessum löngu, fjálgu og mærðarfullu samræðum upp úr sér? Getur það verið, að hún læri hlutverkin utan að fyrir fram, og tali siðan i belg og biðu inn á bandið. Það er erfitt að imynda sér það. Og það hlýtur að viður- kennast, að það hljóta að vera merkilegir hlutir, sem fram fara i höfði miðilsins, Guðrúnar Sigurðardóttur. Stefán Eiriksson benti á, að þeir sem afneituðu þvi, að framliðnir töluðu þannig gegn- um miðilinn, þeir sem trúðu að um fals af hans hálfu og fleiri, væri að ræða, þeir yrðu nú að færa rök að skoðunum sinum. Ég tek undir það—en þá vakna hinar alvarlegu spurningar, sem Stefán svarar ekki — og getur sennilega ekki svarað, frekar en aðrir lifandi menn, þótt hann hafi sinar skoðanir og sterku sannfæringu: Til hvers er Ragnheiður og það fólk að koma nú fram á sjónarsvið lif- andi Islendinga með sin löngu liðnu og flestum gleymdu einka- mál? Er hún að friðþægja fyrir meinsærið? Ef svo er, hvernig getur hún öðlazt lausn frá sálar- kvölum sinum með þvi að hella þeim út yfir landslýð anno 1973? Kemur hún opinberlega fram I bók vegna þess að hún vill koma hreinskilnislega fram gagnvart söguskilningi og vitund islenzkrar þjóðar? Hvað kemur henni þá við sú þjóð, sem lifir hér nú? Eru ekki liðin 310 ár? Ef þetta eru framliðnir — hverjir þá? Þannig má vist spyrja i það endalausa — og einhver spyr: Ef þetta er framliðið fólk, loft- andar, hvernig getur miðillinn og aðrir vitað, hvort það er „rétta” fólkið, sem talar i'gegn- um hann? Getur ekki verið, að glettnir draugar séu að gera grin? En svona má vist ekki tala. Ekki hér á Islandi, þar sem spiritisminn á sér svo marga áhangendur, áhangendur sem tala ekki um andatrú sina i létt- um tóni. Stefán Eiriksson segir að segulbandsupptaka hans sé einsdæmi i veröldinni. Hann segir, að hún sé sönnunargagn — að nú sé varla hægt að efast lengur um tilvist annarra tilveruplana. Og eitt er vist, nú er ástæða til rannsókna. — GG. mmmmmmmmmmmmmmá CKKIISMOLA I BRCZKA TOGARA — norskir verka menn studdu íslendinga Verkamenn I fiskiðnaði i Tromsö i Noregi hafa neitað að skipa út is i enska togara, að þvi er dagblaðið „Bladet Tromsö” skýrði frá i frétt þann 6. október s.l. Þetta bann gegn þeim brezku á að vera i gildi þar til Bretar hafa viðurkennt 50 milna land- heigi Islands með þvi að veiða ekki innan hennar, segir blað- ið. Hingað til hafa einir þrir aðil- ar i Tromsö selt brezkum is. Haldinn var allsherjarfundur i verkamannafélagi i Tromsö, þar sem samþykkt var að lýsa yfir stuðningi við baráttu Is- lendinga, baráttu smárikis gegn stórveldi, sem skirrist ekki við að nota herskip til að ná fram vilja sinum, segir norska blaðið. Benda verkamennirnir i Tromsö á, að vel geti svo farið, að Norðmenn lendi i sömu að- stöðu og íslendingar þann dag, sem Norðmenn færa út sina landhelgi. Þess vegna, segir blaðið, er barátta íslendinga einnig okkar barátta. Þess vegna styðjum við baráttu Is- lendinga fyrir tilveru sinni — og sem stuðningsvott, neita verka- mennirnir að skipa is út i brezka togara. Mottó okkar skal vera: Ekki ismola i brezkan togara fyrr en Islendingar hafa sigraö i striði sinu! — GG

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.