Vísir - 27.10.1973, Síða 7
Visir. Laugardagur 27. október 1973
7
Borðaðu fyrir framan spegil!
Þú þarft ekki að
reikna út hitaeiningar i
hverri matartegund,
sem þú kemst i tæri
við. Þú þarft ekki að
fylgja neinum sérstök-
um megrunarkúr. Hins
vegar færðu tækifæri til
þess að reyna örlitið á
sjálfan þig, og þér er
gefinn kostur á að fá
fallegri likama og ef til
vill betri heilsu.
Ameriski læknirinn og
sálfræðingurinn Frank
J. Bruno, hefur unnið
að nýrri aðferð til
megrunar, sem hann
hefur reynt á sjálfum
sér. Hún gafst honum
vel.
Hvað getur þetta verið? Jú,
hér er um að ræða mörg smá-
atriði, sem hver og einn verður
aö gera sjálfur. öll miða þau að
þvi, að viðkomandi læri smátt
og smátt að standast freisting-
ar. Margir hverjir veigra sér
við að fara í megrun vegna
hinna mörgu reglna, sem fara
verður eftir.
Oft innihalda þeir megrunar-
kúrar, sem upp eru gefnir,
ákaflega dýrar fæðutegundir,
og matreiðsla þeirra er oft flók-
in og timafrek. Það gerir það
lika að verkum, að sumt fólk,
vill sem minnst vita af kúrun-
um.
Sálfræðilegar æfingar.
Ef maður vill hætta slæmum
ávana, þá er ágætt að verða sér
þess vel meðvitandi, hver
ávaninn er. Tökum sem dæmi
stúlku, sem vinnur við vélritun.
Hún skrifar gjarnan ,,go” i
staðinn fyrir ,,og”. Bruno
leggur til, að sú stúlka skrifi
sömu vitleysuna, ,,go”, aftur og
aftur.
Hún á að æfa hana i fimm
minútur þrisvar sinnum á dag i
eina viku. A eftir finnur hún, að
það er næstum ómögulegt að
gera vitleysuna ómeðvitað. Hún
er orðin sér svo vel meðvitandi
um vitleysuna, að hún gerir
hana ekki lengur.
Nokkurn veginn þaö sama
gildir um yfirvigtina.
Borðaðu fyrir framan
spegil
Gerðu æfinguna á meðan þú
ert eirí eða einn. Spegilinn set-
urðuupp á matarboröið, þannig
að þú sjáir þig vel. Borðaðu
matinn fyrir framan spegilinn,
og gerðu nákvæmlega eins og
venjulega.
Horfðu siöan á þig, meðan þú
boröar. Taktu eftir öllum smá-
atriðum. Borðarðu með munn-
inn mikið opinn eða litið opinn?
Tekurðu stóra eöa litla bita?
Hvernig eru kinnar þinar á
meðan þú borðar? Hvernig er
undirhakan? Þú getur átt það á
hættu, að þú hættir við mál-
tiðina ef þú gerir þetta einu
sinni.
Eftirfarandi eru orð nokkurra
sjúklinga, sem Bruno hefur haft
með að gera:
,,Ég sá margfalda undirhöku
mina i speglinum og hvernig ég
leit út, þegar ég tuggði. Mér
varð illt, og ég hætti við máltið-
ina.”
,,Ég tók mjög stóra bita, ég
skóflaði hreinlega i mig matn-
um. Ég byrjaði að boröa hægar
og setja minni bita upp i mig.
Satt að segja varð mér ákaflega
illa við, þegar ég sá sjálfa mig i
speglinum. En eftir að ég borð-
aði hægar, varð ég miklu fyrr
södd.”
Þú þarft ekki að reikna út kaloríur í
fœðutegundum.
Þú þarft ekki að fara eftir neinum
sérstökum reglum.
Hér eru aðeins nokkur súlfrœðileg
atriði sem geta vanið þig af slœmum
matarvenjum!
Blundaðu— og borðaðu
Æfingin gengur út á það að
láta þig finna, hvernig maturinn
er og hvernig hann smakkast.
Og aö sýna, að það er útlit hans,
sem lokkar mest, ekki sjálft
bragðið.
Lokaðu augunum, þegar þú
byrjar að boröa, það er sama
hvað þaö er. Borðaðu alla mál-
tiöina með lokuð augu. Reyndu
að taka vel eftir öllu, meðan á
þessu stendur, og skrifaðu siðan
niður á eftir, hvað þú hugsaðir.
Einn skrifaði: ,,Ég borðaði
súkkulaðibuff með kexbotni. Ég
sá ekki litinn, en ég fann, að
buffiö var lint og dálitið klistr-
að. Kexið festist 1 tönnunum. A
eftir var beiskt bragð i munnin-
um á mér, og ég veit ekki, hvort
mér hefði fundizt þetta gott, ef
ég heföi aldrei séð súkkulaðibuff
áður.”
Borðaðu tvisvar
sinnum hægar og not-
aðu klukkuna.
Taktu timann einhverju sinni
og sjáðu, hvað þú ert yfirleitt
lengi að borða eina máltiö.
Reyndu siðan að breyta til og
notaðu tvisvar sinnum lengri
tima til þess að borða. Þú
verður miklu fyrr mettari, og þú
finnur betur, hvaða bragð er
raunverulega að matnum, sem
þú ert að borða.
Eitt af mestu vandamálunum
eru aukabitarnir á milli mála.
Hér er æfing, sem ætti að geta
hjálpað eitthvað til.
í næsta skipti, sem þig langar
til að borða eitthvað á milli
mála, svo sem súkkulaðibita
eða annað, taktu þá fram klukk-
una og hugsaöu með þér, að þú
biðir i 5 minútur með að byrja
að borða. Þú getur jafnvel látið
klukkuna hringja.
Smátt og smátt geturðu lengt
þennan tima. Þú hefur lært að
biða i 5 minútur, og áður en var-
ir geturðu beöið i 10, 15, 30
minúturog jafnvel miklu lengur
eftir að fá eitthvaö að borða.
Hugsaðu um allt það,
sem þú getur gert við
eina tertu.
Nú færðu tækifæri til þess að
lita á matinn til einhvers annars
en að borða hann. Settu tertu,
sem þig langar I bita af, fyrir
framan þig. Það er einnig nauð-
synlegt að geta litiö þannig á
fæðuna, að hún sé til einhvers
annars nýt en að borða hana.
Horfðu nú á tertuna, hugsaðu
um hana, en boröaöu hana ekki.
Notaðu hugmyndaflugið til þess
að sjá út, hvaö hægt væri að
gera annað viö tertuna en borða
hana. Siðan ákveður þú það
sjálf eða sjálfur, hvort þig lang-
ar til þess að borða hana að
þessu loknu.
Þvingaðu þig ekki til þess að
standast freistinguna, en vittu,
hvort löngunin hefur ekki
minnkað mikið.
Bakaðu köku og gefðu
hana
Bakaðu uppáhaldstertuna
þina og vandaðu hana sem bezt
þú getur. Gefðu siðan vini þin-
um eða nágranna tertuna. Það
er mikilvægt, að þú horfir á
tertuna, finnir góða lyktina af
henni og kunnir að meta hana,
án þess að borða hana. Og ekki
hugsa á þá leið, að þú getir feng-
ið þér aðeins „agnarlitinn bita”
og siöan geturðu gefið hana. Þá
hefurðu tapað. Meiningin er, að
þú'Tátir hana heila frá þér.
Horfðu þig mettan.
Gerðu æfinguna, þegar þú ert
einn eða ein. Taktu einhverja
fæðutegund, sem þér þykir
reglulega góð, hvort sem það er
sælgæti eða annað. Leggðu það
siöan á fat og settu klukku fyrir
framan þig.
Við getum sagt, að þetta sé
súkkulaðimoli, og nú skaltu
horfa á hann i 5 minútur. Það
skiptir ekki svo miklu máli,
hvort þú borðar hann eða ekki
aö 5 min. liðnum. Það. sem
skiptir höfuðmáli, er tilfinning-
in, sem kemur til með aö gripa
þig. Það, sem gerist meö
þennan súkkulaðibita, er það,
að freistingin hverfur. Ef til vill
tekst þetta ekki i fyrsta sinn,
sem þú gerir æfinguna, en
reyndu aftur.
Ef æfingarnar enda alltaf á
sömu leið, þ.e. að þú borðar allt-
af súkkulaðibitann að liðnum
fimm minútum, máttu aldeilis
taka þig á.
Reyndu þessar æfingar, og
reyndu að venja þig af slæmum
matarvenjum!
— EA
Sálfrœði-
legar
œfingar
Kíildu I 5 miniitur, úður en þú
hyrjar aft borfta
llorfftu ú þig i spcgli, mcftan þú
horftar og alhuguftu, hvaft þú
scrft!
I.okaftu augunum, meftan þú
borftar eina máltíft og finndu,
hvernig hún smakkast.
Kakaftu tertu og gefftu hana, —
án þess aft bragfta á henni!