Vísir - 14.11.1973, Síða 7

Vísir - 14.11.1973, Síða 7
Visir. Miðvikudagur 14. nóvember 197S. 7 cTVlenningarmál „Tœkifœrissinninn" í Háskólabíói Að týna sjálfum sér Clerici hcimsækir föður siim ú geðsjúkraluisið. Frúbærleg vel tekið atriði með stilfærðri, bvitri leikmynd. (íefið er i skyn, að faðirinn sé ekki eins geðveikurog liann lætur, en hann flýr á náðir sjúkdómsins og lætur binda spennitreyjuna á sig, þegar sonurinn keniur til hans. ,,Tækifærissinninn" Leikstjóri: Bernardo Bertoluccis. Aöalhlutv.: Jean Louis Triningnant, Steffania Sandrelli og Pierre Clementi. Það er óneitanlega ánægjulegt, að íslenzkum kvikmyndahúsagestum skuli gefast kostur að sjá einhverja eldri mynda Bertoluccis, áöur en hans heimsfrægi Tangó birtist hér á hvita tjaldinu. ,,Tækifærissinninn" er að flestu leyti miklu betri mynd að minum dómi, enda þótt hún fái tæpast nema litið brot af þeirri athygli, sem „Síðasti tangó i París" hlýtur. Einkenni Bertolucci eru mjög skýr i þessari mynd. Mynda- takan, leikurinn, sviðsmyndin og klippingarnar eru mjög vönduð og hugmyndarik, en a'tið er eins og höfundurinn nálgist myndina úr fjarlægð. Persónurnar, sem vissulega gefa tilefni til tilfinningalegrar þátttöku Irá áhorfendum, koma manni ekki mikið við i þessari mynd. t>ess i slað tekur maður afstöðu án þess að tilfinningaleg spenna, samúð eða andúð komi við sögu. Moravia skrifaði skáldsögu sina „II conformista” árið 1951 , þar sem segir frá Marcello Clerici, tækifærissinanum starfi hans á ttaliu Mussolinis með fasistum, æsku og reynslu. t bakskotum sjáum við atburði úr ævi hans, sem varpa ljósi á gerðir hans siðar. Bertolucci sýnir okkur ómeðvitaðar fyrirmyndir Clericis á meira eða minna stil- færðan hátt. Hann hefur full- komið vald á þeim stil, sem hann hefur valið sér, og öll efnismeðferðin er hlutlaus og stilhrein. Pólitisk meðvitund höfundar er þó allan timann vel vakandi, og má nefna atriðið þar sem Clerici heimsækir unnustu sina, (Giulia), þar sem stéttarskiptingin er undir- strikuð i fáeinum skotum af þjónustustúlkunni. Þessi mynd er kannski ekki skemmtimynd i þeim vanalega skilningi, en þeir sem vilja sjá vandaða, þaulhugsaða og vel tekna mynd um efni, er alla varðar, ættu að leggja leið sina i Háskólabió, áður en það verður of seint. Það má segja að myndin sýni okkur ljóslega hvernig langvarandi afstöðu- leysi sem auðvitað er afstaðan út af fyrir sig sljóvgar sjálfs- vitund einstaklingsins, þar til hann stendur uppi eins og rekald, heyrir hvergi til, — búinn að týna sjálfum sér. En segja mætti mér, að þessar fimmtaflokks hörmungar frá Hong Kong, sem sýnt var úr og ku verá væntanlega i bióið, hljóti fleiri áhorfendur en þessi mynd Bertoluccis. —ÞS EINS OG FORÐAZT SÉ AÐ VEKJA ATHYGLI... AUSTUKBÆJAKBÍÓ: „McCabe & Mrs. Miller” Leikstjóri: Kobert Altman. Aðalhlutv.: Warren Betty og Julie Christie. Kannski ég hafi gert mér of miklar vonir i sambandi við myndina um McCabe, en hvað sem það nú er, þá varð ég fyrir talsverðum vonbrigðum með myndina. Að visu ber myndin yfirbragð snilldarverks, en staðreyndin er sú, að það er furðu litið i hana spunnið, þegar á allt er litið. Það er eins og leikstjórinn varist það alla myndina i gegn að ná athygli áhorfandans. Það er einhver værð yfir öllum sköpuðum hlutum, myndin langdregin á köflum, og stundum finnst manni jafnvel endurtekningar eiga sér stað. Leonard Cohen hefur samið ljóð og lög, sem hann flytur af viðurkenndri snilld. Lögin eru hvert öðru fallegra og falla vel að myndinni. En það er oft eins og manni finnist myndin gerð við hin faliegu lög þjóðlaga- söngvarans, en ekki öfugt. Kannski það hefði farið betur á þvi, að Robert Feldman hefði valið sér einhverja rómantiska og hugljúfa sögu til viðureignar i stað sögu Edmunds Naughton „McCábe”, eins og hann virðist hafa verið stemmdur meðan á myndatökunni stóð. Warren Betty og Julie Christie eru nokkuð góð i hlut- verkum sinum, en geta að sjálf- sögðu ekki rofið þá værð, sem yfir leikstjórninni er. Sagan segir frá pókerspilara, John McCabe, sem vill verða sjálfstæður atvinnurekandi. Hann kaupir þrjár mellur og lætur byggja hóruhús i litlum námabæ, sem ernorðvestan til i Bandarikjunum (myndin er tekin i Kanada). Skömmu siðar kemur annar hópur kvenna til bæjarins. Þar er komin frú Constance Miller, sem rekið hefur vændishús i Seattle, en vill koma undir sig fótunum þarna á útkjálkanum. Eftir talsvert mas taka þau saman höndum um vændið, McCabe og frú Miller, auk þess sem eitthvert tvirætt ástar- samband næst þeirra á millum. Loks þegar allt er farið að ganga harla vel, vilja námu- eigendurnir kaupa eignir McCabe. Hann ætlar að vera snjall og prútta. Þeir eru ekki tilbúnir til að prútta. Kunna þeir annað og betra ráð til að fá sinum vilja framgengt — og senda þrjá leigumorðingja á staðinn. Einföld saga, sem á að gerast i harðbýlum landshluta og vera fyrr er sagt, þessi saga fær ekki átakamikil, bæöi á andlega og rétta meðhöndlun........... veraldlega sviðinu. En, eins og —ÞJM McCabc (Warren Bctty) býður frú Miller (Julie Christie) velkomna lil námaþorpsins... STORKOSTLEG KVÍKMYND TÓNABIÓ: „Leyndarmál Santa Vittoria” Leikstjóri: Stanley Kramer. Aðalhlutv.: Anthony Quinn og Anna Magnani. Það tók Stanley Kramer tvö ár að búa sig undir töku myndarinnar „The Secret of Santa Vittoria” — og árangurinn er nýtt snilldarverk, sem svo sannarlega má skipa á bekk með myndum eins og „Zorba”. Myndin er i alla staði frábærlega uiinin, en það sem liæst ber er að sjálfsögðu leikur Anthony Quinn. Myndin er gerð eftir samnefndri sögu Robert Chichtons og gerist i litilli borg á Norður-Italiu, Santa Vittoria. Borgarbúar eiga allt sitt undir vinframleiðslunni, og þvi bregður þeim illa, þegar þær fréttir berast, að þýzkt hernámslið sé á leiðinni þangað að gera vinbirgðirnar upptækar, rúmlega eina milljón flaskna. Nú reynir á hinn nýkjörna borgarstjóra, Bombolini (Anthony Quinn), sem er fylli- raftur og almennt ekki tekinn of alvariega. Sjálfur hefur Bombóiini gert sér harla litlar vonir um að geta áunnið sér traust og virðingu samborgara sinna, en þegar hinir raunverulega erfiðleikar steðja að, stappar hann f sig stálinu og leggur sig allan fram um að bjarga hinni dýrmætu vinframleiðslu undan Þjóð- verjum. Eftir miklar vangaveltur er ákveðið að fela megniö af vin- flöskunum i fornrómverskum berggöngum skammt fyrir utan borgina. Og það stendur ekki á framkvæmdum. Allir borgar- búar taka þátt i hinum miklu flutningum — og flöskurnar eru handlangaðar úr vin- geymslunum til bergganganna i tugþúsundatali. Það stenzt á endum, að múrað hefur verið fyrir flygsnið i þann mund, er Þjóðverjarnir renna i hlað. Þeir þykjast hafa órækar sannanir fyrir þvi, að vin- birgðirnar eigi að vera meiri en þær reynast vera, og til aö knýja fram sannleikann um felu- staðinn beita þeir öllum tiltækum ráðum. Og mest mæðirá Bombolini, sem þarf að beita allri sinni lagni til að blekkja hinn unga höfuðsmann, von Prum. Til að gera langt mál stutt: „The Secret of Santa Vittoria” er tvimælalaust bezta myndin, sem Tónabió hefur tekið til sýningaá þessu ári. Leikur, leikstjórn, handrit, tónlist, saga, klipping og myndataka, ailt er þetta óaðfinnanlegt. Og enn eitt, sem geta má sér- staklega: Anna Magnani fer snilldarlega með hlutverk frú Bombolini, þess mikla kven- skörungs, sem fyrirlitur sinn sifulla eiginmann — og fer ekki dult með. —ÞJM Ekki vex álit Kósu á manni sinum, Bombolini, þrátt fyrir aö hann hefur verið gerður að borgarstjóra. Morguninn cftir útnefninguna fær hann flest eldhúsáhöld konu sinnar i hausinn........

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.