Vísir - 07.02.1974, Blaðsíða 8
Gunnsteinn Skúlason, fyrirliöi Vals, var aöaldriffjööur liösins I gæi kvöldi. Hér skorar hann af lfnu. A myndinni eru frá vinstri Bergur
Guönason, Agúst ögmundsson, Siguröur Jóakimsson, Gunnar Kjartansson, dómari, og Höröur Sigmarsson. Ljósmynó Bjarnleitur.
Valsmenn sýndu rétta
andlitið lokakaflann!
— Skoruðu fimm síðustu mörkin í leiknum við Hauka í gœrkvöldi og sigruðu
með 18—13. Lengi beðið eftir dómurum og óhorfendur hlupu í skarðið
islandsmeistarar Vals
tóku á honum stóra sínum
— svona rétt áöur en þeir
kveöja titilinn að þessu
sinni- siöustu fimm mínút-
urnar gegn Hafnarfjarð-
ar—Haukum í 1. deildinni i
gærkvöldi. Breyttu stöö-
unni úr 13-13 í 18-13 sigur
lokakaflann. Sýndu þá sitt
rétta andlit/ þó svo
björgunaraðgerðirnar
hæfust meö afar ströngu
víti/ sem dæmt var á
Hauka og Bergur Guðna-
son skoraði úr. Síðan komu
Valsmörkin á færibandi og
Haukum tókst því ekki að
vinna Valsmenm en með
því — eða jafntefli — hefðu
þeir fært „vinum sinum" i
FH islandsmeistaratitil-
inn. FH-ingar verða því að
bíða enn um stund eftir
krýningunni!
Þeir dómarar, sem dæma áttu
leikinn, Ingvar Viktorsson og
Eysteinn Guðmundsson, mættu af
einhverjum ástæðum ekki til
leiksins. Þegar beðið hafði verið
eftir þeim i stundarfjórðung tóku
tveir úr hópi áhorfenda, Kristján
Þór og Gunnar Kjartansson, að
sér dómarastörfin. Þessi dráttur
varð til þess, að sjónvarpið hætti
við að sýna leik Fram og Þórs,
sem fyrirhugað hafði verið að
sýna i gærkvöldi. En mikið eru
þessi mistök dæmigerð um margt
i framkvæmd þessa fslandsmóts
— þvimiður. ÞeirKristján örn og
Gunnar dæmdu ekki vel og voru
meira en litið andstæðir Haukum.
Eða eins og einn leikmaöur Vals
sagði eftir leikinn. Haukar geta
ekki bæði sigraö Val og dómar-
ana!!
Þó er ekki rétt að segja, að
dómararnir hafi beinlinis fært
Valsmönnum sigur i leiknum —
en þeir stuöluðu talsvert að hon-
um. Valsmenn gátu vissulega
betur og þrjú misnotuð vitaköst
Vals settu lika strik i reikninginn.
Valur fékk niu vitaköst — Haukar
aðeins tvö.
Stefán Gunnarsson skoraði tvö
fyrstu mörkin fyrir Val, og það
liðu 7 min. þar til Haukar skor-
uðu, Stefán Jónsson. Hörður Sig-
marsson komst þó þrivegis inn úr
hægra horninu, en Ólafur Guð-
jónsson, sem stóð i marki Vals
allan timann, varði skot Haröar
— einnig hið fjórða, en siðan fór
Hörður að finna leiðina i markið.
Varð markhæstur i leiknum með
sjö mörk — sum þeirra stórfalleg.
Hermann skoraði 3ja mark
Vals úr viti á 8.min. — en Stefán
annaö mark Vals, þegar rúmlega
tvær minútur voru af leik. Eftir
mark Hermanns hljóp einkenni-
leg stöðnun i leik Valsmanna —
þeir skoruðu ekki mark i 17
minútur og áttu raunverulega
ekki skot á mark af viti frá þvi
Stefán skoraði annað markið, þar
til Hermann skoraði hið fjórða
fallega á 25. min. Ekki skot af viti
i 23 min. þegar frá er talið viti
Hermanns. Hvernig má slikt eiga
sér stað? — Nú, Haukar höfðu
Munið frímerkjasöfnun Geðverndar
stimpluð, óstimpluð, gömul
kort og heil umslög innl. &
erlendra ábyrgðarbréfa.
Pósthólf 1308 eða skrifst. fél.
Hafnarstr. 5.
jafnað á 12. min. i 3-3 og komust
siðan yfir 6-3 og skoraöi Hörður
þá þrjú mörk i röð. Loks á 25. min
skoraði Hermann fyrir Val og
Stefán Gunnarsson rétt á eftir.
Staðan i hálfleik var 6-5 fyrir
Hauka — svo ekki voru nú mörkin
mörg.
Haukar misstu tvo leikmenn út
af snemma i siðari hálfleik — Sig-
urð og Hörð — og einnig voru
dæmd á þá þrjú viti. Hermann
misnotaði hið fyrsta — siðan
skoraði Gisli tvivegis úr vitum.
Valsmenn fóru að siga á og Berg-
ur jafnaði i 8-8 eftir 10 min. Þrátt
fyrir annað misnotað viti — Gisli
— komst Valur framúr, 13-10,
þegar átta min. voru eftir. Þá
virtist sigur liðsins öruggur. En
Haukum tókst að jafna i 13-13 og
þá varði Gunnar Einarsson, sem
átti góðan leik i Haukamarkinu,
viti frá Gisla. Fimm min. eftir.
Enn fengu Valsmenn viti — Berg-
ur skoraði, Ólafur H. Jónsson
fylgdi eftir með marki, Bergur
aftur úr viti, 16-13 og sigurinn var
Vals. Ólafur og Stefán Gunnars-
son skoruðu svo tvö siðustu mörk
leiksins. Einkennilegt var að sjá
hinn trausta leikmann Hauka,
Stefán Jónsson, utan vallar loka-
kaflann.
Mörk Vals skoruðu Stefán 4,
Bergur 4 (2 viti), Gisli 3 (2 viti),
Ólafur 2, Hermann 2 (1 viti) og
Agúst 2. Fyrir Hauka skoruðu
Hörður7 (2 viti), Stefán 2, Ólafur,
Sigurður, Arnór og Sigurgeir
Marteinsson eitt hver.
Leikmenn þurftu hvaö eftir annað aö ná I knöttinn fram á gang — hér
kemur Hermann meö knöttinn eftir eina slika ferö.
Ljósmynd Bjarnieifur.
Axel og Björgvin
skoruðu 11 hvor!
Þaö var raunverulega
eini spenningurinn í sam-
bandi viö leik Fram og
Þórs í 1. deildinni í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi
hvaö Axel Axelsson, Fram,
skoraöi mörg mörk. Sigur
virtist alltaf í húsi hjá
Reykjavíkurmeisturum
Fram, þó svo leikur þeirra
í heild væri með lakasta
móti. Nema Björgvins
Björgvinssonar og Axels —
þeir stóöu vel fyrir sínu og
skoruöu ellefu mörk hvor í
leiknum — og voru nokkur
mörk Björgvins sérlega
glæsileg. Þá er vert að geta
þess, aö Guðjón Erlends-
son átti stórgóðan leik í
marki Fram meðan hann
var heill. Axel er nú
kominn meö 84 mörk í mót-
inu — stefnir vel yfir 100
marka markið!!!
Orslit i leiknum urðu 27-20 fyrir
Fram, svo miklu munaði. En
Þórsarar misnotuðu fimm vita-
köst i leiknum og slikt gengur
ekki ef einhver von á að vera i
sigur. Þessi mistök kostuðu þó
ekki stig — þeim tókst einu sinni
Unglingamót
í badminton
Opið unglingamót i badminton
verður haldið i KR-húsinu 16.
febrúar og hefst kl. 13.00. Keppt
verður i einliðaleik sem hér segir.
Flokkur drengja 14-16 ára. Flokk-
ur sveina 12-14 ára. Flokkar pilta
og meyja, 12 ára og yngri. Leikið
verður með plastboltum. Þátt-
taka tilkynnist Reyni Þorsteins-
syni i sima 38177 eða 82398.
Fram — og báðir sendu þeir
knöttinn ellefu sinnum i mark.
Axel þar af fimm sinnum úr vita-
köstum. Þá skoraði Ingólfur
Óskarsson tvö mörk — annað úr
viti, þegar Axel var utan vallar
vegna brottreksturs. Þeir Arnar
Guðlaugsson, Hannes Leifsson,
og Stefán Þórðarson skoruðu eitt
mark hver. Þó vantaði ekki
tilraunirnar hjá Stefáni — en
hann var heldur óheppinn i leikn-
um ofan á klaufaskapinn. Furðu-
legt hvað þessi annars góði
leikmaður hefur dalað i siðustu
leikjum Fram-liðsins.
Fyrir Þór skoraði Sigtryggur 9
mörk, þar af aðeins eitt úr vita-
kasti. Þorbjörn Jensson skoraði
sex mörk — Benedikt tvö og Arni
Gunnarsson tvö — annað vita-
kast. Þeir Björn Kristjánsson og
Óli Olsen dæmdu leikinn.
Víðavongshlaup
í Kópavogi
Viðavangshlaup fyrir börn og
unglinga verður i Kópavogi á
sunnudaginn og hefst kl. 2 við
iþróttahús Kópavogsskóla. Keppt
verður i fjórum aldursflokkum.
Fyrirhuguð eru þrjú hlaup i vetur
og fyrir beztan sarnanlagðan
árangur verður veittur bikar i
hverjum flokki.
að minnka muninn i siðari hálf-
leik niður i þrjú mörk. En það var
aðeins þegar þjálfari Fram,
Sigurður Einarsson, áleit sigur-
inn alveg öruggan, og setti alla
varamenn liðsins inn á. Nei, Þór
átti aldrei von istig ogekkert ann-
að en önnur deildin blasir við lið-
inu. Það er einföld staðreynd —
Þórsliðið er þvi miður ekki 1.
deildarlið, sém hægt er að nefna
með þvi nafni. Aðeins Sigtryggur
Guðlaugsiátti góðan leik i liðinu
að þessu.sinni, en einkennilegt
hvað þessi leikmaður, sem var
svo öruggur i vitaköstum framan
af mótinu, hefur brugðist á þvi
sviöi i tveimur siðustu leikjunum.
Þessar broshýru stúikur voru i
verölaunasætunum i stórsviginu
i heimsmeistarakeppninni i
alpagreinum, sem nú stendur
yfir i St. Moritz I Sviss. Frá
vinstri er Traudl Treichl, Vest-
ur-Þýzkalandi, sem varö i ööru
sæti, þá franski heimsmeistar-
inn, hin 17 ára Gabiennc Serrat,
sem vann fyrstu gullverölaunin
á þessu 23. heimsmeistaramóti.
Lengst til hægri er Jacqucline
Rouvicr, Frakklandi, sem hlaut
þriðja sætið. Vcöurútlit i St.
Moritz var slæmt i gær og var i
fyrstu rætt um aö fresta þeim
greinum, sem eiga aö fara fram
i dag — en seint i gærkvöldi kom
tilkynning um, að rcynt yröi aö
halda áætlun á mótinu, en fyrir-
hugaö er, aö þvi Ijúki um helg-
ina.
Þá átti Þorbjörn Jensson þokka-
legan leik — en linu- og horna-
menn liðsins voru nokkuð frá sinu
bezta.
Axel skoraði tvö fyrslu mörk
leiksins fyrir Fram en Benedikt
Guðmundsson skoraði fyrsta
mark Þórs eftir að Aðalsteinn
Sigurgeirsson hafði misnotað viti.
4-3 stóð fyrir Fram eftir 9 min. og
þá hafði Sigtryggur misnotað viti.
En siðan komu fimm Fram-mörk
i röð — staðan varð 9-3 og úrslit þá
raunverulega ráðin. Fimm
marka munur var i leikhléinu, 12-
7 fyrir Reykjavikurmeistarana.
Framan af siðari hálfleiknum
réðu Framarar ferðinni og bilið
breikkaði stöðugt. Eftir rúmar 10
min. var Fram með átta marka
forskot, 18-10, og stórsigur blasti
við. En þá fór Fram-liðið að
slappa af, jafnframt þvi, sem
varamennirnir komu inn á. Akur-
eyringar fóru aðeins að minnka
muninn og þegar tæpar tiu minút-
ur voru til leiksloka var munurinn
ekki nema þrjú mörk, 20-17 fyrir
Fram. Raunverulega einnig
spenningur þó — Framarar gátu
hvenær sem var bætt við sig. Þeir
gerðu það lika — skoruðu næstu
þrjú mörk, 23-17, þegar sex
minútur voru eftir. Enn hélt
markaregnið áfram — mörkin
hlóðust upp lokakaflann og úrslit-
in 27-20 eins og áður segir.
Þeir Björgvin og Axel voru nær
einráöir i markaskoruninni hjá
Akureyringar
fó danskan
þjólfara
Allar likur eru á þvi, að Iþrótta-
bandalag Akureyrar fái danskan.
þjálfara til sin á næstunni og mun
hann þjálfa 1. deildar leikmenn
IBA i vor og sumar. Þessi danski
þjálfari, sem um ræðir heitir Tom
Jackson, og var áður nokkuð
kunnur leikmaður hjá
Kaupmannahafnarliðinu B1903.
Iþróttabandalagið hefur nú
leitað nokkuð viða eftir þjálfara
og virðist nú vera að rætast úr
málunum. Henning Enoksen,
sem þjálfaði Islenzka landsliðið i
sumar, hefur gefið Tom Jackson
mjög góð meðmæli. Þá má geta
þess, að IBA var einnig I sam-
bandi við þýzkan þjálfara — en
þaö mun eins og áður segir,
sennilega veröa úr, að Tom
Jackson kemur. Jóhannes Atla-
son, sem þjálfaði Akureyringa i
fyrrasumah, jafnframt þvi sem
hann lék með liði þeirra, verður
þjálfari hjá sinu gamla félagi,
Fram I sumar — en leikur senni-
lega ekki með liðinu.
.
. «P »5»
Ólafur Sverrisson, Þór, er aö reyna markskot, en arraur, sennilega
Áxels, hindrar hann, auk þess, sem Ingólfur reynir sitt.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Norwich heldur
ennþó í vonina!
Þcir Phil Boyer, Borunemouth,
og Martin Chivers, Tottenham,
voru I fréttunum á Englandi i
gær. Boyer var seldur til Norwich
fyrir 140 þúsund pund, sem sýnir,
aö Norwich heldur' enn i vonina
um að haida sæti sinu i 1. deild og
stóri Martin skoraöi sina fyrstu
þrcnnu fyrir Tottenham frá þvi
félagiö kcvpti hann frá
Southampton fyrir nokkrum ár-
um. Fyrsta „hat-trick” miöherja
Englands með iiði sinu.
Billy Bonds, framkvaímdastjóri
Norwich, sem til skarnms tima
var hjá Bournemouth hefur nú
sameinað aftur þá leikmenn, sem
um tima gerðu Bournemoth að
góðu liði — þá Phil Boyer og Ted
MacDougall. Þann siðarnefnda
keypti Norwich frá West Ham, en
Ted hafði áður leikið um tima
með Manch. Utd með litlum
árangri. Þeir Phil og Ted skoruðu
milli sin 113 mörk i 78 leikjum
fyrir Bournemouth, og það var
yfirleitt Phil, sem lagði þá upp
fyrir markakónginn Ted. En
hvort þessir leikmenn bjarga
Norwich er önnur saga — það er
talsverður munur á l.og3. deild.
Tottenham sigraði Birming-
ham 4-2 i gærkvöldi fyrir minnsta
áhorfendafjölda á White Hart
Lane lengri, rúmlega 14 þúsund.
Chivers lék þar aðalhlutverkiö.
Skoraði strax I byrjun leiksins —
en Mike England sendi knöttinn i
eigið mark i f..h. og staðan i
leikhléi var 1-1. I siðari hálfleikn-
um skoraði Chivers fljótlega tvö
mörk, en Pendrey minnkaði
muninn i 3-2. Siðasta markið
skoraði nýliðinn Dillon fyrir
Tottenham.
Einn annar leikur var háður i 1.
deild i gærkvöldi. Manch. City
sigraði Derby með 1-0. Enski
landsliðsmaðurinn Colin Bell
skoraði. Tveimur leikjum var
frestað vegna vatnsflaums á
völlum Chelsea og Stoke. Burnley
átti að leika gegn Chelsea —
Manch. Utd. gegn Stoke.
— þegar Fram sigraði Þór í 1. deildinni í handboltanum
í gœrkvöldi með 27—20 og enn sitja Akureyringar nœr
vonlausir á botni deildarinnar
Þeir nálgast
markametið
- 100 mörkin!
Tveir leikir voru háðir i 1. deild
tslandsmótsins í handbolta í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Úr-
slit urðu þessi.
Valur-Haukar 18-13
Fram-Þór 27-20
Á mánudag var leikið á Akureyri.
Urslit:
Þór-Vikingur 27-30
Staðan er nú þannig:
FH 10 10 0 0 239-167 20
Valur 11 6 2 3 216-197 14
Fram 11 5 3 3 228-210 13
Víkingur 11 5 2 4 244-239 12
Haukar 10 2 4 4 181-200 8
Ármann 10 2 3 5 147-161 7
1R n 2 3 6 213-236 7
Þór 10 1 1 8 181-239 3
Markahæstu leikmenn eru nú
þessir:
Axel Axelsson, Fram 84/35
Einar Magnússon/ Víking, 79/41
Viðar Símonarson, FH 70/11
Gunnar Einarsson, FH, 66/17
Höröur Sigmarsson, Haukum, 62/19
Ágúst Svavarsson, IR 57/1
Sigtryggur Guðlaugs ., Þór, 53/25
Guðjón Magnússon, Víking, 49
Vilhj. Sigurgeirsson, IR 49/27
Gisli Blöndal, Val, 48/17
Björgvin Björgvinss., Fram, 45
Stefán Jónsson, Haukum, 39/4
Þorbjörn Jensson, Þór, 38
Vilberg Sigtryggsson, Árm. 36/9
Hermann Gunnarsson, Val, 32/13
Gunnl. Hjálmarsson, ÍR 31/1
ólafur H. Jónsson, Val, 31
Hörður Kristinsson, Árm. 30/12
Stefán Þórðarson, Fram, 29
ólafur ólafsson, Haukum, 28/16
Þórarinn Ragnarsson, FH, 27/3
Aðalst. Sigurgeirsson, Þór, 26/6
Árni Gunnarsson, Þór, 26/1
Bergur Guðnason, Val, 23/11
Gunnst. Skúlason, Val, 23
Guðjón Marteinsson, ÍR 22
Jón Ástvaldsson, Ármanni, 22
Páll Björgvinsson, Viking, 21
Ágúst ögmundsson, Val, 20
Ásgeir Eliasson, IR 19
Benedikt Guðmundsson, Þór, 19
Björn Jóhannesson, Árm. 19
Ingólfur óskarsson, Fram, 19/1
Ólafur Einarsson, FH, 19
Stefán Halldórsson Viking, 19
Auðunn óskarsson, FH, 18
Skarphéðinn óskarsson, Vík. 18
Jón Sigurösson, Viking, 17
Ólafur Sverrisson, Þór, 17
ólafur Friðriksson, Viking, 15
Stefán Gunnarsson, Val, 15
Arnór Guðmundss., Haukum, 14
Jón Karlsson, Val, 14/1
Guðm. Haraldsson, Haukum, 13
Ragnar Jónsson, Ármanni, 12
Þórarinn Tyrfingsson, IR 12
örn Sigurðsson, FH, 12
Arnar Guðlaugsson, Fram, 11
Olfert Naby, Ármanni, 11
Sigurb. Sigsteinsson, Fram, 11
Birgir Björnsson, FH 10
Pálmi Pálmason, Fram, 10
Sig. Jóakimsson, Haukum, 10
Þorsteinn Ingólfss., Árm. 10/1
Næstu leikir i deildinni verða i
Hafnarfirði nk. sunnudag. Þá leika
fyrst kl. 8.15, FH og Vikingur, en
síðan leika Haukar og Fram