Vísir - 07.02.1974, Blaðsíða 16
VÍSIR
Fimmtudagur 7. febrúar 1974.
Haukur Helga
son ráðinn
ritstjórnar-
fulltrúi Vísis
Haukur Helgason, hag-
fræðingur og viðskipta-
fræðingur, hefur tekið við
stöðu ritstjórnarfulitrúa við
dagblaðið Visi. Haukur hefur
starfað við ritstjórn dag-
blaðsins Visis undanfarin 5
úr.
Haukur er sonur hjónanna
séra Helga Svcinssonar og
Katrinar Magneu Guð-
mundsdóttur. Iiann er 37 ára
gamall og kvæntur Nanci
Helgason.
Eltinqorleikur
við
sprúttsala:
Yfir
steina og
eyjar milli kant-
upp ó gangstéttir
Eftir langan eltingar-
leik í gærkvöldi handtók
lögreglan sprúttsala, sem
er leigubílstjóri.
óeinkennisklæddir lög-
regluþjónar höfðu fylgt
leigubilstjóranum eftir á
ómerktum bíl. Hann ók út
á Seltjarnarnes og fór
þar inn í kofaræksni.
Þaðan kom hann út eftir
stutta stund og hélt
áfram förinni.
1 Vesturbænum virtist hann
verða var við eftirförina. Hann
jók þá hraðann og fór hinar
furðulegustu léiðir til að hrista
af sér þá sem eltu hann. Lög-
regluþjónarnir juku einnig ferð-
ina og fylgdu þétt á eftir. Yfir
umferðareyjar, milli kantsteina
og jafnvel upp á gangstéttir
barst eltingarleikurinn. A fullri
ferð eftir Bræðraborgarstignum
kom hönd bilstjórans á leigu-
bilnum út um gluggann. Hélt
hann á séneverflösku og hellti
innihaldinu úr henni. Siðan
kastaði hann flöskunni.
Stuttu seinna stoppaði hann
og var færður inn i fanga-
geymslur lögreglunnar.
Hann taldi sig ekki hafa ekið
neitt óvenjulega og kannaðist
ekki við neina séneverflösku.
Flaskan fannst á Bræðra-
borgarstignum, litið brotin en
tóm. Verður þvi hægt að taka
fingraför af henni.
Má vera að minni bilstjórans
hressist er liður á daginn i dag.
—ÓH
Hvernig stendur á þvi,
að bill, sem ekki má aka
á islenzkum vegum
vegna þyngdar, er flutt-
ur um vegina á öðrum
bil, þannig að þyngslin
verða ennþá meiri?
Flutningafyrirtækið GG fór i
gær með einn af hinum stóru 30
tonna trukkum.sem eiga að vinna
uppi i Sigöldu.þangað. Hann var
settur upp á tengivagn.
„Þessir bilar eru einöxla, og
heildarþunginn á hvern öxul er
allt of mikill fyrir vegina okkar.
Þeir myndu ekki þola hann”,
sagði Adolf Petersen vegaeftir-
litsmaður, er Visir lagði ofan-
skráða spurningu fyrir hann.
„Tengivagninn er hinsvegar
margöxla, og heildarþunginn
jafnast svo mikið út, að vegirnir
þola þá þungann”, sagði hann.
Bilstjóri flutningabilsins gizk-
aði á, að meðalhraðinn upp i Sig-
öldu yrði um 25 til 30 km á klukku-
stund. Vonandi man hann eftir að
taka með sér nesti.
— ÓH/Ljósm. VIsis: ÓH.
frétta í Vísi
Björn Bjarnason lög-
fræðingur tekur siðar i þess-
um mánuði við stöðu frétta-
stjóra erlendra frétta við
dagblaðið Visi. Björn hefur
að undanförnu verið útgáfu-
stjóri Almenna bókafélags-
ins.
Björn er sonur hjónanna
Bjarna Benediktssonar,
fyrrum forsætisráðherra, og
Sigriðar Björnsdóttur. Hann
er 29 ára gamali og kvæntur
Rut Ingólfsdóttur, fiðiuleik-
ara.
Björn Bjarna-
son frétta-
stjóri
erlendra
VANTAR MANNSKAP I FISKINN
ástandið lakara en í fyrra, en þó hefur nokkuð rœtzt úr frá því sem horfði í haust
Skortur hefur verið á
mannskap á linu- og netabáta
viða á landinu. Bátasjómenn vilja
fremur vinna á stórum bátum eða
skuttogurum, og þegar loðnuver-
tið hófst, var biðlisti hjá L.l.C.
eftir plássum á loðnuskip.
i desember var útlit fyrir tals-
vcrt alvarlegt ástand á vetrar-
vertið, en nokkkð virðist hafa
rætzt úr, að þvi er Haukur Helga-
son i sjávarútvegsráðuneytinu
taldi.
Haukur cr formaður nefndar
þeirrar, sem vinnur að þvi að
kanna mannaflaþörf sjávarút-
vegsins.
„Astandiðer heldur lakara en i
fyrra,” taldi Haukur.en hann tók
fram, að nefndinni hefði gengið
erfiðlegar en álitið var i fyrstu að
afla upplýsinga frá hinum ýmsu
stöðum á landinu.
„Það virðist nú vera nægur
mannskapur við fiskvinnslu og
loðnuvinnslu hér i Reykjavik,”
sagði Haukur, „það hefur rætzt
nokkuð úr ástandinu frá þvi sem
var fyrir jól.”
Þótt illa hafi horft i haust með
útvegun mannskaps til linu- og
netaveiði, þá virðist ástandið eitt-
hvað hafa lagazt. Eitthvað af
Færcyingum hefur komið til að-
stoðar, en þó ekki nærri þvi i þeim
mæli, sem var hér fyrr á árum.
Nú er ekki lengur tiðkað að
auglýsa sérstaklega fyrir
Færeyingum vinnu, heldur koma
hingað upp Færeyingar, sem svo
hafa gert árum saman og eiga
visa vinnu hjá ákveðnum út-
gerðarfyrirtækjum.
Visismenn hittu að máli einn
Færeyinganna við komuna til
Reykjavikur á sunnudaginn.
„Við komum hingað i von um
betri laun en heima,” sagði Hans
Petersen, sem oft hefur komið
hingað áður og unnið til sjós og
lands. Kvað hann þetta aðailega
ógift fólk, mest karlmenn, sem
færu á bátana og eins i vinnslu
aflans i landi. Sjálfur kvaðst
Peteráen vera á förum beint
vestur i ólafsvik til starfa. -GG.
ff
Óskaplega skemmtileg skák
— snarpar vidureignir að Kjarvalsstöðum
í gœrkvöldi — Friðrik, Freysteinn,
Bronstein, Ögaard og Velimirovic unnu
Stemmningin var góð að
Kjarvalsstöðum í gær-
kvöldi. Einkum voru menn
kátir undir lokin, þegar
spádómar manna um úrslit
tóku að rætast.
Velimirovic vann Júlíus
í //óskaplega skemmtilegri
fórnarskák", sagði sér-
fræðingur Vísis.
„Hann fórnaði hrók og riddara
og mátaði hann svo i 29. leik —
Július gafst upp einum leik fyrir
mátið, en það er óvenjulegt að sjá
mát á skákmótum”.
Og það voru fleiri i ham en Veli-
mirovic. Bronstein vann Ingvar
Asmundsson. Reyndar ekki eins
„flott” og Velimirovic Július,
„þvi þetta var allt i járnum til að
byrja með, en siðan braut hann
Ingvar niður hægt og sigandi.
Þetta var laglega gert hjá Bron-
stein”.
ögaard vann Benóný, og virðist
sérfræðingum að nokkurrar
þreytu sé farið að gæta hjá
Benóný. Ekki er nema vika siðan
hann vann sterkt Reykjavikur-
mót og maðurinn er lika kominn
af bezta aldri skákmanna.
Benóný er 56 ára.
Friðrik vann Jón Kristinsson
og það var nokkuð snoturlega
gert hjá Friðrik — hann er
greinilega að komast i gamal-
kunnan ham”, sagði sérfræðingur
vor, „þvi Friðrik vann Jón i að-
eins 29 leikjum, sem er óvenju-
legt, ef við miðum við þessa hefð-
bundnu 40 leiki, sem ætlazt er til
að menn tefli á fimm timum”.
Trinkov og Forintos gerðu jafn-
tefli —. „Þeir þekkjast þessir út-
lendingar, hafa oft teflt saman á
mótum — það má kannski kalla
þetta góðgerðarjafntefli. Trinkov
hafði ekki fengið vinning fyrr en
nú”.
Skákin, sem margur hafði beðið
eftir, skák Guðmundar Sigurjóns-
sonar og Kristjáns Guðmunds-
sonar fór i bið, og er útilokað að
spá nokkru um úrslitin.
Freysteinn vann svo Ciocaltea
hinn rúmenska. Smyslov á
biðskák gegn Magnúsi Sólmund-
arsyni, „og stórkostlegt að sjá,
hve langt fram i timann Smyslov
sér — en þáð er ekki hægt að sjá
hvað verður úr skák þeirra
Magnúsar. Það er langt i land, og
það þótt Smyslov hafi fórnað
skiptamun.
1 kvöld verður fjórða umferð
tefld. Þá teflir Guðmundur við
Július, Bronstein við Velimirovic
— og búast menn við snarpri
viðureign þar, Ciocaltea teflir viö
Ingvar, Benóný við Freystein,
Smyslov við ögaard, Friðrik við
Magnús, Forintos við Jón og
Kristján við Trinkov.
Friðrik og Forintos eru með 2
1/2 vinning ásamt Bronstein.
Smyslov er með 2 v. og biðskák og
Velimirovic hefur 2 vinninga.
— GG.
Borgarlœknir segir
starfi sínu lausu
— hefur gegnt embœttinu frá 1948
„Abyrgðin i starfinu er farin að
þreyta mig, og mér finnst timi til
kominn að hætta þegar svo er”,
sagði Jón Sigurðsson, borgar-
læknir, þegar Visir ræddi við
hann I morgun, en hann hefur nú
sagt starfi sinu sem borgarlæknir
i Reykjavik lausu frá 1. júli næst-
komandi.
Jón er nú 67 ára að aldri, en
liann hefur verið i starfi borgar-
læknis frá þvi árið 1948. -EA