Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 11

Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 11
jtUMmuumfltnm £S?«JS'SpaCSf Ssöws* ^asss«»".?gír«r* fcSSSSSrsSÍft Ar'SS SEss&s Nur Spatzle haben Geir Hallsteinsson in Göppingen noch nicht begeistert íenstraOe beschaítigt, und die neue Ar- beit macht ihr viel Freudc. So einfach und anspruchsios die Hall- _2*°ínssons auch sind. mit unseren Le- "^eiten haben sie ihre Wenn die vielen Freunde und Anhánger von Frisch Auf Göppingens Handballern den Namen Geir Hallsteinsson (27) hö- ren, kommen sie ins Schwármen. Der Geir (spricli schwábisch Gár) hat sich in die Herzen der Zuschauer gespielt. Das wili etwas heifien in einer Stadt, die schon so viele gute. ja weltbekannte Handbalispieler gesehen hat und behei- matel. Der Islánder Hallsteinsson hat in Göppingen Fufi gefafit. Nicht nur im sprichwörtlichen Sinn. Wenn er im Spiel unerwartet, meist verbunden mit einer íast unnachahmlichen Körpertáuschung antritt. erinnert er an einen Speerwerfer. Er hat den richtigen Schritt drauf, dar- um ist es fiir den Torwart meist zu spál. wenn er reagiert. Der Handball begeisterl Geir, offenbart, dafi er kein „kiihler Blonder aus dem hohen Norden“ ist. Im Spiel wirkt er temperamentvoll wie ein sudlándischer Gassenjunge. Nette Hausleute gefunden Geir Hallsteinss''** j* milie L\ h\ <jes tel\ 5\et> hie' Kui) Wál kaur’ (zwei’ che n’ Kiihni\ Kind i blem, 0 ISLAND bingvellip vJ<eine Ple]T“°ny •*«* Gei> isövSiísfí'j"g i Einc Erinncrung an Uic llcimjI vellir — scit 101 lungsort dcs islán Sftí'StííS ichcinlich nicht spiel\i. ffcdfffiSfföVg' «^0rtÍ£es‘e«tíí1^er*n “2? und Armin kcnnen^#Sffíí't'w'SS' dazu. Im ubrfe»**/ £ Deutschland und Isiana untr/ J* hlu acht Mannschaften des Tf/óafiS?* ‘ h£r Hinsic/ ^bí^e ^endc . 'dltlgste Ul/ jfj •Oí n!? «ch£ d*r is,hotle fUr einen We!?°í«>.th?/^ Jmen. In ber] februar A'ir ihn Waussi kommt fiir ein l\ )WT* einfach s\ 0f und seine » gen Mona.l -fr lernt. Ein \* -oug und unterh;\ *• beim Ge- sprádispartr.\ ~..->tandnis voraus. Mit schwábisch kappt’s am besten. Berufliches Nahziel: Dienstprufung Seine Mitspieler von „Friz Auf“, wic er i es mit islándischcm Akzent sagt, sind Geir Hailsteinsson am liebsten. Sie möchte er nicht mehr missen. Und bei diesem Thema' Öpi'Udeft^’eF dann aus dem sonst eher etwas zuriickhaltenden Mann direkt heraus: die Kameradschaft sei sehr gut, sein Trainer Erwin Singer sei einer der besten, die er je hatte, und, iiberhaupt finde er das einmalig, wie aufmerksam sich man um ihn kiimmere. Besonders Anton Burkhardtsmaier und Heiner Wahl spricht er den Dank seiner ganzen Familie aus. Sportliches Nahziel ist die WM in der DDR mit der islándi- schen Nationalmannschaft; man spielt in der gleichen Gruppe mit der Bundesre- publik, CSSR und Dánemark. Gegen un- sere Nationalmannschaft wird cr wahr- O Zeichnerin. Heut./o„?g jfe- !?> tSg "'JS; I Familie tOf-\n Kíndergarten <>• jgv*,toS,' f Mutard k'emreu\rfo opaóSa°ðB°>^ w ásSr. “7 cr 'nit nit 'und fnat- 'fall- f;chen 'at er ,ngen, .•ntzie- 'S AF- en uns ndische Geir kemur heim til HM-œfingo! Geir Hallsteinsson kemur heim 17. febrúar og mun æfa með islenzka landsliðinu siðustu vikuna f yrir heims- meistarkeppnina. Lands- liösæfingarnar hef jast á fullum krafti nú eftir helgina. Verður æft á hverjum degi eftir hádegi — leikmennirnir hafa fengið fri frá vinnu og námi — og kvikmyndir af móther jaliðum okkar rannsakaðar nákvæm- lega. Þá verða allir landsliðsmennirnir á æfingum — Geir kominn heim — en liðið heldur svo i heimsmeistarakeppnina 25. febrúar. Flogið verður til Kaupmannahafnar og daginn eftir haldið til Berlinar. Fyrsti leikur okkar verður við Tékka 28. febrúar i Karl Marxstadt, sagði Páll Jónsson, landsliðs- nefndarmaður, þegar við ræddum við hann í morgun Lið Geirs Hallsteinssonar I stendurnú orðið mjög vel að vigi að komast i úrslit um þýzka meistaratitilinn. Það er komið i annað sæti i suður-þýzku deildinni, með 18 stig, eins og Rintheim, sem tapaði sinum siðasta leik nokkuð óvænt gegn Neuhausen, neðsta liðinu, 16-12. Bæði liðin hafa leikið 12 leiki, en Hutten- berg er efst með 21 stig eftir 13 leiki af 16. Onnur lið koma ekki til greina en þessi þrjú — tvö þau efstu komast i úrslita- keppnina ásamt tveimur efstu liðum norðurdeildarinnar. Geir er stöðugt i fréttunum i Vestur-Þýzkalandi — vinsælli handknattleiksmann er þar ekki að finna. Nýlega bárust okkur nokkrar úrklippur, sem birzt hafa i þýzkum blöðum aðeins siðustu dagana. Sudwest Presse, sem gefið er út i 3000 þúsund eintökum daglega, segir i fyrirsögn Keine Pleite mit Geir — sem nokkuð snúið er að leggja út, en segir sem sagt, að ekkert gjaldþrot hafi verið með Geir siðan hann kom inn i vestur-þýzkan handknattleik Þar er meðal annars skýrt frá þvi, að Geir hafi orðið i öðru sæti i kosningu iþróttafréttamanna á iþróttamanni ársins á Islandi. Greinineröll hin vinsamlegasta fyrir Geir og sagt að hann verði næstu árin i Þýzka- landi. I Göppinger Kreisna- ehrichten, sem gefið er út i 200 þúsund eintökum daglega, er skemmtileg frásögn um Geir- birtist 31. janúar — konu hans Ingibjörgu og soninn Arnar. Það kemur fram i fyrirsögninni, að Geir þykir þýzkur matur góður — nema einn réttur, sem hann getur ekki fellt sig við. Einnig að félagar hans i Göppingen- liðinu séu mjög hrifnir af leikni Geirs — það sé leikmaður, sem liðið hafi ekki efni á að missa frá sér. Og Geir er orðinn meistari i Vestur-Þýzkalandi — það er með kennaraliði! Hann keppti með kennurum Kreis-Göpping- en i lokakeppni á Suður-Þýzka- landsmeistaramótinu i hand- bolta og vann lið hans öll önnur i úrslitunum með yfirburðum. Geir skoraði mikið — og lék sér að vild til mikillar ánægju fyrir 4000 þúsund áhorfendur —• en úrslitin voru liður i mikilli iþróttahátið i Stuttgart. Það þykir heiður að sigra i þessari keppni, þvi margir af beztu handknattleiksmönnum Vestur- Þýzkalands eru iþrótta- kennarar að mennt. Á myndinni efst á siðunni eru úrklippurnar, sem sagt er frá, og auk þess eiginhandaráritun Geirs. Þetta W ekki á HM t»aö veröur tekið mjög hart á grófum brotum I heimsmeistarakeppn- inni i handknattleiknum, sem hefst i Austur- Þýzkalandi 28. febrúar, segja Þjóðverjar og benda á dæmi eins og inyndin hér til hliðar sýnir. Það má ekki eiga sér stað, að til þess að ná árangri i handknatt- leik þurfi leikmenn að hafa hæfi- ieika hnefaleikamanns — en jafn- vel má segja, að þróunin hafi ver- ið i þá átt siðustu árin. Ef slik brot sjást á HM verður þeim, sem slikt fremur, tafarlaust vikið af leik- velli. Flestir áhugamenn um hand- knattleik kannast við kempuna i hvita búningnum til vinstri og hægri á myndinni. Það er enginn annar en Hans-Gunther Schmidt, landsliðsrisinn i vestur-þýzka landsliðinu. Hann er stórhættu- legur skotmaður og mótherjarnir hika ekki við að beitu brögðum — óleyfilegum — til að hindra að Hansi komist i skotfæri með liði sinu Gummersbach eða landslið- inu. En það verður tekið strangt á sllku i heimsmeistarakeppninni og dómarar eru beinlinis hvattir til að vera mjög strangir i dómum sinum — að hika ekki við að reka leikmenn af velli ef óheiðarlegum brögðum er beitt til að hindra hættulegan mótherja. Vestur- þýzka landsliðið, sem er i riðii með Islandi á HM, kemur saman eftir helgina og mun stunda æfingar daglega fram að heims- meistarakeppninni. Á meðan fell- ur þýzka deildakeppnin niður. Hlaupið frá Kömbunum! Kambaboðhlaup það, sem ÍK og IISK gengust fyrir í 1. sinn sl. vetur, fer fram I 2. sinn sunnudaginn 24. febrúar nk. Keppt er um bikar, sem gefinn var af Timburvcrzlun Árna Jónssonar til hiaupsins, en hann unnu ÍR-ingar r.ijög glæsilega i 1. blaupinu sl. vetur. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Guðmundar Þórarins- sonar þjálfara ÍR-inga eigi siðar cn að kveldi liins 20. febrúar nk. Heilar bekkjar- deildir hlaupa Breiðholtshlaup ÍR fer fram i 2. sinn nk. sunnudag. 10. febrúar, og liefst eins og venjulega kl. 14.00 við Breiðholtsskólann. ' llin nýja keppni milli bekkjar deilda Breiðholtsskólanna virðist ætla að bera góða raun. og hefur þegar lieyrzt, að lieilar bekkja- (leildir hyggi á þátttöku i hlaupinu. til þess að trvggja með þvi sigur bekjar sins i keppninni um bikarinn. Aðalfundur Aðalfundi handknattleiksdeild- ar Vikings er frestað til laugar- dagsins 16. febrúar. Hefst kl. tvö og verður haldinn i félagsheimili Vikings við Réttarholtsveg. Niður- staða, góður! Það er oft sagt, að íþrótta- fréttamenn leggi dómarastétt- ina íslenzku í einelti — já, oft eru þeir skammaðir, blessaðir, í blöðum. En það kemur einnig fyrir, að peir hljóta mikið lof fyrir dómgæzluna og það mega þeir vita, að það er ein mesta ánægja blaðamanna að geta sagt góðar fréttir af dóm- gæzlu íslenzkra dómara, bæði heima og erlendis — svona til að vega upp á móti gagnrýn- inni. Dómarar okkar hafa dæmt talsvert erlendis siðustu mánuðina — leiki i Evrópumótum i knattspyrnu og Norð- urlandamóti i handknattleik, svo dæmi séu nefnd. Knattspyrnusambandi ls- lands barst nýlega skýrsla um störf Magnúsar Péturssonar i leik i Evrópu- keppni milli danska liðsins B1903 og Dynamo Kiev, seln háður var i Kaup- mannahöfn — og sú skýrsla, samin af Leo Helge, formanni Dómarasam- bands Danmerkur — hann var eftir- litsmaður UEFA á leiknum — er mjög uppörvandi fyrir islenzka dómara- stétt. Linuverðir Magnúsar i leiknum voru Einar Hjartarson og Valur Bene- diktsson. Leo Helge segir i skýrslu sinni til UEFA. — Magnús Pétursson var öruggur með sjálfan sig — einbeiting góð og samræmi i dómum hans, en of Magnús V. Pétursson. I.jósmynd Bjarnleifur nákvæmur. Hafði góðan aga — og kjark til að taka eigin ákvarðanir. Fljótur og úthaldsgóður — lét ekki stjórnast af hrópum áhorfenda. Niðurstaða Leo Helge til UEFA i sambandi við Magnús. Góður. Við þetta er engu að bæta — aðeins. Til hamingju Magnús! Það þarf góðan öryggisútbúnað! — Fimm aðilar stofnuðu Siglingasamband is- lands (S.i.L.) var stofnað 25. okt. s.l. í húsakynnum Í.S.Í. Reykjavik og þar verður aðsetur S.i.L. sem annarra sérsambanda. Til stofnfundar sambandsins komu fulltrúar frá U.M.S.K., i.B.R., Í.B.A., i.B.H. og H.S.Þ. Skráðir stofnaðilar urðu þvi fimm. Markmið sambandsins er að efla og styðja siglingar sem iþrótt á þar til gerðum bátum i sam- ræmi við alþjóðareglur um siglingar. Siglingar eru iþrótt, sem bæði má stunda á sjó og vötnum. Hins vegar eru vötnin hér yfirleitt fremur köld og sér staka varúð þarf þvi við iðkun iþróttarinnar á vötn.unum. S.l.L. vill þvi ieggja áherzlu á góðan öryggisbúnað við siglingar, hvar svo sem þær eru stundaðar. Siglingar eru iþrótt, þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, þegar grundvallarreglur eru iðkendum orðnar tamar. liér á landi hafa þessar bata- tegundir náð mestum vinsældum : FIREBALL (ELDHNÖTTUR), smiðaður hér heima af eigendum, FLIPPER (HREIFINN), danskur léttur plastbátur. MIRR- OR, enskur og er i smiðum hér, GP 14 og algengasti báturinn OPTIMIST. Það er ósk S.t.L., að þeim sem áhuga hafa á siglingum sé bent á að hafa við okkur samband og vita hvað unnt er að hjálpa til með. Stjórn S.Í.L. hel'ur i hyggju að gefa frá sér frumleiðbeiningar um öryggi og gerð báta og er nauðsynlegt, að félögin komi sér upp réttum og viðeigandi bátum. siglingasamband svo að hæfir séu til keppni sam- kvæmt öllum reglum. Aðalmenn i stjórn eru: Jón Árm. Héðinss., form. S. 42078 Kóp. Gunnar Hilmarss., ritari — 32450 Itvk. Rúnar H. Steinsen — 41857 Kóp. Ari B. Einarss., gjaldk. —22360 Rvk. Pétur Th. Pétursson — 50370 Hfj. Stefán Sigtryggsson Akureyri. Allir eru stjórnarmeðlimirnir tilbúnir að veita aðstoð eftir þvi sem aðstæður leyfa hverju sinni. Ali gegn Quarry! Muhammed Ali hefur ákveðið að keppa við Jerry Quarry — hezta hvita hnefaleikamann heims i þungavigt — og verður keppni þeirra i Los Angeles i mai. Quarry er 28 ára Bandarikjamað- ur af irskum ættum. Þetta verður þriðji leikur þeirra. 1970 vann Ali Quarry i 3. lotu, og 1972 sigraði hann Quarry aftur i Las \ egas. Siðustu mánuði hefur Jerry Quarry gengið mjög vel i keppni — unnið fjóra nokkuð kunna kappa. Ilann reyndi að fá keppni gegn heimsmeistaranum George Foreman og voru miklir peningar i boði, en af einhverjum ástæðum vildi Forcman það ekki og ætlar að keppa við Ken Norton i Venzúela i vor. Jerry Quarry er ofarlega á lista heimssambands- ins yfir beztu þungavigtarmenn. en hann er þó ekki beint talinn ha'ttulegur fyrir Ali. Anna María í sérflokki — Sigraði auðveldlega í Skíðadrottningin austurriska, Anna María Moser-Pröll sigraði auðveldlega í bruni á heimsmeistarakeppninni í St. Moritz i gær og það merkilega er, að þetta er fyrsti HM-titillinn, sem hún hlýtur þó svo hún hafi verið bezta skiðakona heimssiðustu fjögur árin. i keppninni um heims- bikarinn hefur hún verið ósigrandi. Hins vegar tókst svissnesku stúlkunni Mariu Theresu Nadig að sigra á Olympiuleikunum i Sapporo, sem jafnframt taldi sem HM-keppni. 1 vetur hefur Anna Maria tapað einni brunkeppni. Chindy Nelson, USA, sigraði hana — en i gær komst bandariska stúlkan ekki á þlað — varð nr. 18. Anna Maria hafði mikla yfir- burði — „keyrsla” hennar i hinni 2400 m braut var næstum full- komin. Eftir keppnina sagöi hún. ,,Ég hef aldrei verið eins taugaó- styrk á ævi minni. Ég svaf ekkert bruni á HM nóttina fyrir keppnina og var viss um, að mér mundi ekki takast að vinna sigur.” Úrslit urðu annars þessi: 1. Anna Maria, Aust. 1:50.84 2. Clifford, Kanada, 1:51.78 3. W. Drexel, Austurriki, 1:52.15 4. M. Kaserer, Austurriki, 1:52.40 5. M.T. Nadig, Sviss, 1:52.47 6. C.Tisot, Italiu, 1:52.52 7. K. Kreiner. Kanda, 1:52.81 8. Förlund, Noregi, 1:53.07 9. J. Crawford, Kanada, 1:53.12 10. F. Serrat, Frakkl., 1:53.46 11. Zurbriggen, Sviss, 1:53.49 12. J. Rouvier, Frakkl. 1:53.58 13. H. Wenzel, Lichtenst 1:53.80 14. E. Mittermaier, V-Þ. 1:53.88 15. M. Jacot. Frakklandi, 1:54.26 16. A. Schaumburg.Noregi. 1:54.78 17. L. Kreiner, Kanada, 1:55.24 18. C. Nelson, USA. 1:55.37 19. Ch. Ray, Frakkl., .1:55.72 20. M. Hefti, Sviss, 1:55.95 Norðmenn voru mjög ánægðir með frammistöðu sinna stúlkna. Tvær þeirra voru meðal 20 beztu — og Toril Förlund náði áttunda sæti i þessari hörðu keppni. Nýir smokingar í litum TERRA fyrir HERRA A\V&& LAUGAVEG 27 - SÍMI 12303

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.