Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 13

Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 13
Vlsir. Föstudagur 8. febrúar 1974. 13 Klámleikkonan Linda tekin með eiturlyf Kynlifsleikkonan Linda Lovelace var um siöustu helgi handtekin I Las Vegas fyrir að hafa kókain I fórum sinum. Linda Lovelace, sem fræg er fyrir hlutverk sitt i myndinni „Djúpt niðrí hálsi”, var afhjúpuð, þegar lögreglan gerði skyndilega húsrannsókn á hótelherbergi hennar. Þar fannst kókain og nokkurt magn af öörum fikniefnr um. Þar sem við erum farnir að segja hér frá Lindu Lovelace, mætti kannski bjóða jafnframt upp á glefsur úr viðtölum við hana i erlendum blöðum: „Það sem þið sjáið til okkar á léreftinu i kynlifsmyndinni „Deep Throat” er allt saman ekta. Allar ástarsenurnar eru sannar — og ég nautþeirra svo sannarlega, segir Linda i viðtali við eitt blaðið. Myndin vakti mikið hneyksli, þegar hún kom fyrst fram i Ameriku, þar sem hún er gerð. Voru haldin löng og ströng réttar- höld til að komast til botns i þvi, hvort stöðva ætti sýningar á myndinni. Og á meðan flykktist fólk að i löngum bunum að horfa á þessa miklu kynlifsmynd, sem segir frá stúlku, sem er með þeim ósköpum fædd að vera með snip sinn i hálsinum. Foreldrar minir hafa ekki séð myndina ennþá, að þvi er ég bezt veit”, sagði Linda nýlega frá 1 öðru viðtali. L.nda er 22ja ára gömul. Hún var aðstoðarstúlka við kvik- myndatökur, þegar kvikmynda- leikstjórinn komst einn daginn að þeirri niðurstöðu, að hann hefði meiri not af henni fyrir framan kvikmyndavélina en á bak við hana. „Þegar hann svo komst að raun um að ég var óhrædd við að afklæðast fyrir framan kvik- myndatökuvélarnar og var til i tuskið, hversu harðsoðin sem atriðin voru, ákvað hann að setja mig i aðalhlutverkið”, segir Linda frá. „Við vorum ekki með nein láta- læti við töku myndarinnar,” heldur hún áfram. „Við gengum hreint til verks og buðum hvort öðru arminn — og riflega það. Þetta var allt saman ákaflega spennandi og skemmtilegt”. Aðspurð um það, hvort hún hefði ekki þénað stórkostlega á hlutverkinu, svarar hún, að það verði ekki talið i milljónum. Allt og sumt, sem hún hafi fengið i sinn hlut af þeim tugum milljóna, sem myndin gaf af sér, hafi verið samtals 1200 dollarar. Næst er hún spurð að þvi, hvort hún hafi horfið frá þeim draumi, sem hún hafði alið með sér frá barnsaldri, að verða nunna, vegna þeirra áhrifa, sem um- boðsmaður hennar, Chuck Traynor, hafi haft á hana. „Nei, Ég get kennt honum um margt, en ekki það”, er svarið. „Annars er óhætt að segja frá þvi, að við Chuck eigum ekki aðeins viðskipti sem hluthafar i frægð minni, heldur einnig i einkalifinu. Hann er minn bezti elskhugi”, bætir hún við. -ÞJM Linda Lovelace heitir réttu nafni Linda Traynor. Núna situr hún I steininum eftir aðhafa verið tekin fyrir að eiga eiturlyf I fórum sinum. Hve lengi viltu bíða eftir f réttunum? Viltu fá þær heim til þín samdægurs? Eða viltu bíða til næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins í dag! IVEL KLÆDDUR MAÐUR KLÆÐIST TERRA A UNGA MENN A OLLUM ALDRI MJÖG FULLKOMIÐ STÆRÐARKERFI í TÍZKULITUNUM L TERRA fyrif HERRA $Hf HAIM 1 iiMM WW&M Í A'\IY2&

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.