Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 7
Vísir. Föstudagur 8. febrúar 1974. 7 i SS ÐAIM i Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir Viö höfum nokkrum sinn- um helgaö þessa siöu ýmsum hugmyndum og nýjungum i innréttingu íbúðarhúsnæðis, og viö sannfærumst æ betur um nauösyn þess að fræða almenning dálitiö um þessi mál. Hér á landi er engin fræðsla á skyldunámsstigi (raunar ekki á æöra skóla- stigi heldur), sem heitir hýbýlaprýöi, eða beinlinis „heimilisfræði”. Börnin læra jú að sauma dúka, prjóna pottaleppa og smiða skraut- hillur, en um hagnýtt nám getur tæpast verið að tala. Þegar þetta fólk kemst svo á giftingaraldurinn og leggur út i þjóðariþróttina — hús- byggingar — er það oftast fullkomlega ósjálfbjarga og algerlega háð iðnaðarmönn- unum, og svo auðvitað kaupmönnum. Það fer að visu mjög i vöxt, að fólk fái sér tæki eins og „Black og Decker” og bjargi sér með þvi, en allt of margir eyða tugum og jafnvel hundruðum þúsunda I hluti, sem þeir hefðu sem hægast getað unnið sjálfir. En látum þáð vera, þótt fólk kaupi alla vinnu i hýbýli sin, ef það hefði þá einhverjar sjálfstæðar hugmyndir um hvernig það vill hafa þau. Gangið inn i eina nýja blokk i einhverju hinna nýju hverfa i borginni og skoðið ibúðirnar. Þið getið látið ykkur nægja að skoða eina, þvi þær eru þvi miður nokkurn veginn allar eins. Hitt og þetta kemst i tizku, og allir hlaupa eftir þvi. En hagkvæmni, frumleiki og einfaldleiki er þvi miður sjaldgæf sjón. Þetta ætti að sjálfsögðu að vera eitt af verkefnum skylduskólans, — að gefa nemendum sinum grundvallarþekkingu á þeim hlutum, sem teljast verða nauðsynlegir hverri mann- eskju, og hlýtur húsnæði ,m.a. að teljast til þess. Hér sjáum við, hvernig hægt er að innrétta 60-70 fm ibúð á frumlegan og hagkvæman hátt — en þó umfram allt ódýran. Ibúðin er i raun og veru aðeins eitt herbergi og eldhús, en stórt anddyri nýtist sem borðkrókur og vinnuherbergi. Sjálft her- bergið er i senn svefnher- bergi og stofa, en byggður er pallur úr þykkum spóna- plötum á gólfið, og undir honum eru ýmsar hirzlur, m.a.fyrir sængurföt. Bekkir og hillur með skúffum eru einnig úr spónaplötum. Mjúkt, snöggt gólfteppi er yfir öllu og lausar svampsessur mynda þægi- legt setuhorn á gólfinu. Litirnir eru aðallega dökkbrúnt og ljósmosa- grænt. 011 húsgögnin eru heimasmiðuð. — ÞS Hér sjáum við herbergiö með tvibreiðu rúmfleti I horninu. Undir rúmfataskúffur og gegnt rúminu önnur skúffa fyrir fatnað og annað. Eini hluti stofunnar sem ekki er upphækkaður, er flöturinn framan við rúmið. Sessunum má raða eftir vild. Skrifborðið er úr spónaplötu og hillur fyrir ofan. Med spóna- plötum og svampi Úr litla eldhúsinu i borðkrókinn. Svartar „jalusie” huröir eru á niilli eldhússins og borðkróks- ins, en slikar hurðir fást hér i Vörumarkaðinum og má nota þær jafnt sem skaphurðir og vunalegar hurðir. Bekkir úr spónaplötum með svampsessum mynda borðkrókinn, en korkdúkur á veggnum geymir myndir, minnisblöð, úrklippur og flcira. Svona lítur ibúðin út. Við sjáum hvernig einfaldar hillur hafa veriö gerðar úr spónaplötum, sem siðan eru málaðar grænar. Gegnt rúmstæðinu er bekkur meö hirzlum, er spónaplöturnar og annað er við dyrnar inn i ibúðina, en gegnt þeim er skrifboröið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.