Vísir - 08.02.1974, Blaðsíða 13
Vlsir. Föstudagur 8. febrúar 1974.
13
Klámleikkonan Linda
tekin með eiturlyf
Kynlifsleikkonan Linda
Lovelace var um siöustu helgi
handtekin I Las Vegas fyrir að
hafa kókain I fórum sinum.
Linda Lovelace, sem fræg er
fyrir hlutverk sitt i myndinni
„Djúpt niðrí hálsi”, var afhjúpuð,
þegar lögreglan gerði skyndilega
húsrannsókn á hótelherbergi
hennar. Þar fannst kókain og
nokkurt magn af öörum fikniefnr
um.
Þar sem við erum farnir að
segja hér frá Lindu Lovelace,
mætti kannski bjóða jafnframt
upp á glefsur úr viðtölum við
hana i erlendum blöðum:
„Það sem þið sjáið til okkar á
léreftinu i kynlifsmyndinni „Deep
Throat” er allt saman ekta. Allar
ástarsenurnar eru sannar — og ég
nautþeirra svo sannarlega, segir
Linda i viðtali við eitt blaðið.
Myndin vakti mikið hneyksli,
þegar hún kom fyrst fram i
Ameriku, þar sem hún er gerð.
Voru haldin löng og ströng réttar-
höld til að komast til botns i þvi,
hvort stöðva ætti sýningar á
myndinni. Og á meðan flykktist
fólk að i löngum bunum að horfa á
þessa miklu kynlifsmynd, sem
segir frá stúlku, sem er með þeim
ósköpum fædd að vera með snip
sinn i hálsinum.
Foreldrar minir hafa ekki séð
myndina ennþá, að þvi er ég bezt
veit”, sagði Linda nýlega frá 1
öðru viðtali.
L.nda er 22ja ára gömul. Hún
var aðstoðarstúlka við kvik-
myndatökur, þegar kvikmynda-
leikstjórinn komst einn daginn að
þeirri niðurstöðu, að hann hefði
meiri not af henni fyrir framan
kvikmyndavélina en á bak við
hana. „Þegar hann svo komst að
raun um að ég var óhrædd við að
afklæðast fyrir framan kvik-
myndatökuvélarnar og var til i
tuskið, hversu harðsoðin sem
atriðin voru, ákvað hann að setja
mig i aðalhlutverkið”, segir
Linda frá.
„Við vorum ekki með nein láta-
læti við töku myndarinnar,”
heldur hún áfram. „Við gengum
hreint til verks og buðum hvort
öðru arminn — og riflega það.
Þetta var allt saman ákaflega
spennandi og skemmtilegt”.
Aðspurð um það, hvort hún
hefði ekki þénað stórkostlega á
hlutverkinu, svarar hún, að það
verði ekki talið i milljónum. Allt
og sumt, sem hún hafi fengið i
sinn hlut af þeim tugum milljóna,
sem myndin gaf af sér, hafi verið
samtals 1200 dollarar.
Næst er hún spurð að þvi, hvort
hún hafi horfið frá þeim draumi,
sem hún hafði alið með sér frá
barnsaldri, að verða nunna,
vegna þeirra áhrifa, sem um-
boðsmaður hennar, Chuck
Traynor, hafi haft á hana.
„Nei, Ég get kennt honum um
margt, en ekki það”, er svarið.
„Annars er óhætt að segja frá þvi,
að við Chuck eigum ekki aðeins
viðskipti sem hluthafar i frægð
minni, heldur einnig i einkalifinu.
Hann er minn bezti elskhugi”,
bætir hún við.
-ÞJM
Linda Lovelace heitir réttu nafni Linda Traynor. Núna situr hún I
steininum eftir aðhafa verið tekin fyrir að eiga eiturlyf I fórum sinum.
Hve lengi viltu
bíða
eftir f réttunum?
Viltu fá þær heim til þín samdægurs? Eða viltu bíða til
næsta morguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins í dag!
IVEL KLÆDDUR
MAÐUR
KLÆÐIST
TERRA
A UNGA MENN A OLLUM ALDRI
MJÖG FULLKOMIÐ STÆRÐARKERFI
í TÍZKULITUNUM
L
TERRA
fyrif
HERRA
$Hf HAIM 1 iiMM
WW&M Í
A'\IY2&