Tíminn - 06.01.1966, Síða 9

Tíminn - 06.01.1966, Síða 9
/ FIMMTUDAGUR 6. janúar 1966 TÍMINN •; ■ :: ' ■ ,:■ ;: ■ ■:" ■ :■•:•:•••:■:■ •:■:■■ wíííí: ifsrrmrg * / ■ . '■ .....sZ&'Z). ■ ■; WM •V •• • v;;-:••—••:••*:' wáfíWSiííWtóSíííwí Solisti Veneti leika undir borum himni í Feneyjum, Ejn frægasta strengjasveit í heimi, I Solisti Veneti, kemur hingaS í annaS sinn seinnj hluta janúar og heldur hér eina tón- leika á vegum Péturs Péturssonar. Sfcrifstofa skemmtikrafta undir forustu Péturs Péturssonar fyrrv. útvarpsþuls lætu,. hendur standa fram úr ermum við að laða hing að tjl lands í stuttar heimsóknir útlendinga sem eru engir venju- legir veitingahúsaskemmtikraftar eða miðlungsmenn, úrvals fólk hvert á sínu sviðj, aðallega í músík og dansi. Síðast kom hing að rúmenski fiðlarinn frægi Ion Voicu. Fyrir tveim árum kom þessi tíu manna feneyska strengja sveit, hróður hennar fer sívaxandi, og nýlega voru tónlistarverðlaun in ,,Diápason“ ársins 1965 vejtt strengjasveitinni I Solisti Veneti, söngvaranum Mario Del Monaco og píanóleikaranum Benedetti Michelangeli Um líkt leyti og hljómsveitin verður hér á ferð inni, kecnur út hljómplata með leik þeirra frá bandaríska hljóm plötufyrirtækinu CBS og héðan heldur hljómsveitin vestur um haf til hljómleikahalds. , , . Wfj ‘ íSGxLtí i j?/f ■< '+ ' >' t: ■IZSXxtltlli mmm Ung færeysk skáld kynnt á frummálinu í Birtingi um strondum, Eg óttist, Og dansur in gongur, en smáljóð skáldkon unnar: Uggi, Mjörkanáttin, í skýmingini, Sangur um heystið- Og unga færeyska skáldkonan Guðrið yrkir um haustið á þessa leið: Tað regnar i kvöld, tað leikar av stormi. Har dansa í túnj blöð í rigni ið snara sær á og fljúgva avstað. Hurðin gekk, inn komst tú vát berandi heystið við tær. Mær longdist út at ganga langar leiðir. Saman renna í villini leiki. sum blöðini dansa hond í hond kring húsarhom. Engin grein er gerð fyrir þess um færeysku skáldum eSa rakin ætt þeirra, en tvö eftirnöfn höf unda eru hin sömu og frægustu skáld Færeyinga bera. Heinesen og Djurhuus Framan vig ljóðjn er skurðmynd eftir Zacharias Heinsen, hann pekkja margir hér síðan hann dvaldist við myndlist í nýútkomnu lokahefti ellefta árgangs tímaritsins Birtings eru kynnt allmörg erlend skáld, sum í þýðingum, sum á frumcnáli — færeysku, þau ætti að vera óþarft að þýða á íslenzku, en þessir ,,frændur vorir“ eru áður lítt kunnir eða ókunnir flestum hér, eða hver þekkir þessi nöfn: Jens Pauli Heinesen Líggjas í Bö, Karsten Hoydal, Ólavur Michelsen T. N. Djurhuus, Guðrið Helmsdal Poulsen? Þeir eiga hver sítt ljóð á móðurmálinu, nema hin síðast nefnda skáldkona, sem á hér fjög ur smáljóð, en ljóðin nefnast svo, í sömu röð: Basja hvör er Basja, Öll föðing er vát Út frá grýtut Skurðmynd eftir Zacharias Heine sen. 9 ! HLJÓMLEIKASAL Jólaóratória Um jólaleytið í fyrra flutti Poly fonkórinn, undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar tvær fyrstu kantöturnar úr jólaóratóríu J- S. Bachs, en nú var þriðja þættinum aukið við, og á ann an dag jóla flutti svo kórinn í heild þrjár fyrstu kantöturnar úr þessu dýrðlega verki. — í vandaðri efnisskrá gerir söng stjórinn glögga grein fyrir byggingu og samsetningu verks ins, og því óÞarft að fara nán ar út í það hér. Einsöngvarar voru þeir sömu og í fyrra og einnig aðstoðaði 25 manna kammerhljómsveit við flutning inn. f þeim kóral-melódíum, sem fluttar voru án undirleiks, var söngur kórsins mildur og hljómfagur, enda raddajafn- vægi mjög samstillt. Einsöngv- arar voru þeir sömu og síðast og var mjög ánægjulegt að merkja þær framfarir er á hafa orðið. Guðrún Tómasdóttir er reynd og þroskuð söngkona, sem er vandlát hvað vinnu- brögð snertir, fór vel með sinn hlut Þar sem röddin hrökk til. Halldóri Vilhelmssyni, hefir frá í fyrra aukizt öryggi í allri túlkun og naut hin blæ fagra rödd hans sín ágætlega. Sigurður Björnsson, færði áheyranda með söng sínum, fulla vissu fyrir þeim yfir- burðum, sem hann hefir yfir að ráða á þessu sviði. — Ör- yggi, kunnátta og vald hans 'á viðfangsefninu setti sinn sterka svip á þessa uppfærslu. — Sú spurning leitar á, hversu það megi vera að ekki fjöl mennari kór en Polyfónkórinn er, hafi þegar tíleinkað sér söngstíl og vandað efnisval, sem hvarvetna væri frambæri- legt í fyllsta máta. Að nokkru bjó þessi samsöngur að upp- færslunni á síðustu jólum, og hefir áunnizt mikið t. d. í sam- vinnu kórs og hljómsveitar, þótt nokkuð skorti á Þunga í söngnum þar sem hljómsveitín hafði orðið í undirleik. Söng- stjórinn hefir frá upphafi lagt áherzlu á að viðhalda sérein- kennum þeim er fylgt hafa verk efnum kórsins. og hefir hin næma kennd hans fyrir kjarn anum' ásamt smekkvísi gert stórvirki. Er fegurri túlkun kirkjunn ar á jólaboðskapnum úr Lúk asarguðsspjalli jnöguleg, en í hinum himnesku tónum Bachs í þessari jólaóratoríu? Naumast, því þar talar hvert smáatriði til áheyranda með því óhaggan- lega trausti og styrkleika sem er grunntónninn í velflestum verkum hins mikla tónameist ara J. S. Bachs. Öllum Þeim er gerðu flutning þessa verks mögulegan — kór — hljómsveit og stjórnanda þakka ég hlutdeild í þessari jólahelgi og óska öllum góðs árangurs í starfi á ári kom- anda Unnur Arnórsdóttir. ATHUGASEMD Vegna greina, sem skólastjóri Garðyrkjuskólans, hr. Unnsteinn Ólafsson, hefur skrifað í dagblað arnám fyrir nokkrum árum og fað ir hans er svo sannarlega hinn frægi William Heinesen. Annað ljóðakyns í þessu Birt ingshefti eru þýðingar eftir Geir Kristjánsson og Thor Vilhjálms son á ljóðum eftir rússneska skáldið V. Majakovskí, júgóslavn eska skáldið Tanasije Mladenovic og ítalska skáldið Vittorio Sereni Thor ritar og kynningargreinar um tvo fræga iistamenn franska látbragðsleikarann Marcel Marce- au og skáldið og myndlistarmann inn Rafael Alberti, landa, sveit unga og vin Garcia Lorca. Þá er birtur kafli úr því fræga leikriti The Playboy of the West ern World eftir írska leikskáldið John M. Synge, i þýðingu Einars Braga, og kaflinn nefnist Vest- ræn hetja- Bókarkafli er og í þessu hefti effir Björn Th. Björns son um list Gunnlaugs Schevings Og síðasí. en ekki sízt, er að nefna þýdda grein sem mörgum mun þykja gimileg til fróðleiks, það er ræða, sem málarinn Paul Klee flutti a sýningu í Jena fyrir 41 ári — um nútíma myndlist, og fylgja greininni nokkrar myndir eftir pennan frumlega svissneska snilling. Loks er tilkynnt í þessu hefti Birfngs, að fyrsta heftj 12. árgangs sé að mestu tilbúið til prentunar og þai mum m. a birt ast löng rjtgerð eftir bandarískan menntamann um ljóðagerð Ljós- víkingsins — eða nánar tiltekið Ijóðagerð Halldórs Laxness ' Heimsljósi, G. B. ið Þjóðviljann, sv0 og vjðtals, er blaðamaður sama blaðs. átti við hann nýverið, þar sem skólastjóri veitist ómaklega að garðyrkju- stéttinnj og garðyrkjubændum sér staklega vill Samband garðyrkju bænda, leyfa sér að mótmæla harðlega slíkum órökstuddum skrifum og ummælum, er þar hafa komið fram. Jafnframt verður að furða sig á því, að skólastjóri skuli lýsa því yfir, að hann þekki ekkj til starfsemi félagssamtaka garðyrkju stéttarinnar. Er slíkt næsta ámæl isvert af þeim opinberum em- bættismanni, sem gegnjr æðstu sföðu, varðandi menntun garð- yrkjustéttarinnar Að gefnu tilefni, vill stjórn Sambands garðyrkjubænda enn- fremur koma á framfæri óánægju sinni yfir því, að þeirrl yfir- skólanefnd sem skipuð var við Garðyrkjuskólann skuli ekki hafa verið gert fært. að starfa allt s. 1. ár, eins og vonir stóðu til. Treyst ir stjórn Sambandsins því, að á þessu verði nú þegar ráðin bót- Þá vill stjórn Sambands garð yrkjubænda lýsa ánægju sjnni yfir, að við Garðyrkjuskólann skuli nú þegai hafin bygging nýs skólahúss, en átelui jafnframt, að skipulagsuppdrættir af þeim byggingum, skulj hvorki hafa ver ið opinberlega kynntir garðyrkju bændum né öðrum þeim aðilum. sem mál þessi varða. Reykjavík. 30. desember 1965. Stjórn Sambands garðyrkjubænda. Arnaidur Þór, form. (sign) Aðaisteinn Símonarson (sjgn) Ólafur Gunnlaugsson (sign) Þórhailur Steinþórsson sign) Jón V. Guðmundsson (sign)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.