Tíminn - 06.01.1966, Qupperneq 13
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
13
FIMMTUDAGUR 6. janúar 1966
TÍMINN
Fljúgandi yfir
Innsbruck
Innsbruck í Austurríki er mik-
il skíðaborg, og skemmst er að
minnast þess, að siðustu vetrar-
Olympíuleikar voru einmitt haldn
ir í Innsbruck.
Myndina að ofan fengum við
nýlega senda, og sést á henni
finnski skíðamaðurinn Risto Tar
kkila á „flugi yfir borginni" á
skíðum sínum. Tii hægri sést
aðaljárnbrautarstöðin í Innsbruck
og vinstra megin Evrópubrúin og
Olympíuhöllin. Myndin er tekin frá
stökkkeppni í alþjóðlegu móti,
sem nýlega var haldið. Og auð
vitað er það aðdráttarlinsa Ijós-
myndarans, sem hjálpar til að gera
myndina svona óraunverulega.
15 valdir til
landsliðsæfinga
i körfuknattleik
— landsliðsæfingar 3svar í viku.
Alf-Reykjavík, miðvikudag.
Körfuknattleikssamband íslands hefur nú byrjað undir-
búning vegna hinna fjögurra landsleikja, sem fyrirhugaðir
eru síðar í þessum mánuði, en leikirnir verða gegn Pólverj-
um og Skotum. Nýlega hefur verið skipuð landsliðsnefnd
KKÍ og eiga sæti í henni þeir Jón Eysteinsson, Þórir Guð-
mundsson og Helgi Jóha»nsson, landsliðsþjálfari.
Landsliðsnefndin hefur nú
valið 15 leikmenn til landsliðsæf
inga, og verða síðar valdir 10
leikmenn úr þeim hóp í lands
liðið sem mætir Pólverjum í
fyrri leiknum.
í stuttu viðtali við Helga Jó-
hannsson, landsliðsþjálfara, sagði
hann, að landsliðsæfingarnar yrðu
3 í viku. Tvær æfingar innan
húss og hefur Körfuknattleiks-
sambandið fengið afnot af í-
þróttahöllinni í Laugardal einu
sinni eða tvisvar i viku, en ein
æfing verður utanhúss.
Hinir 15 leikmenn, sem valdir
hafa verið, eru þessir:
Birgir Jakobsson, ÍR
Hólmsteinn Sigurðsson, ÍR
Tómas Zöega, ÍR
Agnar Friðriksson, ín
Birgir Birgis, Ármanni
Davíð Helgason, Ármanni
Hallgrímur Þorsteinsson, Árm.
Þórir Magnússon, KFR
Qlafur Thorlacius, KFR
Einar Matthíasson, KFR
Gunnar Gunnarsson, KR
Kolbeinn Pálsson, KR
Kristinn Stefánsson, KR
Einar Bollason, KR
Hjörtur Hansson, KR
Þess má geta, að Þorsteinn Hall
grímsson mun að öllum líkindum
leika með íslenzka landsliðinu í
leikjunum gegn Skotum, sem
verða síðast í mánuðinum.
íþróttaiðkendum fjölgaði um helming
fy| 1
Alf—Reykjavík, miðvikudag.
f hinni fróðlegu og ítarlegu
skýrslu ÍÞróttanefndar ríkisins fyr
ir tímabilið 1959 — 1964, sem
Þorsteinn Einarsson, íþróttafull-
trúi/ tók aðallega saman, er marg
ar athyglisverðar upplýsingar að
finna.
í skýrslunni er t. d. að finna
hve margir íslendingar iðka
íþróttir. Árið 1956 var talið, að
10.985 hafi iðkað íþróttir á íslandi,
en 1963 var sú tala komin upp í
20206. Hefur fjölgunin á 8 árum
því verið um helming.
Vinsælasta íþróttagreinln er
knattspyrnan. Árið 1956 iðkuðu
3200 manns knattspyrnu, en 1963
var tala þeirra orðin 5581. Hand
knattleikur er næstefstur á blaði
Körfuknattleikur 350 1252
Frjálsar íþróttir 1009 2548
Sund 1562 2194
Skíði 1080 2068
Leikfimi 941 812
Badminton 330 609
Golf 240 333
Glíma 121 223
Skotfimi 45 67
Júdó 0 132
Blak 0 100
Lyftingar 0 41
Róður 100 90
Eins og af þessari upptalningu
má sjá, er um fjölgun að ræða í
nær öllum íþróttagreinum. Og frá
árinu 1963 hefur orðið mikil
fjölgun. Má reikna með, að þátt-
takendafjöldi þeirra, sem iðka
íÞróttir á íslandi j dag, sé á
milli 25—30 þúsund.
Dagatal FH
FH-ingar hafa gefið út mynd
arlegt dagatal fyrir árið 1966.
Við hvern mánuð eru myndir
frá félagsstarfi FH, myndir af
yngri og eldri kappliðsmönnum
félagsins í dag, svo og myndir
frá fyrri tíð. Er þetta dagatal
þeirra FH-inga einkar skemmti
legt og gefur á vissan hátt
nokkra hugmynd um hið mikla
félagsstarf, sem unnið er í
íþróttamálum Hafnarfjarðar.
Frjálsíþróttadeild KR efn-
ir til „sexþrautarkeppni"
— tækifæri fyrir yngri sem eldri að iðka friálsíbróttir
Frjálsíþrótta-
menn Ármanns!
Æfingar hjá Frjálsíþróttadeild
Ármanns hefjast aftur í kvöld í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu kl. 19. Nýir fé-
lagar eru velkomnir.
hvað fjölda þátttakenda snertir,
en 1963 iðkuðu 3525 handknatt-
leik, en 1956 var tala Þeirra 1678.
Hér á eftlr verða taldar helztu
íþróttagreinarnar og sýndur mis
munur á fjölda þátttakenda 1956
og 1963:
1956 1963
Knattspyma 3200 5581
Handknattleikur 1678 3525
Frjálsíþróttadeild KR hefur
ákveðið að efna til æfinga- og
keppnisnámskeiðs í frjálsíþrótt-
nm innanhúss í íþróttahúsi fé-
lagsins við Kaplaskjólsveg, og
hefst það n. k. laugardag kl. 4.30
fyrir unglinga 16 ára og yngri, en
fyrir eldri miðvikudaginn 12. jan-
úar kl. 6.55.
Fyrirkomulag þessa námskeiðs
verður þannig, að í hverjurn
tíma verður, ásamt æfingum, keppt
í einni grein. Keppt verður í
samtals 6 greinum. Fyrst í lang
stökki án atrennu, þá hástökki
með atrennu, síðan spretthlaupi,
þrístökki án atr., grindahlaupi
og síðast stangarstökki. Veitt
verða þrenn verðlaun til þriggja
beztu skv. stigum.
Hér er tækifæri fyrir þá, sem
unna karlmannlegum íþróttum, að
reyna getu sína í skemmtilegri
keppni, jafnt fyrir byrjendur og
þá sem lengra eru komnir.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að mæta 15 mínútum fyrir
ofangreinda tíma.
Æfingar deildarinnar i vetur
verða sem hér segir:
í íþróttahúsi Háskólans:
mánudaga og föstudaga kl. 8.
Þrekþjálfun og tækniæfingar.
Þjálfari Benedikt Jakobsson.
mánudaga og föstud. kl. 9.
Þrekþjálfun og tækniæfingar fyrir
stúlkur. Þjálfari: Benedikt Jak-
obsson.
Miðvikudag. kl. 7.45.
Sameiginleg þrekþjálfun fyrir ail
ar deildir félagsins. Þjálfari: Ben
edikt Jakobsson.
í KR-húsinu:
miðvikudaga kl. 6.55.
íslandsmótið i körfuknattleik
hefst i byrjun febrúar n. k. Þátt
tökutilkynningar þurfa að berast
stjórn K.K.Í. fyrir 20. jan. Póst
hólf 864, Reykjavík. Tekið skal
fram að ekki er leyfilegt ; ð senda
meira en eitt lið í hverjum aldurs
flokki frá hverju félagi
Tækniþjálfun og keppm fyrir 17
ára og eldri. Þjálfarar: Benedikt
Jakobsson og Þórarinn Ragnars-
son.
laugardag kl. 4.30.
Tækniæfingar og keppni fyrir 16
ára og yngri. Þjálfarar: Benedikt
Jakobsson og Þórarinn Ragnars-
son.
Utanhússþjálfun fyrir hlaupara
fer fram hjá íþróttahúsi Háskól
ans daglega frá kl. 6 til 9 í sam
ráði við þjálfarana, og ennfremur
lyftingaþjálfun í KR-húsinu.
Svæðaskipting verður i yngri
aidursflokkum, ef þátttaka gefur
tilefni til.
Vinsamlega tilkynníð jafnframt
um fjölda leikmanna í meistara-,
1 og 2. flokki karla, svo og í meist
araflokki kvenna vegna keppnis-
skirteina. (KKÍ)
Stjórnin.
Verða landsleikir gegn Pól-
landi í handknattleik og
körfuknattleik sama dag?
Eins og áður hefur verið að leikirnir fari fram 16. og
skýrt frá, leikur íslenzka lands 18. janúar. Það getur því vel
liðið í handknattleik gegn Pól farið svo, að ísland leiki sama
verjum í heimsmeistarakeppn daginn — þ. e. 16. janúar —
inni 16. janúar n. k. Fer sá bæði landsleik í handknattleik
leikur fram í Póllandi. 0g körfuknattleik gegn Pól-
Nú stendur til, að pólska verjum. Óneitanlega yrði Það
landsliðið í körfuknattleik skemmtileg' tilviljun, en þetta
leiki hér á tímabilinu 15. — verða fyrstu landsleikir okkar
janúar í íþróttahöllinni í gegn Pólverjum á íþróttasvið
Laugardal, og er stefnt að því, inu.
(KR).
ísl.mót í körfubolta hefst í febrúar