Vísir - 09.03.1974, Qupperneq 1
• 64. árg. — Laugardagur 9. marz 1974 — 58. tbl.
Þeir fá Kútter Harald
á Skaganum
— og Ford af 1918-gerð
brunar um göturnar á
þjóðhátíðarafmœli
— Sjé bls. 3
BOGGI
SKRIFAR
ANNÁL
— Sjá bls. 8
■
Prinsinn
í œvin-
týrinu
— Sjá umsögn
um ballett Helga
Tómassonar bls. 7
Hvernig
er bezt að
meðhðndla
hárið?
- Sjá bls. 4
■
ERLEND
MYND-
SJÁ
- Bls. 5
■
Mef i innistœðuleysi
— 27 milljónir vantaði inn á 816 ávísanir
— sumar e.t.v. upp á milljónir
Hæsta fjárhæð af inni-
stæðulausum ávisunum,
sem nokkurn timann
hefur komið inn fyrir
veggi Seðlabankans,
kom i Ijós i gær, þegar
niðurstöður úr skyndi-
könnun bankans voru
kunnar.
27,2 milljónir voru ekki til á
bankareikningum 816 reiknings-
aðila. Aldrei áður hafa jafn-
margir átt innistæðulausar
ávísanir, upp á jafnháa upphæð.
Þetta þýðir, að að ineðaltali
hefur hver ávlsun verið að fjár-
hæð rúmar 33 þúsund krónur. Þó
þykir óllklegt, aö menn hafi gefið
allir út jafnháar ávlsanir, heldur
sumir lægri fjárhæðir, en aðrir
hærri.
Algengar fjárhæöir á ávísunum
eru frá þúsund krónum upp I 10
þúsund. Það leiöir svo af sér, að
sumar hæstu ávisanirnar, sem
komu i ljós sem innistæðulausar
gætu hafa hljóðað upp á milljónir.
Björn Tryggvason, aðstoðar-
bankastjóri, sagði I viðtali við
Visi, að bankinn gæti ekki
upplýst, hver hæsta ávisana-
upphæðin hefði verið. Aöcins væri
hægt að gefa upp heildartölurnar.
Að sögn Bjarna Kjartanssonar,
sem stjórnaði rannsókninni
ásamt Sveinbirni Ilafliöasyni,
var magn innistæðulausra
ávisana 2,87% af heildarupphæö
allra ávisana, sem komu i
bankana á f im m tudaginn.
Heildarupphæðin var 946
milijónir.
Seinast þegar könnun sem þessi
var gerð, en það var i september,
komu i ljós 615 innistæðulausar
ávisanir upp á 10,1 miiljón. Nú
hefur fjöldi innistæðuiausra
ávisana aukizt um 201, en
fjárhæðin um 17 milljónir.
Eigendum reikninganna verður
flestum gefinn 10 daga frestur til
að bæta úr skuldinni.
—ÓH
ALTÉND ÍSLENZKT!
Sagt er að fleiri og fieiri kaupi
erlendan fatnað eöa bregði sér
út fyrir landsteinana til þess að
kaupa þar inn það, sem með
þarf. En það er svo sannarlega
ekki að sjá á þessum stúlkum,
sem búa sig undir stúdentspróf I
Menntaskólanum við Tjörnina.
Þær virðast kunna mætavel
að meta Islenzkan fatnað og
framieiðslu, og likiega reynist
heldur fátt betur I nepjunni en
lopapeysa frá Islandi.
Annars segja þeir sumir, að
það sé eins gott fyrir nemendur í
MT að vera vel búnir, þvi
stundum verði að flýja út fyrir
veggi skólans með kennslu-
bækurnar vegna húsnæðis-
leysis. —EA
Evrópskum iðnfyrir-
tœkjum bent á ísland
- þegar orkuskortur hrjáir þau
Hvernig á að nýta gifurlegar
orkulindir tslands? Þannig
hljóðar fyrirsögn i siöasta hefti
EFTA Bulletin, sem gefið er út
af uppiýsingaþjónustu EFTA i
Genf.
t timaritinu, sem gefið er út 9
sinnum á ári á ensku, frönsku og
þýzku, er skýrt frá þvi, hve'
mikið af Islenzkum orkulindum
hafi ekki veriö virkjaðar. Bent
er á, að það kosti ekki nema 0,4-
0,6 bandarisk sent að framleiða
hvert kilóvatt raforku, og hana
megi tæknilega flytja meö
neðansjávarköplum frá tslandi
til Skotlands.
1 greininni er skýrt frá ál-
verinu i Straumsvik og sam-
vinnu Islendinga við Alusuisse.
Sagt er frá þeim samningum,
er verið er að gera viö banda-
riska risafyrirtækið Union
Carbide Corporation um að
reisa hér málmblendiverk-
smiðju i sambandi við Sigöldu-
virkjun. Loks er vakin athygli á
möguleikum til sjóefnavinnslu.
Greinin er birt nafnlaus i
ritinu og þvi á ábyrgð rit-
stjórnar þess. Tilgangurinn með
henni virðist sá að vekja athygli
orkufrekra iðnfyrirtækja i
EFTA-löndunum 6utan tslands,
þ.e. Austurriki, Finnlandi,
Noregi, Portúgal, Sviþjóð og
Sviss, á óbeizluðum orkulindum
tslands. Tekið er fram, að iðn-
rekstur hér megi ekki vera
vinnuaflsfrekur.
Eftir að EFTA-löndin Bret-
land og Danmörk gerðust aðilar
að Efnahagsbandalagi Evrópu
hafa tengslin milli þessara
tveggja samtaka oröið mun
nánari en áður.
Á bls 6. er birtur útdráttur úr
greininni i EFTA Bulletin.
—BB—