Vísir


Vísir - 09.03.1974, Qupperneq 8

Vísir - 09.03.1974, Qupperneq 8
8 Vísir. Laugardagur 9. marz 1974. Eins og þið hafið eflaust orðið varir við, lesendur góðir, þá birtist enginn, desember-annáll i blaðinu, enda mundi það æra óstöðugan að lesa um þá atburði, sem hæst bar þann mánuð, hvað þá að skrifa um þá. ( Þess vegna sleppi ég honum úr almanakinu, en tek janúar i karphúsið. Og þá er að byrja: ... SBG7/? lítfytfST 6ÓL* HUNDt. FPEMUZ EN NÆCSSI. Spangólandi silfurhross Þó silfurhrossi bókmennta- gagnrýnenda dagblaðanna hafi ekki verið úthlutað fyrr en i lok janúar, þá finnst mér sjálfsagt að minnast fyrst á þann atburð. Að þessu sinni hlaut skagfirska skáldið Hannes Pétursson hrossið og þótti flestum skáldið vel að hrossinu komið. Er ekki vonum seinna, að fulltrúi mesta hrossahéraðs landsins hljóti þessa viðurkenningu. En litt munu skagfirskir hrossabændur vera hrifnir af sköpulagi silfur- hrossins og segja það likjast spangóla hundi, fremur en hrossi. Hvað meinti ólijó? ólijó, forsætisráðherra, flutti frábæra hvatningarræðu á gamársdag, eins og hans var von og visa. Hann sagði m.a.: ,,..ég held það vanti einhvern eldmóð i sálina, já ef til vill hálf- gert ofstæki til að reka úr landi ýmsar ódyggðir og óvenjur, sem hér hafa rutt sér til rúms”. Nú velta framsóknarmenn, (hvar i flokki sem þeir standa), því fyrir sér, hvað ólijó, hafi eiginlega átt við. 2500 á mánuði „Gullstæðin” á Tollstöðinni eru nú leigð út fyrir kr. 2500 á mánuði. Að sjálfsögðu eru það „aðallega kaupsýslumenn”, sem hafa ráð á að leigja sér stæði þarna, en starfsmenn toll- stjóraembættisins fá þó að nota stæðin fritt, ef þeir mæta nógu snemma. Einhvern veginn verður að fá fólkið til að mæta á réttum tima i vinnuna. Nú velta menn þvf fyrir sér hvað yfir- byggðu stæðin i nýja Seðla- bankanum muni kosta. Myndhöggvarar hugsa hátt Myndhöggvarafélagið hefur nú fengið inni i súrheys- turnunum að Korpúlfsstöðum. Þar er leigan ólik þvi sem hún er á tollstöðvarþakinu, aðeins ein króna á mánuði. Og loksins geta myndhöggvarar verið upplitsdjarfir og farið að hugsa hátt. Ilaninn háttprúði Margir misskildu auglýsingar um sýningar á „hananum hátt- prúða” á Akureyri. Þeir héldu að verið væri að auglýsa fund i bæjarstjórninni. Skrifaðu undir eða... að þeir koma þaðan út blankir, heimilislausir og niðurbrotnir andlega og hafa því endurtekið brot sin fljótlega. Fyrrgreind ráðstöfun ætti að geta bætt úr skák. Erfiðleikar Og nú er Stefán frá Möðrudal búinn að hijóta þakkir Danadrottningar fyrir málverkið, sem hann færði henni í þann mund sem hún yfir- gaf land vort á siðastliðnu hausti. Stefáni gekk erfiðlega að fá menn drottningar til að taka á móti málverkinu, og ekki ætlaði að ganga betur að koma viðurkenningu og þökkum til hans. Bréfið til Stefáns flæktist til Grlmsstaða á Fjöllum og þaðan til Danmerkur á ný. Loks komst það til Stefáns að heimili hans i Reykjavfk. Ungu mönnunum i lögregl- unnimun mörgum hverjum lika það miður að mega ekki safna hári og skeggi eins og aðrir. Greipur varðstjóri segir, að hægt sé að toga i skeggið og teyma menn fram og aftur á þvi. Mér er spurn. Hvernig veit Greipur það? Biræfnir þjófar Þjófar gerast æ biræfnari. Um miðjan janúar bauð maður nokkur til sin fólki að afloknum dansleik „i einu veitingahúsi borgarinnar” eins og segir i varlega orðuðum fréttum. Heimboðið launaði fólkið með þvi að binda gestgjafann og labba út frá honum með 150 þúsund króna stereó.samstæðu. Ég segi nú bara fyrir mig, að aldrei mundi ég bjóða svona fólki heim. Ég var sveimér heppinn að vera ekki i Klúbbnum, þegar lyftingamennirnir voru með undirskriftalistann sinn á móti honum Halli vini minum. Hver þorir annað en að skrifa undir, þegar svona jakar biðja mann að gera það? Maður veit svosem hvað þeir geta, ef þeir kæra sig um, það sýndi sig best i þjóna- verkfallinu. Hvað með tima- sprengjurnar? Visir segir frá þvi, að hinir grunuðu i sprengjumálinu hafi verið látnir lausir og haft fjar- vistarsönnun, af þvi þeir hefðu verið i öðrum borgarhluta nokkrum minútum eftir spreng- inguna. Hvernig er það annars. Eru timasprengjur komnar úr tisku? Fangar á sjóinn Loksins kom að þvi að rétt- vlsin kom vitinu fyrir sjálfa sig. Nú á sem sagt aö manna bát- ana með mannskap frá Litla- Hrauni. Þetta hefði mátt gera fyrir löngu. Hvernig væri til dæmis að manna úthafs- togarana með þessum strákum, sem flestir eru þaulvanir sjó- menn? Það hefur löngum verið vandamál hjá þeim, sem afplánað hafa dóma á hrauninu, 'v> V /y A. ■ ' S7EFAH rW /FióbrruML Pattonnabbisveinn Patton slökkviliðsstjóri, sem kallaður var Nabbi, þegar við vorum I skóla, hefur nú hlotið rétt eina viðurkenninguna og það frá Washington. Já, það á ekki af Sveini vini minum að ganga. Hver heiðursviður- kenningin á fætur annarri dynur yfir hann og kemur mér af þvi tilefni i hug visuparturinn: „Það sem helst hann varast vann, — varð þó að koma yfir hann. Sitt hár og skegg Komu ekki aftur Aðrir biræfnir þjófar hringdu dyrabjöllu á húsi i Reykjavik. Húsráðandi kom til dyra. Mennirnir höfðu ekki fyrir þvi að heilsa, heldur gengu rakleitt 'inn i ibúð mannsins og siðan út aftur með fangið fúllt af ferða- útvarpstæki og bókum. Þeir komu ekki aðra ferð, og varð „maðurinn að vonum ákaflega hissa og hringdi i lögregluna”. Bréfsnef lika heiðraður Við skulum slá botninn i þennan annál með þvi að geta litillega heimsóknar Bréfsnefs til Kastrós á Kúbú. Kastró heiðraði Bréfsnef eins og við mátti búast, og Bréfsnef varð voða glaður. Fyrir hvað heiðurinn var sýndur fylgir ekki sögunni, en menn ættu að vera færir um að geta sér þess til. Kærar kveðjur Boggi. rsrfrttvEr \,*eo VUDfi <bJ‘Lt>L£. r TE'/MS) PiBNN F/ZNm OG mFTON /9 FV*.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.