Vísir - 09.03.1974, Page 16

Vísir - 09.03.1974, Page 16
16 Visir. Laugardagur 9. marz 1974. n □AG | Q KVÖLD | Q DAG | Q KVÖLD | Q □AG | Útvarp, laugardag, klukkan 19.40: „Svona er lífið" Kristmann Guömundsson — „hef að ég held”. heitir smásaga eftir Kristmann Guðmundsson, sem flutt verður i útvarpið i kvöld. Kristmann skrifaði þessa sögu upphaflega á norsku, ,,og ég vona að þeir hafi náð í sæmi- lega þýðingu á þessari sögu”, sagði rithöfundurinn, þegar Vis- ir náði tali af honum i gær. „Ég hef sennilega skrifað kringum 60 smásögur. Ég skrif- aði fyrstu smásöguna i Noregi, þegar ég var þar ungur maður og hafði náð tökum á norskunni. Á þeim tima voru smásögur mjög vinsælar i Noregi og viðar, og ég skrifaði talsvert mikið af smásögum til að hafa i mig — það var um það leyti sem ég samdi fyrstu skáldsöguna. Ég kynntist ameriskum smá- sagnahöfundi um þetta leyti, og hann kenndi mér að byggja upp smásögu. Ég kann að skrifa smásögu — og hafa margir öfundað mig af”. „Svona er lifið” er i sýnisbók islenzkra bókmennta, sem Sigurður Nordal gaf út fyrir mörgum árum — en smásögur eftir Kristmann hafa komið út i stórri bók, „Þyrnirósu” — „en sú bók er reyndar löngu uppseld. Það stóö til að gefa út heildarsafn ritverka minna”, skrifað kringum sextiu smásögur sagði Kristmann -— og voru gef- in út ein fjögur bindi, en sú út- gáfa féll svo niður, þegar Egill vinur minn Thorarensen, kaupfélagsstjóri dó. Það var Kaupfélag Árnesinga, sem stóð að útgáfunni. Þessar bækur, sem út komu, eru allar uppseld- ar, en ég hef gert samning við Almenna bókafélagið, að þeir gefi út heildarsafn mitt þegar ég verð 75 ára. Ég er liðlega 72 ára núna”. Kristmann mun hafa verið um 24 ára, þegar hann skrifaði „Svona er lifið”, „en um þetta leyti skrifaði ég einar 25 smásögur, sem voru þýddar i mörgum löndum. Þetta flokkast varla undir bókmentir, en það er hverjúm höfundi hollt að kunna að byggja upp sögu. Nú á timum hefur það lengi tiðkazt á Islandi, að höfundar skrifi óskiljanlegar bækur. Þetta hefur komið fyrir i sumum lönd- um, t.d. Frakklandi, að þvi er mér er tjáð, en við erum að þroskast aftur frá þessu — allt fer i hring og við verðum heil- brigðir”. Dagur Brynjúlfsson les smásögu Kristmanns i kvöld. — GG SJÓNVARP • LAUGARDAGUR 9. mars 1974 16.30 Jóga til heiisubótar. 17.00 tþróttir. 19.15 Þingvikan. 19.45 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Söngelska fjölskyldan. Bandariskur söngva- og gamanmyndaflokkur. Þýð- andi Heba Júliusdóttir. 20.50 Vaka.Dagskrá um bók- menntir og listir. 21.30 Papanec. Danskur þátt- ur, þar sem rætt er við bandaríska hönnuðinn Victor Papanec, en hann er kunnur fyrir að taka nota- gildi hluta fram yfir aðra þætti. Þýðandi Dóra Haf- steinsdóttir. (Nordvision — Danska sjónvarpið) 22.00 Þau unnust með ærslum. (It’s Love I’m after). Bandarisk gamanmynd frá árinu 1937. Leikstjóri Archie Mayo. Aðalhlutverk Bette Davis, Olivia de Havilland og Leslie Howard. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Frægur leikari hefur ákveð- ið að kvænast leikkonu, sem ekki er siður fræg. En sam- komulagið er ekki eins og best verður á kosið, og versnar þó um allan helm- ing, þegar til sögunnar kemur ung stúlka, sem ját- ar leikaranum ást sina. 23.30 Dagskrárlok SJÚNVARP • Sunnudagur 10. mars 16.00 Endurtekið efni. Krafta- verkið. Bandarisk biómynd frá árinu 1962, byggð á heimildum um æskuár Hel- enar Keller. Aðalhlutverk Anne Bancroft og Patty Duke. Þýðandi Jóhanna Jó- hannsdóttir. Áður á dagskrá 25. desember 1973. 18.00 Stundin okkar. Meðal efnis I þættinum er mynd um Róbert bangsa og mynd um Finnlandsferð Rikka ferðalagns. Börn af barna- heimilinu Brákarborg syngja nokkur lög, og börn úr Myndlista- og handiða- skólanum leika á hljóðfæri, sem þau hafa sjálf smiðað, og loks verður sýnt, hvernig búa á til dósafiðlu. Umsjón- armenn Sigriður Margrét Guðmundsdóttir og Her- mann Ragnar Stefánsson. 18.50 Gitarskólinn. Gitar- kennsla fyrir byrjendur. 5. þáttur endurtekinn. Kenn- ari Eyþór Þorláksson. 19.30 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Það eru komnir gestir. Elin Pálmadóttir ræðir við Bergþóru Sigurðardóttur, Láru Ragnarsdóttur og Sig- rúnu Harðardóttur i sjón- varpssal. 21.00 Enginn deyr i annars stað. Austur-þýsk fram- haldsmynd, byggð á sögu eftir Hans Fallada. 2. þátt- ur. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. Efni 1. þáttar: Myndin hefst i Berlin sum- arið 1940. Trésmiðurinn Otto Quangel fær fréttir um, að einkasonur hans hafi fallið á vigstöðvunum. Skömmu siðar verður hann vitni að þvi, að nágranna- kona hans af Gyðingaættum styttir sér aldur eftir yfir- heyrslur Gestapomanna. Þá er Quangel nóg boðið. Hann ákveður að hefja leynilega andspyrnu gegn Hitler, og tekur fyrst til við að dreifa póstkortum i fjölbýlishúsum með áletruninni „Móðir! Foringinn hefur myrt son þinn”. Einnig kom nokkuð við sögu iðjuleysinginn Kluge, sem er greiðvikinn við Gestapo. En kona hans, sem er bréfberi að atvinnu, er hins vegar hliðholl and- spyrnumönnum. 22.10 Mannréttindi i Sovét- rikjunum. Svipmyndir, um- ræður og hugleiðingar um almenn réttindi sovéskra þegna. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. (Nordvision — Danska sjón- varpið) 22.35 Að kvöldi dags.Sigurður Bjarnason, prestur Sjöunda dags Aðventista, flytur hug- vekju. 22.45 Dagskrárlok. Sjónvarp, sunnudag, klukkan 20.25: Fjórar konur hittast Gestir I sjónvarpssal og Elln Pálmadóttir. Frá vinstri: Lára Ragnarsdóttir, Bergþóra Sigurðardóttir, Elin og Sigrún Harðardóttir. „pao eru komnir gestir", þáttur Elinar Pálmadóttur, blaðamanns, verður á dagskrá á sunnudaginn. „Það koma til okkar þrjár manneskjur”, sagði Elin, „og það er eiginlega tilviljun, að þær eru allar konur, Kannski ekkert skritin tilviljun, vegna þess að konur eru jú helmingur þjóðar- innar.” Þessar konur, sem Elin spjall- ar við á sunnudagskvöldið, eru: Lára M. Ragnarsdóttir, sem nemur viðskiptafræði i Háskól- anum, auk þess sem hún er hús- freyja. Láru þekkja eflaust margir. Hún söng stundum i út- varpið þegar hún var barn — en reyndar tekur hún ekki lagið á sunnudaginn hjá Elinu. Bergþóra Sigurðardóttir er læknir. Hún er heirnilislæknir i Hafnarfirði, en auk starfa sins skemmtir hún sér við að taka myndir úti I náttúrunni — myndir af gróðri og dýrum. Myndir eftir hana verða sýndar i þættinum. Þriðja konan, sem Elin ræðir við, er Sigrún Harðardóttir. Sigrún hefur tals- vert stundað söng. Hún leikur á gitar og semur lög sjálf — og ef- laust fá sjónvarpsáhorfendur að heyra til hennar. Auk söngsins, þá leggur Sigrún stund á nám i bókmenntum og ensku við Há- skólann. „Allar þessar konur eru að leita að sinu lifsformi”, sagði Elin Pálmadóttir, „hver á sinn hátt, ein i fornum fræðum, önnur úti i náttúrunni og hin þriðja með þvi að blanda geði við margt fólk”. — GC ÚTVARP • Laugardagur 9. mars 7.00 Morgunútvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Óskalög sjúklinga 15.00 íslenskt mál Asgeir Blöndal Magnússon cand.mag. talar. 15.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „í sporunum þar sem grasið grær” eftir Guðmund L. Friðfinnsson Þriðji þáttur. Leikstjóri og sögumaður: Steindór Hjörleifsson. Persónur og leikendur: Jónsi .......EinarSveinn Þórðarson Þura....Helga Stephensen Stella....Hrafnhildur Guð- mundsdóttir Þorleifur bóndi.... Sigurður Karlsson Húsfreyja.........Margrét ólafsdóttir Guðriður vinnukona: Þórunn Sveinsdóttir Geiri gamli: Gestur Gislason o.fl. 15.50 Barnalög 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Tiu á toppnum. 17.15 Framburðarkennsla i þýsku 17.25 Tónleikar 17.50 Frá Sviþjóð Sigmar B. Hauksson talar. 18.15 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Fréttaspegill 19.40 „Svona er lifið”, smá- saga eftir Kristmann Guð- mundsson Dagur Brynjólfs- son les. 20.00 Létt tónlist frá hollenska útvarpinu. 20.30 Framhaidsleikritið „Sherlock Holmes”eftir Sir Arthur Conan Doyle og Michael Hardwick (áður útv. 1960) Ellefti og siðasti þáttur: 21.15 Hljómplöturabb Þor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (24) 22.25 Danslög 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.