Vísir - 09.03.1974, Page 20

Vísir - 09.03.1974, Page 20
Laugardagur 9. marz 1974. Enn óánregja hjá starfs- fólki Pósts og síma Enn cr rikjandi mikil óánægja hjá nokkrum starfsmönnum Pósts og sima vegna hinnar svokölluðu 50 minútna regiu, þ.e. að 50 minútna vinna um nótt og svo um helgi verði að klukku- stund. 1 frétt i Visi fyrir skömmu var sagt frá þvi, að þessi réttindi heföu verið tekin af starfsstúlkum sem höfðu áður unnið i mörg ár hjá Pósti og sima, en aö sögn Agústs Geirssonar þar, hafa þær þó náð þessum réttindum aftur. Fengu allmargar leiðréttingu á þessu, og var sú ákvörðun tekin af póst- og simamálaráöherra og stofnuninni. Enn er þó töluverður fjöldi starfsmanna, sem ekki hefur fengið neitt að gert i málinu, og hafa t.d. starfsmenn i Gufunesi og við talsamband við útlönd sent fjármálaráðherra bréf um málið. Þá skal þess getið, að starfs- menn Pósts og sima sendu frá sér kröfugerð um sérsamninga fyrir rúmum mánuði, ,,en allt of litið hefur verið gert, og ekkert hefur verið rætt við okkur af hálfu samninganefndar rikisins”, sagði Agúst. „Það hefur ekkert verið rætt við okkur út af samningun- um, og við erum ákaflega óhress- ir yfir þvi. Málið á sjálfkrafa að ganga til kjaradóms l.mai, og þvi styttist timinn.” — EA Er pundið að hœkka? Er pundið að hækka? Að þcssu spyrja sumir, sem hafa séð gengið á pundinu hækka á nokkrum dögum úr 190 krónum i 200,80 krónur. Við spurðum Sigurð örn Einarsson, skrifstofustjóra i Seðlabankanum, þessarar spurningar. ,,Ég vil nú helzt engu spá um þetta”, sagði Sigurður. „En trú manna á pundið hlýtur að styrkjast, ef verkföllin i Englandi fara að leysast og allt að færast i samt lag aftur. Okkar gengis- skráningar fara fyrst og fremst eftir tölum erlendis frá, svo það er aldrei að vita um áframhaldandi þróun fyrr en næstu tölur koma.” —óH ■ *; ■■ . . g 4 ÆJ Milljónaskipið Guðmundur RE iosar loðnu i Reykjavikurhöfn. Mynd-BG Tekiuháir hásetar á afíaskiaum Guðmundur RE er aflahæsta loðnuskipið núna, hefur alls veitt 11.000 tonn. Núna er kilóið af loðnunni til bræðslu selt til verksmiðja á 3,00 kr. og hefur lækkað um helming frá þvi i janúar. Hlutur háseta á aflaskipi eins og Guðmundi er greinilega tals- verthár. Hver háseti mun fá 2% af brúttó fjárhæð fyrir afla. Þannig gefa 1000 tonn af sér þrjár milljónir króna — háseta- hlutur verður um 75.000 krónur. Og af 11.000 tonnum fær háseti þá 825.000 krónur þ.e. á nú- verandi verði. Það er dágóður skildingur á svo skömmum tíma, sem loðnuvertið er — en vert er að athuga, hve fáir þeir eru bátarn ir, sem afla á borð við garpinn GventLSkipsmenn á honum hafa þó eflaust borið talsvert hærri fjárhæðir en téð 825.000 úr býtum, því loðnukilóið hefur aðeins skamma hrið verið á 3.00 kr. Lengst af á þessari vertfð var það hærra, og eitthvað hefur Guðmundur selt i frystingu, og frystingarloðnan er dýrari. Frá 1. marz til 10. marz var verðið á hverju kg bræðsluloðnu 3,00 krónur.Frá 11. marz til 31. marz er verðið 2,60 kr. hvert kg, en frá 1. april til 15. mai 2,30 kr. hvert kg. Dauft á miðunum Engin loðnuveiði var i gærdag og spáð vondu. Bræla hefur staðið veiðum fyrir þrifum siðustu daga, og varla um að ræða, að loðna hafi komið úr sjó, nema stöku tonn. Þeir hjá loðnunefnd sögðu i gærkvöldi, að bátar væru út af öndverðarnesi og eitthvað að myndast við áð kasta, en enginn hefði tilkynnt afla. —GG Dísilrafstöðvar norður í stað „hundsins"? — línan verður svo dýr, að dísilafI kœmi til greina, segir Bjarni Einarsson bœjarstjóri ,,Þessi linulögn hingað norður er dýr, en samt hvorki fugl né fiskur”, sagði Bjarni Kosningar framundan: Vinsœl andlit hverfa af sjónvarpsskerminum Sjónvarpsáhorfendur fá að öllum likindum i sfðasta sinn að sjá Magnús Bjarnfreðsson á skjánum I næsta og siðasta þættinum „Krunkað á skjáinn”. Að minnsta kosti er það í siðasta sinn i bili, sem Magnús kemur fram sem umsjónarmaður þáttar, þvi honum hafa verið falin önnur störf hjá sjónvarpinu, og hættir hann þvi sem dagskrár- starfsmaður. Magnús er i fra-mboði fyrir Framsóknarflokkinn i Kópavogi, eins og mönnum er eflaust kunnugt. Við röbbuðum við Magnús og spurðum hann, hvort honum væri þá ekki reglum samkvæmt bannað að láta sjá sig á skerminum. Magnús sagöi, að það væru til gamlar reglur varðandi það, en hann mundi ekki nákvæmlega timasetningu, þ.e. hversu langan tima fyrir kjördag viðkomandi má ekki láta sjá sig á skermi. Hann sagðist falla undir þær reglur. Siðasti þátturinn „Krunkað á skjáinn” er nú langt kominn i vinnslu, en hann verður að öllum likindum fluttur rétt eítir að framboð hefur verið tilkynnt. Fleiri „stjörnur” i framboð. Og hugsanlega verða þær fleiri en ein, sjónvarpsstjörnurnar, sem i framboð fara fyrir Framsóknarflokkinn. Það mun hafa komiö til tals, að Markús A. Einarsson veður- fræðingur færi i framboð i Hafnarfirði. Markús vildi raunar litið gera úr þeirri „hugmynd”, „það er ekki enn afráðið — ég vil ekki tjá mig neitt um málið i bili”, sagði Markús. —EA/GG Einarsson bæjarstjóri á Akureyri i viðtali við Visi i gær. Bjarni sendi erindi til fundar Sambands islenzkra rafveitna, sem var haldinn I vikunni. Þar lýsti hann yfir megnri andstöðu við fyrirhugaða linulögn noröur og lýsti ýmsum vandkvæðum, sem Norölendingar kynnu að eiga við aö striða I framtlðinni I raforkumálum. „Þangaö til virkjunin við Kröflu veröur tekin i notkun, sem er áætlað að verði 1978, þá mun rikja óvissa i orkumálum okkar. Sagt hefur verið, að um leið og linan veröi tengd, en það á aö vera á næsta ári, verði byrjað aö flytja rafmagn um hana. Ég býst hins vegar ekki við, að það rafmagn veröi mikið, ef marka má hversu illa Landsvirkjun gekk I vetur að útvega orku- kaupendum sinum rafmagn”, sagði Bjarni. Bjarni býst ekki einu sinni við, að Landsvirkjun geti staðið við orkusölu norður veturinn 1976/77, þráttfyrir að þá eigi ein vélasamstæða við Sigöldu að vera komin i notkun. Bendir hann á, að orkuþörfin á svæðinu sunnanlands hafi þá þegar aukizt svo mikið, að nýta þurfi rafmagnið þar. „Þessi lina hingað norður á aö flytja 40 megavött, og ég hef heyrt, að hún komi til með að kosta 750 til 800 milljónir. 40 megavött eru hins vegar ákaf- lega litið og dugar hvergi til hér fyrir norðan”, sagði Bjarni i viðtalinu við Visi. „Svo þegar Kröfluvirkjun kemst I gagnið, sem verður 1978, þá er ekki lengur þörf fyrir linuna. Kröfluvirkjun mun fullnægja okkar þörfum fyrstu árin. Það veröa dauð ár, og þá stendur linan til litils. Við eigum hins vegar að greiða 10% af kostnaðarverði linunnar árlega, sem eru þá um 80 milljónir”. Bjarni sagði, að þaö yrðu um 3 ár, sem línan kæmi að notum viö að koma I veg fyrir neyðar- ástand i raforkumálum Norð- lendinga. En hinn mikli stofn- kostnaður við hana leiddi hugann að þvi, hvort kæmi ekki til greina að brúa þetta 3 ára bil með disilafli, þótt það væri dýrt. Bjarni hefur oft áöur bent á leiö til úrbóta I þessum efnum, og þaö er að gera tiltölulega lága stiflu i Laxá, svo aö orku- framleiðsla Laxárvirkjunar veröi ekki eins sveiflukennd. Laxárbændur hafa hins vegar staðiö I vegi fyrir slikri stiflu- gerð. Bjarni sagði 1 viðtalinu við Visi, að þarna væru það lika Norðlendingar sem væru Norð- lendingum verstir. —ÓH VISIR

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.