Tíminn - 20.01.1966, Page 2
FIMMTUDAGUR 19. janúar 1966
TÍMINN
ipró fundinum i Rithöfund.is.jmb.mdi jsl./nds.
HOFUNDARSA MÞ YKKJA
AÐBANNA ÚTLÁNBÓKA
IGÞ—Reykjavík, miðvikudag.
Rithðfundar samþykktu á fundi
f Rithöfundasambandi íslands í
gærkveldi, að banna útlán bóka
sinna úr alm.bókasöfnum. Nær
bann þetta til bóka, sem koma út
eftir 1. maí n. k.
Stefán Júlíusson, rithöfundur,
skýrði frá gangi bókasafnsmálsins
á fundinum. Kom þar fram, að all
ar tilraunir til að fá saimþykkt við-
auikalög við íög um bókasöfn, þess
efnis, að ákveðin upphæð verði
greidd árlega fyrir útlánaðar bæk-
ux, sem síðan skiptist til höfunda
að hálfu eftir útlánuðum eintaka-
fjölda og rynni að hálfu í sér-
stakan sjóð til eflingar skáldmennt
ar í landinu, hefðu ekki borið
árangur.
Einhiugur ríkti á fundinum um
að beita einhverjum þeim aðgerð
um, sem að gagni mættu koma,
til að hrinda í framkvæand þessu
mikla hagsmunamáli höfunda. Fyr
fr fundinum lá tillaga frá stjóm
Rithöfundasambandsins, þar sem
kveðið er á um bann við útlánum.
Nokkrar umræður urðu um þessa
tillögu, sem einkenndust af því,
að höfundum þótti tími til korninn
að ráðstafanir yrðu gerðar til að.
koma þessu réttlætismáli í höfn,
þannig að allir mættu vel við una.
Var tillaga stjórnarinnar síðan
samiþykkt einróma og fer hún hér
á eftir.
Almennur fundur í Rithöfunda-
samibandi íslands ályktar að mæl-
ast eindregið til Þess við alla fé-
laga sína, svo og aðra, er við bók-
ritun og þýðingar fást, að þeir
láti frá og með 1. maí 1966 prenta
á bækur sínar algjört bann við
því, að bækur þeirra séu lánaðar
út af alm.bókasöfnum, nema
gjald komi fyrir til höfunda eða
þýðenda. Fundurinn brýnir það
fyrir ísl. rithöfundum og þýð., að
þeir sjái til Þess að samþykkt þess
ari sé fylgt fram við prentun bóka
sinna, enda eru þeir þar í fullum
höfundarétti.“
Á þessum fundi var einnig sam
þykkt að senda þvö skeyti og
þeirra getið í annarri frétt. Þá
var einnig samþykkt tillaga frá
Sigurði A. Magnússyni þess efn-
is, að þegar íslenzka sjónvarpið
hæfi göngu sína skyldi sjónvarp
ið á Keflavíkurvelli takmarkað við
vamarliðsstöðina eina.
Þorramatur í Nausti
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Þorrinn byrjar á föstudaginn
og að venju verður þorramatur;
framreiddur í veitingahúsinu
Naust. Er þetta í níunda sinn,
sem gestir geta fengið gamla ís-
lenzka matinn á þorranum í Naust
inu.
Blaðamönnum var í dag boðið
að gæða sér á þorramatnum, og
voru þar svið. blóðmör, hangi-
kjöt, súr hvalur. lifrarpylsa, há-
karl, rófustappa, bringukollar,
lundabaggar, hrútspungar, sviða-1
sulta, selshreyfar, flatkökur, rúg
brauð og smjör.
Áður var blaðamönnum boðið
að bragða á þrem forréttum. en
það voru glóðarsteiktir humarhal
ar, sem Naust hefur lengi haft á
boðstólum, og tveir nýir réttir,
vínmarineraður kræklingur og
sniglar
Eins og áður segir er þetta ní-
unda árið, sem Naustið hefur
þorramatinn á boðstólum, og hef
ur hann verið mjög vinsæll und
anfarin ár.
Spámaðurinn spáöi styrjöld
í Viet-Nam árin 1965-1967
NTB-Saigon og Hond Kong, miðvd.
Ekkert lát var á styrjöldinni í
Víetnam í dag, en vopnahléstím-
inn nálgast óðum. Víet Cong-
menn hafa lýst því yfir, að vopna-
hlé þeirra hefjist á miðnætti að-
faranótt fimmtudagsins að Víet-
namtíma, en vopnahlé stjórnar-
hersins, Bandaríkjamanna, Suður-
Kóreumanna, Ástralíumanna og
Ný-Sjálendinga hefst nokkru síð-
ar, eða að morgni fimmtudagsins,
og stendur í þrjá og hálfan sól-
ahhring. Vopnahlé Víet Cong
stendur nokkuð lengur, eða til
miðnættis 23. janúar n.k.
Jafnframt hófu hinir almennu
borgarar í Víetnam, og í Kína,
að undirbúa nýárshátíðarhöldin,
sem hefjast á miðnætti fimmtu-
dags. Talið er, að um 65.000 Kín-
verjar í Hong Kond fari til Kína,
einkum Kwantung-héraðsins, til
þess að halda upp á nýja árið þar.
í Norður- og Suður-Víetnam,
þar sem nýja árið heitir „tet,“
verður þriggja eða fjögurra daga
vopnahlé. Samkvæmt fornum sið
hafa allar fjölskyldur boðið for-
feðrum sínum að snúa til baka
LÉZT AF
SLYSFÖRUM
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
í gærkvöldi andaðist á Landa-
kotsspítala Auðunn Pálsson á
Bjargi við Ölfusárbrú vegna
áverka er hann hlaut, er jeppa-
bifreið ók á hann s.l. laugardags-
morgun skammt vestan við brúna.
Bifreiðastjórinn á jeppanum
varð ekki Auðuns var fyrr en
harin var kominn fast að honum
og þá var um seinan að stöðva
bifreiðina. Reyndi bílstjórinn að
sveigja til hliðar en tókst það ekki
að fullu því að stuðarahornið lenti
á Auðni og við það skall hann
utan í húsið á jeppanum og höf-
uðkúpubrotnaði og mun það hafa
verið banamein hans. Auðunn var
fæddur 1908 og lætur eftir sig
konu og mörg uppkomin börn.
Slysið Varð með þeim hætti, að
Auðunn gekk í sömu átt og bíll-
inn ók og varaði hann sig ekki
á henni. Það mun fullseint nægi-
| lega brýnt fyrir fólki, að fylgja
i umferðarreglunum og ganga ætíð
! á móti umferð.
Indira Gandhi forsæt
isráðherra Indlands
NTB — New Delhi, miðvik'udag.
Frú Indira Gandhi, dóttir Jawa
harlal Nehrús. var í dag kjörin
leiðtogi indv. Kongressflokksins
og falið að mynda nýja ríkisstjórn.
Hefur kona því orðið forsætisráð
herra Indlands i fyrsta sinn í
sögu landsins, og um Ieið á mikl
um örlagatímum. Baráttan stóð
milli frú Gandhi og fyrrverandi
fjármálaráðherra Indlands, Morar
ji Desai, og bar frú Gandhi sigur
úr býtum. Hún er ekkja og á tvo
syni, 19 og 21 árs, og er önnur
konan, sem orðið hefur forsætis
ráðherra í sögunni, hin konan var
frú Bandaranaike á Ceylon, sem
gcgndi Því embætti frá 1960 til
1965.
Frú Gandhi tilheyrir hinni aristó
kratisku Braman-stétt í Indlandi,
og fékk menntun sína i Allababad
Sviss og við Oxfordháskólann.
Auk bess fékk hún skjótt góða
reynslu i stjórnmálum og dipló-
matí, sem dóttir fyrsta íorsætis
ráðherra Indlands eftir sjálfstæði
landsins 1947 Stjórnmálalega séð
er hún talin nokkuð vinstrisinn-
aðri en Nehrú, en á blaðamanna
fundi í dag eftir sigurinn i kosn
ingunum sagði hún, að hún myndi
fylgja stefnu föður síns og Shastr
is. — Eg mun ekki víkja frá
þeirri stefnu, sagði hún.
Um Tasjkent-yfirlýsinguna sagði
frú Gandhi, að Indverjar yrðu að
halda fast við þær skuldbindingar,
sem Shastri hafi gert í Tasjkent
áður en hann andaðist. Sagði hún,
að sérhvert skref i átt til friðar
væri til góðs.
Um hungursneyðina 1 Indlandi
sagði hún, að hún tæki við hjálp
frá öllum aðilum, en Indverjar
þyrfbu að gera allt sem í þeirra
valdi stæði til þess að landið gæti
framleitt næg matvæli fyrir alla
íbúana.
Frú Gandhi sagði, að hún
til jarðarinnar og taka þátt í há-
tíðarhöldunum. Heimilin eru fyllt
blómum og matvælum og börnin
nota hvert tækifæri til þess að
brenna blys af öllum gerðum og
skjóta upp flugeldum.
í Víetnam eru hátíðarhöldin á
táknrænan hátt tengd styrjöld-
inin þar. Samkvæmt víetnamíska
spámanninum Trang Trinh, sem
var uppi á 16. öld, átti árið 1965,
eða „ár slöngunnar," að leiða til
styrjaldar í Víetnam. Árin 1966
(ár hestsins) og 1967 (ár geitar-
innar) áttu margar hetjur að deyja
en friður átti að komast á árið
1968 (ár apans) eða 1969 (ár han-
ans).
Báðir deiluaðilar í Víetnam hafa
lýst því yfir, að þeir muni ekki
berjast. nema á þá verði ráðizt
daga bá. sem vopnahléið s-tendur
yfir.
ÞÓRÐUR Á SÆ-
BÓLI FÉKK 2500
KRÓNA SEKT
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Kveðinn hefur verið upp dóm-
ur í máli, sem höfðað var gegn
Þórði Þorsteinssyni á Sæbóli í
Kópavogi, vegna þess að hann
hafði blómaskála sinn opinn á
föstudaginn langa, páskadag og
hvítasunnudag vorið 1965, en
samkvæmt lögum er ekki heimilt
að hafa verzlanir opnar á þessum
dögum. Þórður var dæmdur í
2500 kr. sekt til bæjarsjóðs Kópa-
vogs og komi fimm daga varðhald
fyrir, verði sektin ekki greidd inn
an 4 vikna frá birtingu dómsins.
Þá var honum gert skylt að greiða
allan sakarkostnað, þar með tal-
inn málsvarnarlaun til Harðar Ól-
afssonar lögmanns kr. 4000. Verj-
andinn hefur óskað að áfrýja
dómnum ti] hæstaréttar. Setudóm-
ari í þessu máli var Jón Ólafs-
son.
myndi, i samræmi við venju,
reyna að ná kosningu til efri deild
ar indverska þingsins. Hún er
núna fulltrúi í fyrstu deildinni.
Brézka útvarpið BBC segir, að
sigur frú Gandhis sé einnig sigur
forseta flokksins, Kamaraj, sem
hafi skipulagt baráttuna fyrir því, |
að Gandhi yrði valin, og hafi hon j
um tekizt það á svipaðan hátt, og
honum tókst að koma Shastri inn !
fyrir um 20 mánuðum síðan Er |
talið, að ein af ástæðunum fyrir
kjöri Gandhis sé, að hún ein er,
að margra áliti, fær um að vinna
Kongressflokknum sigur í þing í
kosningunum í febrúar næsta ár. |
I n d i r.i Gí/ndhi