Tíminn - 20.01.1966, Page 14
14
TÍMINN
ENGIN ÁKVEÐIN SKOÐUN
UM AFDRIF VÉLARINNAR
SJ-íReykjavík, miðvikudag.
Rétt fyrir klukkan tíu í kvöld
höfðum við samband við Örn
Scheving á Neskaupstað og
sagði hann, að þeir sem hefðu
staðið að leitinni og fylgzt vel
með henni hefðu ekki enn
myndað sér neinar skoðanir um
hver hefðu orðið afdrif flug-
vélarinnar eða í hvaða átt hún
kynni að hafa flogið frá Nes-
kaupstað.
Öm sagði, að Sigurður M.
Þorsteinsson myndi fara til
Egilsstaða í kvöld og yrði leit
inni á morgun stjómað það-
an. Leitin í dag var mjög vel
skipulögð og leitað vel í ná-
grenninu.
Á morgun er búizt við svip
uðu veðri og var í dag. Á
Neskaupstað var um 10 stiga
frost.
Mannmargt er á Neskaup-
stað og þar bíður flugvél
Eyjaflugs og ætlar hún að
hefja leit í fyrramálið.
Framsóknarmenn
í Árnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Árnessýslu verður haldinn í sam-
komusal KÁ á Selfossi miðvjku-
daginn 26. jan. og hefst kl. 9.30
síðdegis. Auk venjulegra aðal-
fumdarstarfa ræða þingmenn
flokksins í kjördæminu um stjórn
málaviðhorfið.
Eldur í kyndiklefa.
Alf-Reykjavík, miðvikudag.
f kvöld kviknaði í kyndiklefa
í húsi skammt frá lögreglustöð-
inni á Akranesi. Slökkviliðið kom
strax á vettvang og réði niður-
lögum eldsins. Þó urðu skemmdir
nokkrar.
Hneig niður
Srendur
HZ—Reykjavík, þriðjudag.
Skömmu eftir hádegið í gær þeg
ar verið var að fylla olíubíl hjá
Olíufélaginu h.f. í Örfirisey, hneig
bílstjórinn út af í sæti sínu örend
ur. Bílstjórinn, Sveinn Benedikts-
son, til heimilis að Skipasundi 64,
var aðeins fertugur að aldri.
Hafði hann kvartað um sting fyrir
brjóstinu fyrr um daginn en ekki
talið það alvarlegt. Líklegt er, að
Sveinn hafi látizt vegna kransæða
stíflu.
ÞAKKARÁVÖRP
Þakka — ekki sjö sinnum, heldur sjötíu sinnum sjö
sinnum, — góðhug og gjafir, heimsóknir, blóm, skeyti
og kveðjur á sjötugsafmæli mínu 17. janúar.
Guð blessi ykkur.
Sveinn Víkingur
Innilegt þakklæti votta ég öllum þeim, sem sýndu
mér hlýhug og vináttu á sextugsafmæli mínu hinn 27.
des. síðastl. með heimsóknum, skeytum og gjöfum.
Lifið heil.
Kristján Jónsson,
Óslandi, Skagafirði
Jarðarför,
Jóns Ásbjörnssonar
fyrrverandi hæstaréttardómara
fer fram frá Dómkirkjur«ni föstuda-ginn 21- ian. kl, 2 e. h.
Vinir og vandamenn.
Ástkæra dóttir okkar og systir,
Selma Sigþóra Víbergsdóttir
andaðist aðfaranótt hins 18. janúar í Borgarspítalanum,
Elínborg Þórðardótir,
Vígberg Einarsson,
Ásta Anna Vígbergsdóttir.
Maðurlnn minn,
Auðunn Pálsson
Bjargi Selfossi,
lézt af slysförum í Landakotsspítalanum, þriðjudaginn 18. þ.m,
Soffía Gísladóttir.
LEITARSVÆÐIÐ
Framhald af bls l.
í kvöld flaug DC-6 Loftleiðavél
yfir leitarsvæðið fyrir austan,
hafði hún gott skyggni og gott
veður var á öllum þeim stöðum,
sem flugumsjónin hafði haft sam
band við, þegar blaðið fór í prent
un. Vélin hafði verið um það bil
fjóra tíma á flugi, og var að
leggja af stað til Keflavíkur klukk
an rúmlega 11. Síðar í nótt átti
flugvél frá vamarliðinu að fara
austur og sveima þar yfir fram
undir morgun, en strax í birtingu
var gert ráð fyrir, að allur leit
arflotinn færi af stað. Formaður
Hjálparsveitar skáta í Reykjavík
var staddur í flugturninum og
var þar að bjóða fram hjálp að
minnsta kosti 15 sveitarmanna.
TÝNDA VÉLIN
Framhald af bls. 1.
firði og Egilstöðum. Einnig
hafa hiargir sjálfboðaliðar tek-
ið þátt í leitinni.
f fyrstu var álitið, að flug-
vélina væri að finna ekki fjarri
Mjóafirði eða Norðfirði, en um
þrjú-leytið í dag var talið, að
menn hefðu leitað af sér all-
an grun þar um slóðir að sögn
flugradíómanns á Egilstöðum,
og smám saman hafa leitaflokk
ar fært sig suður á bóginn,
enda hefur fólk víða af Aust-
urlandi talið sig hafa séð vélina
og heyrt ti'l hennar fyrir og
eftir miðnætti. Talið er að
hennar hafi orðið vart um hálf
ellefu-leytið yfir Seyðisfirði,
um ellefuleytið telur fólk í
Breiðdalsvík sig hafa orðið vart
við hana í talsverðan tíma, og
rúml. ellefu heyrðist í henni
yfir Hamarsfirði. Á tveimur
bæjum í Álftafirði mun hafa
heyrzt í flugvél kortér yfir 12
og á öðrum bænum, Stórhóli
sá heimilisfólkið greinilega ljós
um sama leyti, bar það við
tind á Selfjalli, hvarf brátt aft-
ur og kom í ljós skömmu síð-
ar, en síðan mun það hafa
horfið algjörlega. Veður var
gott í Álftafirði um þetta leyti,
heiðskírt, en talsvert hvasst.
Að sögn Sigurðar kom síðast
inn tilkynning um, að það hafi
heyrzt í vél og hún jafnvel
sézt á Vaðbrekku í Jökuldal.
Tíminn hafði í dag samband
við Guðmund Svavarsson, sím-
stöðvarstjóra á Stafafelli í
Lóni. Sagði hann að ekki hefði
frétzt um hvarf flugvélarinnar
fyrr en í hádegisútvarpinu, en
þá hefði hann hafizt handa um
að safna saman mönnum til
leitar.
Þá sagðist Guðmundur hafa
heyrt til flugvélar í norðurátt
um kl. 12,30 í gærkveldi og
gæti það komið heim og sam-
an við frásögn fólksins á Stór-
hóli í Álftafirði.
Guðmundur kvað þrjá leitar-
flokka frá Höfn í Hornafirði
hafa leitað í Lóninu í dag, en
snúið til baka síðari hluta dags.
Kvaðst hann mundu leita sam
ráðs við Elías Jónsson lögreglu
mann á Höfn um leitina á morg
un og yrði þá leitarhópnum
skipt niður á dalina upp af
Lóni og menn sendir upp á
hálendið, en mjög löng leið
væri að leitarsvæðunum, vafa-
samt að menn gerðu annað
þann daginn en að komast
þangað.
Guðmundur kvað veðrið vera
gott í dag, snjóföl og mikið
frost.
Fréttaritari blaðsins í Höfn
í Hornafirði tjáði blaðinu, að
ekkert hefði heyrzt til flugvél-
arinnar þar, en ótrúlegt væri
að hún hefði flogið svo yfir, að
enginn hefði heyrt til hennar.
Hins vegar hefði leitarflokkur
farið af stað upp úr hádeginu
og leitað aústur í Lóni og víð-
ar.
Að því er fréttaritari blaðs-
ins á Norðfirði hefur tjáð
blaðinu, var í dag leitað á stóru
svæði á Austfjörðum. Nákvæm
leit fór fram í Reyðarfirði,
Eskifirði, Vaðlavík, Sandvík,
Viðfirði, Hellisfirði, Norðfirði
og Mjóafirði út að Dalatanga.
Eins og áður er getið, átti að
halda leitinni áfram í nótt og
á morgun.
FIMMTUDAGUR 19. janúar 1966
A VIOAVANGi
Framhald af bls. 3
þvottaefni og liandsápu 110%.
Við þetta bætist svo 7,5% sölu
skattur og ca 40—50% álagn
ing í hcildsölu og smásölu. Er-
lendis eru tollar af hreinlætis-
vörum varla yfir 10% og sum
staðar engir. Þetta er aðeins
lítið sýnishorn.
Framhald af 16. síðu.
SVÍINN
in hafði lagt það fyrir.
Skeytið til sendiherrans, sem
var sent samkvæmt tillögu for-
manns sambandsins, Björns Th.
Björnssonar, var á þá leið, að Rit-
höfundasambandið óskaði rússn-
éska rithöfundinum Sjolokov til
hamingju með Nóbelsverðlaunin,
en í síðari hluta tillögunnar, sem
send var sendiherranum stóð, að
víta bæri þá ráðstöfun Sovétstjórn
ar að láta rússneska rithöfundana
sem ganga undir skáldheitunum
Abram Terz og Nikolai Arzhak,
þola frelsisskerðingu í heimalandi
sínu.
Samþykkt var að senda þessa
tillögu til sendiherrans í rússn-
eskri þýðingu. Nokkrar umræður
urðu um tillöguna og var ýmist
að menn voru ekki samþykkir að
hylla Sjolokov eða þeir voru ekki
samþykkir að víta bolabrögðin við
rithöfundana. Tillagan var borin
upp í tvennu lagi, fyrri og seinni
hluti og náðu báðir samþykki.
Lauk þar með skeytasendingum.
Þess skal getið, að sambandið hef-
ur sent Nóbelsverðlaunahöfum í
bókmenntum slík heillaóskaskeyti
á hverju ári, síðan sambandið tók
til starfa. Hins vegar kom ekki
fram á fundinum að sambandið
hefði séð sig knúið til að senda
vinnanda bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs heillaóskaskeyti
fyrr, eða talið sig knúið til að
vera með einkunnargjafir í því
efni, eins og orðið „velfortjant,“
gefur til kynna.
Kort þetta er af aðalleitarsvæSinu. Krossarnir merkja staði, þar
sem talið er að heyrzt hafi til vélarinnar.
TOGARINN
Framhald af bls. 16.
— Hvað er langt síðan skip hef-
ur strandað á þessum slóðum?
— Það eru ein 30—40 ár síðan
skip hefur strandað á þessum stað,
annars strandaði brezki togarinn
Grimsby Town rétt austar 1945
og okkur tókst að bjarga áhöfn-
inni. Fyrir þremur árum strandaði
Hafþór frá Vestmannaeyjumáþess
um slóðum og þá varð einnig
mannbjörg. Hvorugt þessara skipa
náðist út aftur.
— Er ekki eitthvað af verðmæt-
um um borð?
— Það er allt um borð ennþá.
Togarinn er óbrotinn og ekkert
hefur verið hreyft. Það er ekki
hætta á að hann brotni að sinni,
ekki nema að hann gerði suð-
vestan eða sunnan átt. Það er tölu-
vert meira brim núna en var
gær.
Þá náðum við tali af Mecklen-
burgh skipstjóra á Wyre Conquer-
er, og sagði hann okkur, að hann
hefði farið út að togaranum í dag
til þess að líta þar eftir. Hefði
togarinn verið farinn að lyftast
upp, og taldi skipstjórinn að jafn-
vel hefði getað komið til greina,
að hann losnaði sjálfur, ef hann
snerist ekki og færi á hliðina.
— Við lögðum af stað frá Eng-
landi á laugardaginn, sagði Mekl-
enburgh, og vorum ekki byrjað-
ir að fiska, svo skipið er alveg
tómt. Ekkert fór úr lagi við
strandið að heitið geti, nema kann
ski eitthvað smávegis í vélarrúm-
inu, en aðalvél skipsins er þó í
fullkomnu lagi.
— Hér verð ég þangað til varð-
skipið kemur aftur til þess að at-
huga hvort hægt verði að ná tog-
aranum út. Ég komst ekki út í
dag, þar sem mikill sjór var og
tilgangslaust að reyna það.