Tíminn - 23.01.1966, Page 8

Tíminn - 23.01.1966, Page 8
8_________________________________________________TIMINN__________________________ SUNNUDAGUR 23. janúar 1966 Grein eftir Julius Bomholt, þingforseta Dana, í Nyt fra Island í SÓLSKINI OG STORMI I REYKJAVÍK Flugvélin, sem á aS flytja okkur til fundar Norðurlanda- ráðs á íslandi, heitir „Eiríkur rauði,“ og það gefur að sjálf- sögðu efni til íhugunar. Þegar ég kom í fyrsta sinn til íslands átti ég aðeins eina ósk: að sjá bústað Eiríks rauða. Það olli miklu erfiði.Frú Bodil Begtrup, ambassadör, varð að kynna sér Eiríks sögu rauða, og prófessor Sigurður Nordal, sém er mjög vel að séf, lof- aði að vera leiðsögumaður í ferðinni til staðarins. Og þó hikandi. Sagt var, að þetta yrði löng ökuferð um slæma vegi, og að ekki væri víst, hvort bifreið kæmist ferðina á enda. Við ókum. Við komumst á vegum, sem ekki voru vegir, til hlíðar þeirr ar, þar sem bústaðurinn hafði verið. Ennnþá, — þúsund árum síðar — var hægt að sjá, hvar túnið hafði legið. Það merkilegasta var, að staður þessi minnti svo mjög á bústað Eiríks rauða í Eiríks- firði á Grænlandi. Sama lands- lag. Sama krafan til sjálfsbjarg arhvatar mannsins. Nú fljúgum við i kjölfar báts Eiríks rauða, og maður undr- ast — eins og alltaf áður — að menn gátu ratað yfir þess- ar miklu víðáttur Norður-At- lantshafsins. Hvernig átti það sér stað? Sonur Eiríks rauða hélt áfram yfir hafió til Norð- ur-Ameríku —- án ót' við mið- garðsorma og sjávartröll, og maður sér hann ósjálfrátt fyr- ir sér: Maður með augu ljós- blá eins og ís. Margir hafa reynt að skrifa um þessa ferð, fyrstu sögu vest urhvelsins, og daginn, sem það tekst, hefur alþjóðleg skáld- saga verið sköpuð, og í henni verður blaðað í öllum fimm heimsálfunum. Við nálguðumst fjöll strand- arinnar, og flugvélin sveigði niður, lágt yfir gráar .ylgjurn- ar. Svarta kollhúfu bar fyrir augu. Það var eldgoseyjan, sem nýlega skauzt upp úr hafinu. Úr rifum á yfirborði hennar stígur hvít gufa til himins, og vindurinn fe-kir henni með sér í löngum, svifandi renn- ingum. Hvítleitt brimrót sýður umhverfis eyjuna, eins og haf- ið vilji taka bráð sína til baka — og eyjan svarar með gló- andi hraunfljóti, eldi, sem ýt- Júlíus Bomholt ir öllum öðrum litum til hlið- ar. Við héldum áfram í þessari litlu hæð yfir öldutoppana og skömmu síðar renndum við inn á flugvöllinn við Reykjavík. Það kom á óvart, eftir sex klukkustunda hlýju í vélinni, að stíga út á landgöngubrú sem nötraði undar. þunga stormsins. Kjólar og frakkar blöktu, og fólkið, sem beið okk ar, leit út eins og vindurinn hefði máð allar útlínur af því. —- Hvað viljið þér segja um handritin. Pappír og blýantar og forvitin andlit og ljósglamp ar. — Hvað viljið þér segja um handritin? Skoðun getur . Us ekki verið til í þessari ringulreið. Ekki er annað að gera en að troða sér burt, i gegnum áhorfenda hópinn, og leita að fólksflutn- ingabifreiðinni, sem beið okk- ar. Vuii-xugahúsi^ á 8. hæð Sögu- hótelsins. Kvöld. Það er eins og að svífa í loftbelg yfir sléttu, sem er stráð ljósum. Lágu hæðirnar umi./erfis borg ina: Ljós og aftur ljós. Með hverri klukkustundinni, sem líður, kvikna fleiri ljós, sem sveiflast í grænu o" gulu og bláu. Eitt hús getur ekki látið sér nægja einn upplýstan glugga Ljós er a hverjum einasta lampa í hverri einustu stofu — eins og borgin lifi í hátíða- skapi, gneistandi jörð 'í mót- þróa við ómælanlegt myrkur. Og jafnvel þjónarnir, þeir eru klæddir í keisararautt, og dökkrauðir fúlípanar eru á borðunum. Hér, þar sem hvítir slag- brandar fjallanna rísa, á að lifa lífinu til fulls. — Þjónn, glas af svarta dauða. Hið löglega nafn brenni- vínsins er gæluorð gömlu skip- stjóranna: svarti dauði. Hanu er annars mjög bjartur. Þeg ar hæfilega margir snapsar hafa verið innbyrðir, geturn við — með grimmilega háðsku brosi — staðfest, að dauðinn hefur verið sigraður, og að sál- in er einnig full af birtu. Meðan á máltíðinni steudur lítum við niður á aðalveginn: fjöldi bifreiða heldur áfram að streyma inn í borgina. Hvað an koma þeir? Skömmu siðar lítum við aftur út. Þá er ekki svo mikið sem eyða í bílaröð- inni. Hálfum tíma síðar: Hundruð og aftur hundruð bifreiða, og maður minnist heimsóknar í villu eina við Los Angeles, tilsvarandi yfirlit yfir veginn i borgina: sama hjóla, sem hverfa í ljósahaf borgarinnar. Laugardagur, 13. febrúar 1965. f dag er opna flötin eins og þreskiflötur fyrir vindana. Lágu húsin veita frostinu við nám. Þau hafa kropið inn i sjálf sig, og allt er eyðilegt. Það hvíta er grátt, grænu lamp arnir meðfram götum borgar- innar eru eins og blettir, sem hálfpartinn hefur verið útrýmt, og svörtu gerðin geta ekki stöðvað storminn í veldi hans. Svo virðist, sem jafnvel bif- reiðarnar . afi látið undan. Að- alvegurinn liggur upp mót lit- lausum himni, og manni finnst, að hann, einhvers staðar að baki sjóndeildarhringsins. hverfi í tómið. í slíkri veröld hlýtur horfin tíð að vaxa og verða stórbrot in. Egill Skallagrímsson hlýtur að verða kempa, sem fyllir himinn og jörð. Ef maðurinn á ekki að eyðast, verður hann að skapa goðsögn, sem getur haldið frostinu í skefjum, Hörmulegur atburður skapar sér form og verðui að trölli Maður getur fundið lyktina af röku loðnu skinninu. Maður. Norrænir þingfulltrúar á Reykjavikurflugvelli. Það er vissara að halda fast I hattbarðið svo hatturinn fjúki ekki. með aðeins eitt auga í enninu kemur stikandi út úr fjallinu — og nú er um að gera að láta krauma í seiðpottinum. Annars ræðst hann á húsið. Gef ]>eim hýðingu, ljótu tröll unum. Segið sögu um þau, og látið Egil Skallagrímsson reka öxina í gegnum skallann á þeim versta. Við söfnumst saman í sam- komusal háskólans. Fatahengið í gráu húsinu er svo lítið, að fólkið lendir í þröng í kring- um það, en i staðinn jr hátíð- arsalurinn eftirminnilega stór. Kirkjupallur fyllir hálfa breidd salarins, og á miðjum pallinum er komið fyrir birki gulum ræðustól sem lítur mun sakiausar út en orð þau, sem hljóma frá hon a. Ekki er ein einasta mynd i salnur Hefð- lausari sal er ekki hægt að hugsa sér Þó — norrænu fánamir taka sig vel út við kalKhvíta bogadregna vegginn bak við ræði tólins Getur það hafa veno æuun arkitektsins að bogadregni gafl inn eigi að þekjast freskómynd um? Eitthvað svipað og í Ól- afskirkjunni á Stiklastöðum? Það virðist furðulegt. að það skuli ekki hafa verið rt. Ef til vill mun ungur snillingur á borð við Skæving (Lvhevingl fá það verkefni í h-ndur Foreldrar háskólans heita reglusfika og teikniborð, en ekki saga, og þó er, þrátt .. ir allt, söguandi í salnum, þar sem norrænu skörungarnir hitt ast nú. Þarna kemur Lie. Það er kraftur höggmyndar í þreytu- legu yfirbragði hans. Höfuð hans er steðji, sem jafnvel skarpasta öxi getur ekki klofið. Ljósbláu augun í litlum augna- tóftunum sjá þ; , sem þau vilja sjá. Hann tala í sundur- slitnum setningum. Hver hluti setningar fær raunveruleikann til þess að skína í sterkara ljósi Slíkan mann er hægt að gera ódauðlegan í sementi eða granít, norrænu efni. en allt ekki í marmara Hver ræðumaðurinn á fætur öðrum kemur fram a Dak við lifla birkitrjáavirkið. Þama er forsætisráðherra íslands, Bjarni Benediktsson, kænn maður, sem kann listina að bíða, og sem — þegar rétti tíminn ;r kominn — segir ekki of mikið. Frá áheyrendasaln- um virðist svo, sem allar lín- ur í hnellnum líkama þessa litla manns liggi upp í eitt stórt, stórt höfuð, sem eru eins og skapað uta - um varaþykk- an munn og tvö óvenju gáfu- leg augu Erlander rígheldur sér — allt of hár — í litla leikfang- ið, sem ræðustóllin virðist í höndum hans. Hann herpir sig saman, eins og að hvert orð eigi að fara í nokkra innri hringi, áður en það o- ipur út. Rödd hans i hálf-hás og óm- stríð, og hann reynir að halda í jafnvægi þeim röksemdum. sem gefa nörðust höggin, með snöggu, leiftrandi háði. Maður getur enn ekki gleymt fyrstu áhrifum, sem ligja ótal ár aftur í tímann: rektu-, sem kennir fag, sem ekki er öllum aðgengilegt, og ætti þó að vera

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.