Tíminn - 25.02.1966, Page 7

Tíminn - 25.02.1966, Page 7
FÖSTUI>A<£UR 25. felwrtter 1566 i. TÍMINN Framhald af bls. 1. mér, var allt nm flutninga korn vöru, geymslu hennar, dreifingu og verzlun, og svo hagnýtingu hennar til manneldis og til fóð urs, sem kraftfóður þá í fyrstu röð, og til þess varði ég helm ing þess tíma, sem ég hafði til umráða. Á báðum þessum sviðum vann ég erlendis fyrir um það bil ald arfjórðimgi, og hef stöðugt síðan haft nokkur tengsl við þá að- ilja, sem að svona verkefnum starfa, en hjá mér hefur það auðvitað verið hjáverkastarf. Að þessu sinni gat ég grafið dýpra á vettvangi staðreyndanna og séð hverju fram vindur, meðai braeðraþjóðanna, á þessum svið um. Um síðarnefnda atriðið ætla ég að fjalla hér í stuttu máli. Ég verð að stikla á stóru, því málið er umfangsmikið. Annars mætti verja öllum deginum til þess að ræða þessi mál, sem varða kornvöru og kraftfóður. Til skamms tíma var öll krornvara flutt hingað til lands, mæld og talin í tunnum. Tunn ur voru traustustu umbúðirnar, sem þá voru fengnar til að mæta öllu hnjaski og varð- veita verðmætar lífsnauðsynjar frá öllu Mu í flutningum. Benzín og olíur voru lfka fluttar í tunnum, þegar þessar vörur komu fyrst hingað til lands. Nú notar enginn svo fornfáieg ar flutningaaðferðir nema út úr neyð. Þar hafa nýíízku leiðir verið valdar við fkrtninga #g við geymslu. Öðru visi er þessu varið með (kornvöruna. Nú eru það pok- ar, sem við notum. Þar er því um hnignun að ræða. I allri meðferð er rýrnun vörunnar miklu meiri í pokum en í tunn um. f lestum rúmast sekkir þó betur en tunnur. Fyrrum fluttum við kornið til landsins ómalað. En þessu hefur miðað til hnign unar hjá okkur. Nú er hvorki mannsafl né þyngdarafl látið mala kornið. Og varan er líka önnur vara síðan við gáfumst upp við að mala sjálfir. Nú kem ur allt í sekkjum, ekki sem korn, heldur sem mjöl. Úr manneldis korninu er búið að taka veru legan hluta lífefnanna. Það sem haft er til fóðurs, er þá að mestu ómengað. En það er flutt hingað sem mjöl og mjöl þolir miklu ver alla geymslu heldur en kornið. Ómalað korn geymist mikið betur. Við stöndum þá í dag á stigi fornra athafna í flutninga- og geymslumálum, og á stigi hnign unar, þegar horft er til lifeðlis- gildi þeirrar vöru, sem hér um ræðir, vöru, sem í ört vaxandi mæli er notuð til fóðurs. Það magn þessara vara, sem við not um, er eftirfarandi — ég ætla bara að taka tvö síðustu árin: Árið 1964 fluttum við inn 32.758 tonn af kornvöru til fóð- urs, að verðgildi 131 milljón 618 þúsund krónur. Árið 1965 innflutningurinn á kora- vöru 35.007 lestir að verðgildi 157 milljónir 345 þúsund krónur. Innflutningur kornvöru til tnanneldis: 12.680 tonn árið 1964, verðgildi 74 milljónir, og 13.163 tonn árið 1965, að verð gildi 74 milljónir 579 þúsund. Þessar tölur segja okkur, að árið 1964 var flutt inn samtals 15 þúsund lestir af matvöru og kraftfóðri að verðgildi, sem oemur 205 milljónum króna SIF rerð, þ. e. vörur með flutnings Öaldi og tryggingu. Og árið 1965 48 þúsund lestir að verð gildi 232 milljón kr. Ég áætia að kraftfóðurnotkun verði svip uð hér og verið hefur undanfar in ár, það tel ég réttmætt og eðlilegt miðað við hagkvæmt fyrirkomulag búrekstrar og af urðamagn, sem nú er krafist af hverri skepnu, en magn mat vöru er hér eins og annars stað ar £ kringum 70 kg á mann á ári, og vex því innflutningur hennar með vaxandi íbúafjölda. Á þessum forsendum tel ég rétt að miða við að innflutningur kornvöru á komandi árum verði a. m. k. í kringum 50 þúsund lestir samanlagt. Á árunum 1948—51, þegar ég lagði talsverða vinnu í að rannsaka forsendur og réttmæti þess, að tekið væri upp nútíma fyrirkomulag um flutning og geymslu kornvöru hér á landi, og dvaldi um skeið í Noregi og Svíþjóð, til að kanna þetta mál, þá fluttum við inn að- eins 25 þúsund lestir samtals. Og það magn töldu þeir sem ég ræddi við í þessum löndum um þær mundir of lítið til þess að fara inn á nútíma fyrirkomu lag um flutninga og geymslu. Niðurstöður athuganna sýndu að þá fyrst, er fslendingar flyttu inn meira en 30 þúsund lestir af kornvöru samtals, væri tíma bært að ræða um flutning í „sílóskipum“ og geymslu í korn hlöðum með nútímasniði. Frá árinu 1940—41, þegar ég vann á kornbirgðaskrifstofum danska ríkisins kynntist ég þeim aðferðum við flutninga, geymslu og dreifingu, og svo og notkun ikraftfóðurs. Dvölin í Noregi og Svíþjóð um 8—10 árum síð ar gaf mér aukið útsýni á þess um sviðum, og veitti innsýn inn á ný svið, einkum að því er snertir kornhlöðurnar og bygg ingu þeirra, en sænsk fyrirtæki hafa reist kornhlöður víða um lönd um meginhluta Evrópu og reyndar í öðrum álfum líka, og eru talin standa flestum framar við byggingu og skipulagingu svona birgðastöðva. Á þeim 10 árum, sem liðu frá því er ég stariaði við korn birgðastöð danska ríkisins, þang að til í kringum 1950, þegar ég kannaði þessi mál nánar, var raunar um litlar framfarir að ræða hjá þessum þjóðum, sem ég hef heimsótt. Síðan liðu 15 ár þangað til mér nú í vetur gafst tækifæri til að skoða hvað gerst hefur síðustu árin. Og ég verð að segja, að þar hafa verið risaskref stigin, og ég vil bæta því við að máske var gott, aS við ekki hófumst handa þá, því að nú er hægt að kerfa með nýju sniði, sem að ýmsu og að mörgu var þá ó- þekkt. Tækni og vélgengi hefur gert það stórstökk hjá bræðra þjóðunum og reynslu þeirra ber okkur að hagnýta, úr því að við erum komnir á það stig, að hafa nú að því er virðist til þess vöxt og getu. Eins og við höfum séð benzín tunnurnar, olíutunnurnar og á- líka ílát hveria hér á landi frá geymslustöðvum og farar- og flutningatækjum hvívetna, og tankskip, olíugeyma, tankbíla, og heimilistanka verða svo að segja einráð tæki við flutning, geymslu og dreifingu eldsneytis hjá okk ur, þannig hefur á hliðstæðan hátt mótast allt flutningafyrir- komulag og varðveizla kornvöru til manneldis og til fóðurs hjá bræðraþjóðum okkar. A-llra síðustu ár er tæknin enn betur gjörnýtt, því að við hef ur nú bætzt sú, sem sér fyrir blöndun korntegundanna á við eigandi hátt með fjarstýrðu fyrir komulagi. Aðeins þarf að styðja á hnappa og gataspjöld eru lát in gegna flóknum samsetningum, en einn maður stýrir, og leysir þannig af hendi störf, sem fjölda manns þurfti áður til að inna af hendi með miklum erfiðismunum. Má í þessu sam bandi tilfæra, að á Fjóni er kornhlaða og kraftfóðurblöndun arstöð, sem byggð var 1964. Það er ekki stór stöð, hefur ekki nema 2500 tonna geymslurými, en fóðurblöndunarbúnaðurinn blandar og pressar úr 10 tonn um á klukkustund. Og það eT einn maður sem sér um þessa stöð. Það er augljóst, að gamla fyrir komulagið er úrelt, nú eru það hlöður með mörgum hólfum sem kornið er geymt í. Manns höndin snertir ekki á korninu, og öryggi gegn flestum eyðing aröfhim er allt annað og miklu meira en var í gamaldags hlöðunum. Og rýrnun við geymslu að sama skapi miklu minni nú en fyrr. Áður var reikn að með, að 10% rýrnun væri hið minnsta, sem hægt væri að hugsa sér, við geymslu frá upp skerutíma til næsta sumars og stundum miklu meira. En nú að eins 1—2% rýrnun, ef rakastig kornsins er 12% þegar það er sett í hlöðu. Og það tekst með nútíma þurrkunarbúnaði. En hvað kosta svo þessar hlöð ur, munu menn spyrja. Þvi er að svara að í þeim, ásamt. tilheyr andi búnaði, hvílir verulegt fjár magn. Og ekki nóg með það, annar búnaður þari að vera til samræmis, svo að hlöðurnar verði að því gagni, sem til er ætlast. Laust korn er flutt í því formi ala leið frá afskipunar stað t. d. í Ameríku eða Ástral íu — laust korn, sem dælt er í skipið eins og vatni úr því aft ur, þegar það kemur til áfanga staðar hjá viðtakanda í höfn, upp í hlöðurnar og milli hólfa í hlöðunum. Færsla þess er ekki fullkomin, nema það fari á sama hátt í kornbílinn sem flyt ur kraftfóðrið til bóndans. En á sjálfan bílinn, sem jafnan tek ur 5—6 tonn, er tengdur bún aður, sem dælir svo fóðrinj upp í heimilishlöðuna, og í nýjustu gerðum kornflutningabíla er svo fyrir séð, að vandalaust er að skipta hlassinu milli tveggja, þriggja eða fleiri bænda, ef þeir þurfa svo lítið hver í einu, eða svo sem 1—2 tonn. Ýmsir, sem ferðast hafa um sveitir grannlandanna síðustu árin, hafa veitt því eftirtekt, að turnmyndaðar byggingar eru hér og þar út um sveitirnar, einkum á kornræktarsvæðum. Þessar bygg ingar eru hlöður til varðveizlu korns. Bændur eru í þann veg inn að hætta að hafa hlöðuloftin til geymslu. Félagsþurrkunar- stöðvar taka nú við korninu beint frá sláttuþreskivélunum, og fullþurrkað kornið fer beint í félagshlöðurnar. .1 þeim er það svo geymt unz bændur sjálf ir sækja það, eða kornið er flutt til myllu eða fóðurblond unarstöðvar. Til þess að auka þægindi, og gera hinar ýmsu tegundir að- hæfðar tækjunum og búnaði, er varan fyrst möluð, áður en fóðurblöndurnar eru gerðar, en við flestar, og bráðum allar, blöndunarstöðvar, eru hafðar vélar, sem pressa kornpillur eða korntöflur, og í þannig formi er nú framleitt fyrir allar skepn ur, — bráðum allt fóður, segja menn. Þai sem skipulega ing þessara mála er lengst komin, hjá Fjónbúum, er nú um 70% af fóðurvörunni kornuð. Svo að minnst sé á þá fjár festingu, sem svona búnaður krefst þá er auðvitað reynsla um það ekki til hér á landi. Við búum við fortíðarfyrirkomulag í þess um efnum, við flytjum kornið í pokum, sem blotna og rifna, sem mýs og rottur naga og éta, sem skordýr skemmta sér í, því að eyðing þeirra er varla mögu leg, þegar um mjöl er að ræða, en auðveld í korni og korn hlöðu. Og við þurfum mikið mannsafl til allrar meðferðar á sekkjunum, allt frá móttöku í skip erlendis og ^ heim til bóndans upp í dal á íslandi. Til þess að söðla um verðum við að gera allt: — fá „sílóskip" til að flytja kornið til okkar, reisa mylur tl að mala það, hlöður tl að geyma í, vagna til að flytja það heim í sveitina og hlöður heima á bæjunum. Þetta kostar fjármuni, en hlýtur í reyndinni að vera hag ________________________________7 kvæmt samt, eins og hjá öðrum gerizt, og auðvitað kem ur þetta í áföngum. Víst má nefna tölur í þessu sambandi, þó að þær séu fengnar frá öðrum. Allt er dýrara hér en annars staðar, segja menn. Margt, vil ég segja, en ekki allt. Og ég er ekki viss um að svona búnaður yrði miklu dýrari hér en annars staðar gerizt. Ég minntist áðan á nýju kornhlöðuna á Fjóni. Hún kost aði u. þ. b. 5 milljónir is- lenzkra króna. Hún rúmar, eins og ég sagði, um 2500 lestir af fóðri í geymslu, það svar ar til milli 1900—2000 krónum íslenzkum fyrir hverja lest korns, ^ sem í þeirri hlöðu rúm ast. Út frá þeirri fjárfest ingu einni er þó ekki hyggilegt fyrir okkur að reikna, því að auk hlöðu með tilheyrandi bún aði þarf innflutningshöfn, og viðeigandi hafnarskilyrði til að geta tekið á _ móti vörunni frá útlöndum. Á hafnarbakkanum þarf að standa kornhlaða, sem tekur við korninu, þegar skipið kemur þangað, og dælir því þar upp. Hvort við eigum hér enn þá þau skilyrði skal ég ósagt láta. Það er verðgildi í því líka, en ég kem að því bráðum, að það hlýtur þó að verða höfn, sem borgar sig, af þeim tölum, sem þar má fram draga um flutningskostnað og uppskipun annars vegar á lausu korni og hins vegar á sekkjavöru. Stórt skip þarí mikið dýpi og aðstaða á hafnarbakka við kornhlöðu verður sjaldan notuð til annars en inn- og útskipunar á kornvöru. Hafnarskilyrði fyrir stór skip kosta mikinn pening. En svo nefndar ,,basis-hafnir“ þ. e. innflutningshafnir, eru yfirleitt fáar. Danir fá t. d. meginmagn sinnar kornvöru um Hamborg. Þangað er kornið flutt með Ham borg sem „basis-höfn“ í mjög stórum skipum frá öðrum heims álfum, alt að 60 þúsund tonna skipum, og sá flutningur er mjög ódýr. Við athugun þessara mála í Noregi og ávíþjóð fyrir 15 árum, þá var meginmagn korns frá Ameríku og Ástralíu og öðrum fjarlægum stöðvum, flutt þangað í 6 til 10 þúsund tonna skipum. Og þá voru aðeins þrjár „basis-hafnir“ í Noregi. Nú eru „basis-hafnir" þar fimm, og að verða sex. og kornið helzt ekki flutt í minni skipum en 15.000 lesta, því að þau flytja tonnið af korni fyrir 35 norskar krónur frá Ameriku, en 6000 lesta skipið tekur 50 krónur á tonn. Reiknað í ís- lenzkum peningum er þetta, með stærri skipunum, 210 krón- ur, en með þeim minni 300 krón ur. Við skulum nú gera samanburð á okkar aðstöðu og þeirri, sem ég hef nú sagt frá, og ríkir hjá frændum okkar hinum megin við hafið. Við skulum taka síðastliðið haust, vöru sem keypt var fyrir vestan haf og flutt til áfangastaðar, og lita á tölulegar staðreyndir. í þessu sambandi má geta þess, að þegar tekið er ómalað korn, þá er það auðvitað keypt þar sem hagkvæmast er, og sótt þangað, sem það er ódýrast. Þá þarf ekki að sæta tilviljun um breytingar á markaðsverði og markaðsað- stöðu og í því sambandi má minna á vatnaleiðina i Norður-Ameríku sem hægt er að fara um nokkra mánuði seinni part ársins en þar er kornið á þeim tíma mun ódýrara en nokkurs staðar ann ars staðar. Ég fer ekki í smámuni, — fer ekki að telja upp einstaka Iði hjá okkur, þeir eru margir, en Framhald á bl. 14.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.