Tíminn - 26.03.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 26.03.1966, Blaðsíða 2
LATTGAKDAGUR 26. marz 1966 TIMINN Á Reykjaví kurflugvelli, frá vinstri: Jaroslav Pisarik sendiherra Tékkóslóvakíu á íslandi, Pétur Pétursson og Radoslav Kvapil píanóleikari og prófessor. Tímamynd—B.B. Tékknesk skáld kynnt á tónleikum hér í kvöld GB-Reykjavík, föstudag. Tékkneski píanóieikarinn Rado- slav Kvapil kom hingað í gær- kvöldi til að halda tónleika í Aust- urbæjarbíói á Iaugardagskvöld á vegum Péturs Péturssonar og Skrifstofu skemmtikrafta, og bauð tékkneski sendifulltrúinn hér, Jaro slav Pisarik, blaðamönnum heim til sín í morgun að hitta lista- manninn að máli. Radoslav Kvapil er 31 árs, hóf nám í píanóleik á barnsaldri, braut skráðist frá tónlistarháskólanum í Brno, sem kenndur er við Jana cek, frægasta brautryðjenda nú- tímatónlistar í Tékkóslóvakíu. Síð- an Kvapil fór fyrst að koma fram opinberlega, hefur hann lagt áherzlu á flutning lítt kunnra eða áður óþekktra verka eftir Dvorák og Janacek. Á Janacek-tónlistar- keppninni í Brno 1959 hlaut Kva- pil fyrstu verðlaun, og síðustu tvö árin hefur hann verið prófessor við tónlistarháskólann í Prag, þar sem og er prófessor Vaclav Sme tacek, hljómsveitarstjórinn frægi, sem tvívegis hefur verið stjórn- andi Sinfóníuhljómsveitar íslands og má það vera gleðiefni hinum mörgu aðdáendum dr. Smetaceks, að hans er von hingað á næsta ári til tónleikahalds, að því er Pisarik sendifulltrúi tjáði blaða- mönnum í morgun. Kvapil stofn- aði 1959 tvist (duo)) í félagi við vin sinn Stanislav Apolin sellóleik- ara. Þeir vöktu aðdáun þegar á fyrstu tónleikum sínum og eftir hálfs árs samstarf hlutu þeir fyrstu verðlaun í alþjóðatónlistarkeppni í Genf. Tvö sumur léku þeir "á Tón- listarhátíðum í Englandi og léku þá inn á plötur fyrir brezka út- varpið. Á tónleikunum í Austurbæj arbíói annað kvöld flytur Kvapil eingöngu verk eftir tékkn. tónskáld Dvorák, Janacek, Vorisek og Sme- tana. Kvapil kvaðst nú í fyrsta sinn koma til íslands og það gleddi sig, hve margir hér þekktu til tékk- neskrar tónlistar og sagðist vona ast til að geta ferðast hingað oft- ar og kynnast landinu og fólkinu betur en hægt væri á þeim stutta dvalartíma er hann hefði nú, þetta hefði ætíð verið furðuland í hans huga síðan hann drengur las skáld- söguna „Leyndardóma SnæfeUsjök uls“ eftir Jules Verne, þótt ekki hefði hann lengi skoðað hans sem heimildarrit. Pisarik sendifulltrúi kvaðst vilja stuðla að auknum menningar- kynnum milli fslands og Tékkósló- vakíu, hingað til hefðu aðallega Framhald á 14. síðu., , GS-ísafirði, föstudag. Togarinn Egill Skallagrímsson kom í dag inn til ísafjarðar með mann, sem létizt hafði af veikind um um borð í togaranum. Hinn látni, Jóhannes Kristjáns- son, hafði kennt sér meins, þegar er togarinn lét úr höfn í Reykja- vík í gær og var látinn, áður en tími vannst til að komast íil hafn- ar á ísafirði. Jóhannes heitinn var gamall ísfirðingur og verður útför hans gerð héðan. Jóhannes var á sextugsaldri. Danskir fíugmenn hjá SAS í verkfalli NTB-Kaupmannahöfn og Oslo, föstudag. Danskir flugmenn hjá SAS hefja frá kl. 1 í nótt, aðfaranótt laug- ardagsins, 24 klukkustunda verk- fall, og mun það hafa nokkur áhrif á “ætlunarflug SAS Á millilanda- leiðunum eru venjulega áhafnir frá ýmsum löndum í hverri vél, og verður því „hálft“ verkfall á þeim leiðum. Aftur á móti eru svo til eingöngu danskir flugmenn á innanlandaleiðum í Danmörku, og mun því flugáætlun SAS þar fara nokkuð úr skorðum. Það eru um 100 danskir flug- menn, sem í verkfallið fara. Sænsk ir SAS-flugmenn hafa lýst yfir stuðningi við þá dönsku, og segj- ast ekki muni fljúga á dönskum innanlandsleiðum meðan verkfall- ið stendur yfir. Þar sem „blandaðar“ áhafnir eru á ýmsum millilandaleiðum, mun verkfallið hafa nokkur áhrif á áætl unarflug til Alaska, Kanada,Frakk lands, Grikklands, Spánar, Bret- lands, Svíþjóðar og Austurríkis. Rehan Nerdrum, forstjóri hjá SAS segir, að fyrst og fremst verði reynt að halda millilandafluginu gangandi. En ýmsir erfiðleikar muni rísa, ef verfall flugmannanna verði lengra en einn sólarhringur. Karl Nilsson, aðalforstjóri SAS, sagði í dag, að SAS myndi hætta öllum launagreiðslum til þeirra flugmanna, sem fara myndu í verk- fallið, strax og það hæfist. Kvað Framhald á 14. síðu. Hjónaklúbbur stofn- aiur í Reykjavík Stofnaður hefur verið í Reykja vík „Hjónaklúbbur Reykjavíkur.“ Stofnendur eru m. a. nokkrir af forvígismönnum Unghjónaklúbbs ins, sem starfaði með miklum blóma fyrir 5—6 árum. Starfsemi klúbbsins fer fram í yeitingahús- inaÆldo, jSWhiiijíúiiþefur starfsemi sína aftux,. sem yínveitingastaður, eftir gágngerar ’ breytihgar og er annar forráðamaður veitingahúss- ins, einn af stofendum klúbbsins. Fyrsta skemmtun Hjónaklúbbs Reykjavíkur, verður laugardaginn 30. apríl n.k. og hefst með borð- haldi kl. 19.30 og verður þar sam- kvæmisklæðnaður og fólki ráðlagt að mæta stundvíslega, þar sem sér- stök viðurlög eru fyrir því að mæta of seint. Áætlað er að klúbburinn haldi 4—5 skemmtanir á ári, með mis- munandi sniði. Til að byrja með, verður meðlimafjöldi takmarkaður við 150 hjón. Ýmsar reglur hafa verið settar klúbbfélögum til höfuðs, og segir m.a. í 2. gr. „Heimilt er að víkja þeim úr klúbbnum, sem á einn og annan hátt teljast óæskilegir, svo sem vegna ölvunar, ókurteisi við gesti o. s. frv.“ Þeim, sem gerast vilja félagar, ber að tilkynna það í pósthólf 1038 merkt „Hjónaklúbbur Reykja- víkur.“ Urrusókninni skulu fylgja eftirtaldar upplýsingar: nöfn heim ilisfang, atvinna, aldur og síma- númer. Skírteini verða afgreidd næstu daga og kosta þau kr. 150.00 (fyrir hjón) og gilda þau fyrir árið. Stjórn og stofnendur: Jón B. Gunnlaugsson, Magnús Magnússon framf.ftr., Magnús Guð jónsson, byggingam., Hilmar Helga son forstjóri, Kristinn Hallsson söngvari, Haukur Þórðarson lækn- ir, Jón H. Björnsson skrúðgarða- arkitekt, Ingi B. Ársælsson stjórna ráðsfr., Kristján Ómar Kristjáns- son forstjóri. Samgieöi í Þjórsárveri Stjas, Vorsabæ, fimmtudag. S. 1. laugardagskvöld var sam gleði í Þjórsárveri, en svo eru nefndar sameiginlegar samkomur er ungmennafélögin Baldur, Sam- hygð og Vaka halda árlega til skipt- is í félagsheimilunum. Guðmundur Stefánsson í Túni, formaður Baldurs, setti samxom una og stjórnaði henni. Öll fiiög in lögðu fram dagskráratriði. Bald- ursfélagar sýndu leikþátt, lesið var upp úr félagsblöðum Vöku og Sani- hygðar. Nokkrar stúlkur úr Sam hygð sungu með gítarund’ ’eia Helgi R. Kristgeirsson flutti ræðn og að lokum var dansað. 25 félagar úr Ungmennaféiagma Víkverji í Reykjavík vorn geatir á samkomunni Formaður Vjk verja ávarpaði samkomuna og af- henti heimafélögunum fagra b'.irna kör'u Góður afli, er gefur á sjo TF-Flateyri, fimmtudag. Gæftalítið hefur verið her að • naanfórnu. Þó hafa línubátar heð ai fengið dágóðan afla, þeggef ið neiur. Einn bátur héðan srm er á netum, hefur einnig íengið sæmilegan afla. Vinna hefur yfirleitt verA næg ; vetur, en hún er ekki fyrir hendi, þegar ekki veiðist. Snjór er hér afskaplega mikili og samgöngur allar tepptai Hef ur ástandið uerið þannig i um þrji víkur. Mjólk hefur þó tekizt að flytja a dróttarvélum, oftao bún- um beltum Af félagslífi er það að s-'gja, að um síðustu helgi var ne: gríð- ar mikil skemmtun hjá skó abörn- um. Leikstarfsemi hefur yf-leitt verið nokkur hér, en virði.s æila að liggja niðri í vetur. Kvenfélög in hér starfa með miklum Oiómi eins og venjulega. Um áramótiti komu hingað nýjar kvikmyndavét- ar og var mikil búbót að þeim i Nýr bátur í Bolungar- vík Krjúl,-Bolungarvík, miðvikudag Hér hefur verið viðsjál tið með fannkomu og stormi úti fyrir. Snjór hefur vverið hér, mjög til baga og hafa komið snjóalög í meira lagi. í heild hafa borizt um 35 þús. tunnur af loðnu hér á land og hefur hún verið brædd. Nýting hef- ur verið eðlileg og gera menn sér vonir um að loðnu verði að fá áfram ef tíðarfar breytist til batn- aðar. Afli róðrabátanna hefur verið góður, þegar gefið hefur á sjó. Rækjuveiði hefur verið góð, en afl- inn er nýttur í hraðfrystihúsinu Hefur vinnuafl skort til þess að vinna úr aflanum. Mestan afla í róðri hafa Hug- rún, Einar Hálfdán og Guðmundur Pétur með um 50 tonn eftir tvær lagnir. Mesti landburður á sólar hring hefur verið um 150 tonn. Þess má geta, að nýr bátur hef- ur bætzt í flotann. Er það Heið- rún II, sem hét áður Páll Pálsson, frá Sandgerði. Er það eikarbátur, gerður út á línu. Kalt á Raufarhöfn HH-Raufarhöfn, fimmtudag. Hér er versta veður, frost og mjög hvasst. Er allt orðið ófært, sem búið var að ryðja. Esjan var hér í fyrradag og kom með mjólk og hey, sem orðið var af skornum skammti. Hún stanzaði hér í tvo klukkutíma, kom hingað í góðu veðri, en ætlaði varla að komast út aftur vegna brims. Héðan er búið að flytja alla salt- síld og mikið af mjöli, en ekkert er farið af lýsinu. Mjög er farið að ganga á olíubirgðirnar hér, en von er á skipi með olíu í nótt. Lítið um rjúpu GG-Fornahvammi, föstudag. Fært er nú yfir Holtavörðuheiði, en lítur ekki vel út. Ruddar hafa verið traðir yfir heiðina, en ekki tekizt að koma snjónum frá. Má þvi ekki snjóa mikið til þess að erfitt verði að ryðja veg yfir heið- ina aftur. Hér hefur komið nokkrum sinn- um í vetur maður frá Náttúru- gripasafninu, til þess að fylgjast með rjúpunni. Kom hann fyrst með rjúpunni. Kom hann fyrst í janúar, en sá ekki eina einustu rjúpu. Hins vegar sá hann eitthvað af henni, er hann kom hingað fyr- ir skömmu. Vatnsleysi hefur háð mönnum um slóðir og er það talið stafa af jarðklaka. Ástandið batnaði dálít- ið við úrkomuna, sem kom fyrir stuttu, en er engan veginn gott. Maður handleggs- brotnar AS-Ólafsvík, föstudag. í dag handleggsbrotnaði færeysk ur sjómaður um borð í Stapafell- inu, er báturinn var að veiðum. Var maðurinn þegar fluttur í land, en sjúkrabifreið tók þar við hon- um og flutti hann til Stykkishólms. Þess má geta, að sjúkrabifreiðin er ný af nálinni og er hún af Chevrolet-gerð með drifi á öllum hjólum. Bifreiðin er ætluð til sjúkraflutninga hér um útnesið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.