Tíminn - 26.03.1966, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Hugleiðing um heilbrigðismál
Þar sem sj'úkraskýli er á Egils
stöðum, er ekki vansalaust, að þar
skuli ekki vera starfrækt skurð-
stofa. Þegar þetta myndarlega hús
var byggt þá held til þess hafi
verið ætlazt í fyrstu að þar yrði
rekin skurðstofa. Þarna búa 2 hér,
aðslæknar. Það virðist vera hart,
að allir skuli þurfa að fara lengra
áfram, ef eitthvað kemur fyrir
mann(inn, nærri hversu lítið, sem
að er. Eg veit, að frá Egilsstöðum
eru góðar samgöngur, þar sem
flogið er, en ferðakostnaðurinn
er alltof mikill liður fyrir sjúkl
inginn, ef hægt væri að gera að
meinum hans heima í Héraðinu.
Eg varð fyrir smá slysi í febr.
s. 1. datt og meiddi mig í öxl og
nú þurfti og að komast til lækn-
is, vont var um ferðir og þurfti
ég að ganga um 20 km. leið til
þess að ná í bíl, en það var í Heið
arseli. Eftir að héraðslæknirinn á
Egilsstöðum var búinn að skoða
mig sagði hannn að ég þyrfti að
Frímerkjaval
Kaupum íslenzk frímerki
hæsta verði. Skiptum á er-
lendum fyrir íslenzk frí-
merki — 3 erlend fyrir 1
íslenzkt. Sendið minnst 25
stk.
FRÍMERKJAVAL,
pósthólf 121,
Garðahreppi.
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land.
HALLOÓR
SkólavörSustíg 2.
________t___________
RYÐVÖRN
Gr^nsásvegi sími 30945
4r
Latir ekKi )' apast að ryð
wena oe hlu^ðeinangra bit
reiðma með
Tectyl
fara í aðgerð og væri það hægt
á Norðfirði að framkvæma þettta
Talaði héraðslæknirinn strax við
yfirlæknirinn á Norðfirði. Nú voru
góð ráð dýr. Ég hringdi strax í
ríkisskip á Reyðarfirði og þá var
Hekla þar stödd, en mér var
sagt að ég myndi ná í skipið á
Eskifirði. Fékk ég strax bíl með
mig þangað og komst ég furðu
fljótt til Norðfjarðar. Á Norðfirði
er fjórðungssjúkrahúsið, sem er
búið að starfa um 10 ára skeið,
mjög myndarlegur spítali. Vafa-
laust hafa verið skiptar skoðanir
í fyrstu, þegar átti að reisa þetta
hús, hvar það ætti að staðsetjast
um slíkt má alltaf deila. En það er
svo með allt, ef eitthvað á að
gera, sem að gagni kemur.
Eiga Norðfirðingar Æniklar
þakkir skildar fyrir sína framtaks
semi, fyrir hyggju og dugnað að
á þessum stað reis upp sjúkrahús
í fjórðungnum. Margir myndar-
legir læknnar hafa verið við spítal
ann, en þeir hafa ekki verið nema
frekar stuttan tíma. Er illt til þess
að vita. Á sjúkrahúsinu var ég um
hálfan mánuð. Þarna er yfirlæknir
og aðstoðarlæknir.
Yfirlæknirinn er ungur maður
og efnilegur og er talinn mikill
í curlæknir, Rögnvaldur Þorleifsson
að nafni, Svarfdælingur að ætt,
kona hans er lærð hjúkrunarkona
og vinnur hún við spítalann. Að-
stoðarlæknir er austur-þýzk kona,
mikil myndarkona, gift Hjörleifi
Guttormssyni, frá Hallormsstað. Á
sjúkrahúsinu starfa fleiri hjúkrun
arkonur, en kona yfirlæknisins,
svo er þar fæðingardeild og er þar
ljósmóðir, Margrét frá Þorvalds
stöðum í Skriðdal, sem einnig vinn
ur að hjúkrunarstörfum, ef með
þarf. Á efstu hæð hússins er
gamalmannahæli.
Eg varð ekki fyrir neinum von-
brigðum er ég kom á sjúkrahúsið.
Þarna er valinn maður í hverju
sæti, mikil regla á öllu og fólkið
allt ber með sér mikla háttprýði og
mikill myndarbragur á öllu.
Á spítalanum er skorið upp
tvisvar í viku, þriðjudögum og
fimmtudögum.
Eg óska öllu þessu fólki, lækn
um, hjúkrunarkonum svo og öðru
starfsfólki spítalans allrar blessun
ar. Einnig óska ég sjúklingumí, er
ég kynntist góðs bata.
Svo er eitt enn, er ég vildi
minnast á. Ég tel mikið neyðar-
ástand hér á Fljótsdaishéraðinu,
að það skuli ekki vera neinn snjó
bíll á Héraðinu, sem hægt er að
treysta á, ef þyrfti að sækja sjúkl
inð í skyndi.
Samgöngur hafa nú lokazt að
mestu um mánaðartíma vegna
snjóa, en þetta er ekki sá mesti
snjóavetur, sem komið hefur í
seinni tíð. Það má minna á
veturna 1936 og 1951 þó maður fari
ekki lengra aftur í tímann. Það
var miklu meiri snjór þá, en nú
er og öll umferð lokaðist þá um
lengri tíma um Héraðið.
Það má furðulegt heita, hversu
margir gleyma fljótt vondu vetr
unum. Þeir hafa þó komið marg
ir á íslandi, og þeir geta alltaf
komið. Við skulum minnnast þess.
Frá Egilsstöðum að Aðalbóli á
Jökuldal og að Kleif í Fljótsdal
svo og að Ketilsstöðum í Hlíð er
um nálega 100 km leið, svo nokk
ur dæmi séu nefnd. Ef slys bæri
að höndum eða maður veiktist
skyndilega á annan hátt á þess
um slóðum, þá er ekki auðvelt að
nálgast sjúklinginm i eins og nú
er ástatt með þetta.
Snjóbíllinn, sem nú er, mun
vera um 15 ára gamall, sem hrepp
amir áttu á sínum tíma, er ekkert
að treysta á, eins og allir skilja.
Vil ég hér með skora á alla odd-
vita hreppa Fljótsdalshéraðs að
vinna að því markvisst, að nýr
snjóbíll verði keyptur fyrir næsta
vetur. Þetta er knýjandi nauð-
synjamál. Einnig er nauðsyn að
skurðstofa sé staðsett á sjúkra-
skýlinu á Egilsstöðum. Eg bið
odvitana að hafa það einnig í
huga.
Hvar sem er á landinu, verða
allir að sjá þegnunum fyrir því
fyllsta öryggi sem unnt er. Allir
munum við sammála um það.
Einar Jónsson
Hvanná
að þegar nánari tillögur væru
komnar frá Frakklandi, þá yrðu
NATO rikin 14 að hefja skipu
lagðar og formlegar viðræður við
Frakka.
Fá ambassadors-
nafnbót
Ákveðið hefur verið að sendi-
herra Ungverjalands á íslandi og
sendiherra íslands í Ungverjalandi
fái ambassadorsnafnbót.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 25. marz 1966.
Elsku lltll drengurinn okkar. Sonur, fóstursonur og dóttursonur,
Jón Helgi Lyngdal Arnarson
Klðpp 1. Seltjarnarnesi
Lézt af slysförum 23. þ. m.
JarSarförin auglýst síðar.
Hafdís Jónsdóttir, Marinó Sigurpálsson
Emma 'Halldórsdóttir.
BB
FRAKKAR
Framhald af bls. 1
NATO-ríki hafi svarað frönsku
orðsendingunni um, að Frakkland
ætti að draga sig út úr hinni sam
eiginlegu herstjórn. Svar hef
ur enn aðeins borizt frá Banda
ríkjunum, Bretlandi, Ítalíu og
Vestur-Þýzkalandi.
Svar Johnsons forseta, sem frá
var skýrt í gær, fékk misjafnar
móttökur í París. f fyrsta lagi
vegna þess, að svar Johnsons var
að sögn franskra embættismanna,
fast að því yfirlýsing þess efnis,
að Bandaríkjastjórn, myndi stefna
að hernaðarsameiningu ríkja
NATO, með það fyrir augum, að
sú næði til bandamanna USA, en
ekki til Bandaríkjanna sjálfra.
Andre Malraux, háttsettur ráð
herra í frönsku stjórninni, hafði
þetta í huga í gærdag, þegar hann
sagði í Kaíró, að spurningin væri,
hvort NATO væri bandalag, sem
ætti að verja Evrópu, eða hvort
það væri bandarískt tæki. Gaull
istablaðið La Nation, hefur skrif-
að um þetta: — Það stendur nú
á Bandaríkjunum að sanna, hvor
þessara túlkana sé rétt.
Hin ástæða þess, að svar John
sons hefur fengið misjafnar mót
tökur í París, er, að í lok bréfs
síns segir Johnson, að sæti Frakk
lands í NATO, muni standa opin,
ef landið myndi dag nokkurn
ákveða að taka aftur sitt gamla
sæti þar. Franskir talsmenn segja
að Johnson hafi á þennan hátt
með vilja gengið framhjá þeirri
staðreynd ,að de Gaulle hefur
gert öllum Ijóst, að ákvörðunin
væri endanleg. Að láta að því
liggja, að Frakkland kunni að
breyta um afstöðu, er fast að
því tilraun til þess að blanda sér
í innanríkispólitík Frakklands,
með því að reyna að hafa áhrif
á franskt almenningsálit, í von
um að það vinni að því að anti
gaulliskur meirihluti myndist I
franska þinginu, sem kosið verður
til á næsta ári.
Dean Rusk utanríkisráð
herra Bandaríkjanna, sagði í dag,
BONN-STJÓRN
Framhald af bls. 1.
ískum vopnum og efnavopnum,
eins og Vestur-Þýzkaland hafi þeg-
ar gert. Jafnframt eigi þessi ríki
að fallast á alþjóðlegt eftirlit með
því, að þetta verði svo i fram
kvæmd.
Erhard sagði, að hugmyndin um
nýja styrjöld — styrjöld, sem
myndi útrýma öllum þjóðum, lönd
um og heimshlutum — væri þýzku
þjóðinni óhugsandi Vestur-Þýzka
land muni því gera það, sem í
þess valdi stæði, til þess að að
stoða við að koma í veg fyrir
slíkar hamfarir.
— Vestur-Þýzkaland hefur eng
ar kröfur um landsvæði á hendur
Tékkóslóvakíu og æskir að bæta
samband sitt við þetta 'ríki —
sagði Erhard. — Munchensamn-
ingurinn frá 1938 milli Þýzkalands,
ítalíu, Frakklands og Bretlands hef
ur í dag enga landamæralega þýð
ingu. Hann sagði, að Bonnstjórn
in vildi sættast við nábúa sína í
austri, og endurtók, að deilan um
austurlandamæri landsins væri
leysanleg með friðarsamningi við
sameinað Þýzkaland.
Áætlun Bonnstjórnarinnar er í
sex liðum. f fyrsta lið leggur
stjórnin til, að öll ríki, nema
kjarnorkuveldin, afsali sér rétti til
að framleiða, eða útvega á annan
hátt, kjarnorkuvopn ef það sýni sig
að ómögulegt sé að ná samkomu
lagi um víðtækari samning um
hann við dreifingu kjarnorkuvopna.
Því næst er lýst yfir, að Bonn
stjórnin sé reiðubúin að skrifa
undir sérhvern samning, þar sem
samningsaðilarnir skuldbindi sie
til að vinna að því að draga ú
fjölda kjarnorkuvopna í Evrópi
og skuli slíkt framkvæmt stig aí
stigi. Slíkur samningur verður að
ná til allrar Evrópu, og hagga ekki
við vopnahlutfallinu, segir í áætl
uninni.
í þriðja lið er sagt, að Vestur
Þýzkaland hafi fallizt á alþjóðlegt
eftirlit með því, hversu mikil land
ið fái að kleyfum efnum, þannig,
að það sé tryggt með slíku eftir
liti, að landið noti ekki slík efni
til framleiðslu kjarnorkuvopna.
Vestur-Þýzkaland hefur, sem út
flutningsríki, áhuga á að gera
samninga við ríki utan EURATOM
um svipaða tryggingu. Er þá geng
ið út frá því, að önnur útflutn
ingsríki seti sömu skilyrði varð
andi kjarnakleyf efni.
í fjórða lið er lagt til, að gerð
ar verði formlegar yfirlýsingar
milli Vestur-Þýzkalands og land
anna í Austur-Evrópu, þess efn
is, að ríkin muni ekki grípa til
valdbeitingar til þess að leysa al
þjóðleg deilumál. í fimmta lið seg
ir, að Bonnstjórnin sé reiðubúin
til að gera tvíhliða samninga við
Sovétríkin, Pólland, Tékkóslóvakíu,
Ungverjaland, Rúmeníu og Búlga
ríu um, að þessi ríki skiptist á
hernaðarfulltrúum, sem fái að fylgj
ast með heræfingum í viðkomandi
ríkjum. Og að lokum lýsir Bonn
stjórnin yfir vilja sínum til að
taka þátt í afvopnunarviðræðum á
alþjóðavettvangi, eða á öðrum svið
um í sambandi við afvopnun, sem
hafi möguleika á að bera einhvern
árangur
Talsmaður brezka utanríkisráðu
neytisins, sagði að Bretland tæki
fagnandi hendi við þeim jákvæðu
þáttum, sem væri að finna í áætl
un vestur-þýzku stjórnarinnar og
kvaðst vona, að hún myndi skýra
afstöðu Bonnstjórnarinnar. Opin
berlega í London er einkum bent
á, að svo virðist, sem Bonnstjórn
in sé reiðubúin að gera vissar til
slakanir í sambandi við samein-
ineu Þvzkalands.
Lítið hefur enn verið sagt opin
LAUGARDAGUR 26. marz 1966
berlega um áætlun þessa þar
sem ríkisstjórnir hinna ýmsu
ríkja eru að kynna sér nánar efni
hennar.
Fyrstu opinberu yfirlýsingarnar
um afstöðu Sovétleiðtoganna,
birtust i kvöld, þegar TASS skýrði
frá því, að Bonnstjórnin hafi gert
sameiningu Þýzkalands, að skil
yrði fyrir framkvæmd tillagna
sinna. Það þýðir, að Austur-Þýzka
land skuli innlimað í Vestur
Þýzkaland, segir i yfirlýsinginni.
Tillagan um gagnkvæma trygg
ingu þess, að valdbeiting verði
ekki notuð til að leysa deilumál
in, hefur þann tilgang að gefa
stefnu Bonnstjórnarinnar blæ frið
samlegs tilgangs. Vestur Þýzka
land hefur í huga að hafna frið
samlegs tiLgangs Vestur-Þýzka-
milli hinna tveggja þýzku ríkja,
einnig í framtíðinni, segir TASS.
FLUGMENN
Framihald af bls. 2
hann þetta ná til allra þeirra
SAS-flugmanna, „sem ekki fram-
kvætndu það verk, sem þeim væri
skipað að gera.“ Mun þetta því
einnig ná til sænskra flugmanna,
ef þeir neita að fljúga á dönsk
um innanlandsleiðum.
Viðræður milli SAS og flug-
manna hjá SAS um nýja kjara-
samninga hófust 21. febrúar s.l.
Verkfall dönsku flugmannanna er
grundvölluð á þeirri verkbannsað
vörun sem S A S sendi
út á miðvikudaginn. Nilsson
lagði þó áherzlu á í dag, að
SAS hefði ekki gengið endanlega
frá neinni verkbannsboðun.
SKÁLD
Framhald af bls. 2
tónlistarmenn frá Tékkóslóvakíu
komið hingað, en einnig mundi
hér eftir verða reynt að stofna til
ferða íslenzkra tónlistarmanna til
Tákkóslóvakíu til að kynna íslenzka
nlist þar. Á næsta ári væri áform
1 tékknesk vörusýning hér á landi,
ug þá um leið yrðu kynntar hér
tékkneskar listir og menntir.
DOKTORSRITGERÐ
Framhald af 16. síöu.
þetta efni við háskólann i Ann
Arbor í Bandaríkjunum. í er-
indinu ætlar hann að fjalla um
niðurstöður rannsókna sinna og
sýnir einnig litskuggamyndir.
BREZKU KOSNINGARNAR
Framhald af bls. 9.
hann sjálfur mæti Grimond í
sérstökum einvígjum, þ.e., að
sjónvarpseinvígin verði þrjú
talsins: Wilson Heath, Wilson
-Grimond og Grimond-Heath.
Ekki er unnt að spá um það á
þessu stigi hvernig þessu máli
reiðir af, en þetta hefur reynzt
ágætis mál fyrir skopteiknara
blaðanna.
Tómas Karlsson.
SYNIR A AKUREYRI
Framhald af bls. 9.
blá atelier" og er rétt utan við
borgina, það er greifafrú
Bernadotte, sem stofnaði þann
sýningarstað. Mikið þótti mér
vænt um að hitta gamla vin-
konu mína í Höfn, við vorum
samtímis við nám hjá Oscar
Kokoscka í Austurríki hérna
um árið. Nú er hann víst hætt-
ur að kenna, sá frægi meistari,
og þó kvað hann vera enn sá
hressasti, nýorðinn áttræður.
— En hvað um sýningarnar
í Ameríku?
— Ég sýndi fyrst þar á sam
sýningu í Washington 1964, og
síðan var mér boðið að sýna
í Crespi Gallery á Madison
Avenue í New York í haust eð
leið og þá fór ég vestur. Fyrir
nokkru bauð frú Crespi mér að
sýna þar aftur á samsýningu,
og er sú sýning nýbyrjuð og
stendur til 2. apríl. Það er 6.
samsýning, sem ég tek þátt I
erlendis.