Tíminn - 26.03.1966, Side 3
LAUGARDAGUR 26. marz 1966
TÍMINN
Deildarhjúkrunarkonur
Stöður 4 deildarhjúkrunarkvenna við lyflækninga-
og handlækningadeildir Borgarspítalans 1 Foss-
vogi eru lausar til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgarinnar.
Upplýsingar um stöðurnar veitir forstöðukona
spítalans í síma 41520.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Heilsu-
verndarstöðinni, fyrir 20. apríl n.k.
Reykjavík, 25. 3. 1966,
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Húseign til sölu
Tilboð óskast í húsið Brattagata 2, Borgamesi,
eign Sigursteins Þórðarsonar.
Húsið er tvær hæðir: Efri hæð 90 ferm, 3 her-
bergi, eldhús og bað. Neðri hæð ca 60 ferm., 3 her
bergi, þvottahús og geymsla. Stór, afgirt lóð.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigursteinn Þórð-
arson, símar 7259 og 7263.
Tilboðum sé skilað fyrir 15. apríl 1966.
SKRIFSTOFUSTÖRF
Skrifstofumaður eða stúlka vön bókhaldi óskast
til að taka að sér bókhald fyrir iðnfyrirtæki.
Tilboð sendist til afgreiðslu blaðsins fyrir 31. þ.
m. merkt „Bókhaldari”.
BLAÐBURÐARFOLK
óskast til að bera blaðið til kaupenda víðs vegar
í borginni.
BANKASTRÆTI 7 — SÍMI 1-23-23.
S.I.S. FODURBLONDUR
Vér framleiðum eftirtaldar tegundir at fóður-
blöndunv
Kúafóðurblanda „A"
með 148 gr. meltanlegri hráeggjahvítu
Kúafóðurblanda „B"
með 121 gr. meltanlegri hraeggjahvítu.
Varpmjöl
Hænsnakorn
Ungafóður I.
Ungafóður II.
Varpfóður — heilfóður
Hestafóðurblanda
Samband ísl. samvinnufélaga
innflutningsdeild
Innréttingar
Getum bætt við okkur smíði á eldhúsinnrétting-
um og svefnherbergisskápum.
Upplýsingar í símum 20046 og 16882.
Aðalfundur
SAMVINNUBANKA ÍSLANDS h.f. verður hald-
inn í Sambandshúsinu, Reykjavík, laugardaginn
2. apríl 1966 og hefst kl. 14.
Dagskrá skv. 18 gr. samþykktar fyrir bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf.
Auglýsið í TÍMANUM
HÁSKÚLABÍÓ sýnir kvikmyndina
Róbinson Krúsó á Marz. Vís-
indaskáldsögur eru mikið í
tízku, en ekki mun fyrr hafa
verið brugðið á það ráð. að
tak gamalkunna persónu, og
það af eyðieyju og setja niður
á Mars. Óefað hefði Robert
Louis Stevenson haft eitthvað
um þessa meðferð á sagnahetju
hans að segja, hefði hann ver
ið á lífi, og jafnvel fyrirmynd
in að Krúsó, sem var maður
snarlifandi á sinni tíð. En sem
sagt. Fyrir dárlegan tilverkn-
að einhverra hugmyndaríkra
kvikmyndagerðarmanna, er nú
búið að setja manninn niður
á Mars og þá er spurningin
hvort fyrirfinnst nokkur Fjár-
dagur. Þessi mynd er fyrir alla
fjölskylduna.
LAUGARÁSBÍÓ sýnir þýzku
myndina Raunabörn um helg-
ina. Þessi mynd fékk gullverð-
laun í Mexikó, Hollywood og
Moskvu og silfurverðlaun l
Berlín. Mynd þessi er eins-
konar þverskurður af lífinu
i Þýzkalandi, frá lokum keis
aratímabilsins og fram til vorra
daga, þegar þýzka efnahags-
undrið stendur með fuUnm
blóma. Þetta er saga nokk-
urra einstaklinga í dæmigerðri
þýzkri borg, og því er lýst
hvernig þeim farnast undir
nazistastjórn, í stríði og eftir
ósigurinn. Eins og verðlaunin
bera með sér, þykir þett
mikil og merkileg kvikmynd.
Leikstjóri er Kurt Hoffmann,
en aðalhlutverk leika Johanna
von Koczin. Hansbjörg Felmy,
Wera Frytdberg og Robert
Graf. Mynd þessi er jafnt fyrir
unga sem gamja.
AUSTURBÆJARBÍÓ sýnir mynd
ina Lemmy í lífshættu. Þetta er
eins og nafnið bendir til ein af
Lemmy-myndunum, sem margir
setja sig ekki úr færi um
að sjá, sem á annað borð tylgast
með þeim. Þessi Lemmy-mynd
er mjög spennandi. mikið um
slagsmál og fagrar konur, og
eins og i öðrum Lemmy-mynd
um sigrar hið góða að lokum
Aðalhlutverkin leika Eddie
(Lemmy) Constantine, Elsa
Montes. Silvia Solar og simp-
ans-apinn- Fiston. Leikstjóri er
danskur, Niels West-Larsen.
Mynd fyrir alla, sem gaman
hafa af hasar og hörðum hnef
um.
Á VÍÐAVANGI
Sektarjátning
Alþýðublaðið birtir i gær
samþykkt sem miðstjórn Al-
þýðuflokksins, gerði á fundi
sínum á dögunum, „með öll-
um greiddum atkvæðum, nema
hvað þrír sátu hjá,“ eins og
blaðið segir. Ánægjan sem sagt
ekki alveg óblandin. Og
nú bregður svo við, að yfir-
lýsing þessi er alls ekki með
eins miklum hrifnincarblæ og
miðstjórn Alþýðuflokksins
hafði á samþ.vkkt sinni fyrir
missiri um dásemd ál-
bræðslu. Það er komin ein-
hver afsökunarhreimur í rödd
ina. Niðurlag yfirlýsingarinnar
hljóðar svo:
Setur skilyrði
Hvað er a8 heyra þetta? Al-
þýðuflokkurinn er allt í einu
farinn að setja skilyrði fyrir
stuðningi sínum við álbræðsl-
una — og það meira að segja
skilyrði, sem augljóst er, að
ríkisstjórnin getur ekki upp-
fyllt, svo sem að „gera nauð-
synlegar ráðstafanir til að
draga úr þenslu vegna um
ræddra framkvæmda." Það
verður fróðlegt að sjá, þegar
farið verður að ræða um ál-
samninginn, hverja tryggingu
Alþýðuflokkurinn metur gilda
fyrir því, að þessu skilyrði
verði fullnægt. Það skyldu þó
ekki vera komnar einhverjar
vomur á Alþýðuflokkinn í mái
inu?
„Alþýðufiokkurlnn telur
miður farið, að eigi reyndist
unnt að reisa þessa álbræðslu,
þar sem sérstök þörf er á efl-
ingu byggðar og atvinnu-
lífs. Telur fiokkurinn þvi rétt,
að hagur dreifbýlisins af , ál
bræðslunni verði tryggður
með því, að verulegur hluti af
framleiðsiugjaldi verksmiðj
unnar renni í sjóð til að byggja
upp atvinnuvegi í þeim lands-
hlutum, þar sem atvinna
er ótrygg.
Miðstjórn Alþýðuflokksins
er Ijóst, að erfiðleikar geti
fylgt svo umfangsmiklum fram
kvæmdum, sérstaklega á bygg
ingatíma, og tekur í því sam-
bandi fram:
1) Alþýðuflokkurinn telur
að íslenzka álfélaginu h.f. beri
að sjálfsögðu að hlíta íslenzk-
um lögum um skipti við stétta
félög, en eigi ekki að ganga í
samt. atv.rekenda, iðnrekenda
eða annarra sambærilgera aðila
og hafa þannig áhrif á kjara
baráttu þjóðarinnar. Er það
skilyrði fyrir stuðningi Alþýðu
flokksins við máiið, að svo
verði ekki.
2) Alþýðuflokkurinn leggur
áherziu á, að verði erient
vinnuafl notað við byggingu
orkuvers eða álbræðsiu, þá ger
ist það samkvæmt gildandi lög
um, eins og þeim er beitt í
framkvæmd, þ.e. i samráði við
verkalýðsfélögin.
3) Alþýðufiokkurinn ieggur
síðast en ekki sízt ríka áherzlu
á, að ríkisstjórnin geri nauð-
synlegar ráðstafanir til að
draga út þenslu vegna um-
ræddra framkvæmda.
Af þeim ástæðum, og með
þeim skilyrðum, sem hér hefur
verið greint. styður Alþýðu-
flokkurinn byggingu orku
vers i Þjórsá ,og leyfi til bygg
ingar álbræðslu við Straums-
vík í landi Hafnarfjarðarkaup-
staðar.“
"»■' iiranw—