Tíminn - 05.04.1966, Qupperneq 3

Tíminn - 05.04.1966, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGWR 5. apríl 1966 TÍMIMW 15 / skólunum á Laugarvatni Stúlkur syngja með gítarundlrleik. ÞB-Laugarvatni. Nú hafa skólarnir hér hald- ið sínar árlegu árshátíSir. Hafa þær þótt takast ágætlega. Ég get því miður ekki dæmt um þetta, þar sem ég var aðeins viðstaddur barnaskólaskemmt unina. Hún var haldin 20. febr úar. Bömin skemmtu sér mjög vel, eftir erfiði dagskrárinnar, en þar komu þau öll fram. Er það mjög athyglisvert og gefur starfi er á bak við liggur al- veg sérstakt gildi. Þau fá öll viðfangsefni, öll reyna þau að koma fram fyrir áheyrendur og vandi og ábyrgð hvílir á þeim jafnt. Þannig nær þessi þrosk andi athöfn til allra. Skóla- stjóri er Guðmundur Rafnar Valtýsson, Laugarvatni. Þá var á síðastliðnu hausti ráðinn fast ur kennari, en undanfarin ár hefur lítils háttar aukakennsla farið fram. Þessi nýi kennari er Arnór Karlsson, bóndi í Bóli í Biskupstungum, borinn og barnfæddur Laugdælingur. Arnór er stúdent frá M.L. Nemendur Menntaskólans héldu sína skemmtun að vanda um 1. desember, auk þess hef ur ýmislegt verið þar til skemmtunar í vetur. Nú nýlega heimsóttu Kennaraskólanem- ar, rúmlega hundrað talsins, skólann. Keppt var í frjálsum íþróttum innanhúss og sigruðu gestirnir og einnig báru þeir sigur í býtum í körfuknattleik. Sundkeppni sigruðu nemar M. L. Um kvöldið var haldin skemmtun, þar sem báðir flokk ar sáu um efni. Eftir fjöruga dagstund í keppni og leik, héldu kennaraefnin svo til Reykjavíkur um nóttina. Húsmæðraskólinn hélt sina árshátíð 26. febrúar og voru til húsa í menntaskólanum. Þeirra skemmtun er alltaf frá bærlega vel tekið, er ekki fjarri, að um 600 manns hafi sótt hana. Sennilega hafa marg ir þó farið slyppir heim, þvi annar eins fjöldi kom að Hellu er þær endurtóku skemmtun ina þar, skömmu síðar í grimmdar veðri. Vinsældir Hús mæðraskóla Suðurlands hér í héraði eru miklar og á skólinn nú í smíðum stórt og vandað skólahús, sem taka mun nokkru fleiri nemendur, en auk þess stórbæta alla kennslu aðstöðu, sem ekki er vanþörf Nú um siðustu helgi, 26. marz, héldu nemendur héraðs- skólans sína samkomu. Það hef ur lengi þótt nærri undravert, hve þau, svo ung að árum, hafa haft mikið og vandað efni fram að færa. Að sjálfsögðu mundi þetta eloki vera mögulegt án sérstakrar stjórnar og vinnu reynds og duglegs manns. Þetta hafa þau líka hlotið ómælt, þar sem er fremstur i flokflci skóla stjóri þeirra, Benedikt Sig valdason, hamhleypa til allrar vinnu. Þá hafa kennarar á öll- um tímum lagt fram hver sinn skerf. Má t.d. nefna, að við undirbúning í þetta sinn, sá Óskar Ólafsson, kennari, um all ar leikæfingar, en þrír þættir voru æfðir og sýndir. Ég bað formann skólafélags ins, Þórð V. Steindórsson, nem anda í þriðja bekk skólans, að segja mér frá því, sem gerzt hafði. Ég heyrði strax á máli hans, að hann mundi Norðlend ingur. Jú, frá Þríhyrningi í Hörgárdal, sagðist hann vera. — En dagskráin hófst kl. 21 með ávarpi hans, sem for- manns skólafélagsins. Þá sungu þessar stúlkur, með gít- arundirleik og fylgir mynd af þeim: Ósk Lárusdóttir, Berg- ljót Þorsteinsdóttir, Ólöf Zóp- honíasdóttir, Jónína Zóhpon íasdóttir, og Ingibjörg S. Guð mundsdóttir. Tvær þær síðast nefndu léku undir á gítara. Þá var færður á svið gaman leikurinn „Meyjarþjófurinn". Leikendur voru: Valur Lýðs- son, Ósk Lárusdóttir, Helga Jakobsdóttir, Borgþór Am- grímsson, og Elísabet Bjarna dóttir. Næst voru sungnar gam anvísur um kennarana, gerði það Ósk Lárusdóttir með gít- arundirleik sömu stúlkna og áður. Þá voru fluttir tveir þætt ir úr íslandsklukku Laxness. Sá fyrri gerðist í dýflissunni á Bessastöðum. Þar komu fram Jón Hreggviðson, leikinn af Guðna Ágústssyni, Guttormur Guttormsson, leikinn af Þórði V. Steindórssyni og Jón Þeofíl usson, leikinn af Guðna Eiríks syni. Síðari þátturinn gerðist í Köbinhavn, nokkrum árum síðar. Þar birtist Jón Hregg- viðsson aftur, leikinn af sama og kona Arnasar Arnæusar leikin af Ingiríði A. Skírnis- dóttur. Eins og geta má nærri voru öll skemmtiatriði flutt af nemendum sjálfum. Að þeim lokum var svo seilst um Öxl eftir hljómsveit, en þeir Skaga menn, Dumbo-sextett og Steini léku af miklu fjöri til kl. fjög ur um nóttina. Er þá enn eftir að geta merkisviðburð er þarna átti sér stað. Var það heimsókn tíu fyrrverandi nem enda skólans, er gagnfræða prófi luku vorið 1961. Höfðu þeir meðferðis dýrindis gjöf, er þeir færðu skólanum. Var það ræðustóll, forkunnarfag ur, smíðaður af Guðmundi Benediktssyni, húsgagnasmiði í Reykjavík. — Garðar Einars- son frá Selfossi hafði orð fyr- ir fimm ára gagnfræðingum. Minntist hann liðinna ánægju stunda að Laugarvatni, óskaði héraðsskólanum allra heilla í framtíðinni og afhenti gjöfina. Benedikt Sigvaldason, skóla- stjóri þakkaði gefendum og fór hinum hlýjustu orðum um vin- áttu þeirra í garð skólans og hinn mikla höfðingsskap, sem þeir sýndu með hinni veglegu gjöf sinni. Meðfylgjandi myndir eru all ar teknar í héraðsskólanum. GarSar Elnarsson afhendlr skóla sínum gjöf frá fimm ára <ragn- fræSingum, ræðustól þann, sem myndin sýnir, Benedlkt Slgvalda son, skólastjóri veltir gjöftnni móttöku. íslandsklukkunni. BRÉF TIL BLAÐSINS Ávarp Alþýðuflokksins Eg var að hlusta á ávarp Al- þýðuflokksins til þjóðarinnar og fannst sumt af því harla broslegt. Hann telur sig hafa unnið vel og eiga þakkir skilið. Og menn eigi að sýna þakklæti sitt í verki með því að fylkja sér um hann. Hann sé enn góða barnið. Þetta er nú eins og gengur á afmælum. Og satt og rétt er margt af þvi sem sagt var. Það er vissu- lega rétt, að verkin sýna þau merki að þjóðmálum okkar var vel og réttlátlega stjórnað meðan umbótafiokkar fóru með völdin í landinu. Og Alþýðuflokkurinn á það skilið að um hann sé margt gott sagt meðan hann hét og var. Vita það allir, sem eitthvað þekkja til ísl. þjóðmálc. s.l. ára- tugi, að Aþfl. hefur ýmist átt frum kvæði að eða tekið þátt í því, að hrinda mörgu nytjamáli fram til sigurs, þrátt fyrir harða andstöðu þeirra afla, sem hann nú vefur örmurn. Hitt vita þeir líka, að til þess að koma „sínum málum“ fram þurfti hann skilningi og velvild annarra að halda. Hann hefur jafnan verið fámennur á þingi og gat því litlu áorkað einn. En í samstarfi við bændur og sam- vinnumenn tókst að fleyta mörgu fram til hagsbóta fyrir land og lýð, mörgu sem nú þykja sjálf- sögð mannúðar- og menningarmál. Og það skyldi Alþfl. hafa í huga, að af litlu væri nú að státa fyrir hann ef bændur og samvinnu- menn hefðu ekki léð honum lið, einmitt þeir sem hann nú tekur þátt í að kasta rýrð á og gera erfitt fyrir í samstarfi við hinn eiginlega höfuðandstæðing beggja. Það er því lítil von til þess, að fyrri samherjar séu með þökk í huga nú, þeir sem spunnið hafa farsælustu þættina í þjóðarvefinn og gera enn. Og um leið og Alþfl. mælist til liðsauka verður hann að gera sér ljóst, að hann hefur brotið stór- lega af sér í þýðingarmiklum mál um, upp á síðkastið. Það verður að telja að hann beri höfuðábyrgðina á því, að her mannasjónvarpinu var steypt yfir þjóðina. Má víst með sanni segja að það sé eitt hið mesta óþurft- arverk, sem unnið getur óbætan- legt tjón. ef ekki er þar gripið í taum. Það verður líka að kalla hann til ábyrgðar á þvi, hvernig skiiizt var við landhelgismálið. Það er ömurlegt að svo skyldi verða eft- ir að hann hafði verið með að leysa það á stórmyndarlegan hátt, (en sennil. þó með hangandi hendi?) En viðskilnaðurinn við það mál varð sá, sem kunnugt er, að á íslendinga var komið fjötr- um, alveg að óþörfu, sem ósenni- legt er að þeir geti nokkurn tíma slitið af sér. Getur það orðið óbæt- anlegt tjón íslenzkri framtíð, og lítil von til þess að það gleymist. Þá hefur flokkurinn lýst sig fylgjandi því, að erlendur alúmín- hringur hreiðri hér um sig. Það er óskiljanleg afstaða eins og hér er nú ástatt og allt í pottinn bú- ið. Er raunar vonandi að flokk- urinn sjái að sér áður en um sein an er. Því að kunnugir telja mál- ið háskasamlegt efnahagsltfi okk- ar og þjóðlífi öllu. Og var það ekki einu sinni yf- irlýst af hans hálfu, að ekki mundi hann eiga sæti í ríkisstjórn sem ekki réði við verðbólguástand í landinu? Nú hefur þessi ríkisstjórn fyrir löngu sýnt það, að hún ræður ekki við verðbólguna, sem vex dagvöxt- um og allt er að færa í kaf. Samt situr flokkurinn sem fastast í stjórninni og virðist kunna vel við sig. Og náttúrlega er hitt svo líka furðulegt, að minnsti flokk- urinn í landinu, í lýðræðisríki skuli hafa slík völd. En kannski eru það missýningar? — sem hann þó fellir sig við. Ekki skal nú fleira talið af því, sem sýnir berlega hve fráleitt það er að ætlast til þess, að flokkur- inn muni hljóta liðsauka. Hitt væri líklegra, að hann missti fylgi, svo mjög sem honum hef- ur orðið á. Og haldi hann áfram að láta valdasjúka tækifærissinna stjórna sér er ekki von á góðu. En gamla vini mundi það gleðja, ef hann nú gengi fram fyrir skjöldu og sýndi það í verki, að hann vildi bæta fyrir afbrot sín hin síðustu ár, og reyndi þar með að ganga í endurnýjung lifdaga sinna. Gamall samherji. L :iri 111 t t ' H «“< Islenzk frimerkt M «-< — op Pvrstadagsum- >-< «~i slög. «-< Erlend frimerkl. «-< «-< Innstungubækur 1 H >-< miklu úrvalL H «~< FRÍMERRJASALAN Lækjargötu 6A H H n~i 1111 t r Halldór Kristinsson gullsmiður - Sími 16979. VINNA Maður vanur sveitavinnu, óskast til starfa á búi við Reykjavík. íbúð og gott kaup. Upplýsingar í síma 19523. LAUGAVEGI 90-02 Stærsta úrval bifreiða á einum stað. — Salan er örugg hjá okkur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.