Tíminn - 05.04.1966, Síða 12
■WMMMMmMWWiaillJMlllMlllMWfflllMIWIMWBMMMMMfMtH’ffl L M0* " a«M«BreaBBaa|WBaB
Flóabátwnm Baldur er
kominn til heimahafnar
Framhald á Dis 22
ISINN REKUR
FRÁ LANDINU
1240 rúmmetra vatnsgeym-
ir tekinn / notkun í Kópavogi
í SUMAR EÐA HAUST, OG ÞAR MEÐ 'ER BÓT RÁÐIN Á VATNSSKORTI í KÓPAVOGI
79. tbl. — Þriðjudagur 5. apríl 1966 — 50. árg.
370ára Hólabók
á uppboði í dag
GB—Reykjavík, mánudag. Sigurður sjaldan hafa fengið svo
Það kennir margra og fágætra
grasa í bókahlaðanum, sem Sig-
urður Benediktsson sýnir í dag
og selur (eða býður upp) í Þjóð
leikhúskjallaranum í morgun.
Sigurður hefur veitt vel fyrir
þetta uppboð, bókatitlar eru með
alflesta móti, 140 alls, og kveðst
margar sárfágætar bækur á eitt
og sama uppboð. Eina bók fær
hann nú í fyrsta sinn, nefnist sú
Ein Ny Huss Postilla, Guðbrandur
Þorláksson tók saman, og er sú
prentuð á Hólum 1597, og þótt síð
asta blaðið vanti, þykir Sigurði
„furðulegt, að 369 ára gömul bók
skuli vera á flækingi úti í bæ“.
Þá nefndi Sigurður næst Ármann
á Alþingi, frumútgáfuna, sem
væri enn fágætari en Fjölnir í
frumútgáfu, Jarðabók Árna Magn
ússonar (allt verkið) )Ferðabók
Eggerts og Bjarna, bæði frumút-
gáfuna dönsku og þýzku útgáfuna
Ferðabók Hendersons (frumút-
gáfuna í Edinborg 1818), Kongs
Christians þess Fimmta norsku i
Lög (prentuð í Hrappsey 1779),
íslenzka Urtagarðs Bók Ólafs Ó1
afssonar (Khöfn 1770) Eftirmæli
18 aldar eftir Magnús Stephensen
(Leirá 1805), og Skemmtileg
um.
Vina-Gleði eftir sama (Leirá
1179).
Þá rákum við augun í bók eina
frá 1799, heldur í styttra lagi,
en með furðulöngum titli, svo-
hljóðandi: „Sveins Sölvasonar
Tyro jurds, eður Barn í LÖgum,
sem gefur einfalda Undervísun
um þá islendsku Lagavitsku og
Flóabáturinn Baldur f höfn i
Ólafsvík.
(Tímamynd AS)
Hreppsnefnd Ólafsvíkur-
brepps sat boð skipstjóra, Lár
usar Guðmundssonar. Oddviti,
Alexander Stefánsson, bauð
skipið velkomið og óskaði þess
að heill og hamingja fylgdi
þvi ávallt á ferðum þess til
hagsældar fyrir byggðir Breiða
fjarðar. Skipstjóri svaraði með
ræðu og þakkaði góðan stuðn-
ing sveitastjórna á Snæfells-
nesi við byggingu skipsins og
greindi frá hlutverki þess.
Nýi Baldur er glæsilegt skip
og verður kærkomin og brýn
samgöngubót fyrir Breiða-
fjarðarhafnir.
Um hálfníu-leytið kom bát-
urinn til hafnar í Stykkis-
hólmi. Margt manna fagnaði
honum og var fólki boðið að
skoða hann. Að því lokniu var
hreppsnefnd og nokkrum fleir
um boðið til kaffidrykkju um
borð í bátnum. Voru þar flutt
ávörp og kveðjur. Eigandi er
Flóabáturinn Baldur hf., en að
því standa auk formanns og rík
issjóðs sýslur og kaupfélög við
Breiðafjörð auk nokkurra
hreppa. Formaður félagsins
er Ásgeir Ágústsson, en fram
kvæmdastjóri Lárus Guðmunds
son. Þetta er annað skipið, sem
byggt er sérstaklega sem flóa-
bátur á Breiðafirði, enda þótt
mörg hafi gegnt því hlutverki
um 60 ára skeið. Hitt var flóa
báturinn Svanur, sem kallaður
var Breiðafjarðarsvanur; það
var byggt í Danmörku árið
1916.
KT—Reykjavík, mánudag.
Að því er Veðurstofan upplýsti
í dag, hefur verið austlæg vind-
átt á norðan og austanverðu land
inu um helgina. Hefur þetta vald
ið því, að ísinn, sem var skammt
frá landi fyrir helgina , hefur
færzt norðar a.m.k. fyrir Norðaust
urlandi.
FB—Reykjavík, mánudag.
Á sumri komanda er gert ráð
fyrir, að tekinn verði í notkun
vatnsgeymir í Kópavogi, og von
ast menn þá til, að bundinn verði
endir á vatnsskort, sem hefur ver
ið nokkur í einstökum bæjarhverf
um, sérstaklega þeim, sem hæst
liggja. En með tilkomu þessa
vatnsgeymis verður þægt að koma
AS—Ólafsvík KG—Stykkis-
hólmi, mánudag.
Nýi Breiðafjarðarbáturinn
Baldur kom í fyrsta sinn til
Ólafsvíkur um kl. 2 eftir há-
degi 3. apríl. .Var hann látinn
leggjast upp að nýju bryggj-
unni, sem er í siníðum.
FJÓRÐUNGUR
GAGNFRÆÐA-
SKÓLANEMA
MEÐINFLÚENSU
GÞE—Reykjavík, mánudag.
Undanfarið hefur skæð in
flúensa herjað á borgarbúa.
Mun hún hafa komið upp
fyrir á að gizka hálfum
mánuði, að sögn Jóns Sig-
urðssonar, borgarlæknis, en
Tíminn hafði tal af honum
í dag.
Virðist flensan aðallega
leggjast á börn og unglinga
og mun láta nærri, að fjórð
ungur gagnfræðaskólanema
hafi lagzt, en barnaskólum
hefur nú verið lokað vegna
páskaleyfa. Fylgir flensunni
hár hiti og beinverkir og
höfuðverkur, en sýkillinn
er enn í ræktun á tilrauma-
stöðinni að Keldum og ekki
hægt að segja um, hvers
eðlis flensan er. Vill borg
arlæknir beina þeim tilmæl
um til fólks, að það fari var
lega með sig, ef það verður
varð við slappleika, en
svona inflúensur geta haft
slæm eftirköst svo sem
kunnugt er.
a vatnsmioiun sem ekKi netur ver
ið möguleg hingað til, svo full-
nægjandi sé.
Nokkrar breytingar eru væntan
legar í vatnsveitumálum Kópa-
vogs nú á næstunni, er þar fyrst
að nefna, að tekinn verður í notk
un fyrrnefndur vatnsgeymir, en
síðan er í ráði að breyta legu að-
færsluæða vatns til Kópavogs.
Liggja þær nú um Fossvogsdal-
inn, en því verður að breyta, þar
sem verið er að skipuleggja byggð
í dalnum. Blaðið sneri sér til Ól-
afs Jenssonar, verkfræðings Kópa
Framhaid á Dls 22
6 BÍLAR í ÁREKSTRI
Á AKUREYRI
GÞE—Reykjavík, mánudag.
Síðan á laugardagskvöld hafa
orðið 6 árekstyar á Akureyri, en
engin meiðsl á mönnum. Þá valt
bifreið með nokkrum farþegum.
Er mjög slæm færð á götum bæj-
arins vegna hálku og snjóganga.
Á laugardagskyöld snerist bif-
reið á hjólförum og valt á topp-
inn. Mun yfirbygging hennar
Framhald á bls. 22.
DRUKKINN MAÐUR HÆTT
KOMINN Á TRILLUBÁT
GÞE—Reykjavík, mánudag.
Maður nokkur allmjög undir
áhrifum áfengis, var hætt kom
inn s.l. laugardagskvöld. Hann
hafði lagt út á trillu frá Sel-
tjarnarnesi einn síns liðs, og
ekki er að vita, hvernig farið
hefði, ef annan bát hefði ekki
borið að honum til aðstoðar.
Um kl. 20 í fyrrakvöld barst
lögreglunni í Reykjavík til-
kynning þess efnis, að bát
hefði rekið upp að Seltjarnar-
nesi, og að líkindum væri ein
hver innan borðs. Er lögregl
an kom á staðinn, hafði bátinn
rekið út á ný, en til allrar ham-
ingju var annar bátur þar nær
staddur, svo sem fyrr segir og
fór hann með trilluna inn í
Reykjavíkurhöfn. Kom þá í
ljós, að innan borðs var dauða
drukkinn maður, líklega eig-
andi trillunnar. Var farið með
hann á Slysavarðstofuna, en
honum virðist ekki hafa orðið
teljandi meint af volkinu.