Vísir - 05.09.1974, Side 4

Vísir - 05.09.1974, Side 4
4 Vísir. Fimmtudagur 5. september 1974. Miðnœturhljómleikar Pelican: Allir stóðu fyrir sínu! Mlðnæturtónleikar i Austurbæjarbiói, gaman, gaman, og ég sem þarf að vakna klukkan sex, jæja, Þar sem mesti hlut aðdáendahóps PELIKAN er af yngstu kynslóðinni, kom það, mér á óvart, að tón- leikarnir skyldu haldnir á þessum tima, en það kom ekki að sök, húsfyllir var og margir urðu meira að segja frá að hverfa. „Jonni” var hálf-feiminn á sviö- inu, en stóð sig af mikilii prýði. Afgreiðslumaður Viljum ráða afgreiðslumann i bygginga- vöruverzlun nú þegar. Uppl. i skrifstofu vorri, Strandgötu 28, simi 50200. Kaupfélag Hafnfirðinga. Kefíavík BLAÐBURÐARBÖRN ÓSKAST Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna. Sími 1349 Si igtí m , r , Hljómar leika 8 — 1 Munið skírteinin Félag ungs fólks í Langholts- Voga- og Heimahverfi Nú, fæ ég mér sæti á fimmta, bekk, við hliðina á honum Stebba Halldórs á Mogganum og bið átekta. Sviðið er myrkvað, tjöldin renna frá, ennþá myrkur, nein nú byrja þeir að spila, ljósin kvikna, tón- leikarnir eru byrjaðir meira að segja á réttum tima. Ómar Valdimarsson frkv,stj, tón- leikanna gengur fram á sviðið i brúnum leðurjakka og með slipsi, og ávarpar okkur, stutt- lega, að þvi loknu byrjar PELI- KAN fyrir alvöru að spila. Lögin eru „instrumentaí” og Pétur hvergi sjáanlegur, sviðið er kuldalegt, svartur bak- grunnur með silfurlituðum gervitrjám i forgrunni, og uppi á vegg blasir við stór mynd ai PELIKAN. 1 dagskránni stendur, að fyrri hluti tón- leikanna heiti „I ró og næði”, og vissulega eru fyrstu lögin róleg og fáguð mjög. Þarna eru tveir menn, sem ég ekki kannast við, svo ég lit aftur i dagskrána. Jú, þessi við orgelið heitir Hlöðver Smári, og hinn við pianóið heitir Kristján Guðmundsson, þá veit ég það. í fyrstu lögunum situr Bjöggi annaðhvort við pianóið eða „Moog synthesiezer”, já hann er fjölhæfur pilturinn sá. Þau lög eru „Pelican Theme” og „Butterfly”, (bæði eftir Bjögga) og „Cloudscape” eftir Ómar, (enda gert fyrir gitar- sóló). Þá er það lagi „Promises” eftir Bjögga, og þar birtist Pétur svartklæddur og kemur sér fyrir fremst á sviðinu. Siðan rúlla lögin áfram, og ætla ég ekki að fara að nefna heiti þeirra allra, nema þá ómar er tónsmiður mikiil, fjöl- hæfur og llflegur gftarleikari, svo nú vantar bara sönginn. gftar. Nú önnur lög voru lika góö, eins og „Cloudscape” og „Promises” (þó að það liktist pinulitið frasa úr „What’ s new Pussicat”, en lagið „Picture” fannst mér ekki hafa átt erindi á þessa tónleika. Þá er pása, og átta hundruð manns fara að kaupa sér kók, og reykja sigarettu, allir i einu! Ég labba með Agli Eðvarðs og hans ágætu konu inn i reykjarskýið, og Egill ætlar að splæsa kók. En Egill er bara kurteis maður mjög, og það þýðir ekkert að vera kurteis þegar maður ætlar að kaupa sér kók i pásu, það veit Egill núna. Hvað með þaö, þarna var rætt um frammistöðu PELIKAN, og Pelikan og áheyrendurnir eiga Siguröi Arnasyni mikið aö þakka fyrir mjög góöa hljóðstjórn. Ásgeir sýndi þaö og sannaði, aö hann er bezti trommuieikari okkar I dag. „G o 1 d e n P r o m i s e s ”, „Amnesia” og „Sunrise ton sunset” sem öll voru hreint frá- bær. Þessi lög einkenndust fyrst og fremst af frábærum gitarleik þeirra ómars og Bjögga, þó aöallega þess siðarnefnda, sem oft sýndi hreint ótrúlega hæfni á flestir koma sér saman um að þetta séu góðir tónleikar i alla staði Meira fjör Ljósin blikka, og fólk treður sér inn, en við kaupum okkur bara kók i rólegheitunum meðan reykjarskýið smátt og smátt eyðist, þvilik sæla. Siðan inn aftur, og seinni hlutinn heitir „Meira fjör”. — Seinni hlutinn reyndist lika vera fjörugur mjög, og meira að segja Stebbi Halldórs, fór að skaka hausnum til i allar áttir. Fyrstu lögin voru eftir ómar, og ein- kenndust þau eins og fyrr fyrst og fremst af góðum, nei, frá- bærum gitarleik og þá sérstak- lega ilagi ómars „Instrumental love song”, þar sem tveir gítarar hreinlega kysstust. Siöan kom lagið „Could it be found” eftir Bjögga, en það lag kom út á plötu með Náttúru fyrir nokkrum árum. Það var hrein unun að hlusta á þetta lag aftur, og hefði Náttúra vart geta flutt það jafnvel. I laginu tók Biöggi hreint ótrúlega gitar- sólóar og það mátti greinilega sjá, að maðurinn sá lifði sig inn i það sem að hann var að spila. Næstu lög voru svo öll leikin af fullum krafti, en þó ekki það kröftuglega, að maður ærðist, og inn á milli kynnti Pétur lögin. Það hefði þó verið smart hjá Já, Bjöggi, brostu nú, þvi þú hefur sannarlega ástæöu til þess. Pétri, hefði hann sleppt þvi að kynna „Jenny Darling” það lag þarf vart kynningar við — og hefði verið betra aö fella það inn i lokakafla lagsins, „Roll down the Rock”, og koma þannig fólki á óvart. A eftir „Jenny Darling” kom lagið „Stranger” eftir ómar, og enn var það gitarinn, sem lék aðalhlutverkið, en þar á eftir brilleraði Asgeir aldeilis i laginu „How do I get out of New York City”. Jafnþrumugóðan trommuleik hef ég aldrei heyrt hjá islenzkum trommuleikara, og þó að viðar væri leitað. Fyrir utan byrjunar-og endafrasa var lagið ein trommusóló, og á ég varla nægilega gott lýsingarorð, til að lýsa frammistöðu Asgeirs, enda fékk hann langvarandi lófaklapp i þakklætisskyni hjá áheyrendum að laginu loknu. Þá var bara eitt lag eftir, og var það lag Kaldalóns »„Á Sprengisandi”. Lagið fékk all- hressilega meðferö, og enn voru það allega gitararnir, sem léku aöalhlutverkið. Að þvi loknu voru félagarnir vitanlega klappaðir upp, og héldu þeir þá áfram með „A Sprengisandi” á meðan tjöldin runnu fram og tilbaka. Þetta voru góðir tón- leikar, þeir beztu er ég hef orðið vitni að hérlendis. Þeir byrjuðu ,á réttum tima, hljómburðurinn var mjög góður, enda stjórnað af Sigurði Arnasyni, engar langár pásur og PELIKAN virtist vera vel undir þá búin. Ég á bágt með að hrósa ein hverjum sérstökum meðlim PELÍKAN fyrir frammistöðu sina á þessum tónleikum, þeir stóðu allir fyrir sinu, en vissu- lega bar mest á þeim Bjögga, Asgeiri og Ómari. Persónulega finnst mér bara vanta aðeins meiri fyllingu i sönginn hjá þeim félögum, þvi sum lög þeirra passa illa við rödd Péturs. Svo labbaði ég bara heim og fór að sofa. ÖRN

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.