Vísir - 05.09.1974, Side 5

Vísir - 05.09.1974, Side 5
Vlsir. Fimmtudagur 5. september 1974. 5_ REUTER AP/NTB ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND í MORC Umsjón Guðmundur Pétursson Yfirvöld i Júgóslaviu settu i gær á svið járn- brautarslysið i Zagreb, sem kostaði 124 manns- lif á föstudaginn var, og notuðu núna sömu eim- reiðina (diselknúna þó) Rannsóknarlögreglumenn, em- bættismenn járnbrautanna og lestarstjórarnir tveir Ur slysa- ferðinni voru farþegar i þessari för. Tilraunin i gær sýndi, að hemlarnir voru í bezta lagi og Hœttulegir,kúlu'pennar t Argentlnu er hægt að fá keypta kúlupenna, sem gerðir hafa verið þannig úr garði, að þeir geta skotið 22 kaliber byssu- kúlum. Eru það einkum giæpa- menn og fulltrúar fyrirtækja, sem óttast mannræningja skæruliða, sem festa kaup á þessum skrif- færum. Lögreglan segist hafa hand- samað tvo söiumenn og dreifend- ur þessara „Bazooka-penna”. Virðist sem pennar þessir séu framleiddir I Buenos Aires, en þeir eru seldir á rúmar 500 krónur stykkið. Furðu- fugl í London „Það er skritinn fugl kaninan,” sagði kallinn forð- um, en fróðlegt væri að heyra, hvernig honum þætti þá fugl sá, sem lögregla Lundúna svipast nú eftir. Þessum dularfulla fugli er lýst svo, að hann gangi likt og strútur, fljúgi svipað og örn, en minni helzt á hest. (Nei, nei, þetta er ekki eins og gát- an, þar sem spurt er siðan: Hvað heitir amma dyra- varðarins?) Risafugl þessi sást fyrst fljúga um Heathrowflugvöll- inn, en siðan i nágrenni. Það er talið, að hann sé nærri tveir metrar á hæð, með rúmlega tveggja metra vænthaf og vængirnir svart-hvitir á lit. Barry Winbey (21 árs) var fyrstur til að taka eftir þessum fugli og sagði fréttamanni Reuters: „Fyrst hélt ég, að þetta væri hestur, en áttaði mig svo á þvi, að þetta væri fugl. Hann hafði svipað göngu- lag og strútur, en þegar hann tókst á loft, flaug hann eins og örn”. Eimreiðin reyndist vera í bezta lagi að skozkum þjóðernissinn- um tækist að hafa með sér á brott krýningarsteininn forna úr Westminster Abbey.— Steinn þessi hef- ur alltaf verið viðhafður, þegar þjóðhöf ðing jar Breta hafa verið krýndir. Einn maður var handsamaður utan við klausturkirkjuna, en tveir náðust inni, eftir að þjófa- bjöllur glumdu i aðalstöðvum Scotland Yard, en þær voru i tengslum við krýningarsteininn. Til forna voru skozkir konungar krýndir uppi á þessum steini, þar til Játvarður fyrsti Englands- konungur hafði hann með sér frá Skotlandi 1926. Skozkir þjóöernis- sinnar hafa ávallt krafizt þess að steininum frá Scone, eða örlaga- steininum, eins og hann hefur lika verið nefndur, yrði skilað. Hópi stúdenta tókst að stela steininum úr Westminster Abbey 1950. Fannst hann þá ekki fyrr en hart- nær 15 mánuðum siðar, og þá i Arbroath Abbey i Skotlandi. Þegar þjófabjöllurnar glumdu núna i nótt, þustu lögreglumenn og sporhundar til Westminster Abbey. Maðurinn, sem þeir náðií' utandyra, er Englendingur, sem talið er, að sé búsettur i Skot- landi. Sandsteinshellan, sem er 66 sm sinnum 40 sm hafði greinilega verið hreyfö um set, þegar þjóf- urinn ætlaði að færa hana yfir á handvagn. Grunur leikur á þvi, að hann hafi brotizt inn i kirkjuna með handvagninn i poka. — En handvagninn þoldi ekki þyngslin og seig saman undan steininum, sem er með járnstöpla á hvorum enda og digran járnhring i miðju. Sú þjóðsaga fylgir steininum, að hann stynji þegar réttborinn þjóðhöfðingi sitji á honum, en þegi þunnu hljóði, þegar einhver, sem lagt hefur rikið undir sig, sezt upp á hann. Margir Skotar trúa þvi, að þegar stúdentarnir rændu stein- inum 1950 hafi rétta steininum aldrei verið skilað, heldur aðeins eftirlikingu. Járnsmiður einn i Edinborg, hélt þvi fram, að hann hefði gert eftirlikinguna, áður en steinninn fannst i Arbroath Abbey. 1 Arbroath Abbey undirrituðu Skotar sjálfstæðisyfirlýsingu sina árið 1320. Eitt af þvi, sem undrun vekur við járnbrautarslysið I Zagreb, þar sem 124 létu lifið, er sú staðreynd, að eimreiðin, sem dró vagnana, losnaði frá þeim og slapp stráheil, meðan vagnarunan rann út af. Á elleftu stundu var komið í veg fyrir það/ stjórntæki eimreiðarinnar sömu- leiðis, en liðið geta nokkrir dagar áður en lokaniðurstöður þessarar tilraunar liggja alveg fyrir. Lestarstjórarnir liggja undir ámæli fyrir að hafa hunzað merki og venjulegar akstursreglur og fariðalltof glannalega, þegar þeir óku lestinni inn á stöðina. Eitt af þvi, sem undrun vekur við slysið, er sú staðreynd, að eimreiðin skyldi losna strax frá vögnunum og sleppa ósködduð úr kösinni. Eftir þurkana Það er ýmist I ökkla eða eyra hjá þeim I Efri-Volta I Afrlku. Eftir sex ára þurrka, sem hrjáð hafa Afrikurikin norður undir Saharaeyðimörkinni, voru ibúar skiljanlega fegnir aö fá rigningar. En þeir vildu áreiðanlega hafa svoiitið minna og jafnara, þvl að þessu sinni flæddi viða, svo að bændur misstu einn og einn grip undir vatnið. Flóðin, sem fylgt hafa I kjölfar rigninganna hafa torveidað flutninga á hjálpargögnum frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun S.Þ., sem send höfðu verið til að létta afleiöingar þurrkanna. Ætluðu Skotar oð rœna krýningar- steininum aftur? Skiluðu drengnum fyrir 5 % milljón kr. lausnargjald Fjórtan ára syni framkvæmdastjóra umboðssölu Volkswagen i bænum Porto Alegre i Braziliu var rænt um helgina, en látinn laus aftur gegn lausnargjaldi 475 þúsund krúzeiros, sem jafngildir milljón isl. kr. 5,5 Ræningjarnir munu hafa hótað að drepa drenginn eöa stinga úr honum augu, ef kröfum þeirra væri ekki hlýtt. Alexander Möller, sonur Getulio Möller, framkvæmda- stjóra, fannst undir miðnætti I gær, liggjandim meðvitundarlaus MARIJUANA PLONT- UR HJÁ FORSETANUM Lögreglan i Guatemala fjarlægði I gær nokkrar marljúanaplöntur, sem nýlega höfðu verið gróðursettar I garði forsetahallarinnar. Þykir llkiegt, aö einhver æringinn hafi séð sér leik á borði á sama tlma, og mikil áróðurs- herferð hefur verið farin gegn fikniefnaneyzlu I landinu. á brú einni, utan við bæinn. Var vasaklútur, vættur i klóroformi, bundinn fyrir vit honum. — Þá var nær sólarhringur liöinn frá þvi, að lausnargjaldið hafði veriö greitt. Menn velta vöngum yfir þvi, hvort hér hafi Tupamarosskæru- liöar frá Uruguay veriö að verki, þvi sá, sem kom orðsendingu ræningjanna á framfæri sim- leiðis, talaði með spænskum hreim. — En lögregluna grunar verkamenn, sem nýlega voru reknir frá fyrirtækinu, þvi að einn þeirra hafði hótað hefndum. Ekkert spyrzt til Zuno hjá rœningjunum Lögregla Mexikó hcfur nú handtekið alis fjóra menn vegna rannsóknar sinnar á ráninu á 83 ára gömlum tengdaföður forseta Mexikó. Þrir þeir siðustu, sem lögreglan handtók i gær, eru þó ekki rpeðal þeirra 7 manna, sem lögreglan hefur sakað um að hafa rænt Jose Guadalupe Zuno, fyrrum hers- höfðingja. Allir þessir menn voru hand- tekniri eða við bæinn Hermosillo, sem er ,um 1000 km norðan við Guadaljara, þar sem gamla manninum var rænt. Þykir það benda til þess, að ræningjunum hafi tekizt að smygla gamla manninum i gegnum raðir lög- reglu, sem staðið hefur vörð við alla vegi til og frá Guadalajara.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.