Vísir - 28.10.1974, Qupperneq 5
Vlsir. Mánudagur 28. október 1974.
5
'LÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND Umsjcn Haukur Helqason
„Rautt tapaði
— „svart" vann
EINN MESTI ÓSIGUR JAFNAÐARMANNA - KRISTILEGIR FÓRU
FRAM ÚR ÞEIM í HESSEN OG FENGU
HÁTT í TVO ÞRIÐJU í BAYERN
Jafnaöarmenn biðu
mikinn ósigur í kosningum
til fylkisþinga í Vestur-
Þýzkalandi í gær. Helmut
Schmidt kanslari fer í dag
til Moskvu til viðræðna við
forystumenn Sovét-
rikjanna, með þetta áfall
„á bakinu".
1 mjög mikilvægum kosningum
i iðnaðarfylkinu Hessen og hinu
stóra Bayern töpuðu jafnaöar-
menn nærri þremur af hundraði
fylgis sins. Hægri sinnaðir and-
stæðingar þeirra juku fylgi sitt
um meira en sjö prósent i Hessen
og fóru fram úr jafnaðarmönnum
i fyrsta sinn i 25 ára sögu Vestur-
Þýzkalands. Þeir bættu nærri sex
prósentum við sig i Bayern, þar
sem þeir höfðu mikinn meirihluta
fyrir.
Um fjórðungur allra kjósenda i
Vestur-Þýzkalandi tók þátt i
þe’ssum kosningum. A kjörskrá I
fylkjunum tveimur eru 11
milljónir manna. Þetta var
siðasti ósigurinn i langri röð
ósigra jafnaðarmanna i fylkis-
kosningum, en það hrun hófst
snemma á árinu, áður en Helmut
Schmidt tók við kanslaraembætti
af Willy Brandt.
Stjórnmálaskoðendur telja
vaxandi atvinnuleysi vera eina
aðalorsökina.
Sigur kristilegra demókrata i
þessum kosningum var þó ekki
nógu mikill til að skipta sköpum i
efri deild þingsins i Bonn, en þar
sitja fulltrúar fylkisþinganna.
Kristilegir demókratar hafa þar
fyrir eins sætis meirihluta, sem
gerir þeim kleift að tefja fyrir
frumvörpum, sem neðri deildin
samþykkir. t neðri deild hefur
rikisstjórnin þægilegan 46 sæta
meirihluta.
Sigur þeirra dugði heldur ekki
til að steypa meirihluta sam-
steypustjórnar jafnaðarmanna
og frjálsra demókrata, sem
stjórnar Hessen.
Jafnaðarmenn fengu 43,2
prósent atkvæða i Hessen,
frjálsir demókratar 7,4% og
hinn hægri sinnaði flokkur kristi-
legra demókrata 47,3%.
1 Bayern fengu jafnaðarmenn
30,2% frjálsir demókratar 5,2 og
kristilegi „sósial” flokkurinn,
systurflokkur kristilegra
demókrata 62,1%.
Kristilegir fengu meira fylgi en
jafnaðarmenn i borgum eins og
Frankfurt, Milnchen, NUrnberg
og Darmstadt, þar sem verið hafa
helztu vigi jafnaðarmanna.
»••••* "-J
A
„Ég hélt ég vœri
sjólfur dauður"
Kennedy leysir
frá skjóðunni
um slysið á
Chappaquiddick
„Óskynsamlegt, óverjandi,
óafsakanlegt og óskiljanlegt.”
Þessi orð notar Edward
Kennedy öldungadeildarþing-
maður til að lýsa framkomu
sinni eftir slysið á Chappa-
quiddick.
Blaðið Boston Globe birtir
viðtal við hann, sem mun vera i
fyrsta sinn, sem þingmaðurinn
talar nokkuð hreinskilningslega
við fjölmiðla um dauða Mary Jo
Kopechne. „Ég var viss um,
þegar slysið varð, að ég hefði
drukknað og væri sjálfur
dauður,” segir Kennedy.
Ungfrú Kopechne var 28 ára
ritari i kosningabaráttu Kobcrt
Kennedys, bróður Edwards.
Hún drukknaði sumarið 1969,
þegar Edward Kennedy ók bil
sinum út af brú á eynni Chappa-
quiddick.
Viðtalið er þáttur i „tveggja
mánaða athugun” blaðsins á
slysinu. Blaðið segir, að þing-
maðurinn standi á framburði
sinum, er hann bar fyrir rétti á
sinum tima.
Hann hafi ckki leyst úr þver-
sögnum, sem hafi magnazt, frá
þvi að slysið varð, segir i blað-
inu.
Kennedy tilkynnti ekki strax
um slysið, og blöð hafa ásakað
hann um að segja óskýrt frá
slysinu og framkomu hans eftir
það.
„Ég var þá yfirkominn af
hryggö vegna dauðaslyssins,”
segir Kennedy. „Ég var sár-
þjáður af þvi að þurfa að
hringja til frú Kopechne, for-
eldra minna og konu minnar.”
Hinn 23. septembcr sfðastlið-
inn tilkynnti þingmaðurinn, að
liann mundi alls ekki verða i
framboði við forsetakjör árið
1976. Ilann sagði, að „fjöl-
skylduástæður” lægju til grund-
vallar þeirri ákvörðun.
RAY
VILL
AFTUR-
KALLA
James Earl Ray sést hér á
myndinni, er hann er færður brott
úr yfirheyrslu fyrir rétti. Þetta
var fyrsta yfirheyrslan, en Ray
reynir nú að afneita játningu
sinni varðandi morðið á leiðtoga
blökkumanna dr. Martin Luther
King árið 1968.
Ray var handtekinn skömmu
eftir morðið, og játaði hann þaö
þá.
Slepptu
tveimur
börnum
Fangarnir í
Scheveningen halda
17 gíslum
Flugvélaræningi frá Palestfnu
og þrfr aðrir fangar létu I nótt
laus tvö börn, sem þeir höfðu haft
I gislingu í sólarhring I
Scheveningen-fangelsinu
skammt frá Haag. Börnin eru 10
og 16 ára. Viö það uröu gislar
þeirra 17. Þeir héldu þeim enn I
morgun.
Fangarnir halda gislunum i
kapellu fangelsins. Þeir gerðu
uppreisn við messu á laugardags-
kvöldið, brugðu byssum og tóku
22 gisla. meðal annarra prestinn,
allan kórinn og organistann.
Þeir létu i gær lausa niu ára
telpu, 79 ára gamlan karlmann og
49 ára móður eins barnanna.
Lögregluþjónn I borgaralegum klæðum fer með hund sinn út úr Scheveningen-fangelsinu I gærkvöldi, eftir að fangarnir reiddust gelt- Enn var nokkuð óljóst, hvers
inu I lögregluhundunum og kröfðust þess, að þeir yröu á burt. — Sfma mynd AP I morgun. fangarnir kröfðust.