Vísir - 06.11.1974, Side 9
8
Vlsir. Miðvikudagur 6. nóvember 1974.
Vísir. Miðvikudagur 6. nóvember 1974.
Umsjón: Hallur Símonarson
Björn Andersson.
Björn
til
Bayern
Við sögðum frá þvl fyrir
nokkru, að hið fræga vest-
ur-þýzka félag, Bayern Munchen,
væri að leita aö nýjum bakverði I
staö Paul Breitners, sem félagið
seldi til Real Madrid I sumar.
Höfðu forráöamenn félagsins
þá mikinn áhuga á að kaupa
landsliösbakvörð Svla, Björn
Andersson, og höfðu þeir boðið
mikla upphæð I hann. t gærkvöldi
gaf Bayern Munchen út þá frétta-
lilkynningu, að félagið væri búið
að semja við Andersson og samn-
ingurinn verið undirritaður I gær.
Björn Andersson er 23ja ára
gamall og lék með sænska iiðinu
öster.Hann var taiinn einn bezti
bakvörður heimsmeistarakeppn-
innar I sumar og höfðu mörg félög
I Evrópu þá áhuga á að fá hann I
sinar raðir.
En Bayern Munchen bauð bezt,
og þangað hafði Andersson mest-
an áhuga á að fara, enda er þar
fyrir félagi hans úr landsliðinu
Conny Torstensson ásamt mörg-
um öðrum frábærum knatt-
spyrnumönnum. Hann ieikursinn
fyrsta leik með Bayern I Róm I
næstu viku. —klp—
Stór-
gróði
ó
HM!
Hagnaður af heimsmeistara-
keppninni i Vestur-Þýzkalandi I
sumar nam 2,4 milljörðum Is-
lenzkra króna, þegar allir reikn-
ingar höfðu veriö gerðir upp,
nema hvað enn á einhver ágóði
eftir að koma til skila I sambandi
við kvikmyndarétt.
Þessar athyglisveröu upplýs-
ingar komu fram á þingi FIFA,
alþjóðaknattspyrnusambandsins,
I Róm I gær. Þetta er miklu meiri
ágóði en nokkru sinni fyrr i sögu
HM. t Mexikó 1970 nam ágóðinn
rúmum 700 milljónum Isl. króna.
Aðgöngumiöar á leikina á HM I
V-Þýzkalandi seldust fyrir
34.342.000 mörk og tekjur af sjón-
varpi, þegar skattar hafa verið
dregnir frá, námu 17.916.00 mörk-
um. Kvikmyndaréttur og sala,
aöallega á minjagripum, nema
14.700.00 mörkum. Kostnaöur
nam 17.151.000 mörkum. Hann
skiptist helzt I skatta, fram-
kvæmd keppninnar, uppihald og
greiðslu til dómara og leigu á
leikvöllum.
Skipting á hagnaðinum er
þannig, að FIFA fær 10% I sinn
hlut, Vestur-Þýzkaland 25%, en
önnur lönd i úrslitakeppninni I
Vestur-Þýzkalandi fá 65% til
skiptanna, og fer ágóðahluturinn
nokkuð eftir þvl, hve langt þau
komust. Áhorfendafjöidinn á
leikjunum nam þremur milljón-
um 750 þúsund. —hsim.
FIFA-menn þinga í Róm
FIFA- alþjóðaknattspyrnusam-
bandið — hóf fundarhöld I Róma-
borg I gær og munu fundir þess
standa alla vikuna. Aðallega
verður þar rætt um væntanlega
heimsmeistarakeppni i Argentlnu
1978 — en mikil gagnrýni hefur
komið fram á möguleika Argen-
tinumanna til að halda keppnina.
Sérnefnd innan FIFA, sem hefur
með málefni heimsmeistara-
keppninnar að gera, kemur sér-
staklega saman til fundar I dag.
Einnig verða fundir i ýmsum sér-
nefndum FIFA þessa viku — en
framkvæmdastjórnin þingar á
morgun.
Johan Cruyff I búning Barcelona.
Haukarunnu
Hafnfirzk kona hringdi til
okkar I morgun og benti á, að úr-
slitin i leik Hauka og FH I 2. flokki
karla I Reykjanesmótinu hefðu
snúizt við hér I blaðinu I frásögn
af mótinu. Það voru Haukar, sem
unnu yfirburðasigur i leiknum,
17-10 — en ekki FH eins og mis-
sagt var. Þá gat konan þess, að
Haukum féll illa, þegar FH væri
kallað „stóri bróðir” Hauka. Það
er alls ekki. Valur er stóri bróðir
Hauka — bæði félögin stofnuð frá
KFUM.
Cruyff lék lands-
menn sína grótt!
Spónska meistaraliðið Barcelona sigraði Fejenoord með 3-0
Hollendingar fengu að kynnast
snilli Johans Cruyff i gærkvöldi
sem mótherja og þá lék hann
landa slna grátt I Evrópubik-
arnum I Barcelona. Þrivegis
splundraði hann alveg vörn hoi-
lenzka m e is ta r a li ð s i n s ,
Fejenoord, og félaga hans I
Barcelona-liðinu, spánski lands-
liðsmaðurinn Carlos Rexach,
Fékk neiið
hjó Everton
Fred Goodwin, framkvæmdar-
stjóri Birmingham, fékk ákveðið
nei, þegar hann bauð Everton lið-
lega áttatiu milljónir Islenzkra
króna fyrir Joe Royle á dögunum.
En Goodwin var ekki að gefast
upp við að ná sér I góðan mann
þrátt fyrir það. Nú hefur hann
gengið á fund Liverpool og boðið i
John Toshack, sem m.a. er fastur
maður ilandsliði Wales og einn af
þekktustu leikmönnum Liver-
pool.
Ekki er vitað hvað hann bauð
hátt — en sæmileg upphæð hlýtur
það að vera, þvi Liverpool hefur
enn ekki sagt nei.
fékk auðveld tækifæri til að skora.
Hann lét þau ekki ganga sér úr
greipum — Barcelona sigraði
með 3-0. Er þar með komið I 8-
liða-úrslit I keppni meistara-
liðanna og Evrópumeistaratitil-
inn færist nær.
Yfir 90 þúsund áhorfendur voru
á Nou Camp-leikvanginum i
Barcelona og sáu leik stór-
liöanna, þar sem Barcelona lék
aðalhlutverkið.
Rexach náði forustu á 32. min,
þegar hann skallaði knöttinn i
mark eftir frábæra fyrirgjöf
Johans og sex minútum siðar
skoraði hann aftur — viðstöðu-
laust — eftir að bogasending
Johans fram miðjuna hafði komið
vörn Fejenoord I opna skjöldu.
Hollendingar breyttu varnar-
kenndum leik sinum i siðari hálf-
leik — reyndu sóknarleik, en
skyndisókn Barcelona og falleg
flétta milli Johans og Rexach á 70.
min. endaði með þriðja mark-
inu. Von Hollendinga var ör
sögunni. Fyrri leik liðanna i
Rotterdam lauk án þess mark
væri skorað.
Það var viða spenna i Evrópu-
leikjunum I gærkvöldi, en mest þó
I Köln I UEFA-keppninni. Þar
tókst Köln að sigra Dynamo frá
Búkarest i Rúmeniu með odda-
Liverpool fallið
ón þess að tapa
Ensku bikarmeistararnir,
Liverpool, eru fallnir út I Evrópu-
bikarkeppni bikarliða án þess þó
að tapa leik. t gær lék Liverpool i
Búdapest gegn ungverska iiðinu
snjalla, Ferencvaros, og lauk
leiknum án þess mark væri skor-
að. Það nægði Ungverjunum, þvi I
fyrri leiknum á Anfield skoruðu
þeir mark I 1-1 jafntefli. Úti-
markið telur tvöfalt, þegar stig og
mörk eru jöfn.
Það óvenjulega skeði i þessum
leik I Búdapest I gær, að það var
heimaliðið, sem lék sterkan
varnarleik frá byrjun — og gerði
það svo vel, að Liverpool fékk
varla tækifæri, þrátt fyrir mikinn
sóknarþunga. Sama hvað þeir
reyndu, Keegan og Kennedy,
ekkert tókst — og þeir fengu bara
bókun dómarans. Bob Paisley,
framkvæmdastjóri Liverpool,
tók þá Heighway og Kennedy út
af og setti Carmack og Toshack
inn I staðinn, en það breytti litlu.
Ferencvaros tryggði sér rétt i 8-
liða úrslit, sem verða I marz.
Ungverjinn Martai fékk bezta
tækifæri leiksins, þegar hann átti
aðeins við Ray Clemence mark-
vörð, að etja, en spyrnti framhjá.
Nokkru fyrir lokin kastaði áhorf-
andi flösku i Tommy Smith, bak-
vörð Liverpool, en dómarinn hélt
leiknum áfram. —hsim
GUÐMUNDUR PETURSSON SKRIFAR FRA EM I BRIDGE I ISRAEL
Aftur mínus — nú gegn Svíum
Tel Aviv, 5. nóvem-
ber.
Yngri mennirnir
spiluðu fyrri hálf-
leikinn við Belga i dag
og áttu þeir Guðlaugur
Jóhannsson og Örn
Arnþórsson ágætis leik,
en því miður jöfnuðust
sum góðu spilin þeirra
út. Staðan var 28-26
fyrir okkur i hálfleikn-
um.
Þeir Guðmundur og Karl fóru
út af I hálfleik, en þrátt fyrir
áframhaldandi góðan leik hjá
Erni og Guðlaugi tapaðist leik-
urinn við Belga 86-61, eða 16
vinningsstig til Belga gegn
fjórum Islands.
Þá kom að þvi, að við Karl
áttum gallalitinn leik, Það var
gegn Austurriki i fjórðu um-
ferðinni. Austurrikismenn voru
ótrúlega heppnir i einu spili —
slemma hjá þeim vannst með
þvi að tigull kom út.réttri iferð i
laufi og spaðasvinun. Þó vorum
við aðeins nokkrum stigum yfir
I hálfleiknum. Áfram héldum
við siðari hálfleikinn, en áttum
ekki eins góðan leik, en á hinn
bóginn fóru nú vitleysur and-
stæðinganna loksins að kosta þá
stig. Ásmundur Pálsson og
Hjalti Eliasson áttu báða hálf-
leiki góða og loksins vannst
sigur — sextán stig til Islands,
en fjögur til Austurrikis
I fimmtu umferð, sem spiluð
var i gærdag, tapaði islenzka
sveitin illa fyrir þeirri sænsku,
en hún hefur forustu i mótinu.
Sviar hlutu sin 20 stig — en
íslendingar fengu fjögur i mtnus
og féllu við það niður i næst-
neðsta sæti. Sviar höfðu þá 87
stig —- fimm stigum meira en
ítalir.
Úrslit I 5. umferðinni urðu
annars þessi:
Belgia vann Finnland 20+3
Júgóslavia vann Irland 20-^4
ítalia vann Austurriki 16-4
Holland vann Spán 16-4
Sviþjóð vann ísland 20^-4
Tyrkland vann Noreg 11-9
Portúgal vann Danmörku 14-6
Sviss vann ísrael 20-0
Þýzkaland vann Frakkl. 14-6
Bretland átti fri.
1 sjöttu umferðinni i gær-
kvöldi mættust efstu þjóðirnar,
Sviþjóð og Italía. Það var
spennandi leikur á sýningar-
töflunni. Fyrst náðu Italir
forustu — en Sviar komust yfir.
Það jöfnuðu Italir og sigu svo
vel framúr — en á síðasta
spilinu hlaut Sviþjóð
gamesveiflu og tókst að laga
nokkuð stöðuna.ttalia sigreði þó
með 12-8 — og munar nú einu
vinningsstigi á þessum þjóðum.
Sviar efstir. Noregur komst i
þriðja sæti með stó'rsigri á
Dönum — en þó 13 umferðir séu
eftir og margt geti skeð i þeim,
eiga sveitir Frakklands og Bret-
lands eftir að sýna eitthvað.
Islánd sat yfir i gærkvöldi og
hlaut þvi 12 stig. Grikkland
mætti ekki til leiks á siðustu
stundu og er þvi yfirseta i hverri
umferð
tJrslit i 6. umferð urðu þessi:
Irland-Finnland
Belgia-Austurriki
Júgóslavia-Spánn
Italia-Sviþjóð
Tyrkland-Holland
Noregur-Danmörk
Israel-Bretland
11- 9
14- 6
15- 5
12- 8
16- 4
20-0
10-10
Frakkland-Portúgal 11-9
Sviss-Þýzkaland 14-6
Island átti fri.
Staðan eftir þessar sex um-
ferðir var þannig:
1. Sviþjóð
2. Italia
3. Noregur
4. Portúgal
5. Sviss
6. Tyrkland
7. Holland
8. ísrael
9. Frakkland
10. Belgia
11. Júgóslavia
12. Danmörk
13. Bretland
14. Irland
15. Finnland
16. Þýzkaland
17. Island
18. Spánn
19. Austurriki
markinu af fimm, 3-2, eftir að
rúmenska liðið hafði skorað tvi-
vegis fyrstu niu minútur leiksins.
1 siðari hálfleik var fyrirliði
þess, Dinu rekinn af velli af tékk-
neska dómaranum Jelinek og þá
fór að halla undan fæti..
Heimsmeistarinn kunni, Wolf-
gang Overath, skoraði fyrsta
mark Köln, en hin tvö þeir
Neumann og Muller. Fyrir
Dynamo skoruðu Custov og
Georgeschu. Áhorfendur voru 22
þúsund — og Köln komst áfram
á 4-3 samanlagt. —hsim.
í kvöld
klukkan
hefst það
íslandsmótið I handknattleik
1975 hefst i kvöld i Laugardals-
höliinni með tveim leikjum i 1.
deild karla. Fyrri leikurinn
verður á milli Vals og Víkings, en
sá siðari á milli Fram og
Ármanns.
Eins og undanfarin ár eru átta
lið i deildinni, og eru það þessi:
Armann Vikingur
Haukar Grótta
Fram IR
Valur FH
Fjögur af þessum liðum leika i
kvöld, en hin fjögur leika á sunnu-
dagskvöldið i Hafnarfirði, en
iþróttahúsið þar veröur heima-
völlur þriggja þessara liða — FH,
Hauka og Gróttu. Leikirnir á
sunnudagskvöldið verða á milli
FH og 1R og siðari leikurinn á
milli Hauka og Gróttu. Þriðja
leikkvöldið verður svo á fimmtu-
daginn I næstu viku er IR-Ár-
mann og Vikingur-FH mætast i
Laugardalshöllinni.
Keppnin i 2. deild hefst á Ákur-
eyri á laugardaginn og verður
haldið áfram á sunnudag hér fyr-
ir sunnan. Liðin sem leika i 2.
deild i vetur eru þessi:
Keflavik Þróttur
Breiðablik þór
Stjarnan KR
Fylkir KA
Leikurinn i kvöld á að hefjast kl.
20,15. En það hefur verið segin
saga undanfarin ár, að leikirnir
byrji of seint og standist aldrei
áætlun. Þvi stillum við klukkuna
okkar hér á siðunnu á rétt rúm-
lega 20,15 til heiðurs þessari
óstundvisi!! — klp—
Fjórmenningarnir, sem keppa á Norðurlandamótinu ibadminton i þessum mánuði, hafa æft vel aft und-
anförnu. Þessi mynd er tekin af þeim á æfingu f gærkveldi, og eru þarna talið frá vinstri, Haraldur,
óskar, Steinar og Friðleifur. Fremst á myndinni er fararstjórinn. — Ljósm. Bj.Bj.
Svíar vilja að ísland
haldi NM í badminton!
Norðurlandamótið i badminton
fer fram i Osló dagana 16.-18.
nóvember n.k. ísland hefur til-
kynnt þátttöku i mótinu og Bad-
mintonsambandið valið fjóra
ménn til keppni þar.
Það eru þeir Haraldur
Korneliusson og Steinar Pedersen
frá TBR og Friðleifur Stefánsson
og Óskar Guðmundsson frá KR.
Munu þeir bæði keppa i einliða- og
tviliðaleik á mótinu, og leika þá
saman i tviliðaleiknum Harald-
ur/Steinar og óskar/Friðleifur.
Allir þessir menn hafa áður
leikið fyrir íslands hönd á stór-
mótum erlendis, enda i fremstu
röð badmintonmanna hér á landi.
En i þessari keppni fá þeir örugg-
lega nóg að gera, enda senda
hinar Norðurlandaþjóðirnar fram
sina sterkustu menn, eins og Dan-
ir sem t.d. eru með Sven Pri og
Sviar með Store Johansson, svo
einhverjir séu nefndir.
1 sambandi við mótið verður
haldið badmintonþing Norður-
landa og verður Bragi Jakobsson
fulltrúi Islands þar. Vitað er, að
Sviar muni bera upp tillögu á
þinginu um að Norðurlandamótið
1976 verði haldið hér, en þeir hafa
mjög mikinn áhuga á þvi, svo og
stjórn Badmintonsambands Is-
lands.
Eru þvi tvö örugg atkvæði fyrir
ísland á þinginu, og þarf ekki
nema eitt i viðbót, til að af þessu
verði. —klp—
Fékk spark í and-
litið og beið bana
Þekktur knattspyrnumaður i
Danmörku, Jörgen Breum, sem
var 27 ára gamáll og lék með OB i
Óðinsvéum, lézt eftir knatt-
spyrnuleik á laugardaginn.
Hann var að keppa með OB á
móti Fraugde, þegar hann fékk
spark i andlitið rétt fyrir leikslok
og var strax fluttur á sjúkrahús.
Þar var hann lagður inn, en lézt á
sunnudagsmorgun.
Jörgen Breum var snjall knatt-
spyrnumaður og þekkur viða um
Danmörku. Hann hafði leikið
marga unglingalandsleiki og
einnig bankað á dyr A-landsliðs-
ins, án þess þó að komast þar inn.
Aftur á móti hafði hann oft leikið
með pressuliði og yfir 100 leiki
með aðalliði OB.
Jörgen Breum var kvæntur og
átti eitt barn.
Leikur KR bóða UBSC
leikina í Austurríki?
— Mun þú gera það eftir alþjóðlega körfuknattleikskeppni,
sem félaginu hefur verið boðið til á írlandi
íslandsmeisturunum i körfu-
knattleik — KR — hefur verið
boðið að taka þátt i mikilli körfu-
knattleikskeppni, sem fram fer i
Dublin á irlandi i lok þessa
mánaðar.
KR-ingar hafa þegið boðið og
fara utan með sitt sterkasta lið. I
þessu móti taka þátt átta lið viðs
vegar að af Bretlandi og eru þar
m.a. skozku meistararnir og
einnig tvö af beztu liðum Eng-
lands.
Eins og við höfum áður sagt
frá, dróst KR á móti austurrisku
meisturunum UBSC Wienna i 1.
umferð Evrópukeppni meistara-
liða. Forráðamenn félaganna
hafa skipzt á tilboðum og öðrum
upplýsingum að undanförnu, og
eru allar likur á, að KR leiki báða
leikina i Austurriki, og þá þegar
liðið kemur frá keppninni i Dubl-
in.
Austurrikismennirnir hafa
boðið KR mjög hagstæða
samninga, ef þeir vilji leika báða
leikina i Austurriki. Er það mál
til athugunar hjá KR þessa dag-
ana og allar likur á, að þeir taki
boðinu.
—klp—
Þaðerekkirétt. Ég Y Alltilagi, ég
var hjá stúlku, y ætlaði aðeins að
semdýrkar koma þér á óvart. <
fótbolta! V V V°na þú hafir skemmt
Danir gera stórfelldar breytingar á deilda-
keppninni I knattspyrnu, þegar næsta leik-
timabil hefst. Leikið verður i þremur deild-
um, 1. 2. og 3. deild, en þriðja deildin ekki tvf-
skipt eins og áður. Sextán lið verða i hverri
deild — liðum I 1. og 2. deild þvi fjölgað um
fjögur i hvorri deild.
Deildakeppninni lauk um siðustu helgi og
sigraði KB með yfirburðum i 1. deild eins og
við höfum áður sagt frá. Liðið hlaut 33 stig i
22 leikjum — var með átta stigum meira en
næsta lið, Vejle.
Eitt lið féll niður úr deildinni að þessu sinni
vegna breytinganna að vori. Kom það mjög á
óvart, að það voru einmitt Danmerkur-
meistararnir frá i fyrra, Hvidovre i útjaðri
Kaupmannahafnar, sem féllu. Hlutu þeir að-
eins 13 stig — fjórum færri en Slagelse.
Hvidovre hefur misst marga leikmenn I at-
vinnumennsku.
Fimm lið færast upp úr 2. deild i þá fyrstu
að vori. Það eru Vanlöse, sem sigraði á 31
stigi, B93, Fremad Amager, B1909 og
Esbjerg. Ekkbert lið féll niöur úr 2. deild, en
fjögur efstu liðin i hvorri þriðju deildanna
færast upp I 2. deild.
I l. deild næsta keppnistimabil leika KB,
Vejle, B1903, Holbæk, Randers, B1901, Frem,
Næstved, Köge, AaB, Slagelse, Vanlöse, B93,
Fremad Amager, B1909 og Esbjerg. — hsim.
Greiða sektina
með leik ó Spáni
A FIFA-þinginu i Róm i gær náðist sam-
komulag um það, að Chile og Sovétrikin leiki
landslcik i knattspyrnu á Spáni á næsta ári.
AUur ágóði af leiknum rennur til
knattspyrnusambands Chile og kemur i stað
sektar, sem Sovétmenn áttu að greiða Chile
vegna þess, að þeir léku ekki siðari leikinn
við Chile iundankeppninni fyrir HM, sem háð
var I Vestur-Þýzkalandi i sumar.
Fyrri leik Chile og Sovétríkjanna I undan-
keppninni, sem háður var i Moskvu, lauk
með jafntefli, en sovézka knattspyrnusam-
bandið neitaði svo að leika I Chile eftir her-
foringjauppreisnina þar — á vellinum i
Santiago, sem notaður var sem fangelsi um
tima. Var Icikurinn þá dæmdur tapaður
Sovétrikjunum og knattspyrnusamband þess
dæmt I fésektir, sem renna áttu til Chile.
Chilebúar lögðu i mikinn kostnað vegna hinn-
ar löngu ferðar til Moskvu — og hagnaður af
heimaleiknum féll svo niður.
Sá litli bjargaði
Borussia!
Alan litli Simonsen var hetja Borussia
Mönchengladbach i UEFA-keppninni í Lyon I
gær. Hann skoraði tvö gullfalleg mörk i 5-2
sigri Borussia. Landsliðsmaðurinn þýzki
Bonhof skoraði einnig tvivegis og Kulik eitt
mark. Mörk franska liðsins skoruðu Valette
og Domenach. Áhorfendur i Lyon voru 35
þúsund. Borussia vann samanlugt 6-2.
ÍDusseldorf vann Fortuna ungverska liðið
Raba Vasas i UEFA-keppninni 3-0. Komst
þvi áfram 3-2. Herzog, Czernotzky og
Bruecken skoruðu. Ahorfendur 10 þúsund.
Dynamo Kiev vann Eintracht Frankfurt 2-1 I
Evrópukeppni bikarhafa i gær — samanlagt
5-3. Onitschenko skoraði bæði mörk Dynamo
(2-0 i hálfleik), en Rohrbach fyrir Frankfurt.
— hsim.
Dýrlingarnir eru
komnir í úrslit
Dýrlingarnir frá Southampton eru koinnir I
úrslit I Texakó-bikarnum, þar sem nokkur lið
frá Englandi og Skotlandi keppa um miklar
peningaupphæðir frá Texakó-fyrirtækinu. 1
gær vann Southampton Oldham i siðari leik
liðanna I undanúrslitum 2-1, samtals 5-2. Um
hitt sætið I úrslitum keppa Newcastle og
Birmingham.
Önnur úrslit á Englandi I gærkvöld urðu
þau, að Bristol City vann Oxford 3-0 I 2. deild.
Bury vann Peterbro I 3. deild með 3-0, og
Swindon vann Chesterfield 1-0. Allt heima-
sigrar.