Tíminn - 13.05.1966, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 13. maí 1966
TÍMMNN
Frambjóðendur hafa orðið
Borgarstjórinn og fíokkurinn
Það, sem sérstaka athygli
hefur vakið við fundi borgar-
stjórans, er að forðast er að
minnast á Sjálfstæðisflokkinn
í sambandi við þá.
Sú var tíðin að Sjálfstæðis-
menn skömmuðust sín ekki fyr
ir flokkinn sinn, og auglýstu
hann rækilega í borgarstjórn-
arkosningum. Nú er þetta
breytt. Nú er það borgarstjóir,
sem boðar til funda og nokkr-
ir stuðningsmenn hans, sem
borga brúsann, Sjálfstæðisflokk
urinn kemur þar hvergi nærri.
Þetta kann að koma mönn-
um spánskt fyrir sjónir í fyrstu
en á sínar eðlilegu skýringar.
ef grannt er skoðað.
Ferill flokksins er nefnilega
þannig, að Geir borgarstjóri
telur sér eflaust lítinn ávinn-
ing í að tengjast honum meira
en þarf, sérstaklega núna þessa
dagana, þegar Sjálfstæðisflokk-
urinn í ríkisstjórn er að auka
dýrtíðina enn að miklum mun.
Afneitun borgarstjórans er
því jafn skiljanleg og hún er
haldlaus. Reykvíkingar gleyma
því ekki, sem að þeim snýr
frá ríkisvaldsins hálfu, þeir
muna verðbólguna og kjara-
skerðinguna, þótt reynt sé að
fela þær staðreyndir.
Menn muna áreiðanlega eftir
því, að ríkisstjórnin lýsti í
upphafi því stefnuskráratriði
að verð bólgu skyldi haldið 1
skefjum en svaraði fyrstu
kjarabótatilraunum almenn-
ings með gengislækkun! '
Menn muna fyrir víst, að
álögur samkvæmt fjárlögum
hafa hækkað á 6 árum úr 1501
millj. í 3794 millj. kr. og fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar
hefur meira en tvöfaldast á 4
árum.
Menn muna, að vísitala fram
færslukostnaðar hefur hækkað
um 82% á viðreisnartímanum
og vísitala vöru og þjónustu
um 112% á sama tíma.
Menn muna að byggingar-
kostnaður 350 teningsmetra
íbúðar hefur hækkað úr 430
þúsundum í 914 þús. króna,
og hámarkslán eru enn aðeins
280 þús. kr. en nú vísitölu-
tryggð, sem samkvæmt mati
formanns húsnæðismálastjórn-
ar þýðir það, að lánin verða
með sömu verðbólguþróun fljót
lega ekki aðstoð heldur baggi!
Allt þetta og fleira líkt munu
menn hafa í huga, þegar þeir
ganga að kjörborðinu þann 22.
þessa mánaðar og gera sér
ljóst að það er sá sami Sjálf-
stæðisflokkur, sem ber ábyrgð-
ina á þessu og nú biður Reyk-
víkinga að fela sér forsjá mál-
efna sinna einu sinni enn. Ég
héld því að tilraunin að villa
á sér heimildir sé tilgangslaus.
Bak við brosleitt andlit borg-
arstjórans er úfin íhaldsásjóna
Sjálfstæðisflokksins og eftir
kosningar fellur gríman.
Enguni getum þarf að því að
leiða, hvernig óstjórn undan-
farinna ára hefur leikið af-
komumöguleika almennings.
Enda er það svo, að þrátt fyr-
ir gífurlegan vöxt þjóðartekna,
sem ætti, ef rétt væri á hald-
að að geta aukið kaupmátt
launanna verulega, hafa menn
orðið að lengja vinnudag sinn
meir og meir til þess að standa
undir nauðsynlegum útgjöld-
um.
Mér er það mjög minnisstætt
að fyrir nokkrum mánuðum
•hitti ég á förnum vegi verka-
mann, sem ég er málkunnug-
ur. Ég spurði hann um afkom-
una, en hann lét illa yfir henni.
Hann kvaðst eiga erfitt með
að sjá fyrir heimilinu en bætti
svo við: „En það er kannski
ekki alveg að marka mig, ég
hef verið svo mikill sjúkling-
ur að undanförn.u að ég hef
ekki getað unnið nema 10 tíma
á dag.“
Þetta var ekki gamanmál,
heldur bláköld alvara. Finnst
nú ekki fleirum en mér að
ef þetta gefur rétta mynd af
viðhorfinu í dag að allir aðr-
ir en sjúklingar verði að vinna
meira en 10 tíma á dag til
að komast af, þá sé tími til
kominn að staldra við og gá
að því, hvar við stöndum? er
lengur hægt að una þeirri
istjórn, sem þannig heldur á
imálum? Ég held ekki. Hvernig
halda menn svo að þessu heim-
ili gangi að mæta nýjustu send-
ingunni, fiskverðshækkuninni
og því, sem henni fylgir?
Einar Ágústsson
Enda er nú svo komið, að
jafnvel stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar geta ekki lengur
orða bundist. í 1. maí ávarpinu
lýsa Verkalýðssamtökin því, að
þau líti það mjög alvarlegum
augum, að margítrekuð loforð
ríkisstjórnarinnar um stöðvun
verðbólgunnar hafa reynst
marklaus og má þar minna á
síðustu verðhækkun á brýnustu
lífsnauðsynjum almennings,
sem bitna harðast á tekjulág-
um barnafjölskyldum.
Undir þetta skrifar fyrstur
manna Óskar Hallgrímsson,
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins.
Bragð er að þá barnið finn-
ur.
Einar Ágústsson.
SKIP EIMSKIPS SIGLDU 468
ÞÚSUND MfLUR ÁRIÐ 1965
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Aðalfundur fyrir 51. starfsár
Eimskipafélags íslands var halð-
inn í samkomusal félagsins í dag
og kom þar m.a. fram, að vöru-
flutningar á árinu 1965 með skip
um félagsins námu 348 þúsimd
tonnum í allt og sldp félagsins
sigldu samtals 468 þúsund sjómfl
ur á starfsárinu.
Fundarstjóri var Lárus Jóhann
esson, hrl., og fundarritari Sigur-
laugur Þorkelsson, fulltrúi Ein-
ar Baldvin Guðmundsson, hrl.,
stjórnarformaður félagsins minnt
Lista Framsóknarflokksins á
Þingeyri skipa þessir menn:
1. Árni Stefánsson, hreppstjóri.
2. Þórður Jónsson, bóndi.
3. Valdimar Þórarinsson, bóndi.
4. Gunnar Jóhannesson, bóndi.
5. Gunnar Friðfinnsson, kennari
6. Ólafur Finnbogason, skipstj.
7. Gestur Magnússon, verkstjóri.
Listi vinstri manna á Ólafsfirði
H-listinn, verður skipaður eftir-
töldum mönnum við bæjarstjórn-
arkosningar í vor.
1. Ármann Þórðarson, kaupfél.st.
2. Bragi Halldórsson, gjaldkeri
3 Stefán T. Ólafsson, múraram.
4. Sveinn Jóhannesson, verzl.m.
5. Nývarð Ólfjörð, Jónsson bóndi
6. Líney Jónasdóttir, húsfrú.
ist Guðmundar Vilhjálmssonar,
fyrrv. framkvæmdastjóra félags-
ins, en hann lézt á síðasta ári.
Einnig minntist Einar Baldvin
tveggja látinna fyrrv. stjórnar-
manna félagsins, þeirra Ásgeirs
G. Stefánssonar og Jóns Ásbjörns
sonar, og Jóns Rögnvaldssonar, yf
irverkstjóra.
Árið 1965 voru 22 skip í för-
um á vegum félagsins, og fóru
þau 141 ferð á milli íslands og
útlanda, þar af fóru 12 skip félags
ins 124 ferðir á milli landa, Sam
tals sigldu skip félagsins 468 sjó
8. Gunnlaugur Sigurjónsson,
bóndi.
9. Andrés Jónasson, verksm.stj.
10. Rögnvaldur Sigurðsson, kaup
félagsstjóri.
Til sýslunefndar:
Séra Stefán Eggertsson, sóknar-
prestur, til vara: Gunnar Jóhann-
esson, bóndi.
7. Sumarrós Helgadóttir, húsfrú.
8. Halldór Kristinsson, útgerðar-
maður.
9. Gunnlaugur Magnússon, húsa-
smíðameistari.
10. Magnús Magnússon, tónlistar-
kennari.
11. Gunnar Eiríksson, bóndi.
12. Páll Guðmundsson, verkam.
13. Ingvi Guðmundsson verkam.
14. Hrafn Ragnarsson, skipstjóri.
mílur á árinu 1965 og fluttu 348
þúsund tonn af vörum, sem er 12
þúsund tonnum minna þunga
magn en árið áður. Þess má geta
að félagið fékk ekki áburðarflutn
inga á reikningsárinu, en þar á
móti koma flutningar á frystivör-
um fyrir Sölumiðstög hraðfrysti-
húsanna, sem upphaflega var sam
ið um til eins árs, en samningar
hafa nú verið framlengdir tii 1.
jan. 1968.
Metár varð í farþegaflutning-
um félagsins, þar sem 8511 ferð-
uðust með skipum félagsins. Flest
ir ferðuðust með Gullfossi, eða
Framhald- á bls. 14.
Kópavogur
Framsóknarfélögin í Kópavogi
efna til almennrar skemmtunar í
Félagslieimili _ Kópavogs næsta
laugardag, 14. maí kl. 9 síðdegis.
Ávarp og góð skemmtiatriði —
dans. Nánar auglýst á morgun.
Pantið miða í slma 41590. Fjöl-
mennið. Framsóknarfélögin í Kópa
vogi.
LEIÐRÉTTING
Ég vil leyfa mér að gefa eftir-
farandi skýringar í sambandi við
grein frú Valborgar Bentsdóttur,
fulltrúa í Barnavemdarnefnd
Reykjavíkur, er birtist í Tíman-
um s.l. laugardag undir fyrirsögn-
inni: „Heiisugæzlu óg eftirlit skort
ir á 5 ára tímabili." (En þar seg-
ir m.a. að eftir tveggja ára aldur
sé ekkert heilbrigðiseftirlit með
börnum, fyrr en þau komi í skóla).
Samkvæmt skýrslu Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur 1965, hafa
1384 börn á aldrinum 2ja til 6
ára fengið 1711 læknisskoðanir.
En alls komu á árinu 5296 börn
og tala skoðana var 11461. Er þá
ótalin aðsókn barna á geðvernd-
ardeild.
Þess skal getið, að eftir að
reglubundnu eftirliti lækna og
hjúkrunarkvenna sleppir, um 1—
2ja ára aldur, er ætlaist til, að
börn innan Reykjavíkur og Sel-
tjarnarnesumdæmis komi árlega
til eftirlits á Heiisuverndarstöð-
ina sem næst afmælisdeginum —
fram að skólaaldri. Foreldrar vita,
að þessi þjónusta stendur þeim
til boða, án endurgjalds, og verð-
ur að treysta skilningi þeirra og
samstarfsvilja. En það þarf að
panta tíma fyrir eldri börnin, og
birtast um það áminningar öðru
hvoru í dagbókum blaðanna. Eink
um er áríðandi, að 5 ára börn
komi, til þess m.a. að fá síðustu
bólusetningar á barnadeildum. Að
vísu mega börn með smitnæma
sjúkdóma ‘eða kvilla: kvef, maga-
veiki) ekki koma á Heilsuvernd-
arstöð vegna hinna heilbrigðu og
eru á stöðinni skýr fyrirmæli um,
að í slíkum tilfellum beri að snúa
sér beint til heimilislækna eða
annarra starfandi lækna í bænum.
í grein sinni talar frú Valborg
um, að: „ungbarnaskýrslur barna
séu ekki athugaðar af skólalækni,
þegar barnið komi í skólann.r‘
Því er til að svara, að skýrslur
BVamhald á bls. 15
Kosningahappdrættið
Skrifstofa kosningabsppdrættis Framsóknarflokksins er
að Hringbraut 30, á horni Tjarnargötu og Hringbrautar.
Skrifstofan er opin alla daga frá 9—12 og 1—10, símar
1-29-42 og 1-60-66. Gerið skil sem allra fyrst.
Listi Framsóknarm. á Þingeyri
Listi vinstri manna á Ólafsfirði
Fleiri konur - fleiri Framsóknarmenn í borgarstiórn