Tíminn - 13.05.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.05.1966, Blaðsíða 7
FOSTUDAGUR 13. maí 1966 TÍMINN koma á fót kennslu fyr- ir ráðskonur við mötuneyti Spjallað við Vigdísi Jónsdóttur, skólastjóra. Að Háuhlíð 9 er Húsmæðra kennaraskóli fslands til húsa. Þegar blaðamann Thnans ber þar að garði, tekur skólastýr an, Vigdís Jónsdóttir, því með stíllingu og þolinmæði og reyn ir eftir föngum að finna svör við spurningum hans. — Hversu langt er síðan Húsmæðrakennaraskólinn var stofnaður? — Sfcólinn var uppihaflega stofnaðar 1342. Allt tii vors ins í vor hefur þetta verið tveggja ára skóli og nemendur því aðeins verið teknir inn annað hvort ár. Skólahaldið féll niður árin 1956—8, en annars hefur skólinn ætíð verið hér í Reykjavífc. Sumarið á milli iþessara tveggja vetra, sem istúlfcurnar hafa verið í skól ;anum héma, hefur verið sum ,arnámskeið fyrir þær á Laug jarvatni, og það er innifaíið í ináminu. i — Hvað eru nemendurnir jmargir? i — Ég hef 13 nemendur, sem ínú Ijúka kennaraprófi í vor. jFleiri er ekki hægt að taka inn vegna húsnæðisþrengsla. IÞað er sérstafclega þröngt um verknámið hjá ofckur. Að auki hafa verið haldin námskeið á vegum skólans, t.d. höfum við haldið tvö húsmæðranámskeið í vetur, og síðastliðið sumar héldum við tvö námskeið fyrir ungar stúlkur á Laugarvatni. Þá fá nemendur í Hjúkrunar skóla fslands kennslu í mat reiðslu sjúkrafæðis hjá okkur. — Hverjir eru helztu kenn ararnir? — Tveir fastir kennarar eru við skólann, Anna Guðmunds dóttir, húsmæðrakennari, sem kennir matreiðslu, og Benný Sigurðardóttir, húsmæðrakenn ari, sem kennir heimilisstörf, en í vetur verður hún í leyfi í staðinn kennir Sigríður Har aldsdóttir húsmæðrakennari. Síðan er fjöldi stundakennara. Baldur Johnsen, læknir, kenn ir næringarefnafræði, Ófeigur Ófeigsso læknir, líffæra og heiLsufræði, Ingólfur Davíðsson grasafræði, Ámi Böðvarsson ís lenzku, próf. Steingrímur Bald ursson eðlis og efnafræði, Þor leifur Þórðarson reikning og bókfærslu og Pálína Jónsdóttir sálarfræði. Þá fá stúlkurnar til sögn í að kenna matreiðslu í gagnfræðaskólum. — Á hvaða greinar af þess uim fjölda legigið þið mesta áherzlu? — Kennslan í næringarefna fræði og vöruþekkingu er mjög ítarleg, en í mörgum grein anna eru eðlilega fáar stundir í viku. Af greinum sem að eins eru kenndar á námskeið unum og eftir atvikum má svo nefna hjúkrun í heimahúsum, hjálp í viðlögum, framsögn og raddbeitingu og skrift. — Og nú stendur til að lengja skólann, er ekki svo? — Jú. Samkvæmt lögum frá Alþingi í maí 1965 á þetta að verða þriggja ára skóli, og sú ákvörðun kemur til fram kvæmda nú í haust. Þá verður ekki hægt að taka inn nemend ur nema á þriggja ára fresti. Nú í haust geri ég ráð fyrir að geta tekið inn 12 stúlkur. — Einhverjar námsgreinar bætast þá væntanlega við? — Já, það er gert ráð fyrir að bæta við kennslu í hag fræði, félagsfræði, fjölskyldu fræði og heimilisfræði með nýja skipulaginu. — Þú stjórnaðir áður hús mæðraskólanum á Varmalandi. Kanntu betur við þig hér? — Ég kann alls staðar vel Vigdís Jónsdóttir, skólastjóri Húsmæðrakennaraskóia íslands. við mig, líka hér í Reykjavík. Það er erfitt og slítandi að stjórna heimavistarskóla, mér finnst, að það ætti enginn að gera lengur en í 10—12 ár. Þess háttar skólastjórn hæfir ungu og hraustu fólki. Annars eru húsmæðraskólarnir auðveld ari viðfangs en héraðsskólarn ir, bæði eru nemendurnir eldri og svo eru þeir miklu færri. — Hvaða skilyrði verða nú fyrir inngöngu í Húsmæðra kennaraskólann? — Við krefjumst landsprófs eða gagnfræðaprófs og svo einnig prófs frá hús mæðraskóla. Þá má gera ráð fyrir því, að þær byrji í fyrsta lagi 18 ára og útskrifist 21 árs. Hins vegar er til lagaheimild fyrir að halda inntökupróf, ef um er að ræða eldra fólk og með annað nám að baki. — Viltu svo ekki taka eitt hvað sérstakt fram að lokum um skólann þinn, Vigdís? — Mig langar mjög til að stofna við skólann sérstaka deild fyrir væntanlegar ráðs konur við sjúkrahús og heima vistarskóla, en í lögunum frá í fyrra er sérstök heimild fyrir starfrækslu slíkrar deildar. Fjárskortur hamlar hins vegar enn framkvæmdum í þessum efnum, en ég tel nú vera mjög mikla þörf fyrir að þetta mál nái fram að ganga hið fyrsta, segir Vigdís Jónsdóttir að lok um. Ríkið þarf að leggja barna- heimilunum til meira fé Rætt við Þórhildi Ólafsdótt- ur forstöðukonu Laufásborgar Að Laufásvegi 53—55 er starfrækt steersta dagheimili Reykjavíkurborgar, Laufás borg. Forstöðukona þar er Þór hildur Ólafsdóttir, og hún sam þyfckir að svara nokkrum spurn ingum. — Hvað hefur Laufásborg verið starfrækt lengi? — Síðan 1952. Ég hef verið forstöðukona alveg frá upphafi, en áður hafði ég verið 10—11 ár í Tjarnarborg, og raunar átti ég 25 ára starfsafmæli hjá Sumargjöf s.l. vor. — Hvað eruð þið með mik ið af börnum nú hér? — Börnin eru 125. Mér finnst það vera fullmikið á sama staðnum, en auðvitað verður að reyna að nota húsa kynnin eftir föngum. Við skipt um þessu í sex deildir, og það er til mikils hagræðis, að inn gangar eru margir á húsinu. — Hvað takið þið börnin snemma? — Yngstu börnir eru þriggja mánaða, en helming urinn er um og innan við þriggja ára aldur, og sá helm ingurinn þarf langmesta gæzlu. Elztu börnin em sex ára. Mest eftirspurn er eft ir plássi fyrir yngstu börnin, enda taka sum hin dagheim ilin ekki böm innan 2ja ára aldurs. — Fjölgar dagheimilum ekki heldur? — Þau eru núna fimm tals ins fyrir utan þetta, og í vor verður eitt í viðbót opnað við Dalbraut. Síðustu árin hefur annars verið lögð meiri áherzla á leikskólana, enda era börn in þar bara hálfan daginn og því tvísett og hægt að taka miklu fleiri. — Þið hafið ákveðnar regl ur um það, hvaða börnum þið veitið viðtöku? — Já, við höfum ákveðnar reglur um, hvaða fólkið við veit um úrlausn. Fyrst og fremst eru það einstæðar mæður, síð an einstæðir feður, þá tökum við börn frá heimilum, þar sem veikindi eru og heimilum. sem em í upplausn vegna óreglu. Loks höfum við tekið við börnum námsfólks, t.d. em 17% af börnunum núna börn háskólastúdenta. — Og eftirspurnin er mikil? — Já, það er afar mikið af konum án fyrirvinnu, og eigin lega reynir ekki á, hver eftir spumin yrði, ef við færam út fyrir þann ramma, sem að fram an greinir, því að fólk veit, að það fær ekki inni fyrir Börn áð leik í Laufásborg. börnin nema það uppfylli eitt hvert þessara skilyrða og sæk ir ekki um vist á meðan. Samt sem áður er biðtíminn nokkrir mánuðir, ég er ekki enn far in að taka inn börn, sem sótt var um vist fyrir í janúar. — Hversu mikið starfslið er við þetta dagheimili? — Ég er með 20 stúlkur, þar af eru þrjár og sú fjórða af hálfu við matseld og þvotta. Ég hef verið mjög heppin með starfslið. Sérstaklega er mað ur miklu öruggari, þegar fóstr urnar eru farnar að koma sér menntaðar, Fóstruskólinn hef ur bætt úr brýnni þörf, og það er alveg hægt að treysta stúlk um þaðan frá upphafi. Eitthvað geturðu sagt ofck- ur um fjárhagshliðina, Þórhild ur? — Reykjavífcurborg leggur til húsnæðið og borgar hallann af rekstrinum, en oftast er hallinn æði mikill. Vandamenn borga 1-160—1200 krónur á mánnði fyrir börnki, enda er Framhald á bls. 13.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.