Tíminn - 13.05.1966, Síða 3
FÖSTUDAGUR 13. maí 1966
TÍMINN
UNGA FOLKIÐ I LIDO
Myndirnar hér á síðunni
sýna, svo ekki verður um
villzt, að unga fólkið í borg-
inni fylkir sér nú undir merki
Framsóknarflokksins í stærri
mæli en nokkru sinni áður.
Fundarsókn þess í Lídó í gær
kveldi er merki um það, að
unga fólkið ætli af fullri ein-
urð að sýna afturhaldsöflun-
um í borgarstjórn Reykjavík-
ur, að þau eru ekki einráð
um framvindu borgarmála.
Með því að efla Framsóknar-
flokkinn til meiri áhrifa í
borgarstjórn, er unga fólkið
að stuðla að auknu framtaki
og framsókn til betra lífs.
Hinn geysifjölmenni fund-
ur í Lídó sannar að nú er
fyrst og fremst kosið á milli
fhalds annars vegar og fram-
fara hins vegar, og það er
auðséð á þeirri fundarsókn,
sem hér birtast myndir af,
hvoru megin unga fólkið kýs
að skipa sér. — Fram til sig-
urs fyrir B-listann.
‘Tímamyndir G.E. og B. B.)
Á VÍÐAVANGI
Þeir ætluðu að
einangra þá!!
Menn hafa rætt töluvert um
það síðan myndasíðan birtist
í Þjóðviljanum af kosninga-
stjóm nýja og skrítna Alþýðu-
bandalagsfélagsins. Menn
höfðu átt von á því, að nú
kæmu myndir af nýjum mönn-
um, en þetta voru þá bara allt
saman gömlu draugarnir. Það
fór ekki milli mála, hver hefur
töglin og hagldimar enda fer
svo ósköp lítið fyrir „nýju öfl-
unum“ og nú eru þau orðin
svo máttvana, að þau fá ekki
einu sinni að hafa litla snep-
ilinn sinn, Frjálsa þjóð í friði
fyrir kommúnistunum, sem
meiningin var að einangra al-
veg, samanber stóru orðin í
Frjálsri þjóð. Haldiði ekki, að
Æskulýðsfylking kommúnist-
anna sé komin inn í Frjálsa
þjóð með heila síðu, bara fyrir
sig eina og sinn kommúnisma?
Yfirtaka Frjálsrar
þjóðar
Ritstjórar Æskulýðsfylking-
arinnar fylgja þessari nýju
síðu í Frjálsri þjóð úr hlaði
í blaðinu, sem kom út í gær.
Þar segir svo orðrétt: „Æsku-
lýðsfylkingin, samband ungra
sósíalista, telur skyldu sína að
ná til sem flestra í málefna-
baráttu sinni. Núna er höfuð-
verkefnið að vinna að sigri Al-
þýðubandalagsins. Þess vegna
hefur Æskulýðsfylkingin í
hyggju, að birta æskulyðssíðu
í Frjálsri þjóð fram að kosn-
ingum og þakkar ritstjóm
Frjálsrar þjóðar að veita það
tækifæri. — Æskulýðssíðan er
algerlega á ábyrgð Æskulýðs-
fylkingarinnar. ritstjóm síð-
unnar er skipuð félögum úr
ÆskulýðsfyHdngunnj og er
óháð ritstjórn Frjálsrar þjóð-
ar. Ber því hvorugur aðilinn
ábyrgð á skrifum hins.“
Setja upp skeifu
Svo mörg voru þau orð Æsku
lýðsfylkingarinnar, en á for-
síðu blaðsins er birt í ramma
yfirlýsing frá ritstjóm Frjálsr-
ar þjóðar. Þar segir svo um
yfirtöku kommúnista á Frjálsri
þjóð:
„Það hefur orðið að sam-
komulagi milli ritnefndar
Frjálsrar þjóðar og Æskulýðs-
fylkingarinnar, sambands
ungra sósialista, að Fylkingin
fengi til umráða eina síðu í
þessu blaði og hinu næsta fyr-
ir kosningar. Það skal tekið
fram, að samkomulagið nær að-
eins til þessara tveggja blaða
og að efni síðunnar birtist á
ábyrgð Æskulýðsfylkingarinn-
ar.“
Það Ieynir sér ekki í yfir-
lýsingu ritnefndar Frjálsrar
þjóðar, að henni finnst þetta
tveimur síðum of mikið, en
þeir verða að beygja sig fyrir
húsbóndavaldi kommúnistanna
eins og alltaf áður — en eng-
inn getur láð þeim, þótt þeir
setji upp skeifu.
Afneltanir
Þannig er nú samkomulagið
á þeim bæ. Þeir keppast um
að afneita hverjir öðrum í einu
og sama biaðinu. Hvorugur vill
taka ábyrgð á hinum. Blekið
er ekki einu sinni þoruað á
hjónavígsluvottorðinu, þegar
bæði hjónin krefjast þess, að
lesið sé í sundur tafarlaust.
Frámhaln a nl> , -