Tíminn - 13.05.1966, Qupperneq 5
FÖSTTJDAGUR 13. maí 1966
5
Otgetandl: FRAMSÓKNARFLOKKURiNN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Kitstiórar porarinn
Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson. Jón Helgason oe Inririði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson éug
lýsingastj. Steingrimur Gislason Ritstl skrifstofui kddu
húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofui Bankastræti ' Af
greiðslusÍMÍ 12323 Auglýsingasím) 19523 Aðrat skrlfstofur
sími 18300. Askriftargjald kr 95.00 a man innanlands - í
lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA n.f
Borg hins íslenzka
framtaks
Fyrir tæpri öld var Reykjavík lítið þorp, þar sem Dan-
ir réðu nær öllu. Dönsk yfirdrottnun setti alveg svip
sinn á bæinn. í dag er Reykjavík orðin myndarleg borg,
sem er á margan hátt glæsileg. Þessi mikla breyting,
sem hefur orðið á Reykjavík, er öll íslenzku framtaki að
þakka. Hún er árangur þess, að erlendu yfirráðunum
var hrundið, og íslendingar fengu sjálfir að njóta dugn-
aðar síns og framtaks. Framfarirnar í Reykjavík eru
glæsilegt dæmi þess, að íslenzku framtaki má treysta.
Þessar miklu framfarir hafa orðið í Reykjavík, þótt
hún hafi lengstum verið svo óheppin að búa við lélega
borgarstjörn. Framtak bæjarbúa eftir að þeir voru leyst-
ir undan hinum dönsku yfirráðum, hefur reynzt svo
ö.flugt, að léleg borgarstjórn hefur ekki getað dregið
úr því. Framfarirnar í Reykjavík eru sannarlega
verk borgaranna sjálfra. eins og einum frambjóðanda
Sjálfstæðisflokksins varð nýlega óvart að orði.
Dimmur skuggi vofir nú yfir því framtaki, sem hefur
byggt Reykjavík upp — hinu íslenzka framtaki. Sú rík-
isstjórn, sem nú fer með völd, hefur vantrú á íslenzku
framtaki. Hún telur það helzta bjargráð íslendinga að
fá sem miést af erlendu framtaki inn í landið. Hún virð-
ist ekkÞþékkja, hvernig hér var ástatt, meðan Danir
réðu. Hún býður því erlendum auðhringum margvísleg
hlunnindi til atvinnurekstrar á íslandi meðan hún vtt-
andi og óvitandi þrengir að íslenzku framtaki. Ekki að-
eins verðbólgan, sem hún magnar stöðugt, heldur engu
síður álagahækkanir — og þó umfram allt lánsfjárhðft-
in — þrengja nú svo stórkostlega ,að íslenzku framtaki,
að hin mesta hætta er á ferðum.
En stjórnin heldur samt sömu stefnunni áfram. Og
blöð hennar æpa að Framsóknarflokknum og kalla hann
afturhaldsflokk og öðrum slíkum nöfnum, vegna þess að
hann vill leggja höfuðáherzlu á að styðja hið íslenzka
framtak.
í borgarstjórnarkosningunum 22. maí eiga reykvískir
kjósendur m.a. að svara því, hvort þeir vilja, að Reykja-
vík haldi áfram að verða borg hins íslenzka framtaks.
Það tryggja þeir bezt með því að kjósa B-listann.
FJokkur lánahaftanna
Oft er deilt um, hvaða flokkur hafi átt mestan þátt í
þeim höftum, sem hér hafa verið á undanförnum áratug-
um. Hið rétta er, að allir flokkar hafa átt í þeim meiri
og minni þátt. Til þess liggur sú skiljanlega ástæða, að
þau hafa oftast verið afleiðing erfiðs viðskiptaárferðis.
Um eitt þarf hins vegar ekki að deila í þessu sambandi.
Erfitt viðskiptaárferði gerir ekki höft nauðsynleg í dag.
En samt búa atvinnurekendur og kaupsýslumenn, sem
ekki eru í hópi hinna útvöldu, með öllu örðugri höft en
nokkrun sinni fyrr — lánsfjárhöftin.
Þessi höft stafa ekki af skorti á lánsfé. Mörg hundruð
millj. kr. af því eru frystar í Seðlabankanum.
Um það þarf ekki að deila, hvaða flokkur ber ábyrgð
á þessum höftum — lánsfjárhöftunum. Það er Sjálf-
stæðisflokkurinn.
Þess vegna getur enginn, sem ekki vill una þessum ó-
þörfu og skaðlegu höftum, kosið Sjálfstæðisflokkinn í
kosningunum 22. maí.
, 'jZTSFSl*-'*1'
y
JAY WALSH, fréttaritari New Yoork Times:
aráðlierrar
vara við bandarísku fjármapi
Telja áhrif þess vera orðin hættulega mikil í Kanada
TVEIR áhrifamiklir Kanacla-
menn hafa krafizt yfirlýsingar
um, að Kanadamenn verði ekki
háðir Bandaríkjunum fjárhags
lega.
í gær gaf Mitehell Sharp fjár
málaráðherra út opinbera yfir
lýsingu, þar sem lýst er áfonm
um um efnahagslegt ,irelsi‘
Kanada. Walter L. Gordon, fyr
irrennari hans í embætti, fylgdi
í dag á eftir með kröfu um, að
snúizt yrði gegn yfirdrottnunar
hneigð Bandaríkjamanna.
x Gordon var fjármálaráðherra
frá því árið 1963 til ársins 1965
og lagði þá til, að beitt yrði
einbeittum ráðstöfunum gegn
drottnun bandarísks fjármagns
í kanadískum fyrirtækjum.
Hann ítrekaði þessa tillögu sína
í dag.
Sharp núverandi fjármálaráð
herra hefir verið talinn hóf-
samari að því er varðar afstöð
una til efnaihagslegra sam.skipta
við Bandaríkjamenn. Nú er.svo
að sjá, serni hann hafi snúizt á
sveif með Gordon i Skeleggri
baráttu undir kjörorðinu:
„Standið á eigin fótum“
í ræðu, sem Sharp flutti í
Toronto, viðhafði hann að vísu
töluvert hófsamara orðatag en
Go-rdon temur sér í bpk sinni
„Val Kanadai*. Gordon er nú
þingim. Ffjálslynda flokksins
fyrir Toronto. í bók sinni seg \
ir hann, að núverandi hneigð
til yfirdrottnunar bandarísks
fjármagns í efnahagslífi
Kanada verði að snúa við, með
an enn sé tími til.
BARÁTTA þessara tveggja
manna miðar að því að draga
úr „gífurlegu aðstreymi" er-
lends fjármagtis til fjárfesting
ar. Báðir eru þeir hlynntari
sölu skuldabréfa en milliliða-
lausri fjárfestingu erlendra
manna. Mál sitt rökstyðja þeir
með því, að þegar til lengdar
lætur verði greiðsla vaxta bæði
ódýrari og hættuminni en si
auikinn arður og endurfjárfest
ing, frá sjónarmiði þjóðarinnar
séð.
Skoðanir þeirra Sharps og
Gordons eru í samræmi við
það ríkjandi álit í Kanada, að
Bandaríkjamenn“ þekki
Kanada ekki“ og „ali í brjósti
litla hlýju til grannríkisins."
„Bandaríkjamenn sem þjóð
vita ekki mdkið um Kanada".
skrifar Gordon. „í því er okkar
óhamingja fólgin“.
Kanadamenn kvarta oft und
an því, að einkennandi sé fyrir
Bandaríkjamenn að þeir Iiti
ekki á hina gífurlegu fjárfest
ingu sína í Kanada sem efna-
hagslega „yfirdrottnunar-
stefnu“. Þeir líti á þetta sem
greiðasemi, likt og auðugir,
rosknir frændur auðsýni ung-
um mönnum á stundum.“
f bók sinni sakar Gordon
George Ball aðstoðarutanrikis
ráðherra Bandaríkjanna um að
hafa mælt með sameiningu efna
hagslífs Bandarikjanna og
Kanada. Hefir höfundur eftir
Ball þau ummæli, að slík sam
eining væri „rökrétt framfara
Pearson forsætisráðherra Kanada aS flytja kosningaræSu. A bak
viS hann er kosningamynd af honum sjálfum.
þróun, som Kanadamenn ættu
að fagna". — Gordon viður-
kennir, að efalaust séu „sumir
Kanadamenn sömu skoðunar.’1
í RÆÐU, sem Sharp fjár-
málaráðherra flutti á fundi hjá
Bandalagi kanadiskra auglýs
enda, sagði hann, að Kanada-
menn ættu að fá erlenda að-
stoð til að birta meiri opinber
ar upplýsingar en þeir gera
um athafnir sínar og afkomu.
Hann sagði ennfremur, að rík-
isstjiórnin ætti að stuðla að
vexti alþjóðlegra fyrirtækja,
sem Kanadamenn eigi meiri-
hluta í, og beita skattalögum
til þess að örva Kanadamenn til
aukinnar fjárfest.ingar í inn-
lendum fyrirtækjum. — Þegar
kanadiskir hagfræðingar eða
fjármálamenn tala um „erlend
fyrirtæki“ eða „ erlenda fjár-
festingu" eiga þeir venjulega
við „bandaríska" athafnasemi.
Fjármálaráðherra mælti með
stofnun „Þróunarsamtaka
Kanada", sem Gordon stakk
upphaflega upp á. Þetta yrði
opinbert fyrirtæki, sem ætlað
væri að virkja sparnað í stórum
stíl til þess að efla völd Kanada
manna sjálfra yfir athafnalífi
landsins. Ráðherrann lagðist
eindregið gegn löggj., er ætlað
væri að gera fyrirtæki í eigu
Kanadamanna réttmeiri en fyrir
tæki í eigu erlendra manna.
Hann stabk upp á, að sikattalög
in væru við það miðuð að hvetja
til „kanadiseringar" erlendrs
framlags. En hann bætti við:
„Hér á ekki við, að fyrirtæki
í erlendri eigu séu sköttuð
þyngra en kanadisk fyrirtæki“.
Fjármálaráðherrann benti á,
að Kanadaimenn yrðu að hafa
í huga áframihaldandi þörf fyr
ir frjálsan aðgang að erlendu
fjármagni og erlendum mörk
uðum. Hann kvað það „skamm
sýna“ stefnu að mismuna
fyrirtækjum í erlendri eigu
og innlendri.
BÓK Gordons kom út í dag
hjá McCellan & Stewart Ltd.
í Toronto. Höfundur :sagði, að
megintilgangur bókarinnar sé
að benda á brýna þörf á að
draga úr því, hve Kanada er
stórlega upp á innstreymi mik
ils erlends fjármagns komið.
„Allt of stór hluti kanadisks
athafnalífs lýtur erlendu valdi"
skrifar höfundurinn. „Erlend-
ir menn hafa, með aðstoð kana
diskra vina sinna og umboðs
manna, allt of mikil áhrif á
opinbera stefnu í Kanada“.
Gordon fer fram á, að dreg
ið sé úr heimiluðum fjánmagns
bostnaði (afskriftum) erlends
Framhald á bls M