Tíminn - 21.05.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 21.05.1966, Blaðsíða 7
LAUGABDAGUR 21. maí 1966 _TÍMINN_______________7 fyrir B-lista á morgun gerð, holræsagexö, hafnargerð, vatnsveituframkvæmdir, hitaveitu- framkvæmdir o.s.frv. Ekki veit ég, tilheyrandi, góður hvemig þér finnst borgarstjórinn og samstarfsmenn hans hafa rækt lallar sínar fjölmörgu skyldur, sem taldar eru hér að ofan. Finnst þér öll ofantalin málefni vera í ákjós- anlegu ástandi? Finnst þér, verka- maður góður, sem verður að greiða árlega hærra útsvar en vinnuveitandi þinn, að fjárreiður borgarinnar séu í réttu horfi? Þú, unga ekkja, með börnin ug og smá, finnst þér framfærslumál- in vera í góðu lagi og áttu næg- um skilningi að fagna hjá starfs- mönnum borgarinnar? Þú, fátæka móðir, sem þarft að vinna úti ásamt bónda þínum til að halda velli gegn verðbólgunni, hveraig hefur gengið að koma bðrnunum á barnaheimili? Hins sama má spyrja eiginkonu hins unga náms- manns, sem þráast við að afla sér menntunar, þrátt fyrir fátækt. Þið foreldrar, sem eigið barnið, sem er að byrja barnaskólagöng- una, finnst ykkur það góð frammi- staða í fræðslumálum, að barnið unga þarf daglega að mæta í skól ann kl. 20 mínútur fyrir 12 og vera þar í tvo tíma, án þess að að geta borðað heitan mat með fjölskyklunni, þegar heimilsfaðir- inn kemur heim frá vinnu sinnL Þið fbúar við Miklubraut, fórnar- lömb hins nýja og fullikomna aðal- skipulags og þið læknar eigendur hússins Domus Medica finnst ykk ur hafa verið haldið vel á skipu- lagsmálum? Þið imrfæddu Reyk- víkingar, sem flúið hafa í Kópa- vog, Seltjamaraes, Garðahrepp og Mosfellssveit vegna lóðaskorts, eru byggingamálin ekki í fínu lagi? Góðir samborgarar, ekki ætla ég að þreyta ykkur lengur með fleiri spumingum. Þið svarið þeim öll- um með sjálfum ykkur og mörg- um fleiri. Svörin birtast á sunnu daginn við kjörborðið. ☆ Sigríður Thorlaeius í ræðu sinni í gærkveldi sagði frú Sigríður Thorlacius m.a.: »Ég vænti ekki, að sá boðskap- ur hafi farið framhjá neinum, að draga eigi úr verMegum fram- kvæmdum í Reykjavfk á næstu árum, ef sömu aðilar fara þar áfram með völd. Það má ekki taka vinnuafl frá framleiðslunni, sagði borgarstjórinn. Hvaða framleiðsla er það, sem hann og hans flokk- ur ætlar að beina vinnuaflinu til. Er það auMn útgerð eða aukinm iðnaður? Lítil merki sjást um það, svo markvisst sem unnið er að því að draga fjármagn frá þessum atvinnugreinum og vanrækja flest það, sem bætt getur aðstöðu þeirra á innlendum og erlendum mark- aðL NeL það verður sagt við Reyk víkinga: Farðu upp í Hvalfjörð, farðu suður að Straumi. Seldu út- iendingum vinnu þína, ekki ís- lendingum. Er þetta aðferðin tii að skapa framtíðaröryggi í atvinnumálum Reykjavikur? Ég segi nei og aftur nei. Það á að efla innlenda atvinnuvegi til lands og sjávar. Þeir eiga að skapa fólkinu öryggi, þeir einir geta það. Til þeirra á að beina vinnuaflinu og fjármagninu. Það hefur svo rækilega verið minnt á hve mörg þau nauðsynja- mál eru, sem vanrækt hafa verið á valdaferli borgarstjórnarmeiri- hlutans í Reykjavík, að ég fer ekki að endurtaka það, en því fyrr, sem gripið er í taumana, því meiri líkur eru á, að takast megi að bæta úr vandanum. Skortur á skólum og barnaheimilum læknast ekki við það, að beðið sé þangað til börnin, sem þafnast þar vistar núna, eru orðin fullorðin." ☆ Einar Ágústsson sagði m.a. f sinni ræðu: Val kjósendanna er ekki svo erfitt, þegar vel er skoðað. Á lista okkar Framsóknarmanna er eina konan, sem einhver vafi getur leik Einar Ágústsson ið á hvort sæti eigi í borgar- stjóra næsta kjörtímabil eða ekki. Allir þeir mörgu, sem telja að áhrifa kvenna ætti að gæta meira á opinberum vettvangi en verið hefur hafa því engan annan mögu leika til þess að vinna því áhuga- máli sinu lið en að kjósa B-list- ann. Allir þeir mörgu, sem telja að betur þurfi að vinna að málefn- um ungmennan.na f borginni og þeirra, sem minna mega sín, vita að konur eru liMegri til þess en karlar að hafa heillavænleg áhrif á þau mál. Einnig þetta fólk á ekki annan kost betri en að kjósa B-listann til þess að tryggja þessu hugðarefni stuðning. Þegar við þessar röksemdir bæt- ist svo, að sú kona, sem B-listinn býður fram er frú Sigríður Thorla- cius, valinkunn mennta- og mannkostakona, þá léttist enn val reykvískra kjósenda. Án þess að ég ætli að fara að kasta rýrð á frambjóðendur ann arra flokka, sem sjálfsagt hafa all ir einhverja kosti til brimns að bera, þá hika ég ekki við að full- yrða, að enginn framboðslisti hef- ur jafn glæsilegan frambjóðanda í baráttusæti sinu að þessu sinni og B-listinn, listi Framsóknar- flokksins. Þegar saman fer hagstæð mál- efnaaðstaða og slíkt framboð, get- ur tæpast hjá því farið að góður árangur náist. Stuðningsmenn B-listans. Látum þennan glæsilega fund verða tákn þess að frá og með næst komandi mánudegi eigi fleiri Framsóknarmenn sæti í borgar- stjórn Reykjavíkur en nokkru sinni fyrr. Tryggjum kosningu frú Sigríð ar Thorlacius. Veitum fólkinu bætt skilyrði til betra lífs í borginni við sundin. Hleypum ferskum andvara fram sóknar- og umbótavilja í auknum mæli inn í húsakynni borgarstjóm ar. Vinnum vel og vinnum mikið, þá verður uppskeran ríkuleg, því að jarðvegurinn er frjór, sem í er sáð. SéS yfir sviSið á hinum stórglæsllega kosningafundi B-listans i gærkveldi. Jón A. Ólafsson f rœSustói. (Timamynd KJL FLUTTAR VORU A HINUM LISTANS I GÆRKVÖLDI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.