Vísir - 19.12.1974, Qupperneq 2
1
Vlsir. Fimmtudagur 19. desember 1974.
rimsm:
Ætlið þér að verja
jólunum heima?
Sólveig Vilbergsdóttir, húsmóöir:
— Já, um aö gera að vera bara
heima. Það er alltaf bezt.
Þórunn Pálmadóttir, húsmóðir:
— Já, ég hef alltaf gert það að
vera heima. Maðurinn minn
veröur á sjónum um jólin, svo ég
verð ein með börnin.
Erla Gunnarsdóttir, húsmóðir:
— Já, alveg örugglega. Ég verð
heima með börnin.
Haraidur Jóhannsson, sjómaður:
— Já, ég verð heima við i ár. Og
það hefur reyndar alltaf verið
þannig, að ég dveldi heima um
jólin. Ég er á fiskibáti, en við fá-
um jólafri.
Þórarinn Stefánsson, skrif-
stofumaður: — Já, ég reikna fast-
lega með þvi. Ég hef aðeins einu
sinni verið erlendis um jólin. Þá
fór ég með föður minum, sem er
flugstjóri, eina ferð.
Stefán Haligrimsson, bilstjóri: —
Já, örugglega. Ég hef yfirleitt
verið heima um jólin. Ég vona
bara, að jólin verði róleg og góð.
„ÞAÐ ER HANN ESARDAÐRIÐ,
SEM FARIÐ HEFUR MEÐ ÞÁ"
— Bréf úr Launráð og landsfeður
í bókinni Launráð og lands-
feður, sem Almenna bóka-
félagið gefur út, eru bréf, sem
fóru miili þeirra Björns Jóns-
sonar og Valtýs Guðmunds-
sonar. Þessir kappar voru þeir
stjórnmálamenn á einu örlaga-
rikasta skeiði islenzkrar stjórn-
málabaráttu, sem áttu sér
harðasta fjendurog heitasta
fylgismenn.
Við birtum hér eitt bréf úr
Reykjavik, 25.5. 1908
Elskulegi vin!
Kæra þökk fyrir Sterlingspistilinn. Já, svona fór með okkar
menn i sambandsnefndinni. Allir hvikið þér, nema Skarphéðinn
— Skúli. Það er Hannesar daðrið, sem farið hefir með þá Stefán
og Jóhannes — ef ekki Bakkus meðfram með Stefán, og þetta
alþekta joll i honum. Og svo er hann að gylla alt saman. Við
kennum þeim missagnirnar i simskeytum þinum (Thingvalla-
-skilnaðartilboð o.s. frv. ) Þvi ekki gazt þú neitt vitað nema frá
þeim félögum. Eg hefi llka heyrt indiscretionssögu frá honum og
missögli. Mjög leitt, ef þú hefir ánetjast eitthvað. Þvi hlakka
fjandmenn vorir yfir og okkur er það mikill skaði ef þú ert
fullráðinn að verða með nefndinni á móti okkur. Ég sé eftir að
hafa ekki varað þig við i ritsimanum. Datt það i hug snöggvast,
en hvarf frá þvi aftur með þeirri hugsun, að það væri ekki til
neins, ef þú værir búinn að fullráða við þig, hvað gera skyldi, en
hins vegár mætti lita svo á, að skeytin væri beint dikteruð af
nefndinni. Þvi ekki annað kostur með hennar skeyti. Og það finst
mér raunar enn, gefið það út. úrþvættin Lögrétta og Reykjavik
rekin úr Blaðskeytabandalaginu, ef ekki taka aftur rógin(n) um
þig, sem gerðir það af náð og greiðvikni að vera
korresp(onden)t okkar I bili. Þvllikir tuddar!
Umbætur á sambandsnefndarfrumvarpinu verður að vera
program okkar allra og verður það, hygg eg, þar á meðal ýmissa
stjórnarliða, nema verstu skriðdýranna. Lengra ekki lagt upp,
þó að flestir munu hugsasér fremur skilnað en status quo, þegar
fullreynt er, að Danir kjósa heldur að sleppa okkur en fallast á
konungssambandið tómt. Um þetta erum við allir sammála,
flokksstjórnirnar hvorartveggja og Þjóðólfsmaður, sem nú hefir
brent sin skip og getur naumast aftur snúið, enda skilyrði fyrir
endurkosningarvon i Arnessýslu.
Margblessaður ætið
Þinn einlægur vin,
Björn Jónsson
þessari eftirtektarveröu bók,
valið af handahófi:
(Bréf nr. 141)
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
And-semitískur óróður
í íslenzkum fjölmiðlum
H.K. skrifar:
Undanfarið hefur verið fluttur
mikill and-semitiskur áróðuri
isl. fjölmiðlum og gefur hann
ekkert eftir samsvarandi áróöri
þjóðlegra sósialista (nasista) á
árunum 1933 til 1945. Talar sá,
sem man.
Aðeins hefur veriö skipt um
„formerki”. Nú eru þaö
„Arabar”, sem þjóðahatrið
beinist gegn, bræður Gyðinga.
Eins og um allan slikan
áróður — gegn eða ,með litar-
hætti, þjóðerni og trú — er
fávizka og þekkingarleysi
hlustenda og lesenda ræktað af
gáfuðum en miður upplýstum
höfundum.
Einu sinni voru Arabar bara
vondir af þvi að þeir voru ekki
kristnir. Ollum yfirsást þá, að
múhameðstrúarmenn hafa frá
upphafi viðurkennt Krist sem
einn af stærstu spámönnunum.
Við nákvæman lestur trúar-
bókar múhameðstrúarmanna
munu menn geta komizt að
þeim þægilegu sannindum, að
frelsarinn er þar oftar nefndur
en nokkur önnur persóna og
honum alltaf til lofs.
En kannski er þetta bara
óþægilegur sannleikur? Það er
sjálfsagt þá lika óþægilegur
sannleikur að vita, aö fyrir
margar Arabaþjóðirnar eru
gjaldeyristekjur af oliu 100%
þýðingarmeiri heldur en gjald-
eyristekjur af fiski eru fyrir Is-
lendinga.
Þvi vikur þannig við, að tæp
50% af gjaldeyristekjum okkar
eru fyrir fiskútflutning en flest
ollurikin hafa engar aðrar
gjaldeyristekjur en þær, sem
olian gefur.
tslendingar eru gestrisnir og
gjöfulir. Ekki þolum við þó
neinn samanburð við Araba I
þeim efnum.
Islendingar eru vinnusamir
og dugnaðarfólk. Ekki hefjum
við þó vinnu fyrir sólarupprás
og höldum áfram til sólarlags
eins og austrænar þjóðir al-
mennt, ef hiti um miðjan dag
leyfir (40-50 gráður á Celsius i
skugga samsvarar um og yfir
100 gráðum i sól undir beru
lofti).
Ég ætlast ekki til, að Is-
lendingar vinni meira en þeir
gera, en mér leiðist aö lesa og
heyra fréttir af „letingjum sem
liggja i sólinni og nenna ekki að
vinna”. Sú setning á betur við
vestræna ferðamenn á suðlæg-
Arabar hafa löngum vakiö andúð á sér með hinum tfðu flug-
ránum, morðum á saklausu fólki og eyðileggingu á verðmætum.
Myndin sýnir eyðilagða þotu frá Pan Am sem þrír arablskir
skæruliðar skemmdu á Leonardo da Vinci fiugvellinum I Róm.
um slóðum. Þeir fara ekki á
fætur fyrr en sól er komin hátt á
loft og hitinn óbærilegur fyrir
vinnandi fólk.
Ég er nú kominn að erfiðum
kafla,semfjallarum „samspil”
Gyðinga og Araba. Ég við menn
að taka viljann fyrir verkið, þvi
að naumast er hægt að fjalla um
það öðruvisi en að sáera
Gyöinga, og hafa þeir þó haft
býsn að bera I um 4000 ár.
Frá þvi skömmu eftir að
siöustu Isöld lauk hafa eyði-
merkurlöndin verið að þorna
upp og gróður aö eyðast vegna
loftslagsbreytinga (ekki vegna
ofbeitar, segja sérfræðingar).
Frá þvilöngu áður en nokkrar
sögur hófust hefur þvf verið of-
fjölgun i eyðimerkurlöndunum
og fólksflutningar stöðugt út úr
þeim, i allar áttir, nema af
Arabiuskaganum. Þaðan hlaut
landflóttinn að liggja til norðurs
inn i Miðfljótaland, Sýrland og
Palestinu.
I suðri, austri og vestri var
hafið, og ekkert timbur til, til aö
byggja bata.
Fólkið hélt saman I ættum og
ættbálkum og gerir enn. Flestir
hafa samlagazt mót-
töku-þjóðunum I trú og
menningu á hverju timabili og I
hverju landi.
Ein þessara fjölskyldna
virðist hafa lent I óbætanlegu
klandri, þegar hún kom norður
úr eyðimörkinni austarverðri,
nær botni Persaflóa. Þá þegar,
um 2000 fyrir Kristburð, er hún
rekin með hörku, af beitar-
landinu austur við Úr i Kaldeu,
og hefur naumast átt sér sama-
stað siðan.
Gamla testamentið er
nákvæmt rit, en hefur litið um
þetta atvik að segja. Sökin þarf
ekki aö hafa verið mikil þó
meiri en venjuleg blóðhefnd.
Brottrekstur með smán hefur
bitið sig i sálarlif f jölskyldunnar
og sektartilfinning aðskilið hana
frá öðrum hirðingjum. Hún
samlagaðist ekki eftir þetta og
forhertist siðar upp I það að
kalla sig sjálfa „guðs útvöldu
þjóð”. Það er guðlast. Jafnvel
blaðamaður getur ekki sjálfur
slegið þvi föstu að hann sé guðs
útvaldur.
Fjölskyldan stækkaði og varð
að litilli „þjóð”. Löngu siðar,
liklega um eða eftir 1300 fyrir
Kristburð, verður þessari þjóð á
að fremja fyrsta þjóðarmorð,
sem mannkynssagan getur um,
og jafnframt eina þjóðarmorð
sögunnar, sem hefur
„heppnazt”, og er þvi lýst af ná-
kvæmni á Gamla testamentinu,
Jósúabók.
Enginn hefur erft þetta við
Gyðinga enda lifði enginn af
hryðjuverkin, nema ein port-
kona, sem var I þjónustu þeirra
fyrir. Um skilmerkilegri
lýsingu visast hér með til Jósúa-
bókar.
Þannig eignuðust Gyðingar
Palestinu upphaflega. Hvort
þeim tekst að eignast Landið
helga aftur, svo að enginn verði
til að erfa það við þá, verður
fréttaefni fjölmiðlanna næstu
ár.
Vinsamlegast takið ekki að
yður hlutverk portkonunnar.
Seinagangur í „tannbótum
##
S.E. margra barna móðir
skrifar:
„I sumar komu þær gleðilegu
fréttir að nú myndu tann-
viðgerðirbarna og unglinga upp
að 16 ára aldri verða borgaðar
af rlkinu.
Þetta voru sannarlega gleði-
fréttir fyrir marga foreldra. Ég
var ein af þeim sem sendi dóttur
mina til tannlæknis og pantaði
tima fyrir aðra. En mér brá
heldur betur i brún þegar
reikningur upp á 6 þús.kr. kom
frá tannlækninum, sem hann
sagði að ég yrði að borga. Það
fylgdi með að ég fengi hann
endurgreiddan hjá Trygginga-
stofnuninni.
Nú, jæja, hugsaði ég ánægð.
Ég þarf hvort sem er að fara
niður I bæ að kaupa gallabuxur
á krakkana, svo að ég næ i þetta
I leiðinni. En nei, svona auðvelt
var þetta ekki. Upplýsingarnar
sem ég fékk voru þær, að ég yrði
að biða. Hve lengi? A þvi gat
stúlkan ekki frætt mig. Hver
gæti þá sagt mér hvenær þetta
yrði eða hvort þetta yrði fyrir
jól, sem ég fengi peningana
» endurgreidda? Nei, ekkert svar
var til. Það vissi þetta ábyggi-
lega enginn, sennilegast væri
þetta enn i nefndum og yrði
ábyggilega engin niðurstaða
komin fyrir jól.
Mig langar til að vita hvort þeir
geti nú ekki farið að ákveða sig i
nefndunum, svo að þeir sem
peningalitlir eru, geti hiklaust
sent börnin sin til tannlæknis,
án þess að þurfa kannski að
leggja út fleiri þúsundir mánuð-
um saman.
Fyrst á annað borð er búið að
ákveða að gera þetta, þá i
guðanna bænum látið þetta ekki
kafna i einni nefndinni af
annarri.”