Vísir - 04.01.1975, Page 8
8
Visir Laugardagur 4. janúar 1975
ORN
PETERSEN
PELIKAN
er ótvírœtt
hljómsveit
órsins 1974
Um áramótin voru vinsælustu lög ársins, svo og
vinsælustu hljómsveitir ársins tekin fyrir í þættin-
um Tl U Á TOPPNUM. Útreikningi þeim var þannig
háttaö, að hvert lag, sem náö hafði fyrsta sæti,
hlauttiu stig, lag í öðru níu stig, o.s.f rv. Þannig var
árangur hverrar hljómsveitar einnig reiknaður út.
Vinsælustu lög ársins urðu því:
1. Honey Honey. — Abba. 54. st.
2. -3. Kansas city. — Les Humphreis Singers. 52 st.
2.-3. Seasons in the sun. — Terry Jacks. 52 st.
4. Hooked on a feling. — Blue Sweet.
5. -7.1 love you love me love. — Gary Glitter. 48 st.
5.-7. Jenny Darling. — Pelikan. 48 st.
5.-7.1’m leaving it all up to you. — Donni & Mari Osmonds
Vinsælustu íslensku lög ársins.
1. Jenny Darling — Pelikan. 48 st.
2. Sprengisandur. — Pelikan. 42 st.
3. Honey will you marry me. — Stuðmenn.
4. Diggi liggi ló. Lonli blú bois. 36 st.
5. Tasko Tostada. Hljómar. 29 st.
6. Helga. Magnús Kjartansson. 27 st.
Vinsælustu hljómsveitir ársins.
1. Pelikan —103 st. (f. þrjú lög i allt)
2. Abba. — 96. (f. tvö lög)
3. Slade. — 95 st. (f. þrjú lög)
4. Paper Lage. — 85. st. (f. tvö lög)
5. Albert Hammond — 82.
6. -7. Sweet — 74.
6-7. Rubettes — 74.
8. Demis Roussos — 73.
9. Nazareth — 59.
10-11. Mud og New Seekers — 56 st.
Það sem mest komá óvart við útreikning þennan,
var hve gífurlegum vinsældum hljómsveitin PELI-
KAN átti að fagna á árinu, og sömuleiðis hve
stjörnur eins og Gary Glittei— Démis Roussos —
David Cassidy — Osmonds og Sweet beinlinis hurf u
af toppnum.
Change I einni hljómplötuverzlun borgarinnar fyrir júl aft gefa einum aftdáenda sinna eigiahandar-
áritanir á umslag hljómplötu hljómsveitarinnar. —LjósmtBJ.Bj.
Falleg plata frá
hœfileikamönnum
CHANGE:
„CHANGE”.
Þessi fyrsta breiðskifa
CHANGE lofar sannar-
lega góðu um framtið
hljómsveitarinnar, þó
að sumum þyki hún
kannski full einhæf,
þeirra á meðal mér.
Það sem afgerandi ein-
kennir tónlist Change á
þessari breiðskifu, er
róandi og þægilegt and-
rúmsloft, blandað
skemmtilegum
rythma.
Söngur þeirra Jóa og Magga
er stórgóður, og þó að litið sé
lagt upp úr sóló köflum, má
alitaf heyra góða sóló kafla frá
Bigga i bakgrunninum.
Trommuleikur Sigga er mjög
öruggur á plötunni, en það er
eins og að hann hálf pini sig við
að halda tempóinu niðri á köfl-
um, hann hefur jú alltaf verið
þekktur fyrir kraftmikinn
trommuleik.
Jakob Magnússon kemur
einnig fram á þessari plötu, og
sannarlega yrði það mikill feng-
ur fyrir Change, aö hann gengi i
liðið. ,,I’m free”. Með betri lög-
um plötunnar, rólegur og falleg-
ur söngur Jóa einkennir þetta
lag fyrst og fremst, og
skemmtilegir kaflar Sigga falla
vel inn I lagið. „Hey, its al-
right”. Magnús syngur þetta
lag, sem er alls ekki svo slæmt,
en mér finnst persónulega, að
flutningur þess sé full hægur. A
kafla er eins og að trommurnar
séu að keyra tempóið upp, en
slöan fellur lagið aftur i sömu
gröfina, þó með skemmtilegum
lokakafla.
„Hit Record”. Mjög
skemmtilegt lag, Jói syngur
aðalrödd, en bakrödd Magga
kemur einnig mjög vel út. Ef
þetta lag hefði fengið aðeins
meiri danstempó, þá hefði það
örugglega orðið að „Hit-
Record”.
,,Ifyoudo,pleasedo”. Þaðer
sosum ekkert að furða þó að sá
frægi maður, H.B. Barnum, hafi
verið hrifinn af röddun þeirra
Magga og Jóa (og Bigga) á
ýmsum lögum albúmsins, þvi
aö það kemur greinilega fram i
þessu lagi, hversu miklir hæfi-
leikamenn þeir eru á því sviði.
„Bluerberry Bush”.
Tvimælalaust fallegasta lag
þessarar plötu. Ctsetning Barn-
um og Change á strengjum i
bakgrunni lagsins er mjög góð,
og söngur Jóa sömuleiðis. Þeir
piltarnir hafa sjálfsagt velt þvi
lengi fyrir sér, hvernig útsetja
ætti þetta lag, og útkoman hefði
vart getað orðið betri.
„LAZY LONDON LADY”.
Þetta lag gáfu þeir félagarnir út
á lltilli plötu á siðasta ári, með
hörmulegum árangri, svo að
ekki sé meira sagt, en nú fær
lagið aðra meðferð, sem er öllu
betri.
Samt vantar ennþá eitthvað i
það, þó að Kobbi komi þarna
fyrst greinilega fram með
pianóleik sinn, sem að sjálf-
sögöu er óaðfinnanlegur. Þetta
lag fellur ekki saman við hið
rólega andrúmsloft, sem annars
einkennir öll önnur lög albúms-
ins.
„Taka my Hand”. Róman-
tiskur söngur Magga, el-pianó
Kobba og bassi Jóa koma einna
sterkast út i þessu lagi, bak-
raddir frá Bigga og Jóa.
„I can be with you”. Þar kom
að þvi? Fjörugasta lag plötunn-
ar, og hefðu þau gjarnan mátt
vera fleiri i þessum dúr. Sam-
spil þeirra Sigga og Jóa á bassa
kemur mjög vel út, og gerir það
að verkum aö rythmanum er
haldið við út allt lagið, með smá
innskotum frá Bigga.
„Hey! you”. Þarna ber
bassaleikur Jóa af, ef vel er á
hlustað. Samsöngur þeirra
Magga og Jóa er einnig
skemmtilegur, á milli sóló kafla
Bigga.
„Sunshine”. Mjög fallegt og
skemmtilegt lag, sem flestir
kannast við, frá fyrsta albúmi
þeirra Magga og Jóa. Þarna fær
lagiö allt aðra meðferð en fyrr,
og á ég bara anzi bágt með að
sætta mig við hana. Útsetning
Magga og Jóa á þessu lagi var
góð eins og hún var, þá vantaði
aðeins sterkari bakhljóm og
raddir, sem hefðu verið fyrir
hendi núna. útsetning lagsins
nú er einum of róleg, og ekki
nægilega vel gripandi. Þarna er
ég þó ekki að segja, að hún sé
léleg eða óvönduð, þvi að það er
hún svo sannarlega ekki, þeir
hefðu bara átt að útsetja lagið I
stil viö fyrri útsetningu þess.
Þá ertu búinn að lesa lýsingar
minar á einstökum lögum
albúmsins, og segir kannski:
„Þetta sagði mér barasta ekki
neitt”. Það er alveg rétt, þessi
lýsing segir ósköp litið. Ég get
aðeins lýst þvi sem mér finnst
greinilega bezt, og þvi er verra
lætur I eyru, — (sem ekki var
mikið).
Það er dálitið erfitt að gera
sér grein fyrir tónlistarstefnu
CHANGE út frá þessu albúmi.
Út af fyrir sig virðast þeir
Maggi og Jói komnir niður á
það plan, er þeir upphaflega
hófu feril sinn á, sem og er gott,
en betur má ef duga skal.
Þar á ég við, ef þeir ætla sér
að ná umtalsverðum árangri á
erlendum markaði.
Þetta er falleg plata frá mikl-
um hæfileikamönnum, við hér
heima getum allavega verið
stolt af Change og þeirra fram-
taki. Ég hef persónulega mjög
gaman af þessari plötu, fyrst og
fremst vegna þess, að ég hef
orðið þeirrar ánægju aðnjótandi
að geta kynnzt þeim félögunum,
og fylgzt náið með þróun tónlist-
ar þeirra. Þess vegna vil ég
forðast það að dæma Change út
frá þessari plötu, þvi að ég veit
að hún lýsir ekki fullkomlega
þvi, er framtiðin kemur til með
aö sanna.
Þó að hér sé á ferðinni mjög
vönduð og skemmtileg plata,
skulum við ekki byggja okkur
loftkastala um skyndilega
heimsfrægö þeirra i Change,
þvi hún er enn langsóttur
draumur. Change hafa þó mjög
góða möguleika núna, með
mann eins og H.B. Barnum sér
að baki. Hann hlýtur að hafa á
þeim félögunum mikla trú, þeg-
ar hann neitar hjómsveitum að-
stoð fyrir stórar peningaupp-
hæðir, á sama tima og hann
snýst I kring um Change fyrir
nærri ekkert.
Látum þetta nægja um
Change. Ég hefi ekki talið upp
allt það góða á þessari plötu, og
þó að ég hafi oftast minnzt á
þátt þeirra Jóa og Magga, má
ekki gleyma þeim Bigga, Sigga
og Kobba. Þáttur þeirra er
vissulega ómissandi á þessu
albúmi.
Tóngæði og allur frágangur
þessa albúms er til fyrirmynd-
ar. Það eina, sem eiginlega á
það vantar, er krassandi hit-lag,
sem vonandi kemur fljótlega frá
Change.
Beztu lög:
„Blueberry Bush”
„I’m Free”.
„I can be with you”.
„If you do please do”.