Vísir - 27.01.1975, Qupperneq 3
Vísir. Mánudagur 27. janúar 1975.
3
Elding eyðilagði hátalara-
kerfíð hjá Patton
— um sama leyti kom upp eláur. Miklar þrumur og eldingar í Keflavík
Miklar þrumur og
eldingar voru i
Keflavik i fyrrinótt, og
var sumum ekki orðið
um sel, þvilik voru læt-
in.
Eldingarnar ollu
tjóni á Slökkvistöðinni
á Keflavikurvelli. Þar
var okkur tjáð, að eld-
ingu hefði slegið niður i
mastur á stöðinni, og
varð til þess, að há-
talarakerfi stöðvarinn-
ar eyðilagðist.
Búið var að koma fyrir nýju
strax i gærmorgun, en eldingin
olli miklum blossum og reyk.
Um sama leyti og þétta skeði,
var tilkynnt um eld i skemmu á
Keflavikurvelli.
Eldurinn kom upp i skemmu
sölunefndar varnarliðseigna.
Var jafnvel talið, að sama eld-
ingin hefði valdið þessu og
skemmdunum á hátalarakerf-
inu, en ekki var það þó fullvist.
í skemmunni var viðgerðar-
verkstæði til húsa, en hún er nú
að mestu ónýt. Bill var inni i
skemmunni og tókst að bjarga
honum út óskemmdum, nema
hvað lakkið var ónýtt.
Á lögreglustöðinni sló eldingu
niður i talstöðvarmastur, en
eyðilagði þó ekki neitt. „Liklega
er'talstöðin bara miklu betri”,
varð einum lögreglumanna að
orði. ,,Þetta nægir til þess að
hrista af þessu rykið”.
Nokkrir ibúar i Keflavik
töldu, að um jarðskjálfta hefði
verið að ræða, svo miklar voru
þrumurnar.
— EA
' :'' ■ —
NOG ATVINNA
Á NORÐFIRÐI
„Hér mun enginn vera á at-
vinnuleysisskrá. Það er fremur,
að við hjá bænum höfum verið að
leita okkur að mönnum”, sagði
Logi Kristjánsson bæjarstjóri i
Neskaupstað i viðtali við Vísi.
Þótt uppistaða atvinnufyrir-
tækja bæjarins sé i rústum, hefur
fólk að minnsta kosti enn, nóg að
gera.
„Stórir hópar vinna við hreins-
un”, sagði bæjarstjóri. „Það er
einkum olian. Margir vinna við
hreinsun i bræðslunni og sækist
seint. Snjór er hér geysilegur og
tefur mikið fyrir. Sildarvinnslan
hefur eigin flokk við hreinsun.
Hér hefur ekkí verið mikið um
aðkomufólk á vertið, nema eitt-
hvað á bátunum. Sveitin hefur
hjálpað til, þegar mest hefur
verið að gera. Yngri menn þaðan
hafa komið hingað”.
— HH
Jiéldu þjófunum
þangað til
lögreglan kom
JAFNVEL
HERJÓLFI
SEINKAÐI
Fjöl-
„mennt"
í árekstra-
súpunni
Fjórir bilar skullu saman i ein-
um árekstri á laugardag. Bilarnir
voru á ferð eftir Suðurlandsvegi,
nokkuð austan við Geitháls. Mikil
hálka var á veginum. Engin slys
urðu á mönnum.
Þá lentu þrir bilar i árekstri á
Vesturlandsvegi við Grafarholt á
laugardag. Orsökin þar var einn-
ig mikil hálka. Farþegi i einum
bilnum slasaðist litillega.
— ÓH
Eldur í
húsi ú
Akureyri
Eldur kom upp i húsi á
Akureyri I gærmorgun og olli
talsverðu tjóni, en mestu i þeim
hiuta hússins sem ekki er búið i.
Húsið stendur við Strandgötu
i , austanv.húsinu. Þar er ibúð,
austanverðu húsinu. Þar er ibúð,
en ekki hefur verið búið i henni
síðan um jól. Á hæðinni fyrir ofan
er heldur ekki búið, en fjölskylda
býr á þriðju hæðinni. Þá búa tvær
fjölskyldur i vestanverðu húsinu.
Eitthvað af innanstokksmunum
hafði verið skilið eftir i kjallaran-
um og á fyrstu hæðinni, en ekki
verðmætir. Talsvert skemmdist
af reyk og vatni á þessum hæðum
og reykurinn náði upp á þriðju
hæöina, og út i vestanvert húsið,
en ekki varð mikið um skemmdir
þar að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri.
Hús þetta er komið vel til ára
sinna. Það er steinhús, en þiljað
að innan með timbri. Ekki er vit-
að um eldsupptök.
— EA
Tolsvert um
árekstra
í hálkunni
Talsvert var um árekstra i
borginni um helgina, enda ófærð
og hálka. Að sögn lögreglunnar
varð þó ekkert alvarlegt óhapp og
engin slys á mönnum, svo vitað
sé.
Lögreglan i Kópavogi sagði, að
nokkrir árekstrar hefðu orðið, en
enginn þó teljandi alvarlegur.
Mestur varð þó árekstur, sem átti
sér stað á mótum Urðarbrautar
og Borgarholtsbrautar.
Enginn slasaðist I þeim
árekstri, en talsverðar skemmdir
urðu á bilunum, og varð að kalla á
krana til þess að flytja annan bil-
inn i burtu. í Kópavogi var fljúg-
andi hálka.
— EA
Stólu sígarett-
um og sœlgœti
Brotizt var inn i verzlunina
Foss í Bankastræti 2 og þaðan
stolið talsveröu magni af siga-
rettum og sælgæti.
Innbrotið átti sér stað aöfara-
nótt laugardags og uppgötvaðist á
laugardagsmorgun, þegar komið
var til starfa.
Að sögn lögreglunnar er ekki
vitað til fulls hversu miklu magni
var stolið, en það virðist þó hafa
verið töluvert. —EA
Annar þjófurinn lét
greiar sópa inni i skó-
búðinni, meðan hinn
stóð i dyrunum og gætti
að mannaferðum. Þetta
var um eittleytið að-
faranótt sunnudagsins.
Þjófarnir höfðu spark-
að upp hurð skóbúðar
við Snorrabraut og farið
þar inn.
Sá, sem stóð i dyrunum, vissi
þá ekki fyrr til en tveir menn
stukku að honum og héldu honum
föstum, Þeir tóku einnig hinn
þjófinn og héldu honum. Siðan
kölluðu þeir á lögreglu.
Mennirnir tveir, sem svo rösk-
lega brugðust við, eru bræður og
búa örstutt frá skóbúðinni. Þeir
vöknuðu við skarkala i búðinni
og fóru út til að aðgæta nánar,
hvaðan hávaðinn kæmi.
Þjófarnir tveir voru settir i
fangageymslur og teknir til yfir-
heyrslu i morgun. — ÓH
„Ég man aldrei eftir þvi, að
hætta hafi þurft vinnu viö
Herjólf áður”, sagði Friðrik
Óskarsson á afgreiðslu Herjólfs
i Vestmannaeyjum, þegar við
höfðum samband við hann, en
ákafiega sjaldgæft er, að veður
hafi eitthvað að segja fyrir ferð-
ir skipsins.
Mikið óveður geisaði i Eyjum
á föstudag og laugardag, og
varð það til þess, að leggja
þurfti niður vinnu við uppskipun
úr skipinu á föstudaginn. Réðst
ekki orðið við neitt sökum
veðurofsans.
Þá átti skipið að leggja af stað
til Þorlákshafnar á laugardags-
kvöldið, en seinka varð förinni
til klukkan fjögur um nóttina
sökum veðursins, og er það sér-
lega fátitt.
Friðrik kvaðst muna eftir þvi,
að það sama hefði komið fyrir i
fyrravetur, en ekki lengi áður.
—EA
Kvennaróðstefna samþykkir:
Tryggingarnar standi undir
þriggia mónaða fœðingarfríi
Þriggja mánaða fæð-
ingarorlof hið minnsta
var krafa ráðstefnu um
kjör láglaunakvenna,
sem haldin var i gær.
Samþykkt var, að al-
mennar tryggingar
stæðu undir þessu að
verulegu leyti, þvi að
ella kynnu vinnuveit-
endur að forðast að
ráða til sin konur.
Fæðingarorlof er yfirleitt 12
dagar og upp í þrjár vikur i
samningum almennu verka-
lýðsfélaganna.
Móðurhlutverk kvenna á
vinnumarkaðinum er ekki met-
ið sem skyldi, þvert á móti eru
þær látnar gjalda þess, segir i
ályktun ráðstefnunnar. Konur
eru metnar sem óstöðugur
vinnukraftur og varavinnuafl.
Ekki er sinnt uppbyggingu dag-
vistunarstofnana. Oft er farið i
kringum lög um sömu laun fyrir
sömu vinnu.
Skorað var á konur að nýta al-
þjóðlega kvennaárið. Samþykkt
var að hvetja konur til að leggja
niður vinnu „dagstund” til að
leggja áherzlu á kröfur um jöfn-
uð.
Börn skulu fá mat i skólum og
sama námsskrá gilda fyrir pilta
og stúlkur. Endurskoða verður
það námsefni, þar sem skilið er
milli pilta og stúlkna með þeim
hætti, aðóeðlileg áherzla er lögð
á kynhlutverkin. Þetta sam-
þykkti röðstefnan og enníremur
var krafizt, að fleiri konurfengju
sæti I stjórnun verkalýðsfélaga
og samninganefndum. Varaö
var við bónuskerfinu, sem talið
var valda ofþreytu og þrældómi.
Að ráðstefnunni stóðu Sókn,
ASB, Iðja, Starfsmannafélag
rikisins og Rauðsokkahreyfing-
in. Yfir 100 konur sóttu ráðstefn-
una. — HH