Vísir - 28.01.1975, Síða 6
6
Visir. Þriftjudagur 28. janúar 1975.
VISIR
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjóri
Fréttastjóri
Ritstjórnarfulltrúi
Auglýsingastjóri
Auglýsingar
Afgreiösla
Ritstjórn
Askriftargjald 600
í lausasölu 35 kr.
: Reykjaprent hf.
: Sveinn R. Eyjólfsson
: Jónas Kristjánsson
: Jón Birgir Pétursson
: Haukur Helgason
: Skúli G. Jóhannesson
: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
kr. á mánuöi innanlands.
eintakiö. Blaöaprent hf.
Leið til lífskjarabóta
Talsmenn bændasamtakanna halda þvi fast
fram, að niðurgreiðslur á verði landbúnaðaraf-
urða séu ekki gerðar i þágu bænda, heldur tæki i
baráttunni gegn verðbólgu. Ef þeir meina það,
sem þeir segja, ætti af þeirra hálfu ekkert að vera
þvi til fyrirstöðu, að niðurgreiðslurnar yrðu lagð-
ar niður og hinir f jóru milljarðar notaðir á skyn-
samlegri hátt.
Neytendur kysu sjálfir að fá niðurgreiðslu-
milljarðana beint i vasann til frjálsrar ráðstöfun-
ar. Að sliku yrði engin smáræðis búbót eða um
20.000 krónur i peningum á hvert mannsbarn á
ári. Fimm manna fjölskyldu mundi muna um
minna en að fá 100.000 krónur á ári til baka frá
skattakerfinu.
Slikri breytingu fylgdi einnig sá kostur, að is-
lenzkar landbúnaðarvörur yrðu seldar yfir búð-
arborðið á réttu kostnaðarverði. Almenningur
gerði sér þá grein fyrir hve mikið þessar vörur
kosta i raun og veru og hve miklu er fórnað til að
halda uppi framleiðslunni.
Fyrir viku voru hér birtar tölur, sem sýndu, að
bandariskur landbúnaður er fimm sinnt
leiðnari en islenzkur og að danskur landbúnaður
er tvisvar til þrisvar sinnum framleiðnari en is-
lenzkur. Þessi munur er ekki óeðlilegur, þegar
tekið er tillit til ákaflegra óhagstæðra skilyrða til
landbúnaðar hér á landi.
Ef smám saman væri unnt að beina fjármagni
og vinnuafli frá landbúnaði til hagkvæmari at-
vinnuvega, væri unnt að stórauka gjaldeyris-
tekjur og hefja smám saman innflutning á til-
tölulega ódýrum landbúnaðarafurðum, sem
mundu lækka vöruverð i landinu.
Samkvæmt skráningu danska landbúnaðar-
áðsins er útflutningsverð á kiló, reiknað i heilum
skrokkum, 214 islenskar krónur nautakjötið, 168
krónur svinakjötið og 96 krónur kjúklingarnir,
allt miðað við fyrsta flokk. Hér kostar kilóið i
heilum skrokkum hvorki meira né minna en 365
krónur i dilkakjötinu og 595 krónur i kjúklingum.
Þótt bætt sé við dönsku verðin eðlilegum flutn-
ingskostnaði og álagningu i heildsölu og smásölu,
verður danska kjötið mun ódýrara en íslenzka
kjötið.
Samkvæmt sömu skráningu danska landbún-
aðarráðsins er útflutningsverð á 45% osti 214
krónur islenzkar, meðan ostur kostar hér i smá-
sölu 535 krónur óniðurgreiddur og 445 krónur nið-
urgreiddur. Danska smjörið kostar 299 krónur,
meðan islenzka smjörið kostar 840 krónur óniður-
greitt og 463 krónur niðurgreitt. Og dönsku eggin
kosta 101 krónur kilóið, meðan islenzku eggin
kosta 470 krónur. Þvi má ljóst vera, að dönsku
vörurnar mundu, að viðbættum innflutnings-
kostnaði og álagningu, ekki aðeins spara niður-
greiðslurnar, heldur lækka vöruverðið þar á ofan.
Þessar tölur eru allar úr opinberum skýrslum
danska landbúnaðarráðsins og islenzka fram-
leiðsluráðsins. Þær sýna greinilega stöðu okkar i
landbúnaðarmálum og eru þvi mikilvægar. Þær
ættu að geta verið veganesti nýrrar stefnu i land-
búnaðarmálum, er drægi smám saman úr verstu
ókostum rikjandi kerfis og bætti lifskjör þjóðar-
innar án vinnudeilna og verkfalla.
—JK
fr „Playboy
ofsóttur?
Fæstir hafa ráð á því að
vera glaumgosar, jafnvel
þótt hugur þeirra standi til
þess, sem á kannski ekki
við marga. En þeir geta þá
látið sig dreyma.
Éinmitt slikum loftköstulum
reisti Hugh Hefner 200 milljón
dala risafyrirtæki „Playboy”
meö rekstri timarita, gistihúsa,
skemmtistaöa, kvikmynda og
plötuútgáfum.
Þetta var heimur „hinna glæsi-
legu”, draumaheimur sportbila
og liöandi stundar, myndarlegra
manna og glæsikvenna, sem
gjarnan höföu ekki annaö til aö
hylja nekt sina en falskar auga-
brýr — ef þá einu sinni það.
mildari afstöðu til fikniefnanot-
kunar,” segir Hefner.
Tveir af framkvæmdastjórum
Playboyfyrirtækja hafa sagt upp
störfum vegna skrifanna um
fikniefnanotkun.
Um þessar mundir er veriö aö
rannsaka, hvað hæft sé i ásökun-
um um, að eiturlyfja sé neytt i
veizlum hjá Hefner, en hann á
heimili bæði i Chicago og Los
Angeles og hefur oft boö inni á
báðum stöðunum.
A blaöamannafundinum núna á
dögunum var Hefner að þvi
spurður, hvort hann teldi, aö gef-
in yröi út ákæra á hendur honum
fyrir brot á eiturlyfjalögunum. —
„Ég bara veit það ekki. Til þess
verða þeir aö búa til sakir á hend-
ur mér,” svaraöi hann.
K m Wm i ||
V- í
1 Ik ^ y
É '
Ufh
Barbi Benton, sem veriö hefur i tygjum viö Hefner lengur en nokkur
önnur, eöa siöustu sex árin, sést hér á þessari mynd i „Pla-
boy”-klúbbnum I London — aö afhenda verölaunin i Little-
woods-getraununum, 598 þúsund sterlingspund.
Nú hefur kaldur raunveruleik-
inn sópaö burt draumaskýjunum i
lifi Hefner.
Einkaritari hans, Bobbie Arn-
stein, fannst á dögunum látin, og
kom I ljós, aö hún haföi tekiö of
stóran skammt af lyfjum. Þaö
hefur ekki veriö upplýst, hvort
um var aö ræöa slysni eöa hvort
einhver aðstoöaði hana eöa hvort
hún fyrirfór sér. — Hug Hefner er
þó ekki i neinum vafa.
A blaðamannafundi i Chicago á
dögunum fullyrti Hefner, aö yfir-
völd hefðu lagt einkaritara hans i
hundelti, þar til hún þoldi ekki
lengur viö og fór sér að voöa.
Hann álitur, aö þetta sé aöeins
einn þátturinn i pólitiskum of-
sóknum á hendur sér.
Arnstein haföi skömmu fyrir
dauöa sinn veriö dæmd skilorös-
bundiö I 15 ára fangelsi fyrir aö
eiga hlut aö ráöabruggi um dreif-
ingu kókains.
„Ég er þeirrar trúar, að heföi
hún boriö falsvitni gegn mér, þá
heföi veriö falliö frá ákærum
á hendurhenni, „heldur hinn 48
ára gamli Playboy-kóngur blá-
kalt fram.
„Um nokkurra vikna skeiö hafa
gengiö slúöursögur um, að boöið
sé upp á kókain I samsætum i
ibúöum minum. — Þetta er allt
meö ráöum gert og til þess aö
reyna aö grafa undan mér og
„Playboy” vegna stefnu tima-
ritsins gagnvart flkniefnum, en
„Playboy” hefur ávallt mælt meö
þvi, að hiö opinbera tæki upp
Það er sannfæring Hefners, að
hann veröi látinn gjalda þeirrar
afstöðu, sem birtist i timaritinu
„Playboy”, enda er sumt af þvi
illa þokkað af yfirvöldum, eins og
t.d. afstaðan I fikniefnamálum
sem að ofan var getiö. Fyrirtæki
Playboy hefur og lagt mikið af
mörkum til samtaka þeirra, sem
beita sér fyrir þvi að fá milduö
lögin um notkun marijúana.
1 viötali, sem timarit hans
sjálfs birti viö Hefner fyrir nær
ári, sagöi Hefner: „Ég held, aö
þaö sé skaölegt fyrir félagslega
uppbyggingu þessa þjóöfélags aö
gera þá að afbrotamönnum, sem
hneigjast til marijúanareyk-
inga.”
Hann segir, aö meö þvi sé hann
alls ekki aö leggja endilega til, aö
fólk almennt taki upp á þvi aö
reykja marijúana.
Playboy samsteypan hefur
stutt ýmis samtök og hreyfingar,
sem stefna til aukins frjálslyndis,
eins og til dæmis andstæöinga
Vietnamsstriösins, þá, sem berj-
ast fyrir endurbótum I stjórnmál-
um kynlifsrannsóknum og kyn-
lifsfræðslu. Aukið frjálslyndi i
fóstureyðingum og endurbætur i
fangelsismálum eru lika meðal
þessara málaflokka.
Hefner heldur þvi fram, aö
timarit hans og fyrirtæki hafi frá
upphafi reynt aö stuöla aö skyn-
samlegri og frjálslegri afstöðu
fólks til kynlifs og fleiri mála. En
hann segir að blaðiö og tilgangur
þess hafi verið misskilin herfilega
Hefner telur yfirvöld ofsækja sig
og hafa þvingað einkaritara hans
til aö fyrirfara sér.
Illlllllllll
m mm
UMSJÓN: G. P.
og meira en hann bjóst við, þegar
hann fór fyrst af stað. Verst fellur
honum, að þvi er hann segir sjálf-
ur, að blaöinu er kennt um að
hafa reynt að gera konuna aö eins
konar kyntákni.
Sálfræðingur, sem eitt sinn at-
hugaði Hefner, segir, að Hefner
hafi allt sitt lif verið i andstööu
við aga og stjórnvöld — i hvaöa
mynd sem þau voru. — Einn af
fyrrverandi ritstjórum
„Playboy” skrifaði bók, sem
hann titlaði „Hefner” og á að
heita ævisaga glaumgosa heims-
ins nr. eitt. Hann lýsir atvinnu-
rekanda sinum fyrrverandi sem
jarðbundnum, en tilfinninga-
næmum millistéttarborgara, sem
sé þó i leiðinni fjármálasnilling-
ur.
„Playboy” er honum eitt og
alit. Fólk lendir hjá honum I ööru
sæti,” sagöi Frank Brady rit-
stjóri.
Þegar Hefner liföi af þvi aö
skrifa greinar I „Esquire” fékk
hann hugmyndina að þvi aö gefa
út „Playboy”. Til þess aö útvega
sér stofnfé veösetti hann hús-
gögnin, fékk lánað hjá vinum sin-
um og seldi hlutabréf fyrir 10 þús-
und dali.
„Ég vissi, að annað fólk likt
mér vildi fá aö lesa um góöan
jass, kvikmyndir, bækur og fall-
egar stúlkur,” sagði Hefner. „Ég
vissi einnig, að fólk, sem les blaö-
iö vill ekki, aö þaö setji niöur fyrir
þaö.”
Fyrsta tölublaö „Playboy”,
sem að mestu var skrifað á eld-
húsborði Hefners, kom út i
desember 1953. Á forsiðu þess var
mynd af Marilyn Monroe. Þaö
seldist i 70 þúsund eintökum.
Fyrir hálfu ári var útbreiösla
„Playboy” sex milljónir tvö
hundruö og fimmtiu þúsund ein-
tök og var þá á niöurleiö vegna
harðnandi samkeppni annarra
blaöa, sem ganga lengra i kyn-
lifslýsingum en „Playboy”, og
eins vegna álitshnekkis, sem
fyrirtæki Hefners hafa beðiö
varðandi eiturlyfjamáliö.
Hefur hann beðið mestan skaöa
af þvi, aö ein af kaninustúlkun-
um, sem timaritiö geröi frægar,
þegar „Playboy "-klúbbarnir
voru opnaöir, fannst látin og hafði
hún oröiö eiturlyfjum aö bráö.
Foreldrar hennar kröfðust rann-
sóknar og héldu þvi fram, að
henni heföu veriö gefin eiturlyf i
samkvæmum hjá Hefner, sem
þvertekur fyrir það, aö veitt sé
kókain i veizlum hans.
Hefner hefur beitt sér fyrir
stofnun 19 Playboy-klúbba, þar
sem þjónustustúlkurnar ganga
um beina i gervi kanlnu.
Ein slikra er fastavinkona
Hefners, en hún hefur starfað
sem söngkona I klúbbum hans.
Hafa þau veriö stöðugir fylgi-
nautar siöustu 6 árin. Hún er þó
aöeins 24 ára. Playboy hefur birt
myndir af henni nakinni, eins og
svo mörgum öðrum.
Þegar þau Hefner og Barbi
Benton — en svo heitir stúlkan —
áttu sitt fyrsta stefnumót, sagði
hún honum (hann var þá 42 ára,
en hún 18), að hún heföi aldrei til
þessa lagt lag sitt við eldri en 25
ára. — „Ég ekki heldur,” svaraði
Hefner.