Vísir - 01.02.1975, Qupperneq 3
Vlsir. Laugardagur 1. febrúar 1975.
3
„Vil ekki sjá að eiga
heima í Reykjavík,f
— „Umferð og hávaði"
— „Skemmtilegra að hafa
beljur og hesta en bíla"
— Krakkarnir á Varmalandi í
heimsókn í höfuðborginni
„Ég hef oft komið til Reykja-
vfkur en mér finnst leiðinlegt
hérna. Ég mundi ekki vilja sjá
að eiga heima hérna. Það er svo
mikill hávaði og umferð að
maður getur aldrei veriö I
friði.”
Þetta sagði ákveðinn 9 ára
piltur, Leifur Leópoldsson, sem
við hittum að máli i stórum
krakkahóp á Umferðarmiðstöð-
inni i gær. Þar voru á ferðinni
nemendur barnaskólans á
Varmalandi, i eins dags ferð i
höfuðborginni.
Börnin skoðuðu Sædýrasafn-
ið, og svo var meiningin að sjá
Kardemommubæinn i Þjóðleik-
húsinu, en á milli þess hámuðu
þau f sig gómsætar pulsur. Og
þaö voru þau einmitt að gera
þegar við ræddum við þau.
Leifur sagðist hvergi vilja
eiga heima nema þar sem mikið
væri af trjám og hrauni eins og
heima hjá honum. „Ég ætla lika
aö verða garðyrkjumaður þegar
ég er orðinn stór. Ég er staðráð-
inn i þvi, ég er meira að segja
byrjaður. Ég er búinn að búa til
tómata, en þeir voru nú bara þvi
miður að deyja i gær.”
Borðfélagar Leifs, þær Asta
Brynjólfsdóttir, Guðriður Ebba
Pálsdóttir og Guðbjörg Guð-
jónsdóttir, voru sammála Leifi i
þvi að ekki vildu þær eiga heima
i Reykjavik. Ásta hefur þó átt
hér heima, og hún sagði að það
sem sér fyndist skemmtilegast
aö gera hér væri að fara i leik-
húsið. öll voru þau lika sam-
mála um að Sædýrasafnið væri
sérlega skemmtilegt.
„Ég kom hingað siðast árið
1973. Við vorum þá að kaupa
ymislegt, föt og svoleiðis. Ann-
ars hef ég mörgum sinnum
komið hingað áður,” sagði
Kristján Guðjónsson 7 ára á
milli þess sem hann beit i puls-
una sina af beztu lyst. Hann
Jón Bjarnason, 7 ára, sagðist
aldrei hafa komið tii Reykjavik-
ur áður. Skemmtilegast var að
sjá Ijónin sagði hann.
„Skemmtilegra aö hafa beljur
og hesta en blla,” sagði Kristján
Guðjónsson 7 ára.
sagöist eiga heima i Rauðanesi
og sagði að þar væri miklu
skemmtilegra en i henni
Reykjavik. „Það er miklu
skemmtilegra að hafa beljur og
hesta heldur.en fullt af bilum.”
Andrés Guðmundsson.semsat
hjá honum, sagðist vera 9 ára og
kvaðst hafa komið hingað fjór-
um sinnum. „En ég ætla örugg-
lega að eiga heima i sveit þegar
ég verð stór.”
Jón Bjarnason 7 ára sagðist
hins vegar aldrei hafa komið i
höfuðborgina áður. Hann sagð-
ist hafa haft einna mest gaman
af þvi að skoða ljónin i Sædýra-
safninu. Og hvort hann mundi
vilja eiga heima i Reykjavik?
„Já, þegar ég er orðinn stór.”
—EA
„Gaman að skoða sig um hér.”
— Andrés Guðmundsson 9 ára.
Viðskiptakortin
lögð niður
„Viö höfum ákveðið, að af-
sláttur gildi nú fyrir alla við-
skiptavini I stað eingöngu þeirra,
sem hafa viðskiptakort”, sagði
Magnús Ólafsson framkvæmda-
stjóri i Hagkaup, þegar við höfð-
um samband við hann.
Viðskiptakortin svokölluðu,
sem hafa gefið mönnum 10%
afslátt af matvöru, hafa veriö i
gangi frá þvi árið 1967, og eru nú
9000 kort I gildi.
Kortin verða innleyst smátt og
smátt á þessu ári, þannig að nú I
janúar verða kort númer 10-1000
innleyst, kort númer 1001 til 2000
i febrúar og áfram.
Sá afsláttur, sem þessi kort
hafa veitt, gildir nú fyrir alla, en
ekki er innifalið I þessu mjólk og
kjöt. _ea
Þau hámuðu I sig pulsurog mjólk af beztu lyst. F.v. Asta Brynjólfsdóttir, Guðrlður Ebba Pálsdóttir,
Leifur Leópoldsson og Guðbjörg Guðjónsdóttir. Ljósm. Bragi.
Polltiið avbyrgdi beinon vegin flogínrið, og eingin alapp naer at taka myndir. Máiað varð omonyvir merkini á flogfarinum, og breitt varð omanyvir motorin
Hörð lending
í Fœreyjum
Eins og Visir sagði frá á dögun-
um, eyðilagðist Fokker Friend-
ship flugvél frá danska flug-
félaginu MAERSK I lendingu á
flugvellinum á Vogey I Færeyj-
um. Meðfylgjandi mynd birtist I
færeyska blaðinu Dimmalætting
daginn eftir að slysið varð og
sýnir svo ekki verður um villzt,
að flugvélin hefur farið mjög
illa. í blaðinu er rætt við Lars
Larssen hjá Flogfelag Föroyja,
og iætur hann þar svo um mælt,
að Frimor flugstjóri hafi brugð-
izt mjög skynsamlega við og
það hafi verið snarræði hans að
þakka, að ekki fór verr en raun
ber vitni — enginn af 26 manns I
vélinni meiddist. — SH
SLYS VEGNA
OFHLEÐSLU EKKI
A I F II — segir fulltrúi
§\ LE 1^1 þyrluverksmiðjanna
„Ég vil ekki segja að slys af
völdum ofhleðslu séu algeng, en
þau eiga sér þó stað,” sagði
William F. Goepel, fuiltrúi
Sikorsky-þyrluverksmiðjanna,
sem nú er staddur hér á landi
vegna þyrluslyssins.
„Slysin eru jafnólik og þau
eru mörg, en þó vil ég taka
fram, að þyrluslys eru alls ekki
algengari en önnur flugslys og I
sumum tilfellum er slysatíðnin
mun lægri.”
Goepel sagði að yfirleitt
snerist starf hans ekki um rann-
sóknir flugslysa, heldur fyrst og
fremst þjónustu við nýja kaup-
endur. Goepel hefur vfða verið,
þar sem Sikorsky-þyrlur eru
starfandi og dvalið bæði i Viet-
nam og Kóreu meðan styrj-
aldirnar þar stóðu.
„Ég hef ekki misst af neinu
strlöi ennþá,” sagði Goepel og
brosti.
Goepel sagði, að þyrlan sem
farizt hefði hér, hefði verið
smlöuð i kringum 1955 fyrir her-
inn. Siðar var hún seld til Or-
land Helicopters flugfélagsins i
Florida I Bandarikjunum, en af
þvl fyrirtæki var hún keypt
hingaö til lands, þar hlaut is-
lenzki flugmaðurinn einnig
þjálfun sina.
„Orland Helicopters flug-
félagið útbjó þyrluna til far-
þegaflugs með niu sætum. Niu
manns geta samt ekki verið i
vélinni nema i alveg bráðnauð-
synlegum tilfellum og þá þegar
þyrlan er hlaðin lágmarkseld-
neyti,” sagði Goepel.
„Þessi mörgu sæti eru fyrst
og fremst til þess hugsuð, að
farþegarnir, sem innanborðs
eru, geti valið á milli þeirra og
að flugmaðurinn geti raðað
þeim niður eftir þvi hvernig
þunginn á að liggja,” sagði
Goepel.
Gopel sagði, að flugþol þyrl-
unnar á fullum eldsneytisgeym-
um væru fjórir timar og vægi þá
eldsneytið yfir hálft tonn. Eins
og I öðrum flugvélum, þar sem
sæti eru fyrir tvo flugmenn,
væri til þess ætlazt að tveir væru
við stýrið i það minnsta, er verið
væri að vinna vandasamari
verk með þyrlunni.
Goepel sagði, að hann hefði
notfært sér þessa ferð hingað til
íslands til að ræða við Land-
helgisgæzluna, sem einnig er
meö Sikorsky-vél i notkun.
„Ég vildi bara kanna, hvort
orðið hefði vart við nokkur
vandamál við notkun hennar.
Svo var þó ekki og ég held að
Landhelgisgæzlan sé mjög
ánægð með þyrlu sina,” sagði
Goepel, fulltrúi Sikorsky-verk-
smiðjanna. —JB