Vísir - 01.02.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Laugardagur 1. febrúar 1975.
Sveit Þórarins
Sigþórssonar efst í
Reykjavíkurmóti
Að fjórum umferðum loknum
i sveitakeppni Re.vkjavikur-
mótsins, sem jafnframt er und-
ankcppni fyrir islandsmót,
heldur sveit Þórarins Sigþórs-
sonar ennþá forystunni:
1. Sv. Þórarins Sigþórss. BR 105
2. Sv. Þóris Sigurðss., BR 99
3. Sv. Hjalta Eliass., BR 81
4. Sv. Helga Sigurðss., BR 77
5. Sv. Jóns Hjaltas., BR 76
6. Sv. Gylfa Baldurss. BR 75
7. Sv. Braga Jónss., TBK 64'
Næsta umferð verður spiluð i
Domus Medica þriðjudaginn 11.
febrúar kl. 20.
Sveit Hjaita Eiíassonar
vinningi ó undan
nœstu sveit
Svcit Iljalta Eliassonar hefur
nú örugga forvstu i aðalsveita-
keppni Bridgefélags Reykjavik-
ur en staða efstu sveitanna er nú
þannig:
1. Sv. Hjalta Eliassonar 201
2. Sv. Þóris Sigurðssonar 181
3. Sv. Helga Sigurðssonar 165
4. Sv. Þórarins Sigþórss., 144
5. Sv. Jóns Hjaltasonar 132
6. Sv. Björns Eysteinssonar 119
7. Sv. Gylfa Baldurssonar 105
Tólfta umferð verður spiluð
n.k. miðvikudagskvöld i Domus
Medica kl. 20.
AP74
VD85
♦ KD64
*DG8
▲ AG5
▼ K74 y A1062
♦ A87 ♦ 95
* A765 *K104
* K86
VG93
♦ G1032
*932
Það hafði frekar hallað á okk-
ur i þeim spilum, sem á undan
voru gengin og er það væntan-
lega skýringin á sagnhörku okk-
ar:
Austur Suður Vestur Norður
Stefán Reese Simon Dixon
P 1* 1G P
3G P P D
P P RD P
Frá Sunday Times mótinu: Simon Slmonarson viröist hafa bak-
þanka eftir siðasta spil, en við hlið hans situr eiginkona hans,
Kristin.
Mér sýndist Dixon bregða
töluvert, þegar Simon redobl-
aöi, en vissulega átti doblið
fyllilega rétt á sér.
Norður virtist vera i vafa um
útspilið, en að lokum birtist
laufagosinn, eins og sendur af
himnum, þvi hann gaf ekki ein-
ungis spilið, heldur yfirslag að
auki.
Simon mátti til með að kvelja
Reese svolitið og spurði, hvort
gosinn lofaði drottningunni, en
þeir höfðu gefið upp Romanút-
spil með breytingum.
Yes, it promises the queen,
(jú, það lofar drottningunni)
sagði Reese þreytulega.
Simon drap á ásinn heima,
svinaði strax laufi, spilaði
spaðatiunni og svinaði.
Dixon drap með drottningu og
skipti yfir i tigul og mátti ekki
tæpara standa, þvi annars vinn-
ur Simon tvo yfirslagi, einfald-
lega með þvi að gefa einn slag á
hjarta.
Simon gaf tvisvar til öryggis,
fór siðan inn á lauf og svinaði
spaðanum aftur. Er það gekk
voru lOslagir i húsi og 1350 fyrir
spilið.
Fótahreyfingar ítala í
brennidepli
Þau furðulegu tiðindi
hafa gerst, að tveir af
itöisku spilurunum i
heimsmeistarakeppn-
inni, sem haldin er á
Bermuda um þessar
mundir, hafa verið al-
variega áminntir af
st jórn heimssam-
bandsins fyrir óeðlileg-
ar fótahreyfingar við
spilaborðið.
Spilararnir eru Facchini og
Zucchelli, frægir um alla
Evrópu og unnu m.a. Sunday
Times keppnina i fyrra. Að
sjálfsögðu hafa þeir neitað þess-
um kátlega áburði, en reynslan
hefur samt sýnt, að þeir, sem á-
sakaðir eru um svindl i stórmót-
um, hafa venjulega þurft að
hætta millirikjaspilamennsku,
þótt saklausir væru.
Að sögn Bandarikjamanna
tók bandariskur blaöamaður
fyrst eftir óeðlilegum fótahreyf-
ingum hjá Facchini. Keidan,
blaðamaður við Philadelphia
Inquirer, tók eftir nokkrum
skiptum, þar sem Facchini
teygði út annan fótinn og snart
fót makkers sins einu sinni og
stundum tvisvar. Einnig snart
hann báða fætur Zucchelli, en
þessar snertingar fóru fram, á
meðan að sagnir stóðu yfir og
áður en spilað var út i fyrsta
slag.
Honun* virtist þessar snert-
ingar fara fram á augnablikum,
þegar Zucchelli þurfti að taka
afdrifarikar ákvarðanir i sögn-
um eða útspili.
Þetta var þegar tilkynnt til
stjórnar heimssambandsins og
bandariskra bridgeyfirvalda,
og voru þá sendir til njósnarar
til þess að horfa á fleiri leiki
þeirra félaga. Bar þeim öllum
saman um, að ásakanir Keidans
væru á rökum reistar.
Ekki skal hér lagður dómur á
ofangreindar ásakanir, en held-
ur finnst manni óliklegt, að spil-
arar á heimsmælikvarða leggi
sig niður við að reyna að gefa
félaga sinum merki með fóta-
hreyfingum.
Reese dró leynivopnið úr handraðanum
t Sunday Times mótinu á dög-
unum mættum við Simon Reese
og Dixon i siöustu umferðunum,
en þeir voru þá I botnbarátt-
unni.
Þeir spila Precision eins og
fleiri, þó með þvi afbrigði, að
opnun á einu laufi er ýmist 16
plús eðá 6—8 og jöfn skipting, I
fyrstu eða annarri hendi.
Á móti okkur var þetta leyni-
vopn dregið úr handraðanum.
Staðan var a-v á hættu og
austur gaf.
Ilinir „fótalipru” ltalir, Facchini og Zucchelli, er þeir veittu viðtöku
verðlaunum fyrir sigurinn I Sunday Times mótinu 1974. Talið frá
vinstri: Sir John Fostér, Facchini og Zucchelli.
M.I. sendir þættinum bréf, sem i eru 9
botnar við sfðasta fyrripart. Ég er ekki
vanur að birta marga botna eftir sama
höfund 1 þættinum, þótt oft berist fleiri en
einn botn frá sama manni. Nú verð ég að
gera undantekningu frá þessari reglu, og
svo góðir þóttu mér botnarnir, aö ég verð
aðbiðjaM.I. afsökunar á þvl, að ég skyldi
ekki geta haft fyrripartinn betri en raun
ber vitni.
Enginn lengur yndi fær
i örmum bliðra svanna
og gamaldags nú þykja þær
sem þýðast ástir manna.
og hver veit nema barnlaus bær
nú biði eiginmanna.
og erfðasyndin ekki nær
sitt ágæti að sanna.
En þó þær brúki kjaft og klær
ég kemst á milli tanna.
og enginn lengur i það nær,
sem allir vilja kanna.
og aldrei framar girndin grær
i garði rauðsokkanna.
Ennþá margur yndi
Ég þakka M.I. bréfið og vona að hann
haldi uppteknum hætti. Það er mikil sára-
bót að fá slik bréf, sem ylja manni um
hjartaræturnar, ekki sist ef svo skyldi
fara á kvennaárinu, að kvenmennirnir
mættu ekki vera að þvl sökum anna við að
kenna karlmönnunum heimilisverkin eða
að finna upp ráð til að gera þá óf rlska.
Þótt mér finnist þátturinn heldur slæm-
ur, ef mikið er um botna i honum, en
minna um vlsur, kemst ég ekki hjá þvi að
byggja þennan þátt að verulegu leyti á
þeim botnum, sem honum bárust. Þeir
voru það góðir að minu áliti. Sumum varð
ég þó að sleppa.
Sigurgeir Þorvaldsson á næsta botn.
Ég ætla að rifja upp fyrripartinn aftur.
Enginn lengur yndi fær
I örmum bliðra svanna.
Ellimörkin oftast nær
aðgerðirnar banna.
Þá er botn eftir B.Þ.
Þegar fúsar fylgja þær
fjasi rauðsokkanna.
Næstu tveir botnar eru eftir L.E.
Allt frá hvirfli ofan i tær
alla snerting banna.
Ferleg spái ég þjái þær
þrá til kvennamanna.
G.A. á þennan botn.
Þekki ég bliðar telpur tvær
er taka ástum manna.
Sofus Berthelsen botnar þannig.
þegar önug ellin slær
ört á getu manna.
Andrés H. Valberg sendir þættinum
ágætt bréf. Hann botnar að sjálfsögðu, og
tekur I upphafi bréfsins upp hanskann
fyrir kvenfólkið.
Enginn iengur yndi fær
i örmum bllöra svanna.
Þetta skaltu karl minn kær
koma til að sanna.
Slðan snýr Andrés blaðinu algjörlega
við og botnar þannig.
flestir ættu að forðast þær
og faðmlög þeirra banna.
Þvi næst hugsar Andrés sér að ritstjóri
þáttarins sé kvæntur rauðsokku og sé
honum vorkunn að hafa klöngrað saman
fyrripartinum.
Andrés yrkir.
A. Guðnason botnar.
þvi allar núna ætla þær
að eignast börn án manna.
Sýna okkur kjaft og klær
konur rauðsokkanna.
Enginn lengur yndi fær
i örmum viiitra svanna.
fœr
Hans reynslu i þessum málum er
þveröfugt farið.
Að faðmlög séu flestum kær
finnst mér létt að sanna.
Ennþá margur yndi fær
I örmum bliðra svanna.
Ég vona að þetta sé rétt hjá Andrési.
Aö síðustu sendir Andrés þættinum
kæra kveðju og vonar, að hann hitti nagl-
ann á höfuðið með næstu visu.
Ennþá Benni yndi fær
I örmum bliðra svanna.
Oft á kvöldin örva þær
eðlishvatir manna.
Ég yrði kannski feginn, ef þessi spá
rættist, en ekki veit ég hvað konan min
segði.
Sigurgeir Þorvaldsson sendir tvær
næstu visur. Sú fyrri heitir örvun.
Jafnan list mér ailvel á
augnagotur þinar. —
Elsku vina oft þær ná
að örva fýsnir minar.
Æskuminning nefnist seinni visan.
Mynd af þér i minum huga
mun ég geyma langa stund.
Ekki skal hún yfirbuga
alla mina karlmannslund.
Þá er hér að lokum fyrripartur.
Eftir siðum áa vorra
ýmsir halda blót. Ben.Ax.