Vísir - 03.02.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Mánudagur 3. febrúar 1975 — 28. tbl.
-
Skemmdarverk í
Keflavíkurkirkju
ólóður unglingspiltur
brauztinn í Keflavfkurkirkju
aðfaranótt sunnudagsins og
vann þar nokkur skemmdar-
verk.
Pilturinn hefur þegar
viðurkennt verknaöinn fyrir
sóknarpresti, og er málið að
fullu upplýst. -JB.
GUÐGEIR
FRÁBÆR
— lék stórstjörnur
Rangers oft grátt
— óvœnt jafntefli ____
Morton og Glasgow Rangers
Iþróttir í opnu
FÁRVIÐRIÐ ÞEYTTI TVEIM
BÍLUM ÓT AF VEGINUM
Jeppi eftirlitsmanns
Vegagerðarinnar tókst á
loft i morgun á nýja
Siglufjarðarveginum
fyrir ofan Gautland og
hafnaði á hliðinni fyrir
utan veg. Eftirlits-
maðurinn komst þar út
úr bilnum, en þá skipti
engum togum, að rokið
hreif jeppann aftur og
slengdi honum ofan á
manninn. Hann kvaðst
þó ekki vera meiddur.
A svipuðum slóðum var litill
fólksbill einnig á ferð, og tóku
ráðamenn hans það til fangs að
aka honum upp i snjóskafl. En
það dugði ekki, rokið tók hann
lika, lyfti honum hátt upp og
slengdi út fyrir veg. Slys urðu
ekki á fólki.
Mjólkurbilstjórinn lagði ekki i
að fara leiðina heldur beið átekta,
minnugur þess, að þarna fuku
lika bilar I fyrra, og jafnvel veg-
hefillinn fékk ekki hamizt við rok-
inu. Birt hefur verið viðvörun um
að fara ekki þessa leið, meðan
veðrið helzt.
„Hér er suðvestan rok. Meðan
ég tala þetta, stendur mælirinn i
97 hnútum, en við horfðum á hann
fara i 105 hnúta hvað eftir annað i
morgun,” sagði vitavörðurinn i
Sauðanesvita sem er næsta
veðurathugunarstöð, i viðtali við
VIsi.
,,Það sést hvergi i sjó fyrir roki,
maður vonar bara að það slitni
ekki neitt. Að visu er þetta sterkt
hús, þolir sjálfsagt allt að þvi
heimsendi, en gluggarnir gætu
farið og kannski þakið. En
veggirnir stæðu eftir. Maður átti
— rokið komst í
105 hnúta á
Sauðanesvita
í morgun
svo sem alit eins von á, að
gluggarnir færu, þaö hefði ekki
þurft annað en að eitthvað lenti á
þeim.
Annars hefur maður svo sem
séð það svipað þessu hérna áður,
þetta gerist alltaf af og til.”
Samkvæmt töflu um vindhraða
i minnisbók Fjölvíss eru 97 hnútar
15 vindstig, sem er 4. stig fár-
viðris, en 105 hnútar eru 16 vind-
stig, eða 5. stig fárviðris. SH
„Þetta eru nokkur þúsund framtöl. Viö þorum ekki að gizka á hversu mörg þúsund,” sögðu þær Guðrún og Sigriður. Þegar búið er að raða
skýrslunum i röð eftir nafnnúmerum er hægt aö byrja strax aö lesa úr þeim. Það verk gæti hafizt nú i vikunni. -Ljósm.: Bragi.
„Drengskapar-
yfirlýsingar"
í tonnatali:
„Fyrst er nú að statia skatt-
skýrslunum upp. Siðan er að raða
þeim I röð eftir nafnnúmerum.
Þetta ermikiðverk. Ætli það end-
ist okkur ekki i einn eða tvo daga
til viðbótar.” Og þær Guðriður
Júliusdóttir og Sigriður Lárus-
dóttir kepptust við að vinna úr
ÆRIÐ VERKEFNI FYRIR
SKATTAMENN BEIÐ f MORGUN
hrúgunni, sem lá á gólfinu fyrir
framan þær.
1 öðrum skrifstofuherbergjum
Skattstofunnar i Reykjavik voru
allir jafn önnum kafnir i morgun.
Skattskýrslur lágu I háum stöfl-
um á skrifborðunum og enn voru
fullir sekkir og kassar, sem átti
eftir aö losa.
Skýrslurnar, sem Skattstofan
fær að þessu sinni eru i kringum
49 þúsund talsins. Langmestur
fjöldi þeirra barst inn á siöustu
klukkutimunum. Enn eru þær þó
ekki allar komnar til skila. Þeir
eru alltaf talsvert margir, sem
vilja — og þurfa — að sitja lengur
en aðrir yfir skýrslunni og hafa
fengið skilafrest. Þeir, sem eru
búnir aö skila anda sjálfsagt létt-
ar. — Núerbaraað biöa eftir
álagningarseðlinum....
—ÞJM
Löndunarbannið kemur
Þjóðverjum í koll:
Nýr fiskur
30% dýrari í
Bremerhaven
— og lítið að hafa
Fiskurinn er orðinn dýrari i
Þýzkalandi. Löndunum fækkar.
Verðiö á nýjum fiski hefur
hækkað um 30 af hundraði á einu
ári. Menn telja hættu á, að „við-
skiptavinir flýi úr fiskbúðun-
um” og Bremerhaven setji of-
an.
Þessar upplýsingar koma
fram i þýzkum blöðum. Þetta
er meðal annars verðið, sem
Þjóöverjar greiða fyrir
löndunarbannið á fisk islenzkra
skipa.
1 einu blaði er vitnað i
Reinhard Meiners, forstjóra
fyrirtækis i sjávarútvegi i
Bremerhaven. Hann telur mikla
hættu á ferðum fyrir þýzka fisk-
kaupmenn og stöðu Bremerhav-
en i fiskiðnaðinum. Þróuninni
verði að snúa við. Þýzk veiði-
skip verði að geta v'eitt á sinum
„heföbundnu miðum og um leið
verði að fá islenzku skipin aftur
inn i hafnirnar og endurnýja
þýzka fiskiskipaflotann.
Þar sem löndunum fækkar i
Bremerhaven, verði stöðugt að
flytja meiri fisk landleiðina yfir
landamærin frá grannrikjum V-
Þýzkalands, og þá veldur hár
flutningskostnaður miklum
erfiðleikum. — HH.
Fann þýfi, —
var stungið inn
- bls. 2-3
Tók nœrri klukkutfma að ná sambandi við símstöð
— íbúðarhúsið að Skiphyl á Mýrum brann í gœr
„Ég hef ekki nema góða
reynslu af þvi að ná sambandi
við Arnarstapa þótt utan sima-
tima sé,” sagði Lilja Jóhanns-
dóttir, húsfreyja á Skiphyl i
Hraunhreppi i Mýrum, en
ibúöarhúsiö á Skiphyl eyðiiagð-
ist I eidi i gærmorgun, án þess
að tækist að gera viövart um
það I sima, fyrr en rétt áður en
simstöðin opnaði.
Eldurinn kom upp klukkan
rúmlega tiu I gærmorgun, baka
til I kyndiklefa. 1 fyrstu var
reynt að slökkva hann með
vatni, en eldurinn komst fljót-
lega um lúgu upp á loft, og fór
þá bæði rafmagn og simasam-
band af húsinu. Þegar raf-
magnið var farið, var ekki leng-
ur vatn að hafa, þvi dælur urðu
þar með óvirkar.
Aður en siminn fór úr sam-
bandi tókst að háfa samband við
tvo næstu bæi, og var reynt
áfram þaöan að hafa samband
við simstöðina, en jafnframt
dreif fólk að til hjálpar. Um
klukkan 11 náðist samband, og
var slökkviliðið þaðan lagt af
stað þremur til fjórum minútum
siðar. Þá var bill utan úr
Hraunhreppi nærri kominn til
Borgarness með boð um
brunann.
Slökkviliðið I Borgarnesi á
brunabil af Bedfordgerð, með
góðum tækjum, en hægferðugan
til langferða, og var hann um
þrjú korter að komast að
Skiphyl, um 30-40 km vega-
lengd. Þegarhann var kominn á
leiðarenda, gekk greiðlega að
ráða niðurlögum eldsins, og
verja nýbyggt fjós, sem stendur
örskammt frá ibúöarhúsinu.
Húsið, sem brann, var hlaðiö
úr vikursteini, klætt utan fyrir
fáum árum og innréttað að
mestu úr timbri. Þakið féll á
húsinu, en innréttingar standa
að mestu á hæðinni, þar sem
eldurinn komst strax upp. Það
er þó mikið skemmt og vafa-
samt, hvort borgar sig að
endurbyggja það. Mikið náðist
út af innanstokksmunum, en
þeir eru flestir mikið skemmdir
Bæði innbú og hús voru vá-
tryggð.
A Skiphyl búa Lilja Jóhanns-
dóttir og Jón Guðmundsson
ásamt börnum sinum tveim, en
með þeim bjuggu einnig tvö
móðursystkini Jóns. Lilja
dvelur nú i Borgarnesi með börn
sin, en annað heimilisfólk
dvelur á bæjum næst Skiphyl.
-SH.