Vísir - 03.02.1975, Page 12
12
Vlsir. Mánudagur 3. febrúar 1975.
Stoke stökk úr sjö-
unda sœti í það 3ja!
— en Everton hefur enn forustu í 1. deildinn ensku
London 1. febrúar
(Reuter). — Everton
átti i hinum mestu
erfiðleikum að sigra
Tottenham 1-0 á leik-
velli sinum, Goodison
Park, og sigurinn held-
ur liðinu enn i efsta sæti
1. deildar. Everton hef-
ur 35 stig, einu stigi á
undan Ipswich Town,
sem sigraði úlfana 2-0.
Stoke City stökk úr sjö-
unda sæti upp i þriðja
eftir stórsigur gegn
Manch. City og hefur 33
stig. Burnley, sem að-
eins náði jafntefli i
Birmingham, hefur
sama stigafjölda en
lakari markatölu.
Efsta liðið, Everton,
var langt frá sinu bezta
i leiknum gegn Totten-
ham. En liðinu tókst að
skora, þegar tiu minút-
ur voru til leiksloka og
það nægði. Jim Pear-
son, sem hafði komið
inn á sem varamaður,
skoraði þetta þýðingar-
mikla mark — sendi
knöttinn framhjá irska
la nds liðsma rk verðin-
um hjá Tottenham, Pat
Jennings.
Tvö mörk eftir aukaspyrnur
færöu Ipswich sigur gegn Úlfun-
um, sem nú töpuðu sinum
fimmta leik i röð. Hið fyrra
skoraði Kevin Beattie á 23 mín.
en Colin Viljoen hið siðara fjór-
um minútum siðar.
Úrslitin á laugardag urðu
þessi:
1. deiid:
Arsenal—Liverpool 2-0
Birmingh,—Burnley 1-1
Everton—Tottenham 1-0
Ipswich—Wolves 2-0
Leeds—Coventry 0-0
Leicester—Chelsea 1-1
Newcastle—Middlesbro 2-1
QPR—Derby County 4-1
Sheff. Utd.—Luto.n 1-1
Stoke—Manch. City 4-0
West Ham—Carlisle 2-0
2. deild:
Blackpool—Sunderl. 3-2
Bolton—Millvall 2-0
Bristol Rov.—Norwich 0-2
Cardiff—Orient 0-0
Fulham—Hull City 1-1
Manch.Utd.—BristolC. 0-1
Notts. Co,— Aston Villa 1-3
Oldham—Nottm. For. 2-0
Portsmouth—Oxford 2-1
WBA—Southampton 0-3
A föstudag sigraði York City
neðsta liðið i 2. deild Sheff. Wed.
3-0 á heimavelli. I 3. deild tap-
aði efsta liðið, Blackburn,
heima fyrir Peterbro 0-1, Charl-
ton vann Aldershot 3-1, Crystal
Palace vann Bury 2-0, Southend
og Preston gerðu jafntefli 1-1, og
Plymouth vann Watford i
Lundúnum 3-1.
Stoke City náði forustu gegn
Manch. City á 44. min. og eftir
þaö var litil mótstaða hjá
Manchester-liðinu eins og svo
oft áður á útivelli á leiktimabil-
inu. Ian Moores skoraði tvivegis
fyrir Stoke — á 44. og 82. min.
Alan Hudson skoraði á 66. min.
og Geoff Hurst á 86. min.
Burnley sem Jiafði unnið þrjá
leiki i röð I 1. deild, var marki
undir i Birmingham á 22.min.
Gary Emmanuel skoraði þá sitt
fyrsta deildamark fyrir félag
sitt. Ray Hankin, miðherjinn
ungi hjá Burnley, jafnaði á 43.
min., en þrátt fyrir góða við-
leitni i siðari hálfleiknum tókst
Burnley ekki að ná sigri.
Liverpool, Middlesbro og
Debry County töpuðu öll á úti-
völlum og eru nú fjórum stigum
á eftir efsta liðinu. Alan Ball
Þeir eru markahœstir
Eftir leikina á laugardag voru
þessir ieikmenn markahæstir 1
ensku knattspyrnunni:
1. deild.
16 — Brian Kidd, Arsenal, og
Malcolm McDonald, New-
castle.
15 — Don Givens, QPR.
14 — Bob Latchford, Everton.
13 — Billy Jennings, West Ham
og Francis Lec, Derby.
2. deiid
21 —Ray Graydon, Aston Villa.
15 — Mikc Channon, Southamp-
ton, Bryan ,,Pop” Kobson,
Sunderland, og Ted McDou-
gall, Norwich
13 — Phil Boyer, Norwich.
3. deild
22 — Alan Buckley, Walsali.
21 — Peter Eastoe, Swindon.
20 — Dixie McNeil, Hereford og
Bill Rafferty, Plymouth.
4. deild
22 — Brian Clarke, Mansfield.
17 — Ray Haywood, Shrews-
bury.
16 — Kichard Habbin, Reading
og John James, Chester.
15 — Alan Woods, Newport.
verið hefur aðalmarkaskorari
Middlesbro siðasta áratuginn,
sendi knöttinn i markið hjá Ian
McFaul. En það nægði ekki —
Malcolm McDonald og Micky
Burns skoruðu fyrir Newcastle.
öll botnliðin, nema Carlisle,
náöu I stig. Neðsta liðið Luton
gerði jafntefli i Sheffield, en
Leicester tókst ekki að sigra
Chelsea á leikvelli sinum. Að-
eins jafntefli og flest bendir til
þess, að það verði Luton,
Carlisle og Leicester sem falla
— þó auðvitað sé of fljótt að spá
þvi.
Rúmlega 47 þúsund áhorfend-
ur voru á leikvelli Manch. Utd.
— Old Trafford — á laugardag
og þar með hafa rúmlega mill-
jón áhorfendur séð leiki liðsins á
leiktlmabilinu, eða mun meiri
aðsókn en hjá öðrum félögum.
Og samt leikur United i 2. deild.
En áhorfendur á Old Trafford á
laugardag urðu fyrir miklum
vonbrigðum — Manch. Utd. tap-
aði sínum fyrsta leik á heima-
velli á leiktimabilinu. Bristol
City sigraði 1-0 og hefur þar
með unnið báða leiki sina við
efsta lið 2. deildar. En Manch.
Utd. hefur þó enn fimm stiga
forskot — Sunderland tapaði
fyrir Blackpool. Eina markið á
Old Trafford skoraði Don Gillies
I síðari hálfleik.
Mikið markaregn var I leik
Shrewsbury og Doncaster i 4.
deild eða ellefu mörk. Níu
þeirra voru skoruð i siðari hálf-
leik og Shrewsbury vann 7-4. Á
Skotlandi var leik Celtic og
Dumbarton frestað vegna
rigningar — og á meðan náði
Rangers hreinni forustu I fyrstu
deildinni skozku. En tæpara
mátti það ekki standa gegn
Morton. Leikið var i Morton og
þegar aðeins fjórar minútur
voru til leiksloka tókst Rangers
að jafna i 1-1. Það var Graham
Fyfe, sem jafnaði fyrir Rangers
en John Hazel skoraði fyrir
Morton á 16. minútu. Rangers
hefur nú 37 stig — Celtic 36 stig
og bæði liðin hafa leikið 22 leiki.
Staðan i Englandi er nú þann-
ig:
1. deild:
l’hil Parkes, QPR, einn bezti markvörðurinn I ensku knattspyrnunni, var erfiður leikmönnum Derby á
laugardag.
skoraði bæði mörk Arsenal gegn
Liverpool, en yfirgaf leikvöll-
inn, haltur, eftir að hafa skorað
hið siðara úr vitaspyrnu. Bruce
Rioch skoraði fyrsta markið i
leiknum i Lundúnum á leikvelli
QPR. En forusta Derby var
ekki langvinn. QPR sýndi stór-
leik og liðið lék sér að Derby.
Don Givens,'irski markakorar-
inn mikli, skoraði tvivegis, en
ensku landsliðsmennirnir Dave
Thomas og David Nish sáu um
hin tvö — reyndar skoraði Nish i
eigið mark.
Middlesbro náði einnig for-
ustu i leiknum við Newcastle.
Það var á sjöundu minútu, að
John Hickton, miðherjinn, sem
Everton 27 11 13 3 40-25 35
Ipswich 28 16 2 10 39-21 34
Stoke 28 12 9 7 44-34 33
Burnley 28 13 7 8 48-21 33
Liverpool 26 13 5 8 36-25 31
West Ham 28 11 9 8 47-37 31
Middlesbro 28 11 9 8 38-32 31
Derby 27 12 7 8 42-37 31
Manch.City28 12 7 9 37-39 31
Leeds 28 12 6 10 39-31 30
QPR 28 11 6 11 38-37 28
Sheff. Utd. 27 10 8 9 36-39 28
Newcastle 26 11 6 9 38-42 28
Coventry 28 8 10 10 36-44 26
Arsenál 27 9 7 11 32-31 25
Wolves 27 8 9 10 33-35 25
Birmingh. 28 9 6 13 36-43 24
Tottenham 28 8 ' 7 13 36-41 23
Chelsea 27 6 11 10 28-45 23
Carlisle 28 8 3 17 28-38 19
Leicester 27 5 8 14 24-42 18
Luton 27 4 9 14 24-40 17
2. deild:
Manch. Utd.28 17 6 5 43-20 40
Sunderland 28 13 9 6 46-25 35
Norwich 28 12 9 7 39-27 33
Aston Villa 27 13 6 8 41-23 32
Bristol City 27 12 7 8 27-18 31
Blackpool 28 11 9 8 28-22 31
WBA 27 11 8 8 30-21 30
Oxford 29 12 5 12 30-40 29
Bolton 26 11 6 9 33-25 28
Hull City 28 9 10 9 30-45 28
Southampt. 27 9 9 9 35-34 27
Nottm. For. 28 10 7 11 30-36 27
Notts. Co. 28 8 11 9 33-41 27
York City 28 10 6 12 36-38 26
Orient 27 5 16 6 20-27 26
Fulham 28 7 11 10 25-22 25
Portsmouth 28 7 9 12 27-35 25
Bristol Rov.28 9 6 13 28-42 24
Cardiff 27 7 9 11 27-38 23
Oldham 27 7 8 12 26-31 22
Millvall 28 7 7 14 32-40 20
Sheff.Wed. 28 5 8 15 27-45 18
Staða efstu liða i 3. deild:
Blackburn 27 14 7 6 38-26 35
Plymouth 27 15 5 7 50-36 35
Charlton 28 15 5 8 51-39 35
Preston 28 14 5 9 43-34 33
C. Palace 29 13 7 9 41-38 33
Peterbro 27 13 6 8 28-31 32
hsim