Vísir - 06.02.1975, Síða 3
Vlsir. Fimmtudagur 6. febrúar 1975.
3
Kreppir að litlu blöðunum
— Ný vikutíðindi
úr sögunni
Prentkostnaður hef-
ur aukizt stórkostlega á
siðustu tveim árum og
eru þess nú farin að
sjást merki i blaðaút-
gáfu. Hið 17 ára gamla
blað, ,,Ný vikutiðindi”,
er nú hætt göngu sinni
og verulega farið að
halla undan fæti hjá
mörgum öðrum.
Einkum eru það sögurit og
bæjarblöö, sem ráöa illa við
hinn stóraukna prentkostnað og
má þar meöal annars nefna blað
Bjarna Guönasonar, „Nýtt
land”. Hefur útgáfa þess stöðv-
azt um sinn.
Annað er það, sem hrjáir
blaðaútgefendur, en það er
hækkun póstburðargjalda, sem
varð á siðasta ári. Askrifendur
blaða eru dreifðir um land allt.
„Þaö er verið að reyna að selja
blöð ódýrari I áskrift, en sann-
leikurinn er sá, að þau blöð
þyrftu að vera dýrari i sölu til að
hægt sé að bjóða uppá þessa
þjónustu,” sagði einn blaðaút-
gefendanna, sem Visir hafði tal
af I gær. —ÞJM
Hvað er
Grjóta-
þorp?
í frétt blaðsins á þriðjudaginn
um kaup á Vesturgötu 11 var
sagt, að sú lóð væri siðasta lóðin i
Grjótaþorpi, sem borgin ætti
ekki. Þarna átti að standa, að lóð-
in væri sú siðasta i þessari torfu,
sem enn er I einkaeign.
Þá hefur gamalgróinn Reyk-
vikingur bent á, að samkvæmt
gömlum, reykviskum skilningi
náði Grjótaþorpið aðeins milli
Túngötu og Fischersunds, þannig
að Vesturgata 11 telst samkvæmt
þvi ekki til Grjótaþorps. —SH
TASKAN
FUNDIN
Taskan er komin I leitirnar.
Taskan, sem hún Herborg Simon-
ardóttir auglýsti eftir I VIsi I gær.
Skömmu eftir útkomu biaösins
hringdi kona til Herborgar og
sagðist vera með töskuna.
Kvaðst konan hafa tekið leigu-
bil um nóttina og setzt I aftursæti
biisins. Þá hafi hún tekið eftir
töskunni á gólfinu og tekið hana i
sina vörzlu. Þegar hún svo las um
töskuhvarfið I blaöinu I gær hafði
hún strax s'amband við Her-
borgu.
— ÞJM.
„Lítið spennandi að bjástra við rúllur"
„Þegar kom að starfskynning-
unni hjá okkur i fjórða bekk Ar-
múiaskóla, báðum við tvær strax
um að fá að fylgjast með hár-
skera.' Viðhöfum haft áhuga á að
læra þá iðn,” sagði Margrét
Adólfsdóttir, þegar Visir hafði tal
af henni og vinkonu hennar hjá
Hársnyrtingu Villa Þórs I gær.
Og Bryndis Hreinsdóttir (til
hægri á myndinni) bætti við:
„Eftir að hafa verið hér á stof-
unni hefur áhuginn ekki dofnað.
Það hlýtur að vera skemmtiiegt
að vinna við að klippa hár og
snyrta. Hinsvegar höfum við
hvorug áhuga á að læra hár-
greiðslu. Það er Htið spennandi að
bjástra við rúiiur og svoleiðis lag-
að.”
Það má geta þess hér, að hér-
lendis munu aðeins vera tveir
kvenmenn starfandi sem hárske-
ar. önnur er I Reykjavík og hin I
Hveragerði. Kannski þeim fjölgi
bráðum um helming ...??!
—ÞJM/Ljósm:
Bragi
Bruni flugskýlisins
raskaði ekki óœtlunum
— Gamla tollvörugeymslan nú viðgerðarverkstœði
„Bruni flugskýlisins á Reykja-
vikurflugveili olli ekki neinni
röskun á áætiun Flugfélagsins þó
að þá hafi brunnið að mestu allur
varahlutalager Fokkervélanna,”
sagði Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi í viðtali við VIsi i gær.
„Það var mikið lán I óláni, að
stuttu áður en flugskýlið brann,
hafði verið innréttað bráða-
birgðaverkstæði I gömlu brögg-
unum, þar sem vörugeymslurnar
voru áður. Þangað var þvi búið að
flytja úr flugskýlinu ýmiss konar
tæki, dráttarvagna og annað við-
komandi viðgerðum á vélunum,”
sagði Sveinn ennfremur.
„Strax eftir brunann var tekið
til við að koma upp viðgerðaað-
stöðu fyrir Fokkerana,” hélt hann
áfram. „Var farið með hana i það
hús, sem áður hýsti tollvöru-
geymsluna hér á Reykjavikur-
flugvelli. Þar er hægt að gera við
einstaka hluti úr vélunum. Þá er
einnig hægt að vinna að smærri
viðgerðum i skýli númer fjögur.
En það skýli er alveg óupphitað
og erfitt að vinna þar þegar kuld-
inn er hvað mestur. En ef veður
veröur sæmilegt næstu daga, er
fyrirhugað að gera svonefndar
B-skoðanir þar. En B-skoðanir
eru talsvert stórar skoðanir.
En veður leyfir ekki notkun
skýlisins, verðum við að leita á
náðir flugskýlis Landhelgisgæzl-
unnar.”
ÞJM.
FJÁRSÖFNUN
í SIGÖLDU
— til styrktar fjölskyldu Geirfinns
Fjársöfnun til stuðnings fjöl-
skyldu Geirfinns Einarssonar
stendur nú yfir á ýmsum vinnu-
stöðum. Þannig eru starfsmenn
við Sigöldu nú að safna fé til
styrktar fjölskyldunni, og að
sögn Arnþórs Jónssonar, for-
manns starfsmannafélagsins
þar efra, gengur söfnunin mjög
vel.
„Júgóslavarnir hafa sýnt þar
alveg sérstakan skilning,” sagði
Arnþór. „Við festum upp til-
kynningu um söfnunina, og þeir
spurðu, hvað þar stæði. Þegar
þeir vissu, hvað i efni var, ósk-
uðu þeir að fá að vera með, og
komu fljótlega með heilt blað
fullskrifað nöfnum þeirra, sem
gefa vildu, og báðu um fleiri
blöð.
íslendingarnir hafa lika
margir gefið rausnarlega. Á
blöðum, sem gengið hafa milli
þeirra, eru loforð um 10 þúsund
króna framlag ekki óalgeng, og
allt upp i 15 þúsund krónur. Ég
vona, að okkur takist að veita
myndarlegan stuðning.” —SH
BARNAULPUR
kr. 3.950 - 4.850
HERRASTÆRÐIR
kr. 5.950.-
Póstsendum