Vísir - 06.02.1975, Side 4
Nómskeið í rœðumennsku
og fundarstjórn
Heimdallur'SUS hefur ákveðið að
gangast fyrir námskeiði i ræðu-
mennsku og fundarstiórn.
Námskeiðið verður haldið dag-
ana 10.—14. febrúar nk.
Guðni J.
Friðrik
Sophusson.
Jón G.
Zoéga
Pétur
Sveinbj.
DAGSKRÁ
10. FEBRÚAR. MANUDAGUR.
KL 20.30.
Ræðumennska og undirstöðuatriði I ræðu-
gerð.
Leiðbeinandi: Guðni Jónsson.
11. FEBRÚAR, ÞRIÐJUDAGUR.
Kl. 20.30.
Ræðumennska og undirstöðuatriði i ræðu-
gerð.
Leiðbeinandi: Guðni Jónsson.
12. FEBRÚAR, MIÐVIKUDAGUR.
Kl. 20.30.
Fundarstjórn, fundarsköp og fundarform.
Leiðbeinandi: Friðrik Sophusson.
13. FEBRÚAR, FIMMTUDAGUR.
Kl. 20.30.
Ræðumennska og undirstöðuatriði I ræðu-
gerð.
Leiðbeinandi: Guðni Jónsson.
14. FEBRÚAR, FÖSTUDAGUR.
Kl. 20.30.
Aimenn félagsstörf.
Leiðbeinendur: Jón Gunnar Zoéga og Pétur
Sveinbjarnarson.
Námskeið þetta er annað af tveim námskeið-
um sem Heimdailur hefur ákveðið að gang-
ast fyrir. Hitt námskeiðið er um almenna
stjórnmálafræðsiu, það verður dagana
17.—21. febrúar nk.
Þar verður tekið fyrir:
Sjálfstæðisstefna.
Saga og starfshættir stjórnmálaflokkanna.
Utanrfkis- og öryggismál.
Efnahagsmál.
Launþegamái.
Þátttökugjald fyrir bæði námskeiðin verður kr. 500,00.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Heimdaiiar SUS Laufás-
vegi 46, simi 17102.
Ailar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Heim-
dallar.
Stjórnin.
Mikið
úrval af
rjómabollum
fyrir
bolludaginn
Pantið í tíma.
WATSTOFAN
^hlemmtofgi
■ Laugavegi 116. Sími 10312 (áður Matstofa Austur bæjár) -k
: ★★★* «'★★★★★★★★'* ★★★★★★★★★★★ -K
REUTER
AP/NTB
Vísir. Fimmtudagur 6. februar 1975.
I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLOND I
HÆTTU SER FYRIR
BYSSUKJAFTANA
TIL GRIPDEILDA
Skriðdrekar og her-
flokkar brutu á bak aft-
ur mótþróa lögreglunn-
ar i Lima i gær i átökum,
sem talin eru hafa kost-
að að minnsta kosti
þrjátiu manns lifið.
Sjónarvottar lýstu þvi,
hvernig skriðdrekar
tóku sér stöðu á aðal-
torgi þessarar höfuð-
borgar Perú og létu vél-
byssukúlum rigna yfir
allt kvikt, sem sást.
Þessar hörðu aðgerðir héldu þó
ekki aftur af borgarbúuin, sem
sáu sér leik á borði að ræna verzl-
anir, meöan lögreglan átti sjálf i
útistööum við yfirvöld. — En
margur, sem kom út úr verzlun
með fangið fullt af góssi, lifði það
aldrei að njóta þessa illa fengna
varnings.
Jafnharðan sem fólkið hneig
niður, sumir helskotnir, birtust
sjúkrabilar, sem hirtu það upp og
óku þvl á brott.
Vlða var skipzt á skotum I út-
hverfum og náðu óeiröirnar til
hafnarborgarinnar Callaeo. —
Útgöngubann ríkti á þessum stöð-
um I nótt.
Þetta er mesti mótþrói, sem
stjórn Juan Vesasco Alvarado,
hershöfðingja hefur verið sýndur
um árabil. Hófust vandræðin,
þegar 1500 lögreglumenn kröfðust
hærri launa og bættra vinnuskil-
yrða. Lokuðu þeir sig inni i
herskálum lögreglunnar I tvo
sólarhringa og neituðu að hreyfa
sig þaðan. Stjórnin sendi þá
skriðdrekana á þá, og hófst bar-
dagi, sem stóð i 20 minútur.
Notar CIA vœndis-
konur til njósna?
Greinarhöfundurinn
Jack Anderson heldur því
fram/ aö CIA— leyniþjón-
usta Bandaríkjanna — noti
„ástargiIdrur"/ eins og
hann orðar það.
A hann þar viö, að vændiskon-
um sé egnt fyrir erlenda stjórnar-
erindreka, og þegar þær hafi
dregið þessa menn á tálar, flæki
CIA þá i net sitt.
Anderson segir, að CIA-menn
taki myndir af erindrekunum I
ástarleikjum með vændiskonum
og neyði þá slðan til samstarfs
með þvl að hóta aö birta mynd-
irnar.
Jack Anderson, sem I dálkum
sinum hefur oft orðið fyrstur til að
ljóstra upp tiöindum, er áttu að
fara lágt, heldur þvi fram, að CIA
sé að reyna aö dylja þennan þátt
starfsemi sinnar fyrir þingnefnd-
um.
„Við munum með ánægju
leggja fram sönnunargögn fyrir
þessum vinnubrögðum CIA, ef
þingmenn hafa hug á,” skrifar
Anderson.
Stórbingó — Stórbingó
í SIGTÚNI í kvöld kl. 8,30
SPILAÐAR VERÐA 18 UMFERÐIR
ALLT STÓRGLÆSILEGIR VINNINGAR
m.a. ÞRJÁR UTANLANDSFERÐIR
B.B.B. sérsíhmböndin. Borðtennissamband íslands,
Blaksamband Islands,
Badmintonsamband tslands.