Vísir - 06.02.1975, Blaðsíða 5
sir. Fimmtudagur 6. febrúar 1975.
5
3RGUN ÚTLÖND MORGÚN ÚTLÖND É MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
o .
Sporna gegn
ráðstöfunum
Fords
Ford forseti sést hér skrifa undir tilskipunina, sem fól I sér innflutningstolla á hverja oliutunnu, en
álengdar standa ráögjafar hans i efnahagsmálum.
Efnahagsráðstafanir
Fords forseta sýnast nú
alveg ætla að stranda á
þinginu, eins og reyndar
var viðbúið.
Samþykktu þingmenn
að fresta um þrjá mán-
uði gildistöku laga, sem
forsetinn hafði gefið út,
en þau fela i sér þriggja
dollara skatt á hverja
innflutta oliutunnu.
Hóta að myrða tvo
róðherra ef einn fangi
sveltur til bana
írski lýðveldisherinn
hefur hótað að ráða af
dögum tvo irska ráð-
herra, ef einhverjir
þeirra fimmtán félaga
þeirra, sem eru i
hungurverkfalli i fang-
elsi i Dublin, lifa ekki
sultinn af.
Stjórn Irska lýðveldisins tek-
ur þessa hótum alvarlega og
hafa þegar verið gerðar ráð-
stafanir til að tryggja öryggi
ráðherranna, einkanlega þeirra
Patrick Cooney og Conor O’Bri-
Einn fanganna fimmtán, hinn
29 ára Patrick Ward, liggur á
sjúkrahúsi og er vart hugað lif
eftir fjögurra vikna föstu.
Skilaboðin bárust yfirvöldum
meö prestum kaþólskra og mót-
mælenda, sem höfðu verið beðn-
ir um að koma þvl á framfæri.
Fyrsta viðvörunin mun
borizt fyrir niu dögum.
hafa
Sinn Fein, sá stjórnmála-
flokkurinn, sem kemur fram
fyrir hönd IRA, hefur efnt til
mótmælastöðu fyrir utan skrif-
stofur allra stjórnmálaflokka I
Dublin til stuðnings kröfum
fanganna, sem svelta.
Þeir krefjast þess að verða
skoðaðir sem pólitiskir fangar,
en allir eru grunaðir um aðild að
IRA, sem er útlægt bæði I norðri
og suðri. Heimta fangarnir
flutning á milli deilda í fangels-
inu og að þeir fái að njóta hlunn-
inda pólitískra fanga, sem ekki
eru hafðir innan um venjulega
refsifanga.
Panovhjón-
unum vel
fagnað
ísraelsku balletthjónin,
þau Valery og Galina
Panov, sem fluttu frá
Sovétríkjunum á sínum
tíma, komu fram í Banda-
ríkjunum í fyrsta skipti t
gær. — Gagnrýnendur luku
lofsorði á dans þeirra og
sviðsframkomu.
Einkanlega voru þeir upp-
numdir af dansi Galinu og hrós-
uöu henni upp til skýja. En þótt
þeir létu lofsyrðin einnig falla I
garö Valery Panov, þá voru þeir
þar meira hikandi.
„Næstum eins og sá gamli
Panov, sem hreif mig I Leningrad
fyrir sjö árum,” skrifaði Clive
Barnes, gagnrýnandi New York
Times.
Frances Herridge hjá New
York Post sagði, að þau hjónin
hefðu gert ótrúlega vel íniðaö viö
það, sem sviöið bauð þeim upp á,
en það var Iþróttahöllin I Phila-
delphiu. Skrifaði hún, aö kyngi-
kraftur Valerys I dansinum hefði
haft mikil áhrif á áhorfendur ,,en
þó stóð maður ekki eins á öndinni
og þegar tveir aðrir fyrrverandi
dansarar Kirovballettsins,
Rudolf Nureyev og Mikhail
Baryshnikov, komu til Vestur-
landa”.
Ballettdansarinn Vaiery Pan-
ov, sem varö aö ganga atvinnu-
laus I Moskvu i nær tvö ár, eftir
aö hann sótti um aö fá aö flytj-
ast úr landi. Panov er af
Gyöingaættum. — Hann var
kallaöur snikjudýr, þvi aö kona
hans varö aö vinna fyrir þeim
báöum, eftir aö hann fékk
hvergi vinnu, þegar spuröist út,
aö hann ætlaöi úr landi. — Hér á
myndinni heldur hann á hinum
iangþráöu vegabréfum, sem
yfirvöldin létu loksins laus.
309 þingmenn fulltrúadeildar-
innar greiddu þvf atkvæði, að
þessum efnahagsráðstöfunum
yrði frestað um þrjá mánuði. 114
voru á móti. — Þykir liklegt, að
málið hljóti sömu örlög í öldunga-
deildinni.
Ford leit á þennan innflutnings-
toll á oliu — en það hefði leitt til
hækkunar á bensini til neytenda
— sem algert frumskilyrði fyrir
aðgerðum sínum til að sporna við
kreppu á efnahagssviðinu. —
Hann hafði lýst þvi yfir, að hann
mundi beita neitunarvaldi for-
setaembættisins á samþykktir
þingsins, sem spornuðu gegn þvi
að þetta næði fram að ganga. En
þingið getur yfirstigið neitunar-
vald forsetans, ef tveir þriðju
meirihluti þingmanna standa
saman gegn þvi.
Jafnframt þessari afgreiðslu
oliutollsins I fulltrúadeildinni, var
við þvf að búast i dag, að allsherj-
arnefnd fulltrúadeildarinnar
felldi annan mikilvægan þátt i
efnahagsaðgerðum Fords. Nefni-
lega 16000 milljóna dollara skatta
afslátt, sem hann hugðist veita
fyrirtækjum til að hjálpa þeim yf-
ir erfiðasta hjallann og draga úr
atvinnuleysi. — I þess stað mun
nefndin sennilega leggja fram
sina eigin útgáfu af þessum ráð-
stöfunum.
Jarð-
skjólfti
í Kína
Kína hefur staðfest, að
mikill jarðskjálfti hafi
orðið í Lianoning-héraðinu
í norðausturhluta Kína
fyrir tveim dögum, og haf i
lækna- og björgunarlið
verið sent þangað til að-
stoðar íbúunum.
Fréttastofan „Nýja Kina” seg-
ir, að sterkasti kippurinn hafi
mælzt 7,3 stig á Richter-kvarða,
en allt var látið ósagt, hversu
alvarlegar afleiðingar hefðu hlot-
izt af þessuin jarðskjálfta.
Þó var koinizt svo að orði, aö
björgunar- og hjúkrunarlið hefði
verið sent á „hörmungarsvæðin”
og aö nefnd á vegum rikis-
stjórnarinnar hefði farið þangað
til að votta ibúunum „samúð og
stuöning”.
Onassis
batnar
flensan
hœgt
Skipakóngurinn Onassis,
sem sló niður eftir inflúensu,
er nú á batavegi og liöur bet-
ur, eftir þvi sem systir hans
segir.
„Hann er oröinn gamaii
maöur og þá vill heilsan bila,”
sagöi systirin um hinn 68 ára
gamla milljónamæring.
Efti.rköst inflúensunnar
lögöust svo þungt á Onassis,
að tveir hjartasérfræöingar
voru fengnir frá Bandarikjun-
um til aö annast hann, þar
sem hann liggur i villu sinni
skammt frá Aþenu.