Vísir - 22.02.1975, Síða 20
Patursson þingmaður teygir sig fram, en islenzku ráöherrarnir leyfa ekki auknar heimildir fyrir færeysk fiskiskip.
Líklega semst við Fœreyinga í dag
,Minnkaðar veiðiheimildir
sennilegar'
— segir Atli Dam
„Við verðum að sætta okkur
við, aö Færeyingar geta ekki
fengiðmeirifiskveiðiheimiidiren
þeir hafa haft,” sagði Atli Dam,
lögmaður Færeyinga, i viðtali
við VIsi I gærkvöldi. ,,En hugs-
anlega fáum viðsamninga, sem
veita okkur nærri jafnmiklar
veiðiheimildir, þó liklega heldur
minni en verið hefur.
Við vonumst til að samningar
takist um hádegi á morgun
(laugardag),” sagði hann.
„Einn dagur er ekki langur
timi. Það eru mörg vandamál
pólitisk og tæknileg.
Ég mótmæli þvi, að Færey-
ingar veiði mikið af smáfiski,”
sagði hann. „Það er einmitt
mikið magn af meðalstórum
fiski, sem saltfiskveiðarnar
byggja á, 50—60 sentimetra
fiski.”
Niu manna sendinefnd Fær-
eyinga ræddi i gærmorgun við
islenzka viðræðunefnd, þír sem
Matthias Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra og Einar Agústs-
son utanriksiráðherra voru i
fararbroddi. Eftir hádegi var
fundur með embættismönnum
til að undirbúa annan samn-
ingafund með ráðherrum, sem
hófst klukkan fimm og lauk
fyrir kvöldmat. —HH
Úr Fellahelli í í Munaðarnes
t gærkvöldi lagði hópur ungiinga af stað frá Fellahelii upp i Munað-
arnes i Stafholtstungum, en þetta eru unglingar sem tekið hafa þátt
I starfi Æskulýðsráðs i Fellahelli i vetur. Þau hafa safnað sér farar-
eyri til þessarar ferðar með því að halda skemmtanir og hlutaveltu.
Þau fóru i gær — undir fararstjórn Kolbeins Pálssonar og Vals
Þórarinssonar, og dvelja um helgina i Munaðarnesi. — Ljósm.
BjBj.
Laugardagur 22. fcbrúar 1975.
Verður
þyrsk-
lingur
að gol-
þorski?
„Ennþá hefur ekki komið neitt
ágreiningsefni, sem skotið hefur
verið til okkar, en hins vegar
kvartanir, — sem von er”, sagði
Jón Sigurðsson, forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar, en jafnframt
oddamaður i yfirnefnd um fisk-
verð, um vanda sem skapazt
hefur út af breyttri flokkun á bol-
fiski.
Eins og menn rekur minni til,
kom nýtt fiskverð ekki fyrr en 14.
febrúar, og jafnframt kom breytt
flokkaskipting, þannig að stærð-
arflokkar bolfisks uröu þrir i stað
tveggja áður. Þetta hefur valdið
nokkrum ágreiningi um uppgjör á
þeim fiski, sem landaö var fram
til þessa tima og að vonum met-
inn eftir gamla kerfinu, þar sem
engan óraöi fyrir breytingu á
flokkuninni.
„Mönnum var það lengi ljóst,
að þetta hlyti að koma upp”,
sagði Jón. „Neðanmáls i tilkynn-
ingu verðlagsráðs um fiskverðið
segir, að gert sé ráð fyrir, að fisk-
kaupendur og fiskseljendur komi
sér saman um stærðarflokkun
aflans frá áramótum fram að þvi
að nýja flokkunin tók gildi, en
verðlagsráðið muni veita aðstoð
við lausn slikra ágreiningsmála,
ef þau kunni að risa.
Það er einmitt það, sem við höf-
um hugsað okkur að gera, og þá
einmitt með aðstoð gagna frá
Hafrannsóknastofnun sem á
stærðardreifingu þess afla, sem á
land berst, eftir stað og tima. En
þetta getur auðvitað ekki bundið
einn eða neinn, þarna á enginn
raunverulegt dómsorð. En við
nefndarmenn munum koma okk-
ur saman um leiðbeiningu um,
hvernig sæmilega sanngjarnt
gæti virzt að leysa þessi mál. Ég
held, að þarna verði að verða
samkomulag um einhvers konar
þumalfingursreglu, sem á að
vera hægt að rökstyðja.
Ég held, að þetta sé ekki meira
mál en svo, að hægt sé að leysa
það, ef einhver smávottur er af
samkomulagsvilja”, sagði Jón
Sigurðsson.
En trúlegt má telja, að margir
hafi nú veitt stóra fiska þessar
fyrstu vikur ársins, sem einkum
hafi verið étnir fljótlega eða flak-
aðir og frystir. Hins vegar er enn-
þá auðvelt að gera sér grein fyrir
stærð saltfisksins.
—SH
Sjómenn á fjórum verstöðvum
á Vestfjörðum hafa sagt upp skip-
rúmi sínu. í gær barst fréttatil-
kynning frá sjómönnum á linu-
bátum á tsafirði, Bolungarvik,
Suðureyri og Þingeyri, þar sem
segir, að vegna „stórfelldrar
lækkunar á steinbitsverði, sem á-
kveðið var nýlega af Verðlagsráði
sjávarútvegsins úr kr. 16.85 I kr.
10.60 hvert kg, hafa flestallir, ef
ekki allir sjómenn á linubátum á
framangreindum verstöðvum
sagt upp skiprúmi sínu.
Krafa sjómanna er sú, að sama
verð verði greitt á steinbit frá
áramótum til febrúarloka, eins og
það var ákveðið af verðlagsráði
nýverið, kr. 18.60 hver kg, sem á
að gilda frá og með 1. marz. Verði
steinbitsverð ekki endurskoðað af
viðkomandi aðilum má telja ör-
uggt, að linubátar Vestfirðinga
stöövist að um það bil viku lið-
inni”.
Jafnframt kom tilkynning frá
Verðlagsráði sjávarútvegsins,
þar sem segir, að „á timabilinu
frá nóvember til febrúar er stein-
bítur venjulega svo magur, að
nokkur hluti hans er ekki manna-
matur og fleygt frá i vinnslu”.
Þá er einnig minnt á reglugerð-
argrein, þar sem segir, að óheim-
ilt sé „á timabilinu 1. nóvember
til 1. marz að landa steinbit, sem
nemur meir en 5% af afla skips i
hverri veiðiferð”.
Steinbitur var ekki nema 2,5%
af bátaafla á Vestfjörðum i janú-
ar og febrúar árin 1972 og 1973.
„Steinbitur hefur þvi haft óveru-
lega þýðingu fyrir bátaútgerð á
Vestfjörðum i janúar og febrúar
siðustu árin”.
BÍTAST UM
STEINBÍTINN
Ætlar þú
að hlaupa?
Hljómskálahlaup ÍR fer
fram i þriðja sinn á þessum
vetri sunnudaginn 23. febrúar
og hefst klukkan 2 eftir hádegi
við styttu Jónasar Hallgrims-
sonar, sunnan Hljómskálans.
1 fyrri hlaupum tóku yfir 60
þátt i hvoru, og var keppnin
mikil, en að gefnu tilefni eru
þátttakendur beðnir að niæta
timanlega og ekki seinna en
kortér fyrir tvö, svo hægt sé að
hefja hlaupið á réttum tíma.
Þátttaka er öllum hcimil.
- SH
,Þetta gat verið sprengja'
— sagði bóndinn,
sem fann furðu-
hlut í fjörunni
— trúlega um
hlustunarstöð fró
varnarliðinu
að rœða
„Það hefur verið um ellefuleyt-
ið á fimmtudagsmorgun að þetta
rak á land”, sagði Jón Einarsson
bóndiað Bakka i Austur-Landeyj-
um, er i fyrradag fann torkenni-
legan hlut rekinn á fjörur hjá sér.
Svipaðan hlut rak á sama tima
upp á Stokksnesi, þar sem varn-
arliðið hefur aðsetur.
„Ég var þarna á ferð niðri I
fjöru, sem er um fjóra kilómetra
frá bænum, mest I þeim tilgangi
að leita að reka, og sá þá er
þennan hlut rak á land”, sagði
Jón.
„Ég athugaði hlutinn nú ekki
mikið, en sá þó að hann virtist
ekki sjóvelktur. I það minnsta
hefur hann ekki legið grunnt, þvi
ekkert hrúður var á honum að
finna. Hann getur aftur á móti
hafa verið djúpt. A þessum hlut,
sem var á fjórða metra, var
fjöldi tappa, þetta gat þvi ver-
iðeinhver sprengja og ég bankaði
ekkert i hlutinn”, sagði Jón.
„Það er greinilegt, að þetta
hefur verið stjórað niður. 1 tækinu
voru virar, sem sjáanlega hafa
slitnað. Ég lét lögregluna á
Hvolsvelli vita af þessu og hún til-
kynnti Landhelgisgæzlunni um
fundinn. Landhelgisgæzlan kann-
aðist ekkert við hlutinn og lét þvi
varnarliðið vita um hann.
Þeir komu svo fljúgandi á þyrlu
og sóttu gripinn i gærmorgun.
Þeir töluðu ekkert við okkur, en
ég sá þá bara i morgunsárið
koma að ná i þennan reka”, sagði
Jón Einarsson.
Sérfræðingur einn, sem Visir
ræddi við i gær, taldi augljóst að
hér myndi um að ræða hlustunar-
stöð, sem sökkt er á hafsbotn.
Stöðvar þessar eru mjög næmar
oggeta jafnvelfylgztmeðtali um
borð i skipum á allstóru svæði.
Slik tæki munu vera notuð af öll-
um stórveldunum. önnur minni
tæki, Sonar-tæki svokölluð, eru
látin falla úr flugvélum og sökkva
þá niður á sjávarbotn. Mun varn-
arliðið dreifa þeim reglulega viða
um hafsvæðið við Island. Senni-
lega er þó hér um að ræða stærri
stöð en þessar og ekki óliklegt að
hún sé ættuð frá stöðinni i Stokks-
nesi, enda þótt ekki sé hægt að
fullyrða enn sem komið er um
það.
—JB/JBP
vísm
—SH