Vísir


Vísir - 04.03.1975, Qupperneq 3

Vísir - 04.03.1975, Qupperneq 3
Vlsir. Þriöjudagur 4. marz 1975 3 Stórt mótorhjól í árekstri Kona, sem ætlaði að aka bil sin- um af Kringlumýrarbrautinni inn á Hafnarfjarðarveginn um klukkan átta i gærkvöldi varð fyrir þvi óhappi að aka I veg fyrir mann á stóru mótorhjóli, sem kom suður Kringlumýrar- brautina. Billinn lenti á afturhjóli mótor- hjólsins og á fæti knapans, sem við það missti stjórn á hjólinu og hafnaði á ljósastaur utan vegar. Pilturinn hruflaðist mikið á hné og bólgnaði á fæti. Hann var flutt- ur á slysadeild Borgarsjúkra- hússins til frekari rannsóknar. -JB. Raunverulegt fiskverð svipað hér og í Fœreyjum ,,Ég hef ekki tekið eftir þvl, að fiskverð væri að ráði hærra I Færeyjum en hér, ef tekið er til dæmis eitt ár. En það er fiókið reikningsdæmi að bera saman verðið þar og hér,” sagði Eyjólfur Isfeld Eyjólfson, fram- kvæmdastjóri Sölumiöstöðvar- innar, I viðtali við blaðið. Oft er talað um, að fiskverð sé mun hærra I Færeyjum, og menn spyrja, hvernig þaö megi vera. „Það verður að taka allt sjóöakerfið með i reikninginn,” sagði Eyjólfur og benti áað hér er mikið tekið af fiskverði til margs konar sjóða útvegsins óg útflutningsgjalda, sem verður að taka með, svo og verðjöfnunarsjóö. Þá hafa Fær- eyingar öðruvisi stærðar- flokkun, hátt verð á stórum fiski, en við förum milliveg. A saltfiski hefur verið mjög gott verð á stórum fiski, og leggja Færeyingar miklu meira upp úr saltfiski en við. Þá breyta Færeyingar fiskverðinu mjög titt, til dæmis voru þrjú verð I janúar, sagði Eyjólfur. „Skýringin á mismuninum er fyrst og fremst, að annað fyrir- komulag er við útreikninga á verðinu,” sagði ólafur Guðmundsson i Þórshöfn, sem gjörþekkir fisksölumálin. „A verðið hér I Færeyjum er eigin- lega ekkert lagt af álögum. Það er vlst ekkert annað en litið prósent, sem fer til launa- jöfnunar sjómanna. Verðið, sem borgað er i Færeyjum, er þvi meö engum frádrætti nema þetta.” ólafur sagði, að með samningum við Coldwater, félag Sölumiðstöðvarinnar i Bandarikjunum, væri frystur fiskur Færeyinga seldur með hinum islenzka. Saltfiskinn sjá Færeyingar um sjálfir. Frysti fiskurinn væri mikið pakkaður i smáöskjur, og tekizt hefði að halda háu verði á honum. Þá sagöi Ólafur, að rikið greiddi færeyskum sjómönnum styrk, sem að sjálfsögðu fæst með sköttum á landsmenn. -HH. HÆTTI SONGNAMI, - GERÐIST USTMÁLARI Hann hefur lært hjá Myndsýn, þar sem hann naut aðallega kennslu Einars Hákonarsonar. Þar fyrir utan hefur hann farið i námsferðir til Hollands, Frakk- lands og Danmerkur. Fyrstu sýningu sina hélt Jón M. Baldvinsson hjá Guðmundi á Mokka skömmu eftir opnun þess staðar. Þá hafði hann sýn- ingu i húsi Guðspekifélags Is- lands við Ingólfsstræti og 1973 hélt Jón sýningu i sýningarsal bókasafnsins i Horsens og hlaut þar góöa dóma. Jón á nú nokkur málverk á samsýningu józkra listmálara, sem haldin er á vegum danskra fræðsluyfirvalda. Sýningin er opin 4-10 virka daga og 2-10 um helgar. — EVI Um 700 manns hafa þegar séð sýningu Jóns M. Baldvinssonar, sem opnaði sýningu . að Kjarvalsstöðum 1. marz sJ. og stendur hún til 11. marz. ' Jón kvaðst vera mjög ánægð- ur með, hvernig sýningin geng- ur og hafa þegar selzt 19 mál- verk af 91, sem er til sýnis. Jón M. Baldvinsson listmálari fæddist i Reykjavik 1927. Hann fluttist til Danmerkur til náms og dvalar 1945. 1 upphafi lagði hann stund á söngnám og hélt þvi áfram eftir að hann kom aft- ur til Islands, en nam ennfrem- ur teikningu. Hann hætti siðan söngnámi, en hélt áfram myndlistariðkun- um i fristundum. Málaði aðal- lega oliumyndir. 200 lína símastrengur slitnaði á Grandanuni Fullnaðarviðgerð ekki lokið enn Krðpp eru bógs manns kjör Fyrirtæki og stofnanir á Grandagarði voru simalaus í allan gærdag á meðan tveir símvirkjar unnu stanzlaust við að tengja 200 lína síma- streng, sem slitnað hafði þar um morguninn. Vinnuflokkur frá Rafveitunni var við skurðgröft syðst á Grandanum við hið nýja verzlunarhús Ellingsens. Flokkurinn var útbúinn linu- kortum af svæðinu, en ekki var það nákvæmara en það, að skurðgrafa, sem þarna var við vinnu, kom upp með 200 lina simakapal i einni skóflunni. Simalina þessi var á aðeins 20 sentimetra dýpi, en að öllu jöfnu eiga simalinur að vera I það minnsta 90 sentimetrum undiryfirborðinu. Gröfustjórinh sagðist ekki einu sinni hafa ver- ið farinn að hugsa út I simalinur á þessu dýpi. Þar sem um sveran sima- streng var að ræða, tekur það langan tima að koma honum saman á ný. Þess má geta að Slysavarna- félagið og Grandaradió fóru úr simasambandi við þessa bilun og var lögð megináherzla á að koma þeim linum i samband á ný. 1 morgun höfðu nauðsynleg- ustu linurnar verið tengdar, en ekki var búizt við að fullnaðar- viðgerð á linunni lyki fyrr en einhvern tima I dag. —JB Kröpp eru bágs manns kjör, segir máltækið og nú virðist kreppunnar vera farið að gæta hjá þeim lág- launuðu. Lögreglunni var i nótt tilkynnt um innbrot i matvöruverzlunina Ingólfskjör við Grettisgötu og hélt lögreglubill þegar á staðinn. Þegar lögreglumennirnir komu að verzluninni, sáu þeir, hvar maður var að gera tilraun til innbrots. Hann var þegar hand- tekinn. Þegar farið var að yfirheyra manninn, sagðist hann vera öryrki og að bæturnar væru þaö litlar að þær hrykkju ekki fyrir mat. Hélt hann þvi fram, að nokkrum sinnum hefði það komið fyrir, að hann hafi þurft að brjót- ast inn i matvöruverzlanir til að komast hjá sulti. -JB. „Þetta var ofsaleg lífsreynsla" — sagði stúlkan sem sat í fangelsi í Bretlandi innan um þjófa og morðingja, en hún var nýlega sýknuð af að vera viðriðin eiturlyfjamól ,,Þetta hefur verið ofsaleg lífsreynsla. Ég hefði aldrei trúað að ég ætti eftir að fara í gegn- um annað eins," sagði stúlkan sem var sýknuð nú á dögunum af því að vera viðriðin eiturlyfja- mál í Bretlandi, en Visir ræddi við hana í gær. Stúlkan er enn i Englandi, þar sem hún er ekki enn búin að fá nauðsynlega pappira til þess að komast heim. Hún sagði, að hún hefði setið inni i Holloway Prison i 3 1/2 mánuð. Sagðist hún ekki vita betur en það væri eina kvenna- fangelsið fyrir „Top security” þá sem þyrftu hina ströngustu aðgæzlu. „Það er synd að segja, að það hafi verið grin að sitja ákærð innan um morðingja eiturlyfjaneytendur og annan óþjóðalýð”, sagði hún. „Ég var búin að vera á nám- skeiði i ensku o.fl. hér i Bret- landi og var eiginlega að fara heim, þegar ég var tekin föst. Ég hef miður góða reynslu af brezku lögreglunni og vildi ekki lenda i henni aftur. Ég hef alltaf verið bjartsýn og vonað að sannleikurinn kæmi i ljós”, hélt hún áfram. Hún sagðist ekki hafa orðið fyrir neinu ónæði eða upp- hringingum, þar sem hún dvaldi i umsjón islenzka sendiráðsins i London, en þar var hún i um 3 l/2mánuð og mátti sem minnst hreyfa sig þaðan. „Þeir, sem i eiturlyfjahringn- um stóðu, vissu lika, að ég var ekkert viðriðin þettá mál, svo að það var engin ástæða fyrir þá að tala við mig” sagði hún. Hún sagðist hafa eytt þessum siðustu mánuðum við lestur og svo bara beðið og vonað. Málið átti að takast upp fyrir jólin, en svo varð þessi dráttur á. „Ég veit eiginlega ekki hvernig mér var innanbrjósts þegar dómarinn sagði að hann fyndi engar sannanir hjá lög- reglu til þess að dæma og réttarhöldin voru stoppuð og dómrrinn sagði aö ég væri frjáls. Loksins. Loksins var ég laus,” sagði hún —EVI—

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.