Vísir - 04.03.1975, Page 16
VISIR
Borðum við dýrasta
sykur í heimi?
— verðlœkkanir ytra,
en ekki hér
Sykursekkur úr 240 krónum
í 13 þúsund ú örfúum úrum
SYKURINN, — lúxusvara á tslandi meðan hann lækkar annars
staðar.
,,Það vill svo til, að hér
á skrifstofunni hjá mér
er einmitt Breti, sem var
að fá bréf að heiman þar
sem bréfritari segir hvað
sykur sé orðinn hræðilega
dýr út úr búð í Bretlandi.
Kilóið kosti 35 pens eða
sem svarar 125 krónum."
Þannig svaraði Brian
Holt, ræðismaður, þegar
blm. Visis bað hann um
að afla blaðinu
upplýsinga um smá-
söluverð á sykurkílóinu i
Bretlandi.
Hvað skyldi brezki bréf-
ritarinn segja, ef hann heyrði,
hvað kilóið af sykri kostar hér á
landi? Eftir siðustu gengis-
fellingu og söluskattshækkun,
kostar kilóið af sykri 392 krónur
út úr búð.
Visir aflaði sér upplýsinga um
verð á sykri i fleiri löndum en
Bretlandi. Af þeim löndum, sem
tekin voru með i dæmið,
reyndist Amerika vera með
dýrasta sykurinn. Þar kostar
kilóið 204 krónur, sem er þó 188
krónum minna en hér.
Þá var þær upplýsingar að fá,
að sykurkilóið i V-Þýzkalandi
kostar eitthvað á milli 120 til 130
krónur, en i Danmörku er verð á
sykurkilóinu út úr búð 104
krónur islenzkar.
Engar verðlækkanir hér
Miklar verðlækkanirhafaorðið
á sykri á heimsmarkaði siðustu
mánuði, en þeirra verðlækkana
hefur aldrei orðið vart hér-
lendis.
,,Það er rétt, að verð á sykri
hefur lækkað mikið á heims-
markaði siðan verðið var á
toppnum. Ætli það hafi ekki
verið i nóvember, en siðan hefur
orðið allt að 30 til 40 prósent
verðlækkun,” svaraði Hilmar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Kötlu hf., þegar Visir sneri sér
til hans i þessu sambandi.
Ástæðan fyrir þvi, að hér hafa
engar verðlækkanir orðið á
sykri, er sú,” hélt Hilmar
áfram, ,,að islenzkir sykur-
innflytjendur keyptu aldrei
sykur á meðan verðið var á
toppnum. Þess varð þvi aldrei
vart hér, hvernig verðið steig og
seig siðan aftur.”
Ekki sagðist Hilmar búast við
þvi, að sykur ætti eftir að
lækka hér i verði á næstunni.
,,En hins vegar er búizt fast-
lega við þvi, að verðið eigi eftir
að lækka enn meira á heims-
markaði þegar liða tekur á árið,
vegna stóraukins framboðs.
Þeirra verðlækkana yrðum við
áþreifanlega vör hér á landi,”
bætti Hilmar við.
úr 240 krónum
í 13 þúsund
„Verð á sykri hefur stöðugt
verið að hækka siðustu þrjú árin
og tók allverulega sveiflu
uppávið 1973 og ’74,” sagði
Hilmar. ,,Og hann hélt áfram:
„1 lágmarki var sykurverðið
1966. Þá kostaði 50 kilóa
sekkurinn 240 krónur.”
„Hvað hann kostar frá heild
sölunni i dag? Eitthvað i
kringum 13 þúsund krónur.”
„Þegar við berum saman
verð á sykri hér og t.d. i Bret-
landi er rétt að muna eftir
niðurgreiðslunum, sem eru á
sykri þar i landi,” sagði Hilmar.
„EBE-löndin eru með háa út-
flutningstolla á sykri og er
hagnaðurinn notaður til niður-
greiðslu á sykri til iðnaðar og
innanlandsneyzlu. Hér er ekki
um að ræða neina niðurgreiðslu
á sykri.” -ÞJM.
Sakna
kúnnans
Lögreglan veitir ýmsum af úti-
gangsmönnum borgarinnar skjól
á næturnar, þegar kuldinn sverf-
ur að. 1 daglegu tali eru menn
þessir nefndir hinir föstu kúnnar
lögreglunnar og oft á tfðum er
lögreglan eini aðstandandi þess-
ara manna.
Þegar lögreglan hefur engar
spurnir af þessum föstu kúnn-
um sinum um nokkurt skeið fara
þeir að spyrjast fyrir um þá og
kanna hvort til þeirra hafi sézt
annars staðar.
Nú saknar lögreglan eins sliks
fasts kúnna, þar sem hann hefur
hvorki komið fram hjá Hjálp-
ræðishernum né lögreglunni i
hálfan mánuð. Ef ekkert spyrst til
hans fljótlega i sjúkrahúsum eða
á hælum verður auglýst eftir hon-
um og leit hafin.
—JB
Hvarf af
Kópa-
vogshœlinu
Piltur, sem dvelst á Kópavogs-
hælinu hvarf þaðan í gærdag, og
var auglýst eftir honum f útvarp-
inu um kvöldið. Lögreglunni i
Kópavogi var tilkynnt um hvarf
piltsins um klukkan hálfátta og
hóf hún þegar eftirgrennslanir i
bænum.
Til stóð að fá slysavarnafélag-
ið til aðstoðar i gærkvöldi, þegar
tilkynning barst frá Kópavogs-
hælinu um klukkan niu um kvöld-
ið, um að pilturinn hefði komið
fram.
„SPRAY" BRUSI
SPRAKK...
og barn liggur ú spítala með
2. stigs bruna
Þannig var „spray” brúsinn útleikinn eftir að hann sprakk.
„t gærkvöldi um niuleytið
voru 2 börn á aldrinum 9-10 ára
að leika sér úti i Kleppsholtinu.
Leikurinn reyndist heldur betur
hættulegur, þvi að þau voru að
kveikja i blöðum og voru einnig
með „spray” brúsa. Ekki vildi
betur til en svo, að brúsinn
sprakk, og nú liggur annað
barnið á Landspitalanum með
annars stigs bruna í andlitinu”.
Þetta sagði okkur Sverrir
Meyvantsson i morgun og sýndi
okkur sprunginn brúsann um
leið.
„Ég vil eindregið hvetja full-
orðið fólk til að skilja ekki eftir
„spray” brúsa á glámbekk, þar
sem börn geta náð til þeirra, þvi
að þeir eru stórhættulegir, komi
þeir nálægt hita eða eldi,” sagði
Sverrir ennfremur.
A öllum „spray” brúsum
stendur, að ekki megi sprengja
þá (t.d. með að negla i þá með
nagla, eins og börnum gæti dott-
ið i hug) og ekki megi þeir
standa nálægt hita. Þola þeir
nokkuð mismunandi hitastig.
T.d. er stórhættulegt að hafa
„spray” brúsa i glugga. Senni-
lega kannast margir við að hafa
slikan brúsa i baðglugganum
eða i bilnum.
Þá er það mjög brýnt, að
börnum sé sagt frá hættunni af
þvi að leika sér með „spray”
brúsa.
SA FOLKSFLUTNINGABILINN
KOMA SKOPPANDIÁ MÓTI SÉR
„Þetta geröist allt svo skjótt,
aö ég hafði enga möguleika á að
forða mér eða rútunni undan þvi
sem var að gerast,” sagði ivar
Reimarsson bilstjóri á stórum
fólksflutningabil, sem var á leiö
út úr Sandgerði er hann varð
vitni að harkalegum árekstri á
gatnamótum Suðurgötu og
Stafnesvegar.
„Ég sá er stór ameriskur
fólksbill og litill fólksflutninga-
bill skullu saman á gatnamót-
unum, og siðan þegar fólks-
flutningabillinn skoppaði yfir
veginn, hafnaði á þakinu og
hoppaði aftur og lenti framan á
rútunni hjá mér,” sagði ívar.
Áreksturinn varð um hádegis-
bilið i gærdag. Fólksbillinn kom
eftir aðalgötu, en litli fólks-
flutningabillinn átti biðskyldu
við gatnamótin. Hann ók þó yfir
og hafnaði fólksbillinn á aftur-
horni hans. Handan við gatna-
mótin stanzaði bilstjórinn á
stóra fólksflutningabiínum, er
hann sá hvað verða vildi. Engir
farþegar voru i stóra bilnum, en
hann hafði nokkrum billengdum
frá hleypt siðasta farþeganum
út. Það var piltur, sem kominn
var upp á tröppur heima hjá
sér, er óhappið varð.
Bilstjóri minni fólksflutninga-
bilsins hruflaðist og bólgnaði
nokkuð, en ekki var talið að
meiðsli hans væru mjög alvar-
leg. Engir farþegar voru i þeim
bil né i ameriska bilnum.
Ameriski fólksbiilinn hafnaði að
lokum uppi á steinvegg og er
sennilega ónýtur á eftir.
„Nei, ég meiddist ekkert við
þetta óhapp”, sagði Ivar. „Rút-
an min skemmdist að visu tölu-
vert, krumpaðist öll að framan
og önnur framrúðan mölbrotn-
aði, þannig að glerbrotin dreifð-
ust um allan vagninn. En rúðan
min megin sprakk þó aðeins,
þannig að ég slapp að mestu við
glerbrotaregnið,” sagði Ivar
Reimarsson bilstjóri á sér-
leyfisrútunni, að lokum.
— JB
—JB